Alþýðublaðið - 12.02.1985, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 12.02.1985, Blaðsíða 1
alþyöu Sjómannaverkfallið Flotinn stöðvast nk. Þriðjudagur 12. febrúar 1985 \wBit sunnuda: hafi ekki samist fyrir bann tíma 29. tbl. 66. árg. Karl Steinar Guðnason: Atvinnuleysi að verða viðloðandi á Suðurnesium Næstkomundi laugardag verður lialdinn almennur fundur í Félags- bíói í Keflavík. Að þeim fundi standa ýmsir aóilar á Suðurnesjum, sem tengjast sjávarútvegi. Eru það bæði verkalýðsfélög á svæðinu, út- gerðarmenn og aðrir vinnuveitend- ur. Hið slæma ástand sem ríkt hef- ur í sjávarúlvegsmálum á svæðinu, hefur nú fylkt þessum aðilum sam- an og ætla þeir í sameiningu að reyna að snúa öfugþróuninni við. „Tilgangur fundarins er að vekja athygli á vandanum sem steðjar að sjávarútvegi á svæðinu“, sagði Karl Steinar Guðnason, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, þegar við grennsluð- umst fyrir um tilgang þessa fundar. „Það sem hefur gerst á svæðinu er að síðan í haust hefur 1000 tonna kvóti verið seldur burt af svæðinu samhliða því að fyrirtæki í sjávar- útvegi hafa gefist upp vegna rekstr- arörðugleika. Eftir stendur svo hópur af verkafólki og á í enga aðra atvinnu að venda. Atvinnuleysi er að verða viðloðandi hér á Suður- nesjum og ekkert til sem heitir at- vinnuöryggi fyrir þetta fólk. fund- urinn er tilraun til að snúa saman bökum og krefjast þess að útgerðin Aðför íhaldsins að BÚR. Ottó N. næst- ur á sölulista? Nú hefur meirihluti íhaldsins í stjórn borgarinnur og i útgeröar- ráöi Bæjarútgeröar Reykjavíkur staöiö að sölu tveggja af togurum BÚR, en þaö er þriöjungur skipa fyrirtækisins. Það sem er liins vegar verra í málinu er aö ekkert liggur fyrir um að söluherferöinni sé lok- ið, þvert á móti hafa loðin svör borgarstjóra og formanns útgerðar- ráðs gefið tilefni til aö ætla að enn einn togarinn verði seldur á næst- unni og hafa augu manna beinst að Ottó N. Þorlákssyni. Þegar togarinn Bjarni Benedikts- son var seldur var borgarstjóri spurður að því hvort vænta mætti að fleiri skip yrðu seld. Svaraði hann því til að það væri ekki á dag- skrá, en að sérhvert tilboð yrði skoðað rækilega. Nú hefur togar- inn Ingólfur Arnarson verið seldur og alls höfðu 18 áhugasamir aðilar lýst áhuga sinunt á kaupum. Á borgarstjórnarfundi í síðustu viku vakti Sigurður E. Guðmundsson at- hygli á þessu og ítrekaði fyrirspurn um hvort enn stæði til að selja fleiri, en með sölu á einu skipi í viðbót væri íhaldið búið að selja helming skipastólsins. Svör borgarstjóra voru mjög óljós og sá Sigurður E. Guðmundsson því ástæðu til að ætla að slíkt kæmi vel til greina. Sigurjón Pétursson lét í ræðu að hinu sama liggja, að það væri eng- an veginn útilokað að íhaldið héldi áfram á söniu braut. Ragnar Júlíus- son formaður útgerðarráðs stóð upp á fundinum og lýsti því yfir að Sjálfstæðisflokkurinn vildi efla Bæjarútgerðina og þótti mönnum sú yfirlýsing ansi skondin í ljósi Framh. á bls. 2 fái rekstrargrundvöll og einnig að verkafólk fái betri kjör og atvinnu- öryggi. Hingað til hefur tíðkast að hægt er að senda