Vísir - 22.03.1976, Blaðsíða 2

Vísir - 22.03.1976, Blaðsíða 2
 IOAGBIADIÐ VroORKENNIR Iadaadwggi w* issrvRK ílAGíÐtt JRUlWtt TORFU- BA2AR! iDsíégíítvöctT t^Varpse, Arnor Ragnarsson, útlits- teiknari: — Nei kæri vin — Ég á ekki einu sinni fyrir einum poka af kaffi. — Aftur á móti getur vel verið að ég taki mér far með rellunum þeirra þ.e.a.s. þegar búið er að laga sætin í þessum görmum þannig að meðalmaður geti setið i þeim. Vignir Sveinsson, verslunar-^ maður:— Nei, ég hef ekki hugsaði mér það,mérlist einfaldlega ekki I þannig á framtið þess að vit sé i| að fjárfesta i hlutabréfum þess. | Flugvélarnar eiga fyrir höndum | kostnaðarsamar skoðanir, og g flugtimi áður en að þeim kemurg er stuttur. dagnús Hjálmarsson vinnur hjá itvarpinu: —Ætli verði nokkuð af ivi. Það eru ekki svo miklir leningar afgangs hjá mér. Ein- kun er aldrei til göðs svo ég vona ð þaö takistað endurreisa flug- élágið. '' ngibjörg Arnadöttir, dyra- örður: — Nei, það ætla ég ekki ð gera. Ég tel að þetta flugfélag, :m fyrir er, sé nóg. Firmakeppni T.B.R. Vísir tapaði naumlega fyrir Hétel Holti Vísir varð i öðru sæti i firma- keppni T.B.R. i badminton. 1 úr- slitaleik tapaði Visir naumlega fyrir Hótel Holti með 15-14 og 15- 12. Fyrir Visi léku Sigurður Kol- beinsson og Magnús Eliasson en fyrir Hótel Holt léku Haraldur Korneliusson og Viktor Ingólfs- son. Um 200 fyrirtæki tóku þátt i keppninni. A myndinni heldur Magnús Elias- son á 1. verðlaununum i keppn- inni, sem er veglegur farandbik- ar. Honum til sinnar hvorrar handarstanda Skúli Þorvaldsson, hóteistjóri á Hótel Holti og Bragi Guðmundsson, ritstjórnarfulitrúi VIsis. Halda þeir á bikurum, sem afhentir voru til eignar fyrir fyrsta og annað sætið. Er ekki annað að sjá en að Braga liki gripurinn vel, þvi hann starir hugfanginn á hann. VS/Ljósmynd LA. Dagbloð handa 200 kerfísþrœlum Það eina, sem vitaö er með vissu um upplag Dagbiaðsins óháðs og frjáls er að i fram- tiðinni eiga tvö hundruð kerfis- þrælar að fá það til lestrar i gegnum áskrift fjármálaráðu- neytisins. Ekki þykir þeim Dag- blaðsmönnum andskotalaust að þurfa að láta þessi tvö hundruð eintök af hendi, og hafa þeir nú staðið I stórri skammahrinu við Alþýðublaðið út af áskriftinni. Þar kemur fram, að einhver óviðkomandi hluthafi i óhæðinu hefur hringt til fjármálaráðu- neytisins I haust er leið til að spyrjast fyrir um ríkiskaup á hinu nýja og frjálsa blaði (heimild Alþýðublaðið), en gleymdi að segja til nafns og er þvi talinn óháður Dagblaðinu (heimild Dagblaöið, óháð og frjálst). Jafnhliða þessum upplýsing- um um áskrift fjármálaráðu- neytisins, sem nú ætlar að kúga Dagblaðið til að selja rlkinu tvö hundruð eintök, skrifar hinn óháði og frjálsi ritstjóri þess forustugrein, þar sem hann lýs- ir andstyggð sinni á blaðakaup- um rikisins. „Það er mis- skilningur, að tjáningarfrelsi verði varðveitt með greiöslum af þessu tagi.”, segir ritstjór- inn. Greiðslur ,,af þessu tagi” eru þau áskriftargjöld, sem fjármálaráðuheytið vill endi- lega fá að borga Dagblaðinu. Ritstjóri Dagblaðsins hefur áður skrifað forustugreinar, þar sem hann hefur lýst þvi yfir, að Dagblaðið njóti óvenju mikillar útbreiðslu. Ekki er nema gott eitt um það að segja, þegar blöð seljast. En þó er mest um vert, þegar blað selst þrátt fyrir heiftarlega varnarbaráttu gegn útbreiðslu þess, eins og dæmið um vandræði fjármálaráðu- neytisins sýna, þegar það vildi kaupa skitin tvö hundruð eintök. Hvernig Dagblaðið hefur náð þeirri útbreiðslu að vera nú næst stærsta blað landsins, eins og margsinns hefur verið skýrt frá i Dagbiaðinu, er auðvitað aðeins ein ráðgátan enn um til- urð binna nýju blaðakónga, rit- stjórans og framkvæmdastjór- ans. Blaö, sem ekki er til sölu á al- mennum markaði, getur varla talizt óháð og frjálst, a.m.k. lýt- ur það ekki lögmálum um frjálsa verzlun. Og varla verða þeir margir úr þessu, sem þora að hringja til dagblaðsins og biðja um áskrift. Þeir geta átt á hættu að vera skammaðir i næstu