Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Alžżšublašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Alžżšublašiš

						FIMMTUDAGUR 30. MAI 1996

ALÞYÐUBLAÐIÐ

bessastaðabardaainn

val" frambjóðendanna um hver keppi

við Ólaf Ragnar. Mörður, sem er tal-

inn stuðningsmaður Ólafs Ragnars,

sagði ennfremur: „Það má ekki

gleyma því að Pétur var valinn sem

frambjóðandi gegn Ólafi, hann var

handvalinn, eftir að Ólafur mældist

með mikið fylgi."

Mikil ánægja ríkti í herbúðum Pét-

urs í gærmorgun þegar fréttir bárust af

skoðanakönnuninni. „Þetta var það

sem við þurftum, nú munu stuðnings-

mennirnir tvíeflast þegar þeir sjá að

það er raunhæfur möguleiki á sigri,"

sagði einn af Pétursmönnum í gær.

Sjálfstæðismenn eru í vaxandi mæli

að koma til liðs við Pétur Kr. Haf-

stein, einkum á kostnað Guðrúnar Pét-

ursdóttur að því er virðist. Þá virðast

æ fleiri alþýðuflokksmenn hallast á

sveif með Pétri,þótt margir séu þeir

einarðir Ólafsmenn. Með nokkurri

einföldun má segja að þeir alþýðu-

flokksmenn sem tilheyra hægri armi

flokksins séu hliðhollari Pétri, en

vinstrisinnaðir stuðningsmenn flokks-

ins eru Kklegri til að styðja Ólaf.

Staða Guðrúnar

Agnarsdóttur

Enginn bilbugur er á stuðnings-

mönnum Guðrúnar Agnarsdóttur þótt

á ýmsu hafi gengið í skoðanakönnun-

um. Frameftir vetri gat hún gengið að

20 prósenta fylgi vísu í könnunum

DV, en svo tók hún krappa dýfu og

stuðningur við hana virtist vera að

fjara út. Síðustu daga eru hinsvegar

teikn á lofti um að hún sé eilítið að

rétta úr kútnum. Könnun í síðustu

viku gaf henni 13 prósent og í DV í

gær mældist hún með 10,3. Athyglis-

verðast við þá niðurstöðu var að hún

er nú komin uppfyrir Guðrúnu Péturs-

dóttur. „Okkar strategía er sú að sókn

sé besta vörnin," segir Sæmundur

Norðfjörð kosningastjóri Guðmnar

Agnarsdóttur. „Það verður síðan bara

að koma í ljós hversu langt sú sókn

nær."

Um þetta sagði Birgir Hermanns-

son: „Ekki er marktækur munur á

Guðrúnunum tveimur, en ef dæma má

af frammistöðu frambjóðenda á fyrsta

sameiginlega framboðsfundinum síð-

asta föstudagskvöld, hef ég trú á því

að Guðrún Agnarsdóttir vinni veru-

lega á fram að kosningum."

Staða Guðrúnar

Pétursdóttur

„Það er greinilegt að sjálfstæðis-

menn hafa yfirgefið Guðrúnu Péturs-

dóttur og farið yfir til Péturs Kr. Haf-

steins," segir Sæmundur Norðfjörð.

Reyndar ekki bara sjálfstæðismenn.

f könnun DV í mars fékk Guðrún Pét-

ursdóttir hvorki meira né minna en

35,8 prósent - þetta var að vísu áður

en aðrir en hún höfðu gefið kost á sér.

Hún fær nú aðeins 8,7 prósent, og í

stað þess að vera önnur á eftir Ólaft er

hún komin niður í fjórða sæti. Þetta er

mjög alvarleg niðurstaða fyrir hana, í

ljósi þess að miklu hefur verið kostað

í auglýsingaherferð hennar á sjón-

varpsstöðvunum að undanförnu. Ef

Guðrún Pétursdóttir nær sér ekki á

strik í næstu könnun má búast við að

henni veitist erfitt að afla fjár til bar-

áttunnar sem í hönd fer. En stuðnings-

menn hennar segja að hún sé ekki bú-

in að gefast upp. „Guðrún Pétursdóttir

mun aldrei draga framboð sitt til

baka," sagði mikill stuðningsmaður

hennar í samtali við blaðið. „Til þess

er hún alltof stolt. Hún mun berjast til

þrautar."

Mörður Amason íslenskufræðingur

sagði að Guðrún Pétursdóttir hefði átt

nokkra afleiki í kosningabaráttu sinni,

en kvaðst ekki vilja fara nánar út í

það. Guðrún Agnarsdóttir hefði hins-

vegar komið á óvart og væri að sækja

eitthvað á. Mörður telur þó ósennilegt

að fylgi þeirra Guðrúna vaxi svo ein-

hverju nemi.

