Alþýðublaðið - 10.01.1992, Blaðsíða 6
6
Föstudaqur 10. jartúar 1992
Stœrsti síldarsamningurinn við Rússa um árabil er annmörkum háöur
Þurfum að lána Rússum
800 milliánir krána
Stærsti síldarsamningur Síld-
arútvegsnefndar við Rússa um
langt árabil er í hðfn — ef Lands-
bankinn tekur þá ákvörðun að
gangast í ábyrgð gagnvart rúss-
neska bankanum Vneshtorg-
bank. Um er að ræða sðlu á 30
þúsund tonnum eða 300 þúsund
tunnum af léttverkaðri, haus-
skorinni og slógdreginni síld
fyrir um 1.600 milljónir króna.
Þetta svarar til um 40 þúsund
tonnum upp úr sjó.
Landsbankinn hefur gefið bolt-
ann yfir til Seðlabankans, sem síðan
gaf viðskiptaráðherra, Jóni Sigurðs-
syni álit sitt á þeim hugmyndum að
Landsbankinn lánaði Rússum 800
milljónir króna til að kaupa síldina.
Ekki náðist í Jón Sigurðsson, við-
skiptaráðherra í gærdag, en hann
mun senn svara Landsbankanum
hvað gera skal í stöðunni.
Einar Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar
sagði í Morgunblaðinu í gær að okk-
ur bæri skylda til að rétta Rússum
hjálparhönd. Benti hann á hagstæð
viðskipti okkar við Rússa um ára-
tuga skeið og góð viðskipti Lands-
bankans við rússneska ríkisbank-
ann.
Síldarútvegsnefnd hefur staðið að
undanförnu í samningum við Rosv-
neshtorgh, sem er fyrirtæki í eigu
rússneska lýðveldisins. Síldaútvegs-
nefnd segir að frá upphafi hafi það
verið ljóst að áður en til slíkra við-
skipta kæmi, yrði að nást samkomu-
lag um viðskiptasamning milli ríkis-
stjórna íslands og Rússlands.
Snemma á síðasta ári hófst undir-
búningur að gerð viðskiptasamn-
ings milli ríkisstjórna íslands og
Rússlands, sem lauk síðan í síðasta
mánuði með gerð viðskiptasamn-
ings og bókunar í Reykjavík.
í samningi þessum er gert ráð fyr-
irviðskiptum að andvirði 80 milljón-
um Bandaríkjadala á samningstím-
anum, tveim árum. Gert er ráð fyrir
að Rússar kaupi aðallega saltaða
síld, frystan fisk, lagmeti og ullar-
vörur, þar af saltsíld fyrir 30 milljón-
ir dollara.
Samhliða viðræðum þessum um
viðskiptasamning var unnið að fyr-
irframsölu á vegum Síldarútvegs-
nefndar á saltaðri síld. Árangurinn
varð sá að fullfrágengin samnings-
drög voru undirrituð af báðum aðil-
um í byrjun desember síðastliðnum.
Fyrirvari var á af hálfu Rússa að
samkomulag gæti tekist milli banka
rússneska lýðveldisins og Lands-
banka fslands um greiðslufyrir-
komulag. Þar stendur hnífurinn í
kúnni eins og málið stóð í gær-
kvöldi.
Gömlu
meist-
ararnir á
Kjarvals-
stöðum
Á morgun, laugardag, verða
opnaðar tvær veigamiklar sýn-
ingar á Kjarvalsstöðum. I vestur-
sal og í forsal eru verk eldri
meistaranna úr Listasafni
Reykjavíkur og í austursal er úr-
val verka eftir Jóhannes Kjarval.
Samadag opnar sýning á Ijóðum
eftir ísak Harðarson.
í hópi gömlu meistaranna eru Ás-
grímur Jónsson, Eyjólfur Eyfells,
Finnur Jónsson, Gunnlaugur Briem,
Gunnlaugur Scheving og Jóhann
Briem svo örfáir séu nefndir, en alls
eru þeir 16 og verk þeirra sem sýnd
eru eru 58 talsins.
IM 0/1UG LYSIXG/X K
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
nORGARTÚN 3 105 RF.YKJAVlK SlMI'26102 MYNDSENDIK 62.121!>
Atvinnuauglýsing
Borgarskipulag Reykjavíkur óskar eftir að ráða
starfsmann sem fyrst.
Starfssvið:
Umsjón með teikninga- og skjalasafni stofnunar-
innar og aðstoð við undirbúning funda skipulags-
nefndar.
Leitað er eftir manni með þekkingu á skjalavörslu
og tölvuvinnslu og áhuga á skipulagsfræðum og
arkitektúr.
Umsóknum skal skila til Borgarskipulags Reykjavík-
ur, Borgartúni 3, 105 Reykjavík, fyrir 25. janúar nk.
Framboðsfrestur
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjar atkvæða-
greiðslu um kjör stjórnar, trúnaðarmannaráðs og
endurskoðenda í Verzlunarmannafélagi Reykjavík-
ur fyrir árið 1992.
Framboðslistum skal skila á skrifstofu félagsins,
Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, eigi síðar en kl.
