ALÞYÐUBLADID 30ci ''¦ r>cflUOAOUTMM'1' FIMMTÚDAGUR 30. MAI 1996 unnnun 21118. tölublað Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566 Útgefandi Alprent Ritstjóri Hrafn Jökulsson Umbrot Gagarín hf. Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf. Rítstjórn, auglýsingar og dreifing Sími 562 5566 Fax 562 9244 Símboði auglýsinga 846 3332 Áskriftarverð kr. 1.500 m/vsk á mánuði. Verð í lausasölu kr. 100 m/vsk Að vera bara á móti öllu" í sandkassaleik stjómmálanna er það einföld regla að allt sem ríkisstjórnin gerir er vont - það er að segja ef maður er í stjómar- andstöðu. Sé maður hinsvegar í ríkisstjóm er stjórnarandstaðan afgreidd sem tækifærissinnuð, neikvæð og ómálefnaleg. Svona eru stjórnmál í stórum dráttum á Islandi, og þessvegna heyrir tíl algerra undantekninga ef fram fara umræður á Alþingi sem sæta tíðindum fyrir annað en þras og rifrildi. Þar er sjaldan eða ekki rætt um grundvallarmál, um stefnumörkun tíl framtíðar, um brýn- ustu viðfangsefni þjóðarinnar; öðruvísi en með upphrópunum og lúnum slagorðum. í Alþýðublaðinu í gær kom fram hörð gagnrýni á stjórnarand- stöðuna. Þar var ekki um að ræða stjómarliða að fara með rulluna sína - heldur þingmann Alþýðubandalagsins, stjómarandstæð- inginn Kristin H. Gunnarsson. Orð hans hljóta því að vekja mikla athygli. Kristinn segir meðal annars: Ríkisstjórnin er greinilega farin að glíma við hallarekstur ríkissjóðs með því að endurskil- greina hlutverk ríkisins og eðli þess. Þetta hófst reyndar í tíð síð- ustu ríkisstjórnar. Mér hefur fundist að vinstrimerinirnir hafi legið heldur eftir í þessari umræðu og ekki haft nein svör við þessari að sumu leyti óljósu stefnumörkun og ekki heldur neina klára af- stöðu. Menn hafa flúið í það skjól að vera bara á móti öllu og vísa þeim frá sem einhverjum vondum málum." Kristinn segir ennfremur: Stjómarandstaðan kemst ekki hjá því að marka sér einhverja pólitíska afstöðu gagnvart þessu. Við höfum verið einu skrefi á eftir stjómarflokkunum í pólitískri um- ræðu og þá aðallega Sjálfstæðisflokknum sém er prímus mótor í þessum breytingum." Kristinn segir þetta tengjast einkavæðingu, að breyta ríkisfyrirtækjum í hlutafélög og þeirri hugsun að fela einkaaðilum að vinna verkið. Það er þó einhver stefna sem þeir hafa, en við höfum setið eft- ir. Við höfum engin skýr svör og þar með fá kjósendur engin svör. Því töpum við fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn vinnur fylgi. Við ættum að nota sumarið til að fara í pólitíska umræðu um rík- ið og velferðarkerfið. Okkur hefur að mörgu leyti mistekist mála- tilbúnaðurinn í vetur." Kristinn segir að helst hafi örlað á einhverri stefnumörkun hjá Alþýðuflokknum, en að öðra leyti hafi hinir flokkarnir setið á rassinum meðan Sjálfstæðismenn hafa klárlega pólitískt frum- kvæði." Liðsmenn stjórnarandstöðuflokkanna komast ekki hjá því að taka orð þingmanns Alþýðubandalagsins til alvarlegrar skoðunar. Alþýðublaðið hefur áður bent á í forystugrein að þing- menn stjómarandstöðuflokkanna eru svo uppteknir af því ráðast á ríkisstjórnina, að það er einsog engu skipti þótt veigamíkill ár- angur hafi náðst í einstökum málum. Þannig er því til dæmis far- ið með vinnumarkaðsframvörp stjórnarinnar, sem ekki era svipur hjá sjón eftir gagnrýni stjórnarandstöðunnar. í stað þess hinsvegar að koma þeim boðum áleiðis til almennings að jákvæðar breyt- ingar hafi verið gerðar láta flestir stjómarandstöðuþingmenn enn- þá einsog hirninn og jörð séu að farast Aðeins eitt ár er liðið af kjörtímabilinu, og því hafa stjórnar- andstöðuflokkamir nægan tíma til að safna vopnum sínum og endurskipuleggja hemaðartæknina. Flokkarnir þurfa að fara í