Alþýðublaðið - 02.06.1989, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 02.06.1989, Blaðsíða 1
ASÍ- og BSRB-fólk mótmœlir verðhœkkunum: Þúsundir lögðu niður vinnu og fjölmenntu á baráttufund Þúsundir félaga í ASÍ og BSRB lögðu niður vinnu um miðjan dag í gær til að fjöl- mcnna á baráttufund á Lækjartorgi, þar sem mót- mælt var verðhækkunum sem stjórnvöld hafa lagt blessun sína yfir að undan- förnu. í álvktun er þess kraf- ist að ríkisstjórnin stöðvi allar verðhækkanir og standi við fyrirheit í nýgerðum samningum. „Auðvitað vitum við að það eru til skýringar á þessu öllu saman. Þeirra skýringa má leita í efnahagsreikning- um olíufyrirtækja, skipafé- laga, flugfélaga og okur- fyrirtækja. En heimilin hafa líka sína efnahagsreikninga og þá má einnig útskýra. Auðvitað vitum við að þegar ofurtekjufólkinu hjá Flug- leiðuni eru veittar hækkanir um tæpar 40 þúsund krónur á mánuði, eða sem nemur launum lágtekjumanns, þá þarf að sækja þá peninga einhversstaðar. Og nú á að sækja þá í okkar vasa. Þess fólks sem gerði jafnlauna- samninga. Það fólk á nú að borga hærri flugfargjöld í l'lugi innanlands. Þetta ákvað ríkisstjórnin. Þessari ákvörðun og öðrum ákvörð- unum ríkisstjórnarinnar, sem opna fyrir verðhækkun- arbylgjuna mótmælum við. Við mótmælum öll sem einn,“ sagði Ögmundur Jón- asson formaður BSRB m.a. í sinni ræðu og tóku fundar- menn vel undir með honum. Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambandsins, var ekki minna harðorður en Ögmundur í sinni ræðu. Hann minnti á bréf forsætis- ráðherra þar sem segir að ríkisstjórnin lofar viðspyrnu gegn verðhækkunum. „Ég hef ekki heyrt um neina við- spyrnu. Ég hef enga tilburði séð til að hamla gegn verð- hækkunum. Ég hef hvergi séð að ríkisstjórnin hafi reynt að sporna við. Ég segi þess vegna, að ríkisstjórnar- flokkarnir hafi brugðist. Það er hart, það er sárt og auðvit- að sárast fyrir okkur sem kusum þá sem flokka jafn- réttis og félagshyggju. Ef verðhækkanasóknin bráir ekki af ríkisstjórninni, þá hljóta viðbrögð okkar að verða liörð. Þau hljóta að ASÍ- og BRSB-fólk lét smá- rigningu ekki aftra sér frá þátttöku á útifundi sam- takanna á Lækjartorgi í gær, þar sem mótmælt var kröftuglega verðhækkun- um. A-mynd/E.ÓI. verða mjög hörð. Láti ríkis- stjórnin ekki segjast, þá verða frekari aðgerðir til að knýja rikisstjórnina að standa við sinn hlut að fylgja í kjölfarið. Við verðurn að láta það gerast,“ sagði Ás- mundur Stefánsson. í ályktun fundarins er harðlega mótmælt gegndar- lausum verðhækkunum sið- ustu daga. Með þeint hafi brostið forsendur nýgerðra samninga. Skorað er á stjórnina að stöðva hækkan- irnar og bæta Iaunafólki þann skaða sem orðið hefur. Fundinum barst fjöldi stuðn- ingsyfirlýsinga víðs vegar að af landinu. Jon Baldvin um verðhœkkanirnar: Afleiðing óþolandi mikillar verðbólgu „Við erum að horl'ast í augu við al'leiðingar af þeirri staðreynd, að við er- um hér með óþolandi mikla verðbólgu. Það verð- ur einfaldlega ekki við það búið í þessu þjóðfélagi til langframa að liafa hér meiri verðbólgu en gerist og gengur í viðskiptalönd- um,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis- ráðherra þegar Alþýðu- blaðið ræddi við hann í gær um þær rniklu verð- hækkanir sem dunið hafa yfir. Jón Baldvin sagði að spurningin væri hvort al- menningur væri reiðubú- inn að taka á sig þær fórnir sem það óhjákvæmilega þýðir til skamms tíma, að kveða verðbólgu niður með afdráttalausum hætti. „Við munum aldrei komast út úr þessum vandamálum að óbreyttu kerfi í undir- stöðuatvinnuvegunr okkar, landbúnaði og sjávarút- vegi,“ sagði Jón Baldvin. „Sérstaklega er komið á daginn, að engin ríkis- stjórn mun ráða við verð- myndun í íslenskum land- búnaði að óbreytti i grund- vallarlöggjöf. Þetta er ekki bara spurning um það að knýja fram endurskoðun á búvörusamningnum, held- ur verður jal'nframt að breyta þeirri löggjöf um Iandbúnaðarmál sem kveður á um skuldbind- ingu ríkissjóðs til þess að greiða og gefa rikistrygg- ingu fyrir nánast öllum þeim kostnaði sem hleðst upp í þessu kerfi — burtséð frá því hvort framleiðslan er langt umfram þarfir inn- anlands eða neyslu. Þetta er farið að kosta gríðarlegar fjárhæðir og kerfið hleður sífellt á sig nýjunr útgjöldunr sem ríkisstjórnir og fjármála- ráðherrar standa varnar- lausir fyrir, vegna þess að meirihlutavilji hefur ekki fengist á Alþingi til þess að taka á þessum vandamál- um. Við erum að ræða hér um grundvallarvandamál í okkar tveimur höfuð at- vinnugreinum, sem verða ekki frekar en fyrri daginn leyst með einhverjum skottulækningum, eins og gengiskollsteypum, en valda því þó að á ríkið og ríkissjóð hlaðast útgjalda- skuldbindingar langt um- fram það sem eðlilegt er til langframa,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson. Sjá einnig bls. 3 Vinnueftirlitið: Hækkun að undir- lagi launamanna? Ríkissljórnin hefur fallisl á beióni Vinnueftirlits ríkis- ins um hækknn á gjaldskrá, fyrir sérstaka þjónustu og eftirlitsstörf. Hækkunar- hciónin hljóóaói upp á 23,3a/o. Athygli vekur að stjórn Vinnueftirlitsins cr skipuó fulltrúum þeirra aðila sem stóðu aó nýlegum kjara- sainningum og þeim sömu sem mótmæla nú kröftug- lega veróhækkunum. Þjóðhagsstofnun var beð- in um að meta beiðnina, sem er rökstudd með því að hún sé nauðsynleg til þess að mæta hækkunum á launaút- gjöldum og öðru verðlagi. Vinnueft irlitið er sjálf- stæð stofnun sem heyrir und- ir félagsmálaráðuneytið. Fornraðurinn er skipaður af ráðherra, en átta aðrir stjórnarmenn eru skipaðir samkvæmt tilnefningu aðila vinnumarkaðarins. Alþýðu- samband íslands á þrjá full- trúa í stjórninni, Vinnuveit- endasambandið tvo, Vinnu- málasamband samvinnufé- laganna einn, BSRB og Samband íslenskra sveitarfé- laga einn. A Ihvðubandalagið: Flokkseigendafélagið undirbýr hreinsanir Sjá bls. 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.