Alþýðublaðið - 15.05.1996, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 15.05.1996, Blaðsíða 1
■ Kröfur hundsaðar um breytingar á frumvörpum um vinnumarkaðsmál Ríkisstjórnin er að breyta lyðræðisforminu - segir Rannveig Guðmundsdóttir formaður þing- flokks Alþýðuflokksins. „Það er óhugnanlegt að finna að það er enginn bilbugur á stjómarliðum og ég efast um að þeir viti hvað það er verið að brjóta stórt og slæmt blað í sögunni," sagði Rannveig Guðmunds- dóttir alþingismaður og fulltrúi í fé- lagsmálanefnd í samtali við Alþýöu- blaðið í gær. Ríkisstjómin hefur huns- að kröfur verkalýðshreyftngarinnar og stjómarandstöðunnar um gmndvallar- breytingar á fmmvörpum um stéttar- félög og vinnudeilur, og hyggst knýja málið gegnum þingið. Verkalýðs- hreyfmgin hefur bmgðist hart við, og hótar verkföllum þegar samningar losna. „Annað hvort slá stjómarliðar höfð- inu við steininn, hvað varðar íhlutun í samningamál launþega, eða þeim er nákvæmlega sama. Þeir ætla á þessu afmælisári ASÍ að fara fram með full- komnu valdi með vinnumarkaðsífum- vörpin og beygja verkalýðshreyftng- una með offorsi," sagði Rannveig og telur að með fmmvarpinu sé verið að víkja frá sáttavinnubrögðum, sem hafa viðgengist síðustu sextíu ár. „Þetta er miklu stærra mál en að flytja frum- varp og vilja breytingar, vegna þess að það er í raun og veru verið að ger- breyta sameiginlegu lýðræðisformi á Norðurlöndum. Og ég vil benda á að við sem höfum unnið á norrænum vettvangi höfum oft lent í að fara til annarra landa sem fulltrúar Norður- landa. Þá höfum við gjaman vakið at- hygli á því sem kallað er norrænt módel og hefur djúpa stoð í lýðræðis- legum samskiptum stjórnvalda og þegna. Á öðmm Norðurlöndum er far- in sáttaleið að allri þróun í vinnumark- aðsmálum og á flestum stöðum eru lög, sem hafa verið sett í fullri sátt milli aðila, eða það er hefð, sem hefur þróast í sátt við alla, eins og í Dan- mörku. Þetta mikla lýðræðisform er ríkisstjórnin nú að brjóta,“ sagði Rannveig. Rannveig: Stjórnarliðar ætla á af- mælisári ASÍ að fara fram með full- komnu offorsi gegn verkalýös- hreyfingunni. ■ Alþýðuflokkur og Sjálfstæð- isflokkur mynda meirihluta í ísafjarðarbæ Kröfur Funk- listans óað- gengjlegar - segir Björn Hafberg varabæjar- fulltrúi Alþýðuflokksins um við- ræður annarra flokka en Sjálfstæð- isflokksins um myndun meirihluta. „Það er búið að skrifa undir mál- efnasamning með fyrirvara um sam- þykki félagsmanna og ég mun meta hann á fundinum eins og aðrir félags- menn,“ segir Bjöm Hafberg en í gær- kvöldi funduðu alþýðuflokksmenn í ísafjarðarbæ um málefnasamning við Sjálfstæðisflokkinn. Ástæður þess að svo fljótt slitnaði upp úr viðræðum A, B, F og E-lista segir Bjöm vera kröfur E- listans. „Það var E-Ustinn sem sleit þessum viðræðum með því að setja kröfur sem menn gátu ekki sætt sig við, kröfur um ákveðna skiptingu embættanna sem um er að tefla. Þann- ig strandaði á því. Alþýðuflokkurinn hafði því ekki aðra kosti en annars vegar að reyna að komast inní þetta samstarf, sem hafði verið lagður grunnur að, eða að draga sig út úr þessu og sitja í minnihluta. Þetta eig- um við eftir að ræða,“ sagði Bjöm. A elleftu stundu í Kaffi- leikhúsinu I kvöld klukkan 21 verða tveir einleikir frumsýndir í Kaffileik- húsinu í Hlaðvarpanum undir heitinu „Á elleftu stundu". Sýn- ingin er liður í einleikjaröð Kaffi- leikhússins þar sem ungir leik- arar flytja einleiki í leikstjórn þekktra og reynda leikstjóra. Leikstjóri að þessu sinni er Við- ar Eggertsson og leikarar þau Bergljót Arnalds og ValurFreyr Einarsson. Einleikur Bergljótar ber heitið „Hús hefndarþorst- ans" og er leikgerð hennar byggð á grískum goðsögnum. Valur Freyr flytur einleikinn „Heilt ár og þrír dagar" og er það byggt á sannsögulegum at- burðum. Bergljót og Valur Freyr voru svo sannarlega á elleftu stundu þegar Einar Ólason Ijós- myndari leit við hjá þeim i gær. ■ Hver verður næsti forseti ASÍ? Engaryfir- lýsingar frá okkur Benedikt Davíðsson: Við Hervar Gunnarsson teljum báðir að það sé ekki málið að menn bjóði sig fram til þessa embættis. „Við Hervar Gunnarsson teljum báðir að það sé ekki málið að menn bjóði sig fram til þessa embættis," segir Benedikt Davíðsson aðspurður hvort hann gefi áffam kost á sér sem forseti