al- varlega hugmyndalega stefnumótun í mörgum stórmálum, og þeir þurfa að leggja fram raunhæfar lausnir en ekki tómar upp- hrópanir um að heimsendir sé yfirvofandi. Sjálfsagt koma orð Kristíns H. Gunnarssonar um getuleysi stjómarandstöðunnar ein- sog köld vatnsgusa framan í suma þingmenn, en þeir ættu samt ekki að afgreiða þau sem fúllyndislegt nöldur eða álasa honum fyrir að svíkja lit". Kristinn hefur einfaldlega rétt fyrir sér: Stjómarandstaðan þarf að endurmeta stöðu sína. Rakkarnir Jón Steinar Gunnlaugsson gerði öll- um harðsvíruðustu plotturum landsins skömm til í fyrradag: útspíl hans gagnvart Ólafi Ragnari var nefhilega hvorki meira né minna en íslandsmet í ófyrirleitni. Einsog gengur Að formaður yfirkjörstjórnar f Reykjavík skuli senda frá sér ritgerð til birtingar í fjölmiðlum þar sem hann segir að það sé hneisa" ef þjóðin kýs tiltekinn frambjóðanda sem forseta - það er án hliðstæðu í seinni tíma stjórnmálasögu. Að einn kunnasti lög- maður landsins skuli segja blákalt að Olafur Ragnar Grímsson sé siðlaus lögbrjótur og lygari - það fær mann satt að segja til að trúa ekki eigin eyr- un. Að Jón Steinar Gunnlaugsson skuli síðan klykkja út með því, að hann víki sæti til að gera ekki Ólafi Ragnari órétt" með setu sinni í yfir- kjörstjórn - það er svo ósvífið að það er næstum því fyndið. En þetta er ekkert fyndið. Fyrst og fremst er þetta dapurlegt: Slæmur fyrirboði þess sem koma skal í kosningabaráttunni. Nú liggur fyrir að klíkan sem stjómar Sjálfstæðisflokknum er reiðu- búin að beita hvaða brögðum sem er til að koma í veg fyrir að Olafur Ragnar verði húsráðandi á Bessastöð- um. Við höfum svosem séð lesenda- bréfin sem Morgunblaðið birtir sam- viskusamlega. Þar getum við lesið að Ólafur Ragnar hafi verið spæjari fyrir Sovétríkin, að hann sé gerspilltur stjórnmálamaður og yfirhöfuð stór- hættuleg persóna. Einhversstaðar heyrði ég að ritstjorar blaðs allra landsmanna hefðu lögfræðing sér til aðstoðar, sérfræðing í meiðyrðalög- gjöfinni, til að meta hvort innihald óhróðursbréfanna fari í bága við lög. Ekki veitir af. Skítkastið í lesendadálki stóra blaðsins er svosem nógu hvimleitt - þótt fyrst og fremst sé það auðvitað heimskulegt - en það er annað mál þegar einn nánasti vinur og félagi Davíðs Oddssonar notar embætti sitt sem formaður kjörstjórnar til að varpa rýrð á framboð eins manns. Jóni Steinari Gunnlaugssyni hefur nú í tvo mánuði verið kunnugt um framboð Ólafs Ragnars. Lögmaður Ólafs hefur upplýst að hann hefur átt margvísleg samskipti við formann yfirkjörstjórnar. Jón Steinar Gunn- laugsson taldi heldur ekki eftir sér að fara yfir meðmælendalista Ólafs og leggja formlega blessun yfir framboð hans. Eftir hverju var maðurinn að bíða? Varla hefur Jón Steinar vaknað upp í ¦fyrradag og uppgötvað óforvarendis að Ólafur Ragnar sé siðlaus lygari og lögbrjótur, að það væri hneisa að kjósa hann forseta. Nei, tímasetningin gæti ekki verið betur valin. Ef Jón Steinar hefði varp- Eftir hverju var maðurinn að bíða? Varla hefur Jón Steinar vaknað upp í fyrradag og uppgötvað óforvarendis að Ólaf ur Ragnar sé siðlaus lygari og lögbrjótur, að það væri hneisa að kjósa hann forseta. að litlu bombunni sinni fyrir tveimur mánuðum væru allir búnir að gleyma henni núna, nema kannski Davíð og Tanni. En nú er aðeins mánuður til kosninga, og því ljóst að útspil for- manns yfirkjörstjórnar ber hámarksár- angur. Ef það ber árangur á annað borð. Ég veit ekki hvemig þetta horfir al- mennt við fólki, en forystumenn Sjálf- stæðisflokksins senda hverja neyðar- tilkynninguna á fætur annarri til sinna manna: Varið ykkur á úlfmum! Skoðanakannanir hafa sýnt að 40 prósent sjálfstæðismanna