Vísir - 05.01.1976, Blaðsíða 11

Vísir - 05.01.1976, Blaðsíða 11
BÆÐI SKOTIN NIÐUR OG SIGURINN VAR ÍR en þau mistókust og ármenningar gengu útaf sem sigurvegarar Þær voru æsispennandi loka- sekúndurnar i leiknum á milli Ár- manns og 1R i 1. deildinni i körfu- knattleik á laugardaginn — svo spennandi að stór hluti áhorf- endaskarans var staðinn á fætur og hélt niðri i sér andanum. Staðan var 90:89 fyrir Arrnann þegar ein sekúnda var eftir af leiknum. Þó fengu IR-ingar tvö vitaköst eftir að brotið hafði verið á Kolbeini Kristinssyni. Annað þeirra þurfti að heppnast til að 1R jafnaði og leikurinn yrði fram- lengdur, þarsem jafntefli er ekki til i körfuknattleik, og með þvi að skora úr báðum var ÍR sigurveg- ari i leiknum. Kolbeinn — ein besta vitaskytta ÍR — tók sér góðan tima við bæði skotin. Þaö fyrra mistókst hjá honum — knötturinn dansaði á hringnum en féll siðan i gólfið — öfugu megin. Hann vandaði sig enn betur i siðara skotinu, en allt kom fyrir ekki — boltinn fór i hringinn en ekki i gegnum körf- una eins og allir aðdáendur IR höfðu vonað. „Ég hélt að ég gæti þetta ekki,” sagði Kolbeinn er við töluðum við hann eftir leikinn. „Ég var búinn aö taka 4 viti i leiknum og hitta úr þeim öllum, og i Reykjavikur- mótinu tók ég 16 vitaskot og skor- aði úr 14 þeirra. En þessum tveim skotum gleymi ég ekki i bráð — ef ég geri það þá nokkurn tima.” Ármenningar, sem léku án Jimmy Rogers, sem var i leik- banni, sluppu þarna með skrekk- inn. Þeir áttu að leika sér að þvi að sigra 1R i þetta sinn, þvi að það var hálfgert „hækjulið” sem þeir áttu við. Þorsteinn Hallgrimsson gat ekkert beitt sér vegna meiðsla i baki — sat lengst af fyrir utan völlinn með hitapoka við bakið og Kristinn Jörundsson var reyrður eins og rúllupylsa, þar sem hann hafði rifbeinsbrotnað á æfingu fyrir skömmu. Þar sem þessir tveir menn voru svo til óvigir var búist við að Ár- mann léki sér að Islandsmeistur- unum en svo varð ekki raunin og aðalástæðan var að þeir höfðu fengið til liðs við sig Simon Ólafs- son. Hann átti frábæran leik — skoraði 33 stig og var eins og klettur i vörninni þar að auki. Einnig átti Jón Sigurðsson góðan leik — skoraði 17 stig — og þá ekki siður Birgir Orn Birgis, sem nú eygir i fyrsta sinn möguieika á að vera islandsmeistari i körfu- knattleik eftir meira en 16 ár i 1. deild. Leikurinn var jafn svo til allan timann, og þótt annað liðið næði 5 til 6 stiga forustu var það aldrei öruggt. Ármann var yfir i hálfleik — 45:39 — en 1R jafnaði og komst yfir i siðari hálfleiknum. Þegar nokkrar minútur voru eftir var ÍR með yfirhöndina, en frábær leikur Jóns Sigurðssonar kom ármenningum aftur á bragð- ið. Rétt fyrir lokin var staðan 89:88 fyrir ÍR en Ármann skoraði siðustu körfuna þegar 10 sekúnd- ur voru til leiksloka. Eftir það l'ékk 1R vitin frægu, en þau mis- tókust, og þar með var sigurinn Celtic, missti forystuna til Rangers i skosku úrvalsdeildinni á laugardaginn þegar liðið náði aðeins jafntefli gegn Dundee á heimavelli sinum Celtic Park. Rangers og Celtic liafa nú jafn- ármenninga. Kristinn Jörundsson var stiga- hæstur IR-inga i leiknum — þrátt fyrir rifbrotið. Hann skoraði 29 mörg stig — 26, en markahlutfall Rangei-s er betra eins og skotar reikna það. Celtic hafði yfir i hálfleik gegn Dundee 2:1 með mörkum Bixie Deans og Kenny Dalglish, en mark Dundee var sjálfsmark Andy Linch. Dalglish skoraði svo fljótlega þriðja mark Celtic i siðari hálf- leik og allt útlit virtist vera fyrir sigur Celtic i leiknum, en i lokin tókst þeim Hoggan og Mckintosh að jafna fyrir Dundee. Úrslit leikjanna i úrvalsdeild- inni á laugardaginn urðu þessi: Aberdeen — Motherwell 0:0 Ayr — St. Johnstone 2:0 Celtic—Dundee 3:3 DundeeUtd —Hibernian fr. Hearts — Rangers 1:2 Mörk RangerS gegn Hearts skoraði Martin Henderson. Nú er búið að draga i þriðju umferð skosku bikarkeppninnar sem leikin verður 24. janúar. Celtic dróst gegn Mortherwell og verður leikið á heimavelli Motherwell. Af öðrum stórleikj- stig. Bróðir hans Jón Jörundsson skoraði 21 stig en aðrir leikmenn mun minna og áttu þeir þó mörg góötækifæri. —klp— um má nefna: Hibernian — Dunfermline, Dundee