Vísir - 02.04.1976, Blaðsíða 12

Vísir - 02.04.1976, Blaðsíða 12
Föstudagur 2. april 1976. visra /' Fyrirgefðu hr>, Brodie, ég hef alveg brugöist J Finch er úti aö aka Alli, við j veröum aö taka ^ hann útaf! strax Bob — mftr----—( ég ætla að tala ^J/ \ viö hann I / ^hálfleik! y Skíðaskólinn í Kerlingarfjöllum Bókanir hjá Zoéga. Sími:25544 Venjulega er körfuknattleikur ekki leikinn svona, en þaðkom þó fyrir i öilum látunum i úrslitaleiknum I bikarkeppninni i gærkvöldi. Það er Stefán Bjarkason sem er meö boltann —Jón Sigurðsson „situr” viö hliðina á honum, en Jimmy Kogers fer um á fjórum fótum. Ljósmynd Einar.... verðlaun! Hinn stórbrotni körfuknattleiks- visra Föstudagur 2. april 1976. Umsjón: Kjartan L. Pálsson og Björn Blöndal Njarðvíkingum tókst það ekki! Voru tveim stigum undir þegar tvœr mínútur voru eftir af úrslitaleiknum við Ármann en töpuðu með 10 stiga mun ,,Ég verð að viðurkenna að ár- menningarnir eru aðeins betri en við, þvi þeir unnu okkur þrátt fyrir að minir strákar hafi leikið einn sinn besta leik í vetur” sagði Ililmar Hafsteinsson, þjáifari körfuknattleiksiiðs Njarðvikur, er við spjölluðum við hann eftir að lið hans hafði tapað fyrir Ar- mannii æsispennandi úrslitaieik i bikarkeppni KKÍ i Laugardais- höllinni i gærkvöldi. ,,En við hefðum saltað þá ef þeir hefðu ekki verið með Jimmy Rogers — hann var þeirra aðal- vopm i þessum leik. Við erum samt ánægðir með að ná þetta langt i mótinu — það gefur okkur rétt til að leika i Evrópukeppni bikarmeistara næsta ár, og við erum staðráðnir i að fara i hana” Njarðvikingar áttu virkilega góðan leik i gærkvöldi. Þeir byrj- uðu vel — sérstaklega þo Brynjar Sigmundsson sem skoraði 15 af 23 fystu stigum liðsins i leiknum. 1 hálfleik höfðu njarðvikingarnir forystu — 43:42 — og lengst af i siðari hálfleik voru þeir 1-2 stig- um yfir eða 1-2 stigum undir. Siðast var jafnt 83:83 er 3 minútur voru eftir af leiknum, en þegar innan við 2 minútur voru eftir var staðan 88:86 fyrir Ar- mann. Þá var eins og allt loft læki úr njarðvikingunum og þeir skor- uðu ekki nema 2 stig það sem eftir var. Ármenningarnir skoruðu aftur a móti lOstig á þessum tima og sigruðu þar með i leiknum — og í bikarkeppninni — með 98 stigum gegn 88. Þessi leikur var „ofsa leikur” eins og krakkarnir segja, og spennan mikil frá upphafi til enda. Leikmenn beggja liða sýndu allar sinar bestu hliðar og kunnu áhorfendur, sem voru mun fleiri en verið hafa á siðustu stór- leikjum i handbolta, vel að meta það sem þeir sáu. Þeir Stefan Bjarkason og Brynjar Sigmundsson voru stiga- hæstu menn Njarðvikur — báðir með 24 stig, en siðan kom Gunnar Þorvarðarson með 18 stig. Jón Sigurðsson átti mjög góðan leik með Armanni og skoraði 30 stig enHaraldur Haukssonvar með 16 stig. Besti maður liðsins var samt án efa bandarikjamaðurinn Jimmy Rogers, sem skoraði 32 stig. Hann var að vonum mjög ánægður er við töluðum við hann eftir leikinn. Þetta er annar titill- inn sem hann fær með Ármanni á skömmum tima, og sfðan hann byrjaði að leika með liðinu i haust, hefur Ármann aðéins tap- að 3 leikjum fyrir islenskum lið- um — 1R tvisvar og KR einu sinni — en sigrað i 21 leik. ,,Ég er ákveðinn i þvi að vera með Ármanni aftur næsta vetur” sagði hann. „Það er vafamál hvort ég fer nokkuð heim i sumar, þvi ég hef mikinn áhuga á að dvelja hér, og sjá meira af land- inu en ég hef gert. Ég hef kunnað mjög vel við mig hérna — félagarnir i Armanni al- veg sérstaklega góðir, og fólkið verið mér gott. Ég held að það sé ekki hægt að finna betri stað að vera á en ísland.” — klp — Dankersen mœtir Granollers — í úrslitaleiknum í Evrópukeppni