ASÍ. Hervar Gunnarsson vara- forseti hefur þráfaldlega verið orðaður við embætti forseta, en hann hefur ekki viljað segja af eða á um hvort hann gefur kost á sér. Þegar Benedikt var kjörinn forseti fyrir fjómm ámm kvaðst hann ætla að sitja eitt kjörtíma- bil, en nú útilokar hann ekki að hann gefi kost á sér áífam. „Það á að vera hlutverk forystu- manna stóm félaganna eða samband- anna að velja forystu ASÍ með tilliti til málefnaundirbúningsins og þeirrar stefnumörkunar, sem við erum að vinna að fyrir komandi tímabil. Þeir eiga að gera tillögur um nýja forystu fyrir sambandið. Fyrr en þeirri vinnu er lokið er engra yfirlýsinga að vænta frá okkur,“ segir Benedikt en þing ASÍ stendur frá 20. til 24. maí. Kirkjurækinn áhuga- maður um íþróttir - Víkur-Skuggi bladsída 2 Fasisti á forsetastóli - sjá leiðara blaðsíða 2 Afhverju eru kratar alltaf að rífast? - Þóra Arnórsdóttir blaðsíða 3 Strompur á Þjóðleikhúsinu - Snorri Freyr Hilmarsson blaðsíða 6 Mandela - Heimakær og huggulegur blaðsíða 7 ■ Verður næsti forseti lýðveldisins kostaður af tveimur til þremur stórfyrirtækjum? ísland eitt af fáum löndum þarsem engin lög eru um fjármál frambjóðenda eða stjórnmálaflokka Engar reglur um fjármögnun kosningabaráttu Herdís Þorgeirsdóttir stjórnmálafræðingur: Fyrirtæki styðja stjórnmálaflokka og frambjóðendur án þess að nokkur spyrji um upphæðir eða nöfn, hvað þá greiða- semi pólitíkusa í staðinn. „Hér á fslandi styðja fyrirtæki flokka og frambjóðendur án þess að nokkur spyrji um upphæðir eða nöfn, hvað þá greiðasemi pólitíkusa í stað- inn. Næsti forseti lýðveldisins gæti hæglega verið kostaður af tveimur til þremur stórfyrirtækjum - án þess að almenningur hefði hugmynd um það,“ segir Herdís Þorgeirsdóttir stjómmálafræðingur meðal annars í mjög athyglisverðu erindi sem Al- þýðublaðið birtir í dag. Þar fjallar Herdís um fjármál íslenskra stjóm- málaflokka og þá staðreynd að engin lög em til um þau efni. Þá ræðir hún ítarlega um fjármögnun kosningabar- áttu fyrir forsetakjör, og gerir saman- burð á íslandi og öðrum löndum. Herdís flutti erindið á fundi stjórn- málafræðinga í síðustu viku og veitti Alþýðublaðinu góðfúslegt leyfi til að birta það. Hún segir ennfremur: „Af hverju eru flokkarnir svona óiýðræðislegir að opna ekki bókhald sitt? Hér getur verið um stórfelld fjárframlög að ræða, þar af leiðandi óeðlilega mikil áhrif ákveðinna fjársterkra aðila á stóran hóp kjörinna fulltrúa - sem geta ekki lengur staðið við stjómar- skrárheit sitt um að vera bundnir sannfæringu sinni, því þeir eru bundnir einhveijum kaupsýslumönn- um. f flestum vestrænum ríkjum - fyrir utan ísland og hið sorglega dæmi af móðutjörð Magna Carta, Bretlandi - eru víðast ákveðin lög, þó ekki sé um heildarlöggjöf að ræða, sem lúta að þessum málum. Ameríkanar tala gjarnan um hin þroskuðu lýðræðis- ríki Vestur-Evrópa enda byggja þeir sína lýðræðishefð á Magna Carta og merkilegu framlagi Englendinga í þágu lýðræðis í gegnum aldimar, en hvað sem öllu tali um þúsund ára Al- þingi íslendinga líður flokkumst við vart undir þroskað lýðræðisríki með engin lög um fjárreiður flokkanna, upplýsingaskyldu framlaga og svo framvegis. Með þúsund ára sögu á bakinu og aðeins komin þetta stutt, er nær að segja að við séum þroska- heft lýðræði." Herdís nefnir mörg lönd þarsem skýrar reglur um fjármál flokka og frambjóðenda, og segir: „Það er löngu tímabært að opna umræðu um fjárreiður stjórnmála- flokka og fjárstuðning við frambjóð- endur - hvort sem er til þings eða forseta. Það er hnekkir fyrir lýðræð- ishugsjónina ef almenningur hefur það á tilfinningunni að sumir eigi í krafti fjármuna greiðari aðgang að kjömum fulltrúum, jafnvel forsetinn, og það sé aðeins fyrir sterkefnaða einstaklinga að fara í framboð eða fólk á framfæri fyrirtækja. Spuming- in snýst ekki eingöngu um hvað er, heldur einnig hvað virðist. Það er nauðsyn á víðtækari kosningalög- gjöf, þar sem sett em inn ákvæði um fjárframlög einkaaðila og opinbera styrki. Slík lagaákvæði eru óhjá- kvæmileg í lýðræðisríki til að draga úr áhrifum fjársterkra aðila, jafna möguleika einstaklinga og samtaka, efla heiðarleika í kosningabaráttu og auka tiltrú almennings á kosninga- fyrirkomulaginu."

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.