Utd. — Hamilton, Rangers — East Fife, Ayr — Aidreionians, Forres Mechanics eða Alloa — Aberdeen, Hearts — Clyde, Dundee — Fal- kirk og Queen og the South — St. Johnstone. Þaö má þvi segja að Celtic hafi ekki beint verið heppið með andstæðinga þegar dregið var. Staðan i deildinni er nú þessi: Rangers 20 11 4 5 32-19 26 Celtic 20 11 4 5 40-25 26 Motherwell 20 9 7 4 35-26 25 Hibemian 19 9 6 4 31-23 24 Hearts 20 7 7 6 23-25 21 Aberdeen 20 7 6 7 27-26 20 Dundee 20 6 6 8 32-39 18 Ayr 20 7 4 9 26-33 18 Dundee Utd 19 4 6 9 21-27 14 St. Johnstone 20 2 2 16 20-44 6 Um næstu helgi leikur Celtic við Motherwell á útivelli — erfiður leikur, Aberdeen við Dundee Utd. Dundee við Hearts, Hibernian við Ayr og Rangers leikur við botn- liðið, St. Johnstone. —BB Valsmenn byrjuðu árið með sigri! Valur náði sér i sin fyrstu stig i 1. deildarkeppninni i körfuknatt- leik á laugardaginn er liðið sigr- aði Fram með 75 stigum gegn 59 i fyrsta leik liðanna á árinu 1976. Var sá leikur ekki eins spenn- andi og leikur Ármanns og 1R — og var hálfgerður „jólaleikur” eins og einn áhorfenda komst að orði. Valsmenn höfðu yfirhöndina allan timann — voru 7 stigum yfir i hálfleik, 39:32, en sigruðu siðan með 16 stiga mun — 75:59. Þórir Magnússon sem nú er aft- ur byrjaður að leika var aðal- maður Vals i þessum leik — skor- aði 27 stig. Næstur honum kom Rikharður Hrafnkelsson með 21 stig. Hjá Fram var ekki nema einn maður sem eitthvað skar sig úr — Þorvaldur Geirsson — sem skor- aði 21 stig og tók f jöldann allan af fráköstum. Simon ólafsson átti stórleik með Ármanni gegn ÍR.á laugardaginn. Hann skoraði 33 stig i leiknum og var manna harðastur við að liirða fráköstin undir körfunni —eins og sjá má á þessari mynd. Ljósmynd Einar. Celtic missti for- ystuno til Rongers Lið Jóhannesar Eðvaldssonar, ÍR-ingar ákveðnir að kœral „Við erum staðráðnir i þvi að fá úr þ v i skorið h vort Simon ólafsson hafi verið ólöglegur þegar hann lék þennan leik,” sagði Kristinn Jörundsson, fyrirliði ÍR, að loknum leik ÍR og Ármanns i 1. deildinni i körfuknattleik á laugardag- inn. „Við teljum svo vera þar sem hann hefur leikið með liði bandariska skólans sem hann stundar nám i og sá skóli fell- ur undir iþróttasa mhandið þar i landi. Það hlýtur þvi sama að gilda um Simon og aðra is- ienska leikmenn, sem leika með liðum erlendis. Það kom endanlega i Ijós hjá ÍSÍ i Elmarsmálinu að það væri ó- löglegt, og á þeim forsendum ætlum við að kæra þennan leik.” „Ég hef ckki skrifað undir neitt eða fengið keppnisleyfi i Bandarikjunum og tel mig þvi enn vera gullgildan leikmann með Ármanni,” sagði Simon er við ræddum við liann eftir leikinn. „Ég kom með alla pappíra með mér heim og þeir eru ó- undirritaðir. Éghef ekki lcikið einn einasta ieik með aðalliði skólans en aftur á móti þrjá leiki með liði þeirra sem eru á fyrsta ári i skólanum. Þeir voru ekki i opinberu móti svo að égget ekki séð að neitt sé ó- löglegt við þcnnan leik hvað migsnertir.” —klp— Gummers- bach fékk íjengíngu í Póllandi Vestur-Þýsku meistararnir i handknattleik, Gummersbaeh, sem slógu islandsmeistara Vik- ings út i Evrópukcppni meistara liða i hcndknattleik —fengu stór- an skell á laugardaginn þegar þeir léku fyrri leikinn við pólsku meistarana Slask Wroclaw i 8- liða úrslitumkeppninnar íVarsjá. Pólverjarnir liöfðu mikla yfir- burði i leiknum og sigruðu með 7 marka inun 22:15. Það var strax séð að hverju stefndi i upphali lciksins — pólska liðið lék þjóöverjana sundur og saman og i hálfleik voru þeir koninir mcð yfirburða stöðu. 12:6. Siðari hálfleikur var hins vegar mun jafnari og muiiaði þar mcstu um mjög góða frainmistöðu landsliðsmannsins Deckarn sem skoraði 8 af mörkum Gummers- Lach i leiknum. Jcrzy Klemel var markahæstur i pólska liðinu með 10 mörk. Ilansi Schmidt varð á hinn bóginn að gcra sér að góðu að skora að- eins tvivegis. Það er þvi greinilegt að þjóðverjarnir eiga erfiðan lcik fyrir hönduni þegar þeir inæta pólverjunum i siðari leiknum — og hæpið að þeiin llansa Schmidt og félögum takist að vinna upp 7 inarka forskot pólsku meistar- anna. — BB

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.