það heim með viku fyrirvara. Slíkt óöryggi þekkist ekki í neinni annarri atvinnugrein. Á fundinunt munum við leggja fram tillögur til úrbóta og er verið að vinna að þeim nú“ Þá sagði Karl Steinar að algjör samstaða hel'ði náðst með þessum aðilunt að krefjast atvinnuöryggis fyrir verkafólkið og betri skilyrði fyrir útgerðina. Ein ástæða þess að menn ákváðu að snúa bökum saman nú eru þau ummæli Halldórs Ásgrímssonar i sjónvarpinu fyrir stuttu, um að rctt væri að leggja niður útgerð á suð- vesturhorninu. Sagði Karl að þrátt fyrir þessar hugrenningar sjávatút- vegsráðherrans þá hefðu menn full- an hug á að Italda útgerð áfram frá Suðurnesjum, enda hel'ði til skamms tima vaxtarbroddur út- gerðarinnar verið á Suðurnesjum. Svo má heldur ekki gleyma því að fleiri hundruð manns missa atvinnu sína leggist útgerðin af. í byrjun janúar voru á sjötta hundrað manns atvinnulausir á svæðinu, en atvinnuleysið hefur minnkað núna enda vertíðin komin í gang. Það voru um 100 manns sent fengu greiddar atvinnuleysisbætur í siðústu viku. „Þegar aftur slaknar á vertíðinni þá skellur atvinnuleysið aftur á með fullum þunga. Það sem þykja sjálfsögð mannréttindi hjá öðrum starfsstéttum, er fótum troðið gagnvart fiskverkunarfólkil Þá sagði Karl að frumvarp Guð- Framh. á bls. 2 Skipulagsbreytingar á flokksskrifstofu Framkvæmdastjórn Alþýðu- flokksins samþykkti á fundi sínum sl. sunnudag tillögur að „starfs- mannahaldi og verkaskiptingu í f!okksmiðstöð“ Alþýðuflokksins. Samkvæmt hinni nýju skipan mála, þá verður starfsmannahald á flokksmiðstöð með eftirfarandi hætti: Starf framkvæmdastjóra í núverandi mynd verður lagt niður. Ráðinn verður útbreiðslufulltrúi, sem stýrir upplýsingamiðlun og fjáröflun. Þá verður á flokksmið- stöð erindreki, sem ráðinn var sam- kvæmt samþykkt flokksstjórnar á fundi hennar 2. febrúar síðastlið- inn. Erindreki er einnig þinglóðs Alþýðuflokksins og var Birgir Dýr- fjörð kjörinn til þeirra starfa á nefndum fundi flokksstjórnar. í þriðja lagi verða tveir menn ráðnir i hlutastörf og eiga þeir að vinna að útgáfumálum: a) Til að sinna út- Framhald á bls. 2 Nú þcgar undirincnn á farskip- um liafa samið og farskipin geta aftur tckið upp eðlilegar siglingar til og frá landinu þá stefnir í átök hjá öðrum hetjum hafsins. Sjó- mannasamband íslands hefur boð- að til verkfalls og liefst það næst- komandi sunnudag, hafi ekki tekist samningar fyrir þann tima. Hafþór Rósmundsson, starfs- maður Sjómannasambandsins, Isagði okkur í gær, að engir fundir hefðu verið haldnir með deiluaðil- um alla síðustu viku vegna þess að formaður LÍÚ hefði verið staddur erlendis i einkaerindum. Fundur hefði hinsvegar verið boðaður hjá sáttasemjara seinnipartinn í gær. Hafþór sagði að enn hefði ekkert þokast í samkomulagsátt. Frá ára- mótum hefðu verið haldnir 6 fundir og á þeim fundum hefur komið í Ijós að samninganefnd VSÍ og LÍÚ hefur ekkert viljað ræða málin við sjómenn. Hinsvegar kenna þeir hjá VSÍ því um að sjómenn væru litt viðræðufúsir. Sagði Hafþór að á síðasta l'undi þeirra hjá sáttasemj- ara hefðu samningamenn sjó- manna viljað