Alþýðublaðið - 27.04.1991, Blaðsíða 7
Laugardagur 27. apríl 1991
7
Draugatrú
Hraf ns Jökulssonar
íslendingar trúðu á forynjur og drauga i hverju
skúmaskoti allt fram eftir þessari öld. Fdfræði, ein-
angrun og skammdegismyrkur ólu og endurnærðu
þessa mögnuðu þjóðtrú.
Draugatrú Hrafns Jökulssonar í
Alþýðublaðinu síðastliðinn mið-
vikudag sýnir okkur og sannar að
draugatrú er enn ekki úr sögunni
í landi voru, og lifir hún og hrærist
í fáfræði á sama hátt og fyrr á tím-
um.
Stundum getur fáfræðin orðið
svo yfirþyrmandi að eigi verði
orða bundist og þess vegna eru
þessar línur ritaðar en ekki til þess
að taka afstöðu til yfirstandandi
umræðna um myndun nýrrar rík-
isstjórnar.
Hrafn er barnungur maður og
veit því ekkert af eigin reynslu um
íslenskt þjóðfélag fyrir 20 árum og
þaðan af síður fyrir 40 árum. Auð-
vitað eru til sannar og óyggjandi
upplýsingar um Viðreisnartíma-
bilið í bókum og blöðum, en þær
hefur Hrafn svo sannarlega ekki
lesið. Hann hefur hins vegar ein-
ungis hlustað á draugasöguna um
Viðreisnartímabilið — draugasög-
una, sem pólitískir skrumskæl-
ingameistarar mögnuðu á sínum
tíma og hafa alið á fram á þennan
dag.
Hvernig var ástand þjóðmála
þegar Viðreisnarstjórnin tók við?
Það ætti Hrafn Jökulsson að
kynna sér, ef hann vill hafa það
sem sannara reynist.
I stuttu máli: Allt athafnalíf og
almenningur var reyrður í marg-
földum viðskiptafjötrum, skömmt-
unarskrifstofur í Reykjavík sátu yf-
ir hvers manns hlut og veittu m.a.
byggingarleyfi fyrir efri hæð í húsi
á Akureyri en synjuðu um bygg-
ingu neðri hæðarinnar! Gengi
krónunnar var í alls konur skötu-
líki: ferðagjaldeyrir, bátagjaldeyrir
og margs konar annað gengi eftir
tegundum in'nfluttra vara.
Þessu austantjaldsástandi sóp-
aði Viðreisnarstjórnin út af borð-
inu og kom hér á fót frjálsu við-
skipta- og athafnalífi á þeirra tíma
mælikvarða. Það var Viðreisnin.
En síðar kom stóra áfallið 1967
og 1968, þegar útflutningsafurðir
okkar hrundu í verði á erlendum
mörkuðum um allt að 50% og
stórfellt atvinnuleysi fylgdi í kjöl-
farið um land allt.
Getur Hrafn Jökulsson séð fyrir
skáldlegum augum sínum, hvern-
ig ástandið yrði í þjóðfélaginu, ef
við yrðum nú fyrir sams konar
áfalli? Eða mundi hann treysta sér
til að mynda einhverja þá ríkis-
stjórn, er gæti leitt þjóðina gegn-
um slíkar þrengingar, án þess hún
yrði þess vör, að undirstaðan und-
ir lífsafkomu hennar hefði hrunið?
Auðvitað kemst engin ríkis-
stjórn með heilt skinn frá slíkum
áföllum þótt hún berjist um á hæl
og hnakka. Okkur hættir alltaf til
að hengja bakara fyrir smið þegar
gefur á bátinn.
Alþýðuflokkurinn fékk að
kenna á því, óverðskuldað. Þar að
auki fannst nýjum árgöngum kjós-
enda, sem ekki mundi neitt annað
en Viðreisn, að nú þyrfti að breyta
til breytinganna vegna. Og síðast
en ekki síst þá klofnaði Alþýðu-
flokkurinn, af því að klofningur-
inn úr honum hljóp eftir villuljósi.
