Alþýðublaðið - 16.02.1985, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 16.02.1985, Blaðsíða 4
Laugardagur 16. febrúar 1985 VANTRAUST á ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar Pólitík er að vilja. Ef við vitum, hvað við viljum, getum við í sam- einingu breytt þjóðfélaginu. Þess vegna hefur verið sagt að stjórn- málaflokkur sé „skipulögð skoð- un“. Þess vegna getur þátttaka í stjórnmálum verið skapandi starf, þrátt fyrir að ýmsir fjölmiðlar láta ganga róginn um stjórnmálamenn og stjórnmálaflokka. Minnumst þess, að það er ekki ranglæti hinna illviljuðu, sem er verst; það versta er afskiptaleysi hinna góðviljuðu. 1. Að greina vandann Hvernig vill Alþýðuflokkurinn breyta þjóðfélaginu? Áður en ég svara því þarf að skil- greina vandamálin, sem okkur varðar mestu að finna lausn á. Ég nefni tvö: 1. Sl. 2 ár höfum við sameiginlega orðið fyrir tekjumissi (vegna minna sjávarfangs, óhagstæðari aflasamsetningar og markaðs- erfiðleika). Tekjutapið má áætla á bilinu 5—6 milljarða króna. Þessu tapi þarf að jafna niður á þjóðina, eftir efnum og ástæð- um. Það er af óviðráðanlegum orsökum. 2. Hitt vandamálið þarfnast skýr- inga. Beztu hagfræðingum okk- ar ber saman um, að við erum nú a. m. k. 25 milljörðum króna fátækari en við værum, ef verð- • bólgunni hefði ekki verðið sleppt lausri á sl. áratug, ef er- lendu lánin, sem við slógum eins og nýríkir flottræflar í inn- kaupaleiðangri, hefðu skilað okkur lágmarksarði. Sumir kalla þetta vitlausa áratug- inn; aðrir framsóknaráratuginn. Allavega var þetta „áratugur hinna glötuðu tækifæra“. EF Kröfluflokkarnir þrír hefðu aldrei fengið að reisa íslenzku hugviti níðstöng við Kröflu, allt i skuld . . . EF þessir fjárglæfrar hefðu ekki kostað okkur jafn mikið í vöxt- um og afborgunum á ári og að reka Háskóla íslands . . . EF seinustu 20 „Steingrímstogar- arnir“, sem nú eru undir hamr- inum, hefðu aldrei verið keypt- ir . . . EF við hefðum ekki sökkt helft er- lendu lánanna í járnbentar virkjanir í óbyggðum, án þess að vita fyrirfram, hvernig við breyttum þessum erlendu skuldum i hvítagull . . . EF líffræðingurinn frá Leipzig hefði ekki í 5 ár haft af okkur 2,5 milljarða i erlendum gjald- eyri frá erlendum auðhring . . . EF við hefðum varið þeim 13—14 milljörðum, sem við höfum greitt sl. 6 ár með offramleiðslu og milliliðakerfi landbúnaðar- ins á arðvænlegri hátt . . . EF við hefðum í tæka tíð stöðvað „fjárflóttann“ frá heilbrigðu atvinnulífi í bankahallir, slát- urhús (sem rekin eru einn mán- uð á ári), undanrennumusteri, verzlunarhallir og villur hinna nýríku . . . EF við byggjum ekki við fimm- tungi hærra innflutningsverð en aðrar Norðurlandaþjóðir, þrisvar sinnum hærri farm- gjöld, okurverð á olíu . . . EF við hefðum ekki hegðað okkur eins óg nýríkir olíufurstar í gleðihúsi, værum við nú 25 milljörðum króna ríkari en við erum. Þá gætu íslenzkir atvinnuvegir greitt laun fyrir heiðarlegt vinnu- framlag, sem hægt væri að lifa af. Þá gætu tryggingabætur til hinna öldruðu og sjúku verið rausnar- legri. Þá væru lífskjör okkar enn á borð við það bezta sem þekkist með öðrum þjóðum. Þetta gekk meðan sjávarútvegur- inn