fá að hitta samninga- Framh. á bls. 2 Samið við undirmenn á farskipum Síðdegis á sunnudag undirrituöu samninganefndir undirnianna á farskipum og skipaielaganna samninga og þar mcð var verkfalli undirmanna aflétt. Atkvæða- greiðslu um samningana lýkurekki fvrr cn 22. febrúar. Samkvæmt þessum samningi hækka laun undirmanna á farskip- um um rúm 15% frá undirritun samnings og auk þess verður greitt 11% sjóálag á mánaðarlaun. Með því er tilfallandi yfirvinnu breytt í fasta greiðslu. 1. mars hækka síðan launaliðir um 2,4% og 1. maí um önnur 2,4%. Gildistími samning- anna er til 31. desember 1985. Það mun hafa hal't úrslitaáhrif á að samningar náðust að fjármála- ráðherra lofaði undirmönnum sér- stökum sjómannafrádrætti á skött- unum. Nemurhann 10% af brúttó- tekjum og er sami frádráttur og sjó- menn á fiskiskipum hafa. 10 skip stöðvuðust á meðan á verkfallinu stóð en það skall á 30. janúar sl. Hversu lengi þau geta siglt er samt enn óráðið, því enn er eftir að semja við yfirmenn á far- skipum. Það sem vantar á minnisblöðin Svokallaðar „efnahagsráðstaf- anir“ hafa litið dagsins ljós. Eftir erfiða fæðingu gátu stjórnar- flokkarnir loks komið sér satnan um almennan loforðalista, gömul og ný loforð voru sett á minnis- blöð forsætisráðherra til handar- gagns. Nú um helgina benti Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, á það í sjón- varpi, að hér væru í raun ekki um efnahagsráðstafanir að ræða, sem koma eigi til framkvæmda strax, heldur listi yfir loforð, sem hafa verið gefin áður, en ekki staðið við. Jón Baldvin benti á að það sem vantaði á þessi minnisblöð væri meðal annars eftirfarandi: Það er ekkert um sjávarútveginn (og sjómannaverkfall fram- undan). Það er ekkert um upprætingu söluskattsvika. Það er ekkert um skattlagningu banka og ráðstöfun á hagnaði Seðlabanka. Það er ekkert um skattlagningu á skattsvikinn verðbólgugróða stóreignafyrirtækja og stór- eignamanna. Það er ekkert um aðgerðir gegn einokunarhringjum (SÍS, olíu- félögin, Aðalverktakar, trygg- ingafélög). Það erekkert um einokunargróða milliliðakerfisins í landbún- aði. Það er ekkcrt um leiðir til að lækka innflutningsverð. Það er ekkert um atvinnustefnu, markaðsmál, frelsi til útflutn- ings. Það er ekkert um að draga úr „vel- ferðarkerfi fyrirtækjanna" og skerða ríkisbáknið. Það er ekkert um ranglátt lífeyris- réttindakerfi. Það er enga byggðastefnu að finna. Það er liins vegar ráðgert að- hald áfram: (1) Að auka erlendar lántöknr miðað við 1984. (2) Að líða viðskiptahalla upp á 4—5 milljarða. (3) Að reka ríkissjóö með halla. (4) Aö viðhalda ránvaxtastefn- unni. Þrjár tillögur, fengnar að láni frá Alþýðufloknum, eru allar til- bóta: (1) Að fjölga skattrannsóknar- mönnum. (2) Veita húsbyggjendum skattívilnanir. (3) Takmarka húnæðislán við hóflegri íbúðarstærð en nú er. (4) Bæta fyrir misgerðir við ibúðakaupendur 1980—84. Hins vegar vantar tillögur um fjármögnun húsnæðislánakerfis- ins og Jón Baldvin benti á að til- lögur uni allt, sem á vantar, fáist ókeypis hjá Alþýðufiokknum.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.