Að sjálfsögðu dettur engum í
hug að halda því fram að Viðreisn-
arstjórninni hafði aldrei orðið
neitt á í messunni fremur en öðr-
um ríkisstjórnum. Henni hafði
samttekist, þegar húnfór frá 1971,
að koma okkur upp úr öldudaln-
um og skapa skilyrði til batnandi
lífskjara með verðbólgu á svipuðu
stigi og nú er.
Þá hvarf Alþýðuflokkurinn af
vettvangi og við tók langt og ör-
lagaríkt verðbólguskeið Fram-
sóknar, Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðubandalags. Þessir þrír flokkar
voru síðan, eins og alþjóð veit, á
látlausu verðbólguhundasundi
þar til Alþýðuflokkurinn kom aft-
ur til skjalanna fyrir fjórum árum.
Þessi verðbólguhrollvekja þrí-
flokkanna hefur ekki aðeins
reynst þjóðinni dýrkeypt efnalega
og gert hana að láglaunavinnu-
þrælum, heldur ruglað almenning
jafnt og atvinnulífið svo í ríminu,
að við verðum lengi að bíða þess
bætur.
Kannski að næsta draugasaga
Hrafns Jökulssonar verði um sálu-
hjálp þessa tímaskeiðs?
Jón H. Gudmundsson.
Hvert líf kraftaverk
Yoko Ono segir að líf hvers og eins sé kraftaverk og allir, hver á sinn hátt,
geti lagt sitt fram til að skapa frið og gera mannlífið fegurra.
Fjöllistakonan Yoko Ono er nú
stödd hér á landi og opnar yfir-
litssýningu á verkum sínum á
Kjarvalsstööum í dag. Sýningin
ber yfirskriftina FRIÐUR, en
friðarhreyfingar sjöunda ára-
tugarins tengjast sterkum bönd-
um nafni Yoko Ono.
Yoko segir að þegar talið berist að
listferli hennar miði margir það við
árið 1960, um það leyti sem hún
kom til New York. Hún segist í raun
ekki vita hvenær hún byrjaði að fást
við list. Öll börn séu að fást við að
skapa eitthvað þó þau séu ekki köll-
uð listamenn.
Yoko Ono er kannski ekki síst
þekkt fyrir að hafa verið kona bítils-
ins fræga, Johns Lennon, sem var
skotinn til bana fyrir rúmum tíu ár-
um. Hún er og hefur þó um langa
hríð verið framsækinn og djarfur
listamaður sem notið hefur hylli og
virðingar.
Á sýningu Yoko Ono er að finna
111 verk, sem ýmist eru hlutir, hljóð-
verk eða leiðbeiningaverk. Yoko
Ono er einn af frumkvöðlum FLUX-
US-hreyfingarinnar sem spratt upp í
New York í byrjun 7. áratugarins.
Þótt list hennar sé nátengd hug-
myndafræði Fluxus, bæði hvað
varðar skammtíma verk hennar og
beinar tilvísanir í hversdagsleikann,
hefur hún þó mikla sérstöðu sem
listamaður.
Yoko Ono hefur notað hvert tæki-
færi sem gefist hefur til að boða frið
og segist ætla að halda þeirri bar-
áttu áfram eins lengi og hún mögu-
lega geti. Á blaðamannafundi sem
hún hélt í gær sagði hún að hvert líf
væri kraftaverk og sérstætt á sinn
hátt.
Allir geta lagt sitt af mörkum til að
bæta ástandið í heiminum, ekki síst
með því að hvetja aðra og þannig
gætu lítil lönd eins og ísland haft
áhrif ekki síður en stærri þjóðir.
Yoko Ono sagði að þrátt fyrir að
ýmsar breytingar hafi orðið á því
formi sem hún noti til að koma hug-
myndum sínum á framfæri væri það
barátta fyrir friði í heiminum sem
skipti hana mestu máli. Þó heimur-
inn væri kannski flóknari en ungt
fólk á sjöunda áratugnum hefði látið
að liggja mætti alls ekki gefast upp
í baráttunni fyrir friði.
Yoko Ono sagðist vera ánægð
með að vera komin til lslands, og
hún ætlaði að nota tækifærið til að
skoða sig eitthvað um í þessu fallega
landi. Hún sagðist að minnsta kosti
ætla að sjá Bláa lónið og einhvern
stað þar sem bún fengið að sjá hver
gjósa.