bikarmeistara Dankersen, lið þeirra Axels Axels- sonar og Óiafs H. Jónssonar, leikur gegn Granollers frá Spáni i úrsiitum Evrópukeppni bikarmeistara í hand- knattleik. Granollers tryggöi sér réttinn tii að leika i úrslitum keppninnar með þvi að slá norska liðiö Oppsal út i undanúrslitunum. Spánverjarnir sigruðu mjög óvænt i Osló 15:13 og i siðari leiknum á Spáni náðu norð- mennirnir aðeins jafntefli 13:13. Kom þessi frammistaða spánverj- anna mjög á óvart og ekki sist aö þeir skyldu sigra i Noregi, því að leikmenn Oppsal eru þekktir fyrir allt annað en að tapa á lieimavelli einsog þeir Fll-ingar muna sjálfsagt eftir. Úrslitaleikurinn á milli Dankersen og Granollers verður leikinn i Vest- ur-Þýskalandi og má telja nokkuð víst að þeir Axel og ólafur verði þar með fyrstu islendingarnir sem verða Evrópumeistarar i handknattleik. — BB Trukkurinn með tvenn maður KR, Curtiss „trukkur” Cart- er, gekk út úr Laugardalshöllinni i gærkvöldi, með tvo bikara undir höndunum. Annan fékk hann fyrir að sigra i lirmakeppninni, þar sem einn lék á móti einum, en sú keppni hefur stað- iðyfir i vetur. Þar keppti „Trukkur- | inn” fyrir körfuknattleiksblaðið IKörfuna, og sigraði auðveldlega — ÞóriMagnússon Val i undanúrslitum ogsiðan Stefán Bjarkason Njarðvik i úrslitaleiknum. Ilinn bikarinn fékk hann fyrir að vera stigahæsti maður islandsmóts- ins i vetur — skoraði 451 stig í 13 leikjum, eða að meðaltali um 35 stig i leik, sem er frábært afrek. Hann fer heirn aftur i næstu viku, og ekki er vitað hvort hann kemur hingað aftur i haust, en sjálfur segist hann liafa áhuga á þvi. æ Jón Jörundsson ÍR fékk bikar fyrir aö vera með bestu vftanýtingu i is- j landsmótinu — skoraöi úr yfir 80% af þeim vitaköstum sem liann tók. Þá fékk Jón Sigurðsson, Ármanni 3 einnig bikar, en hann var kjörinn af þjálfurum 1. deildarliðanna, „Besti leikmaður islandsmótsins 1976” og var hann vel að þvi sæmdarheiti kominn. — klp — — sagði Jón Árni Rúnarsson fyrirliði unglinga landsliðsins í handbolta, sem keppir ú Norðurlandamótinu um helgina Mobilgirgi Vareses frá italiu sigr- aði Real Madrid frá Spáni i úrslita- leiknum i Evrópukcppni meistara- liða i körfuknattleik i gærkvöldi með 81 stigi gegn 74. Þetta er i fjórða sinn sem Vareses sigrar i þessari keppni — siðast var það i fyrra — en Real Madrid hefur liniin sinnum orðið sigurvegari. Ilafa þessi lið sigrað i Evrópukeppn- inni i niu skipti nú s.l. tólf ár. Vareses hafði yfir i hálfleik — 43:42 — og þegar 10 mínútur voru eftir höfðu italarnir enn tveggja stiga forystu. Þá fóru Real Madrid að gefa eftir og Vareses sigldi i örugga höfn. Bandarikjamennirnir í liðunum báðum báru af — tveir hjá Vareses og fjórir hjá Real. — klp— Fengu ekki bikarinn! KR-stúlkurnar urðu bikarmeistar- ar kvenna i körfuknattleik i gær- kvöldi, er þær sigruðu 1R i úrslitaleik mótsins með 46 stigum gegn 42. IR-stúlkurnar voru lengst af yfir i leiknum — cða fram I miðjan siðari hálfleikinn. Þá byrjuðu þær að fjúka útaf hver af annarri með fimm villur — og náðu þá KR-stúlkurnar að kom- ast yfir og sigra. Þær fengu samt ekki bikarinn með sér, því að hann er enn I fórum bikar- meistaranna frá í fyrra — Þór frá Akureyri. Hafði gleymst að skila honum til réttra aöila, og eru þvi þórsstúlkurnar með tvobikara I fór- um sinum þessa dagana — bikarinn úr bikarkeppninni, sem biður eftir að fara upp á hillu i félagsheimili KR, og islandsbikarinn, sem þær fengu i siöasta mánuði. — klp — Spörkuðu di Stefano Sá frægi knattspy rnum aöur Alfredo di Stefano frá Argentinu sem gerði garðinn frægan sem leikmaður með Real Madrid virðist ekki ná jafn góðum