12.00 á hádegi, mánudaginn 13. janúar 1992.
Kjörstjórnin
Auglýsing
um viðtalstíma iðnaðar- og viðskiptaráðherra
í Hafnarfirði, 15. janúar 1992
Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
verður með viðtalstíma miðvikudaginn 15. þ.m. á
bæjarskrifstofunum í Hafnarfirði frá kl.
10.00—12.00.
Þeir sem áhuga hafa á að panta viðtalstíma við ráð-
herrann geta látið skrá sig á bæjarskrifstofunum í
Hafnarfirði í síma 53444.
Iðnaðarráðuneytið,
Viðskiptaráðuneytið,
8. janúar 1992.
Auglýsing um
fasteignagjöld
Lokið er álagningu fasteignagjalda í Reykjavík árið
1992 og verða álagningarseðlar sendir út næstu
daga ásamt gíróseðlum vegna fyrstu greiðslu gjald-
anna.
Gjalddagar fasteignagjalda eru 15. janúar, 1. mars
og 15. apríl.
Gjöldin eru innheimt af Gjaldheimtunni í Reykjavík,
en einnig er hægt að greiða gíróseðla í næsta
banka, sparisjóði eða pósthúsi.
Skráningardeild fasteigna, Skúlatúni 2, veitir upp-
lýsingar um álagningu gjaldanna, sími 18000.
Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar sem fengu
lækkun á fasteignaskatti á liðnu ári hafa fengið hlut-
fallslega lækkun fyrirárið 1992. Framtalsnefnd mun
yfirfara framtöl gjaldenda þegar þau liggja fyrir,
væntanlega í mars- eða aprílmánuði, og úrskurða
endanlega um breytingar á fasteignaskattinum,
m.a. hjá þeim sem ekki hafa þegarfengið lækkun en
eiga rétt á henni samkvæmt þeim reglum sem
borgarstjórn setur, sbr. 4. mgr. 5. gr. 1. nr. 90/1990
um tekjustofna sveitarfélaga. Verður viðkomandi
tilkynnt um niðurstöðu, ef um breytingu verður að
ræða.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 8. janúar 1992.
Reykjavík
Svæðisstjórn málefnafatlaðra í Reykjavík leítar eftir
kaupum á hentugu húsnæði fyrir sambýli fatlaðra.
Um er að ræða tvær íbúðir í einbýlishúsi, samtals
um 300 m2 að stærð að meðtalinni bílgeymslu.
Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarár
og -efni, herbergjafjölda, brunabóta- og fasteigna-
mat, afhendingartíma og söluverð, sendist eigna-
deild fjármálaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150
Reykjavík, fyrir 18. janúar 1992.
Fjármálaráðuneytið, 8. janúar 1992.
Verðkönnun —
Ljósritunarvélar
Verkefnisstjórn Ráðhúss Reykjavíkur óskar eftir
verðtilboðum í Ijósritunarvélarfyrir Ráðhús Reykja-
víkur.
Gögn fást afhent á skrifstofu borgarverkfræðings,
Skúlatúni 2, 3. hæð, 105 Reykjavík.
~\ÍST*
Til sölu fjölbýlishús
að Grænási 1—3 í Njarðvík
Kauptilboð óskast í fjölbýlishús að Grænási 1—3,
Njarðvík.
Um er að ræða 3 hús með 8 íbúðum hvert. Brúttó
flatarmál hvers húss er 905,6 m2 og brúttó rúmmál
2807 m3. Brunabótamat allra bygginganna er kr.
117.838.000,-
Ibúðirnar verða til sýnis í samráði við Arnbjörn Ósk-
arsson hjá Flugmálastjórn, Keflavíkurflugvelli (sími
92-50625 v. og 92-12757 h.)
Tilboð í einstakar íbúðir eða öll húsin, er greini
heildarverð og greiðsluskilmála, sendist Innkaupa-
stofnun ríkisins, Borgartúni 7, Reykjavík, fyrir kl.
11.00 þann 24. janúar 1992.
IIMIMKAUPASTOFIMUIM RIKISINS
DORGARTUNI 7 105 REYKJAVIK
Laus staða
gjaldheimtustjóra
Staða forstöðumanns Gjaldheimtunnar í Reykjavík
er laus til umsóknar.
Borgarstjórn Reykjavíkur skipar í stöðuna. For-
stöðumaður skal vera embættisgengur lögfræð-
ingur. Staðan veitist frá 1. mars 1992 og ber að skila
umsóknum til borgarstjórans í Reykjavík eigi síðar
en 30. janúar nk.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 9. janúar 1992.
Útboð
Þingvallavegur, Alftavatn — Búrfellsvegur
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagningu
3,64 km kafla á Þingvallavegi.
Helstu magntölur. Fyllingar og neðra burðarlag
30.000 m3 og fláafleygar 6.000 m3.
Verki skal lokið 15. júní 1992.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Selfossi og í Borgartúni 5, Reykjavík, (aðalgjaldkera)
frá og með 13. janúar nk.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 27. janúar 1992.
Vegamálastjóri