styðja Ólaf, og af því sjálfstæðismenn eru 40 pró- sent þjóðarinnar er ljóst að stuðningur þeirra getur ráðið úrslitum. Þessvegna er búið að ræsa skítverkadeildina, þessvegna lesum við greinar um að Olafur sé gamall kommúnisti, að hann sé guðleysingi, að hann hafi logið að dómara. Allar eru þessar ávhðingar til þess fallnar að minnka áhuga hinna kristilegu íhaldsmanna í Sjálfstæðis- flokknum sem jafhvel hafa daðrað við þá hugmynd að kjósa Ólaf, Vitanlega er sjálfsagt og eðlilegt að ræða feril og störf allra frambjóðend- anna. Fjölmiðlar hafa hinsvegar flestir hverjir brugðist í þeim efhum: sérstak- lega fréttastofa Sjónvarpsins og Morg- unblaðið. (Ég hef ekki reiknað það út, en ég hygg að Alþýðublaðið hafi skrifað íangtum meira um forseta- kosningarnar, embættið og einstaka frambjóðendur heldur en stóri, feiti Mogginn.) En gagnrýnin umræða er eitt, skít- mokstur er annað. Eg veit ekki hvort hægt er að stöðva þann mykjudreifara sem nú er búið að ræsa. Það ætti að vera hægt: vegna þess að hann er ekki stjórnlaus - enn- þá. Það hvarflar ekki að mér að fram- bjóðendurnir sjálfir hafi nokkurn áhuga á að standa í sóðalegu stríði af þessu tagi, enda eru þetta upp til hópa valinkunn prúðmenni, eftir því sem ég kemst næst. En það klagar uppá þetta fólk að biðja stuðningsmenn sína um að stilla lygum, þvaðri og rógi í hóf. Trúlega er það hinsvegar til of mikils mælst að biðja tiltekinn forsætisráðherra um að mýla rakkana sína. a t a I 3 0. Atburðir dagsins 1431 Jóhanna af Örk, frelsishetja Frakka f stríðinu við Breta, brennd á báli í Rúðuborg. 1536 Hinrik VIII Bretakóngur gengur að eiga Jane Seymour, ellefu dögum eftir að hann lét háls- höggva Önnu Boylen eiginkonu sína. 1640 Flæmski listmálarinn Peter Paul Rubens deyr. 1768 Eggert Ólafsson skáld drukknar á Breiðafirði ásamt konu sinni og sex mönnum öðrum. 1788 Franski rithöfundurinn og heim- spekingurinn Voltaire deyr. 1940 30 handteknir fyrir óeirðir eftir knattspyrnuleik Fram og Vfkings. 1960 Rússneski rithöfundurinn Boris Pasternak deyr. 1972 Þrír japanskir hermdarverkamenn myrða 26 manns á flugvellinum í Tel Aviv. 1989 Milljón manns safnast saman á Torgi hins him- neska friðar í Peking og krefjast lýðræðis og umbota í Kíha. Afmælisbörn dagsins Peter Carl Fabergé 1846, rúss- neskur gullsmiður, eftirlæti kóngafólks í Evrópu. Benny Goodman 1909, bandarískur jazzisti. Annálsbrot dagsins Morðverk skeði heim í Borgar- firði á Ökrum, að móðir myrti þar barn sitt 6 vetra gamalt, kæfði það í sjó. Önnur stúlka var nálæg og hélt fótum þess, höfðu báðar Kristínar nafn, það fannst nokkr- um dögum síðar þar með sjónum. Hún meðgekk ekki, en var þó dæmd á Bremerhólm, en var þó ekki staðfestur dómurinn, heldur átti að takast prófíð betur. Grfmsstaðaannáll 1758. Málsháttur dagsins Ekki er þar við blámenn að berj- ast, sem brúðir eiga land að verja. Mistök dagsins Konan er yndislegustu mistók náttúrunnar. Cowley. Hlutskipti dagsins Það er einsog karlinn sagði, þunnar traktén'ngar að láta menn þræla nótt og dag alla sína ævi, hafa hvorki í sig né á og fara svo til helvítis á eftir. Halldór Laxness; Salka Valka. Orð dagsins Fellur ofanfjúk og snær, flest vill dofa Ijá mér, myrk er stofa, mannlaus br, - má ég sofa hjá þér? Steinn Steinarr; Hlíðar-Jóns rímur. Skák dagsins Bandaríkjamaðurinn Paul Morp- hy er af mörgum álitinn mesti skáksnillingur sem uppi hefur verið. Hann lifði stutta og stormasama ævi á síðustu öld en skildi nokkrar perlur eftir. Hann hefur svart og á leik í skák dags- ins, gegn Marache. Svartur leikur og vinnur; 1. ... Rfg3!! 2. Dxg6 Rde2 Skák og mát. Hvítur gat engan- veginn forðað máti, sama hvað hann hefði reynt.