árangri sem þjálfari og hann gerði sem leikmaður. Hann hefur aö undanförnu verið þjálfari 1. deildar- liðsins Atletico Bilbao, en árangur liðsins hefur ekki verið til að hreykja sér af og nú hefur di Stefano — seni er 49 ára — veriö sparkað. — BB. ■JL „Við vitum litiö um styrkleika hinna liðanna þvi að þau eru nær eingöngu skipuð nýliðum, þannig að við teijum okkur eiga nokkuð góða möguleika á að ná langt ef vel tekst til” sagði Jón Arni Rúnarsson fyrirliði unglinga- landsliðsins scm tekur þátt I Norðurlandamóti pilta 18 ára og yngri i Laugardalshöllinni um helgina. Jón Rúnar er einn af leikreynd- ustu leikmönnum islenska liðsins með 8 unglingalandsleiki að baki og er þetta þriðja Norðurlanda- mótið sem hann verður meðal keppenda. Fyrstu leikirnir i mótinu verða i kvöld, þá leikur islenska liðið við það norska og strax á eftir leika Sviþjóð og Danmörk — leikur Is- lands og Noregs hefst kl. 20:00. Mótinu verðursvo fram haldið i fyrramálið kl. 10:00, þá leika Noregur—Island og siðan Is- land—Sviþjóð. Siðar um daginn eða kl. 15:00 leika Dan- mörk—Noregur og tsland—Finn- land. Á sunnudag verður sami háttur hafður á, um morguninn leika Danmörk—Finnland og Sviþjóð—Noregur og siðar um daginn leika Finnland—Sviþjóð og mótinu lýkur með leik tslands og Danmerkur. Það veröa ekki bara piltarnir Reykjavikurmótið og Litla-bikarkeppnin i knattspyrnu hefjast á morgun. Sú nýbreytni verður höfð á i Reykjavfkurmótinu að það lið sem skorar þrjú mörk eða fleiri I leik fær eitt aukastig. Þetta fyrirkomulag hefur viöa verið reynt erlendis við góöa raun, liðin leika sóknarknattspyrnu og skora fleiri mörk — og það hefur þýtt fleiri áhorfendur á leikina. Fyrsti leikurinn á Reykjavikurmótinu verður á morgun kl. 14:00 á Melavellinum. Þá leika Valur og Ármann — og á sama tima leikur Breiðablik við Akranes í Litlu-bikarkeppninni i Kópavogi. Myndina tók Ein- ar Karlsson i leik Fram og Akraness I Meistarakeppni KSÍ um siðustu helgi... „Það er þegar orðið Ijóst hvaða liöleika til úrslita i öllum flokkum nema i 3. deild karla, þar eru kærur i gangi, svo við vitum ekki hvaða liö það verða sem þar koma til með að leika til úrslita” sagði ólafur Jónsson, formaður mótanefndar Handknattleiks- sambandsins, i viðtali við VIsi i morgun. Þegar við spurðum hann um hvaöa flokkar væru komnir i úrslit i einstaka aldursflokkum i tslandsmótinu og hvenær þvi lýki — sagði hann: „Við stefnum að þvi að mótinu ljúki um aðra helgi. 1 kvöld hefj- ast t.d. úrslitaleikirnir i 3. flokki kvenna og i 4. og 5. flokki karla og verður leikið i Hagaskólanum. A morgun og á sunnudag verður svo leikiði Laugardalshöllinni, þess á milli sem ekki verður leikið i Norðurlandamótinu eða kl. 12:30, báða dagana. 1 3.flokki kvenna eru það Val- ur’.Haukar, IBK og Völsungur sem eru i úrslitum, i 4. flokki karlar eru það Haukar, Fram, Kr og KA og i 5. flokki karla eru það 1R, KR, Fram og KA. Svo við höldum áfram með karlaflokkinn, þá eru það KR og Valur sem leika til úrslita i 1. flokki og verður sá leikur senni- sem verða i eldlinunni um helg- ina, Norðurlandamót stúlkna 23 ára og yngri er á dagskrá i Karl- stad i Sviþjóö og er islenska liðið þegar farið utan. Islensku stúlk- urnar hafa æft sig mjög vel að undanförnu og náð athyglisverð- um árangri i undirbúningsleikj- um sinum. Fyrsti. leikur þeirra verður i fyrramálið. Þá leika þær gegn svium. — BB. lega núna á sunnudagskvöldið á undan leik Vals og Vikings i bikarkeppninni. í 2. flokki eru það Ármann, 1R, Vikingur og Þór og i 3. flokki, Þróttur, Vikingur, Ar- mann og Völsungur sem leika til úrslita. úrslitaleikirnir i þessum flokkum