malaði gull. En ekki lengur. En pólitík er að vilja. Þetta sýnist vera það, sem meiri hlutinn vildi. Við jafnaðarmenn vöruðum við í tæka tíð. En þjóðin vildi ekki trúa við- vörunarorðum okkar. Því fór sem fór. 2. Leið ríkisstjórnar- innar Áður en ég lýsi stefnu og úrræð- um jafnaðarmanna er nauðsynlegt að meta, hvernig ríkisstjórn Stein- gríms Hermannssonar, sem hér er borin vantrausti, hugðist leysa vandann: 1. Hún hefur ekki hróflað við rót- um vandans. Þær liggja í hinu pólitíska fyrirgreiðslukerfi kerf- isflokkanna; þessu samábyrga „velferðarkerfi fyrirtækjanna", sem okkur hefur reynzt svo dýrt. Enda eru það ær og kýr fram- sóknarmanna í báðum stjórnar- flokkunum. 2. Ríkisstjórnin brást við 5—6 milljarða tekjutapi þjóðarbús- ins með því að færa 7—8 millj- arða úr launaumslögunum, til fjármagnseigenda. M. ö. o., launafólk hefur þegar greitt fyr- ir skakkaföllin — og 40% í við- bót, upp í skuld frá stjórnartíð þeirra fjandvina Steingríms og Svavars. 3. Ríkisstjórnin hefur horft í hálft annað ár aðgerðalaus á hið hrip- leka tekju- og söluskattskerfi. Því til viðbótar hefur hún lækk- að skattbyrði fyrirtækja um 1—2 milljarða; og annarra fjár- magnseigenda um 6—700 millj- ónir. Á sama tíma hefur skatt- byrði launafólks, vegna hreinna skatta, útsvara og óbeinnar skattlagningar, hækkað um rúma 2 milljarða. En ekki nóg með það: hluti útgerð- ar og fiskvinnslu er sokkinn í skuld- ir. Ríkisstjórnin býður smávegis greiðslufrest og ný lán. Það er eins og að lengja á hengingaról hins dauðadæmda. Þessu fylgir hún eft- ir með ránsvöxtum a la Reagan. Þannig hefur hún gert fjármagns- 8. nóvember á síðastliðnu ári fóru fram útvarps- umræður um vantrauststillögu stjórnarand- stöðunnar á ríkisstjórn Steingríms Hermanns- sonar. Þetta var í kjölfar umfangsmikils verk- falls opinberra starfsmanna og allar umsamdar kjarabætur höfðu verið teknar aftur með einu pennastriki. Vikum saman hafði forsætisráð- herra ekki getað flutt stefnuræðu — hún fannst ekki. 8—10 dögum síðar átti að halda flokksþing Alþýðuflokksins. Alþýðuflokknum hafði ekki vegnað vel í stjórnarandstöðunni og í október verið spáð 6% fylgi og 3 þingmönnum. í þessum vantraustsumræðum töluðu Jón Baldvin Hannibalsson og Kjartan Jóhannsson af hálfu Alþýðuflokksins. Eftir á var sagt að Jón Baldvin hefði ekki aðeins flutt vantraustsræðu á Steingrím, heldur líka stefnuræðu sem ætluð hafi verið flokksþingi Alþýðuflokksins. Þetta var sígild stjórnarandstöðuræða. Ræðumaður lét sér ekki nægja að tíunda ávirð- ingar ríkisstjórnarinnar, heldur setti fram stefnu lið fyrir lið um hvað eigi að gera og hvern- ig Alþýðuflokkurinn eigi að bregðast við. Ef þessi ræða er lesin vandlega kemur á daginn, að þarna er sett fram sú stefna sem flokksþingið gerði að stefnu Alþýðuflokksins og nú hefur skilað flokknum fylgi samkvæmt skoðana- könnunum upp á 20% og 13 þingmönnum, á aðeins 2 mánuðum. FALCON CREST Frábœrir fram haldsmyn daþættir 2 nýir þœttir koma á hverjum fimmtudegi Fást á öllum helstu myndbandaleigum landsins Dreifing: MYNDBÖND HF. Skeifunni 8. Símar 686545 — 687310.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.