Á Kjarvalsstöðum verður einnig
opnuð sýning á verkum listamanna
úr hinni svonefndu Fluxus-hreyf-
ingu. í grófum dráttum var Fluxus
afsprengi þeirrar miklu grósku sem
var í framsækni í listum um 1960 og
beindist sérstaklega gegn sjón-
blekkingum og óhlutlægri myndlist,
sem Fluxus-menn nefndu hinar
„dauðu listir".
Sýningarnar munu standa yfir frá
27. apríl til 6. júní og verða opnar
daglega frá 11.00 til 18.00.
Sjényarpið
15.00 Iþróttaþátturinn 18.00 Alfreð
Önd 18.25 Kasper og vinir hans
18.55 Táknmálsfréttir 19.00 Ropp-
korn 19.25 Háskaslóðir 20.00 Fréttir
og veður 20.35 Lottó 20.40 Söngva-
keppni sjónvarpsstöðva Evrópu
20.55 '91 á Stöðinni 21.20 Fólkið í
landinu 21.45 Skálkar á skólabekk
22.15 Riddarinn hugprúði 23.45
Skólastúlka hverfur 01.25 Útvarps-
fréttir í dagskrárlok. SUNNUDAGUR
14.00 íþróttir 16.15 Hús lífsins 17.15
Hreinar línur 17.50 Sunnudagshug-
vekja 18.00 Bland í poka 18.30 Rauði
sófinn 18.55 Táknmálsfréttir 19.00
Bleiki pardusinn 1830 Fagri-Blakkur
20.00 Fréttir, veður og Kastljós 20.50
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva Evr-
ópu 21.00 Þak yfir höfuðið 21.25 Ráð
undir rifi hverju 22.20 Eiturbyrlarinn
23.40 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Stöð 2
9.00 Með Afa 10.39 Regnbogatjörn
10.55 Krakkasport 11.10 Táningarnir
í Hæðargerði 11.35 Fjölskyldusögur
12.20 Úr ríki náttúrunnar 13.10 Á
grænni grein 13.15 Svona er Elvis
14.55 Opera mánaðarins 17.00
Falcon Crest 18.00 Popp og kók 18.30
Björtu hliðarnar 19.19 19:19 20.00
Séra Dowling 20.50 Fyndnar fjöl-
skyldumyndir 21.20 Tvídrangar
22.10 Fletch lifir 23.45 Tvíburar 01.35
Mánaskin SUNNUDAGUR 09.00
Morgunperlur 09.45 Pétur Pan 10.10
Skjaldbökurnar 10.35 Trausti hrausti
11.00 Fimleikastúlkan 11.30 Mímis-
brunnur 12.00 Popp og kók 12.30
Beverly Hills ormarnir 14.05 Heim-
draganum hleypt 15.45 NBA-karfan
17.00 Listamannaskálinn 18.00 60
mínútur 18.50 Að tjaldabaki 19.19
19:19 20.00 Bernskubrek 20.25 Laga-
krókar 21.15 Inn við beinið 22.15
Neyðaróp 23.50 Lestarránið mikla
01.40 Dagskrárlok.
Rós 1
06.45 Veðurfregnir. Bæn 07.00 Fréttir
07.03 Á laugardagsmorgni 09.00
Fréttir 09.03 Spuni 10.00 Fréttir 10.10
Veðurfregnir 10.25 Tónlist 11.00
Vikulok 12.00 Útvarpsdagbókin
12.20 Hádegisfréttir 12.45 Veður-
fregnir 13.00 Rimsirams Guðmundar
Andra Thorssonar 13.30 Sinna 14.30
Átyllan 15.00 Tónmenntir 16.00
Fréttir 16.05 íslenskt mál 16.15 Veð-
urfregnir 16.20 Útvarpsleikhús barn-
anna 17.00 Leslampinn 17.50 Stél-
fjaðrir 18.35 Dánarfregnir 18.45 Veð-
urfregnir 19.00 Kvöldfréttir 19.30
Djassþáttur 20.10 Meðal annarra
orða 21.00 Saumastofugleði 22.00