Staða Ástþórs

Ástþór Magnússon er í sérflokki,

bæði hugmyndalega og peningalega.

Auglýsingaherferð hans hefur kostað

tugi milljóna, en enginn spáir því að

hann hafi árangur sem erfiði. Það sem

trúlega réði úrslitum með að Ástþór

tók ákvörðun um framboð var sú lít-

ilsvirðing sem hann taldi stjórnmála-

Guðrún Pétursdóttir hefur misst flugið síðan

mældist 35 prósent.

mars, þegar fylgi hennar

menn og valdamenn landsins sýna sér.

Auglýsingastríðið

Pétur Kr. Hafstein og Guðrún Pét-

ursdóttir hafa auglýst grimmt á sjón-

varpsstöðvúnum að undanförnu.

Svanur Kristjánsson prófessor í stjórn-

málafræði sagði í útvarpsviðtali fyrr í

vikunni, að auglýsingaherferð af þessu

tagi hefði aldrei byrjað þegar svo langt

er til kosninga. Ekki einu sinni stjórn-

málaflokkarnir hafi talið sig geta það.

Svanur sagði ljóst að ef áfram yrði

haldið á sömu braut - og ekkert benti

til annars - myndi barátta hvers um

sig kosta tugi milljóna króna.

ið sterk útúr því."

Hannes Hólmsteinn Gissurarson

telur ekki að flokkapólitík muni lita

kosningabaráttuna: „Menn kjósa ekki

eftir flokkum í forsetakjöri. Menn

kjósa hinsvegar kannski eftir Kfsskoð-

unum og ímynd en þeir eru fyrst og

fremst að velja persónu. Að flestu

leyti er forsetakjör mjög'sambærilegt

við prestkosningar."

Mörður Árnason segir að flokka-

pólitík geti spilað inní kosningarnar,

„á þann veg að þessi hópur sem hefur

lagt undir sig Sjálfstæðisflokkinn geri

sinn frambjóðanda að flokksframbjóð-

anda. Það væri illa farið en ég hef ekki

trú á að flokkspólitík komi öðruvísi

inn í þetta, og ég sé þess engin merki

Ástþór Magnússon er búinn að eyða tugum milljóna í auglýsingaherferð

en ekkert bendir til þess að hann verði maðurinn sem virkjar Bessastaði.

„Þegar á baráttuna líður munu mál-

efnin og viðhorfið til forsetaembættis-

ins verða það sem skiptir máli en ekki

auglýsingar," segir Valgerður Bjarna-

dóttir.

Ástþór Magnússon er vitaskuld í

sérflokki í þessum efnum, og hefur

þegar eytt tugum milljóna í auglýs-

ingaherferðina „Virkjum Bessastaði".

Ólafur Ragnar og Guðrún Agnarsdótt-

ir hafa ekki til þessa auglýst í sjón-

varpi, en þau eru bæði við öllu búin.

Sæmundur Norðfjörð kosningastjóri

Guðrúnar sagði að málið væri til

skoðunar. „Við þurfum að eiga fyrir

öllu sem við gerum," sagði hann.

þegar fylgi annarra frambjóðenda er

skoðað."

Þá segir Mörður að engu sé líkara

en „einhver valda- og ættaklíka hafi

fengið Bessastaði á peruna. Kannski

er þetta af því þjóðin hefur neitað að

hleypa henni þangað, þótt hún hafi

samþykkt völd hennar víðast annars-

staðar í þjóðfélaginu. Forverar þessar-

ar klíku áttu mjög erfitt með að sætta

sig við bóndasoninn úr Svarfaðardal.

Þessi klíka átti líka mjög erfitt með að

sætta sig við einstæða móður sem for-

seta. Bæði Kristján Eldjárn og Vigdís

voru kölluð kommúnistar. Nú virðist

þessi heift beinast að Ólafi Ragnari

Grímssyni."

Guðrún Agnarsdóttir er að rétta úr kútnum eftir að fylgi hennar þurrkað-

ist nærri út á tímabili. Möguleikar hennar eru samt taldir hverfandi.

Flokkapólitík

í forsetakosningum?

Sæmundur Norðfjörð segir greini-

legt að kosningarnar séu að verða

flokkspólitískar og finnst það ekki

heillavænleg þróun fyrir forsetaemb-

ættið. „Ef fólk sér í gegnum þessar

flokkspólitísku Knur á hægri og vinstri

væng gæti Guðrún Agnarsdóttir kom-

Þegar Valgerður Bjarnadóttir, kosn-

ingastjóri Péturs, var innt eftir því

hvort hún teldi að flokkapólitik myndi

hafa áhrif á kosningarnar sagði hún:

„Pétur er ekki fulltrúi ákveðins stjórn-

málaflokks, heldur fólks sem telur for-

setaembættið mikilvægt í þjóðfélaginu

og vill hafa í því mann sem það

treystir."