forustugrein hins úrilla og skapbráða ritstjóra. Aö minnsta kosti ættu stofnanir ýmiskonar að fara varlega. Það gæti t.d. kostað Almannatrygg- ingar ómældar skammir fyrir meðferð á ellilifeyrisþegum, óskaði stofnunin að kaupa Dag- blaðið, að maður tali nú ekki um umboðssala hlutfélög og pappirsinnflytjendur. Annars þarf fjármálaráðuneytið varla að hafa áhyggjur út af neitun um askrift að Dagblaðinu. Til eru á landinu lög um eignar- nám, og þeim á ráöuneytið hik- laust að beita i þessu tilfelli, láti ritstjóriblaðsms ekki af þrjósku srnni. Það er lifsnauðsyn, að hinir tvö hundruö kerfisþrælar fái að kynnast málflutningi eina óháða og frjálsa dagblaösins i landinu. Þar gætu þeir daglega fylgzt með kerfisbundinni gagn- rýni á allt, sem miöur fer i þjóð félaginu. Þar eru birtar upp- byggiand* greinar um öll helztu miskamál landsins, og fylgt fast eftir að úr þeim verði leyst og þrjótarnir dregnir fram i dags- ljósið. Hitt verður að harma, að varla hefur almenningur bol- magn til að hefja eignarnáms- aðgerðir, vilji einstaklingar ger- ast áskrifendur. Þeir verða bara að hætta á að hringja i af- greiösluna. Svarthöfði Mánudagur 22. mars 1976. VTSIR Ætlar þú að kaupa hlutabréf i nýja flug- félaginu Vikingi? Jón Asgeirsson iþróttafréttarit- ari: — Nei, þaö ætla ég ekki að gera. Ef mig vantaði flugfélag myndi ég kaupa mitt eigið. Björg Pálsdóttir, nemi: — Nei, þaö myndi ég ekki gera. Þetta flugfélag er fyrirfram glatað og fer ábyggilega á hausinn innan tveggja dra. Friðað hús til sölu Eitt þeirra húsa sem friðað er i Reykjavik, Þingholtsstræti 13 er nú til sölu. Húsið hefur verið i eigu Reykja- vikurborgar allt frá ár- inu 1974 og hafa borist i það sjö kauptilboð frá 1,8 milljónum upp i 6 milljónir. Gunnlaugur Pétursson borgarritari sagði við Visi að næsta skref væri að borgarráð tæki afstööu til hinna ýmsu til- boða. Hann sagöi að tilboðin væru mjög mismunandi. Fimm þeirra eru frá reyk- vikingum en tvö frá utanbæjar- mönnum. Felast i þeim mjög mismunandi greiðslukjör og vaxtagreiðslur. Vegna þess að húsið er friðað fylgja þvi ýmsar kvaöir fyrir kaupanda. Þannig verður kaup- andi væntanlega aö skuldbinda sig til þess að varöveita húsið óbreytt aö utan. Þá verður þing- lesinn leigusamningur á lóðinni til fimmtiu ára, en lóðin fylgir ekki meö I kaupunum. Reykjavikurborg mun hafa forkaupsrétt aö húsinu á mats- verði sem dómkvaddir menn ákveða. Ennfremur skal kaup- m m t þetta gamla hús hafa menn boðið allt að 6 milljónum. andi skuldbinda sig til að ljúka viðgerðum á húsinu innan tveggja ára, en aö sögn Gunn- laugs Péturssonar þarfnast það verulegra lagfæringa. Húsið er aðeins friðað að utan Þegar Reykjavikurborg keypti húsið árið 1974 stóö það autt og var þá þegar búið að friða þaö. Húsið er svokallaö bindingshús reist árið 1876. Friðunin á húsinu aö Þing- holtsstræti 13 er i B. flokki. Það þýðir aö húsið er aöeins friðað Hœsta tilboð sex milljónir að utan og einungiserheimilt að breyta innviðum að leyfi minja- varðar sé fengið. Ekki hefur húsið við Þing- holtsstræti tekið miklum breytingum á ferli sinum. Eins og áður sagði var það reist árið 1876 og laust eftir 1880 var það lengt til suðurs og auk þess smiðaður skúr við suðurendann. Gatan óvenju heilsteypt Húsfriðunarnefnd hefur gert tillögur um að friða skuli Þing- holtsstræti frá Amtmannsstig og suður úr. Þorsteinn Gunnarsson arki- tekt sem sæti á i nefndinni sagði að ástæðurnar fyrir þvi væru fjórar. Sú fyrsta aö Þingholtsstræti væri óvenju samfelld heild sem ástæða væri til aö varðveita. 1 annan staö hefðu hús, sem við þessa götu stæðu, sögulegt gildi, auk þess sem nokkur þeirra væru teiknuð af einum frum- herja islenskrar byggingalistar. Þá sagði Þorsteinn aö gatan væri i litílli hættu fyrir þvi að breytingaráaðalskipulagi raski henni. Og loks væri ástæða til að varðveita Þingholtsstrætið og húsin sem við það standa vegna nálægðar götunnar viö gamla miðbæinn. —EKG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.