Fréttir. Orð kvöldsins 22.15 Veður-
fregnir 22.20 Orð kvöldsins 22.30 Úr
söguskjóðunni 23.00 Laugardags-
flétta 24.00 Fréttir 00.10 Sveiflur
01.00 Veðurfregnir 01.10 Næturút-
varp SUNNUDAGUR 08.00 Fréttir
08.07 Morgunandakt 08.15 Veður-
fregnir 08.20 Tónlist 09.00 Fréttir
09.03 Spjallað um guðspjöll 09.30
Tónlist 10.00 Fréttir 10.10 Veður-
fregnir 10.25 Af örlögum mannanna
11.00 Messa í Garðakirkju 12.10 Út-
varpsdagbók 12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir 13.00 Hratt flýgur
stund á Suðurlandi 14.00 Dagskrá
um svissn. rithöfundinn Max Frisch
15.00 Myndir í músík 16.00 Fréttir
16.15 Veðurfregnir 16.20 Fornveður
lesið úr ískjörnum 17.00 Harmoníku-
hatíð 18.00 Smásaga 18.30 Tónlist
18.45 Veðurfregnir 19.00 Kvöldfréttir
19.31 Spuni 10.30 Hljómplöturabb
21.20 Kíkt út um kýraugað 22.00
Fréttir 22.15 Veðurfregnir 22.20 Orð
kvöldsins 22.25 Á fjölunum 23.00
Frjálsar hendur llluga Jökulssonar
24.00 Fréttir 01.10 Stundarkorn í dúr
og moll 01.00 Veðurfregnir 01.10
Næturútvarp.
Rás 2
08.05 ístoppurinn 09.03 Þetta líf,
þetta líf 12.20 Hádegisfréttir 12.40
Helgarútgáfan 16.04 Söngur villi-
andarinnar 17.00 Með grátt í vöng-
um 19.00 Kvöldfréttir 19.32 Cliff
Richard 20.30 Safnskðfan 11.07
Gramm á fóninn 01.10 Nóttin er ung
02.00 Næturútvarp SUNNUDAGUR
08.07 Hljómfall guðanna 09.03
Sunnudagsmorgunn með Svavari
Gests 11.00 Helgarútgáfan 12.20 Há-
degisfréttir 12.45 Helgarútgáfan
15.00 ístoppurinn 16.05 Þættir úr
rokksögu íslands 17.00 Tengja 19.00
Kvöldfréttir 19.31 Kvöldtónar 21.00
Djass 22.07 Landið og miðin 01.10 í
háttinn 01.00 Næturútvarp.
Bylgjan
08.00 Hafþór Freyr Sigmundsson
12.00 Hádegisfréttir 12.10 Brot af því
besta 13.00 Snorri Sturluson o.fl.
18.00 Haraldur Gíslason 22.00 Krist-
ófer Helgason 03.00 Björn Sigurðs-
son SUNNUDAGUR 09.00 I brtið
12.00 Hádegisfréttir 12.10 Viku-
skammtur 13.00 Heimir Jónasson
19.00 Sigurður Helgi Hlöðversson
22.00 Heimir Karlsson 02.00 Björn
Sigurðsson á næturvakt.
Sljarnan
09.00 Jóhannes B. Skúlason 13.00
Lífið er létt 17.00 Páll Sævar Guð-
jónsson 20.00 Maður á réttum stað
22.00 Stefán Sigurðsson 03.00 Har-
aldur Gylfason SUNNUDAGUR
10.00 Guðlaugur Bjartmarz 12.00
Páll Sævar Guðjónsson 17.00 Hvíta
tjaldið 19.00 Léttar sveiflur 20.00
Statísk ró 24.00 Guðlaugur Bjart-
marz.
Aðalstöðin
08.00 Loksins laugardagur 12.00 Há-
degistónlistin 13.00 Gullöldin 15.00
Fyrir ofangarð 17.00 Á hjólum 19.00
Á kvöldróli 24.00 Nóttin er ung
SUNNUDAGUR 0800 Morguntónar
10.00 Úr bókahillunni 12.00 Hádegi
13.40 Leitin að týnda teitinu 15.00 í
þá gömlu góðu 1800 Á nótum vin-
áttunnar 22.00 Úr bókahillunni 24.00
Næturdagskrá.