fara fram um aðra helgi, á Akranesi og i Hafnarfirði. í 2. deild kvenna leika UMFN, Haukar og Þór frá Akureyri um lausa sætið i 1. deild og fara úr- slitaleikirnir fram á Akureyri um aðra helgi. Keppni i 1. flokki kvenna er þegar lokið. Þar voru aðeins tvö lið — Valur og Fram — og urðu valsstúlkurnar íslandsmeistarar. í 2. flokki kvenna eru það Ár- mann, Valur, Fram og Völsungur sem eru i úrslitum. Þessir leikir eiga að fara fram um aðra helgi, en ekki hefur verið ákveðið hvar leikirnir verða.” — BB. Best er byrjaður Þá er George Best byrjað- ur að skora mörk i Ameriku. Á miövikudagskvöldið lék lið hans, Los Angeies Aztecs, viö Seattle Sounders i Norð- ur-Ameríku deildarkeppn- inni i knattspyrnu Los Angeles Aztacs sigraði i leiknum 2:0 — og skoraði George Best bæjði mörkin. Það fyrra úr vitaspyrnu I fyrri hálfieik, en siðara markið i siðari hálfieik með þrumuskoti beint úr auka- spyrnu af 25 metra færi. — BB. ^hann hefur átt) en á augnabliki ^slakan leik! Jsem þessu er oft go ^að fá sálfræðilegan \stuðning~ og men , fá sjálfstraustiö, aftur. Þetta er' |P* allt i lagi / drengur, veröu aöeins ákveönari — það er allt og sumt, þá verö \ég ánægð ur „Ég vona að þetta mót verði vatn á myllu þess mikla áhuga á badminton sem hér er rikjandi nú eftir að við fengum nýja iþrótta- húsið” sagði Hörður Ragnarsson, formaður badmintonráðs Akra- ness er við ræddum við hann um tsiandsmótið i badminton, sem háð verður á Akranesi nú um helgina. „Þetta er mesti viðburður i badminton, sem hér hefur farið fram” sagði Hörður, sem verður meðal um 100 keppenda á mótinu, en hann og knattspyrnukappinn Jóhannes Guðjónsson eru meðal þeirra sem liklegir eru taldir til sigurs i tviliðaleik karla á mótinu. „Það verður leikið á sjö völlum samtimis. Mótið hefst klukkan tiu fyrir hádegi á laugardaginn og þá leikið fram i undanúrslit i meistaraflokki og a-flokki. Undanúrslitin verða svo á sunnu- dagsmorguninn, en úrslitin hefj- ast klukkan tvö eftir hádegi.” Þetta er i fyrsta sinn um langt árabil, sem Islandsmót i badminton er haldið utan Reykja- vikur — eða allt siðan á „gullöld” iþróttarinnar i Stykkishólmi, en þá var það haldið þar. Akurnesingarnir hafa vandað mjög til þessa móts — gefa m.a. út 32 siðna blað — og er almennt búist við mikilli keppni og skemmtilegu móti á Skipa- skaganum um helgina.— saj/klp Gulismiðurinn Haraldur Korneliusson sankaði að sér gulli i síöasta tsiandsmóti i bad- minton. Leikur hann sama ieik- inn I mótinu á Akranesi um helgina?... Farið að líða að lokum handknattleiksvertíðar flEigum góða möguleika" „Eplið" sigraði I í Sviss! Irena Apple (Epli) frá Vest- ur-Þýskalandi sigraði i stórsvigi I Evrópubikarkeppni kvenna i alpa greinum sem fram fór i Laax i Sviss í gær. Sigur Applesem þykir mjög góð í i bruni byggðist fyrst og fremst á hversu vel henni tókst upp I neöri . hluta brautarinnar i siöari ferðinni. Hún fékk timann 1:16.40 minútur. únnur varð Ursula Konsett frá j Leichtenstein á 1:16.89 minútum, hún var 4/10 úr sekúndu á undan j Apple i miðri brautinni, en tókst illa I1': upp i neðri hlutanum og missti þar með af fyrsta sætinu. Þriðja varð i Wilma Gatta frá ttaliu á 1:17.15 minútum og fjórða varð Claudia i Giordani frá italiu. Hún hlaut silfur á ólympiuleikunum i svigi. Gabi Hauser frá Austurriki er ! stigahæst i keppninni með 85 stig, ■ önnur er Thea Gamper frá ítaiíu með 77 stig og i þriðja sæti eru Ingrid Eberle og Brigitte Schroll — báðar ! frá Austurriki — með 76 stig. — BB. . L ítalarnir | Evrópu- meistarar ALLT ÞAÐ BESTA I BAD- MINTON Á SKIPASKAGA!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.