Alþýðubladiö leitaði ígærtil

meðframbjóðenda Ólafs Ragnars

Grímssonar og bað um álit þeirra

á greinargerð Jóns Steinars Gunn-

laugssonar lögmanns, sem ífyrra-

dag tilkynnti að hann ætlaði að

víkja sæti úryfirkjörstjórn Reykja-

víkur. Þar sagði Jón Steinar með-

al annars að það væri „hneisa" ef

íslenska þjóðin kysi Ólaf Ragnar

Guðrún Agnarsdóttir

Hljóta að vera

persónulegar

ástæður

,JEg hef ekki séð greinargerð Jóns

Steinars, aðeins heyrt sagt frá henni.

Eg get þessvegna lítið sagt um mál-

ið," sagði Guðrún Agnarsdóttir í

gær, en hún var þá á ferð um Aust-

firði. Aðspurð um þau ummæli Jóns

Steinars að það væri „hneisa" fyrir

þjóðina að kjósa Ólaf Ragnar sagði

Guðrún Agnarsdóttir: „Ég veit ekki á

hverju hann byggir þá skoðun sína,

það hljóta að vera einhverjar per-

sónulegar ástæður. Nei, ég myndi

ekki taka undir þau orð. Ég vil hins-

vegar ekki tjá mig um meðframbjóð-

endur mína, en hef ekkert annað en

gott til þeirra að leggja."

Pétur Kr. Hafstein

Ekkí mitt að

dæma

„Það er kjósendanna að dæma um

það, ekki mitt. Ég tek enga efhislega

afstöðu til þess sem þarna kemur

fram," sagði Pétur Kr. Hafstein að-

spurður um hvort hann væri sam-

mála því, að það væri hneisa fyrir fs-

lendinga að kjósa Ólaf Ragnar

Grímsson sem forseta. Sigurður G.

Guðjónsson lögmaður Ólafs nefndi í

Alþýðublaðinu í gær hugsanleg áhrif

stuðningsmanna Péturs á þessa

ákvörðun Jóns Steinars og nefndi til

blaðagreinar sem stuðningsmenn

Péturs hafa skrifað uppá síðkastið.

Um þetta sagði Pétur Kr. Hafstein:

„Það er auðvitað ljóst að í þessum

kosningum hlýtur að vera fjallað um

þau verk sem við frambjóðendur

höfum unnið. Hverjum og einum

hlýtur að vera frjálst að gera það. Ég

hef að sjálfsögðu engin afskipti af

því sem menn láta frá sér fara um

þessi efni eða önnur, og legg hvorki

Knur né ritskoða það sem frá mönn-

um fer. Ég hef lagt áherslu á það í

mínum málflutningi að kosningabar-

áttan verði háð af drengskap og tel

það mjög mikilvægt."

Guðrún Pétursdóttir

Ástþór Magnússon

Ólafur einsog

hver annar

íslendingur

„Ég er ekki í stöðu til að dæma

menn. Þjóðin á að velja á kjördag.

Eg vona hinsvegar að baráttan verði

heiðarleg og málefnaleg," sagði Ást-

þór Magnússon. Hann kvaðst ekki

vera í aðstöðu til að dæma um efni

greinargerðar Jóns Steinars Gunn-

laugssonar. „Ég er búinn að vera í

burtu svo lengi. Ég hef enga skoðun

á þeim málum sem Jón Steinar er að

tala um, af því ég þekki þau ekki."

Aðspurður um hvort það væri

,ineisa" að kjósa Ólaf Ragnar sagði

Ástþór: „Fyrir mér er Ólafur Ragnar

bara einsog hver annar íslendingur,

og ég veit ekkert hvort hann hefur

staðið sig illa."

Jón frjáls að

skoða heiminn

„Við höfum heyrt álit tveggja lög-

fræðinga um málið. Fólk verður að

dæma um það sjálft, ég hef engu við

það að bæta," sagði Guðrún Péturs-

dóttir. Aðspurð hvort hún væri sam-

mála því að það væri hneisa að kjósa

Ólaf Ragnar sagði Guðrún: „Jón

Steinar skoðar heiminn út frá sfnum

sjónarhóli og er frjáls að því."

Frá Menntamálaráðuneytinu

Innritun nemenda

í f ramhaldsskóla

í Reykjavík

Fer fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð dagana 3. og 4.

júnífrá kl.9.00-18.00. umsóknum fylgi Ijósrit af prófskírteini.

Námsráðgjafar verða til viðtals í Menntaskólanum við

Hamrahlíð innritunardagana.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8