Vísir - 28.02.1977, Side 17
vtsm
Mánudagur 28. febrúar 1977
21
Fiskimjölsverksmiðja á Snœfellsnesi:
Nesmjöl hefur lagt
fram lánsumsóknir
Stjórn Nesmjöls, sem fisk-
verkendur á Rifi, Ólafsvik og
Hellissandi stofnuóu árið 1974,
hefur nú lagt fram umsóknir um
lánafyrirgreiöslu hjá opinber-
um sjóðum viö byggingu fiski-
mjölsverksmiðju i Rifi eða á
Ólafsvik eftir þvl, hvor staður-
inn yrði talinn hentugri.
Þetta kemur fram i yfirlýs-
ingu frá hreppsnefndum Nes-
hrepps utan Ennis og Ólafsvik-
urhrepps, sem blaðinu barst i
gær, en þar óska þessir aðilar
eftir aö koma eftirfarandi á
framfæri vegna fétta I fjölmiöl-
um um fiskimjölsverksmiöju á
Snæfellsnesi:
„Fiskverkendur i Rifi, Ólafs-
vik og Hellissandi stofnuöu meö
sér hlutafélag Nesmjöl h.f. þann
6. april 1974 i þeim tilgangi að
koma upp fiskimjölsverksmiöju
er unniö gæti allan feitfisk.
Stjórn Nesmjöls h.f. óskaöi
siöan eftir þvi viö þingmenn
Vesturlands aö kannaö yröi á
Alþingi hvort vilji væri fyrir þvi
að rikið byggöi slika verksmiöju
á utanverðu Snæfellsnesi meö
tilliti til vaxandi loönuveiða, en
engin slik verksmiðja er nú til á
svæöinu frá Akranesi að
Bolungavik. Studdu sveitar-
stjórnir Neshrepps og Ólafs-
vikurhrepps þessa ákvöröun,
ennfremur ýmsir opinberir aöil-
ar svo sem Samtök sveitar-
félaga á Vesturlandi.
Alþingi samþykkti i mai 1975
aö rfkisstjórnin léti kanna hvort
hagkvæmt væri aö byggja og
starfrækja fiskimjölsverk-
smiðju á utanveröu Snæfells-
nesi, sem unniö gæti feitan fisk
og fiskúrgang.
Rikisstjórnin lét ekki hefja at-
hugun á þessari samþykkt
Alþingis fyrr en siðastliðiö
haust, og enn er nefnd aö störf-
um um fiskimjölsverksmiöjur i
landinu og hafa engar niöur-
stöður enn birtst úr þessari
athugun rikisstjórnarinnar.
Stjórn Nesmjöls h.f. hefur
fyrir alllöngu látið gera kostn-
aöaráætlun um byggingu 500
tonna verksmiðju, og hefur nú
lagt fram umsóknir um lána-
fyrirgreiðslu hjá opinberum
sjóöum, viö byggingu slikrar
verksmiöju i Rifi eöa Ólafsvlk
eftir þvi hvor staðurinn yröi tal-
inn hentugri.
Hreppsnefndir Ólafsvik-
urhrepps og Neshrepps utan
Ennis hafa á sameiginlegum
fundi á Hellissandi þann 23.
febrúar 1977 ákveðið aö styja af
alefli áform Nesmjöls h.f. um
byggingu slikrar verksmiðju, og
munu sameiginlega beita sér
fyrir beinum stuðningi og viö-
tækri samstööu um máliö.
Hreppsnefndirnar beina þeim
ei>ndregnu tilmælum til stjórn
valda aö jákvæö fyrirgreiösla
veröi veitt i þessu þýðingar-
mikla máli, svo aö framkvæmd-
ir geti hafist hiö fyrsta.”
—ESJ
Smóatriði
eða hvað?
Vegamerki, flugvélahreyfill,
séður út um glugga, bllrúðu-
þurrkur, heypokar. haustlauf i
polll, liðamót á borðlampa.
Þaö sem þessir hlutir eiga
sameiginlegt er aö fæstir veita
Myndin sem Hringur Jóhannesson stendur hér við heitir Tæknin og
sýnir litaðmót á venjulegum vinnulampa. Ljósm. JA.
þeim sérstaka athygli, en þó er
einn maöur sem sér þá sem
spennandi myndamótíf. Hann
er Hringur Jóhannesson list-
málari og gefst fólki aö lita
myndir meö þessum hlutum
meöal annarra á sýningu sem
hann opnaöi aö Kjarvalsstööum
um helgina.
A sýningunni eru 51 oliumál-
verk og 43 teikningar. Sagöi
Hringur i samtali viö VIsi aö sér
fyndist þessar tvær tegundir
mynda fara vel saman á sýn-
ingu. Hins vegar sýndi hann
oliukritarmyndir sinar sérstak-
lega. Hringur hefur ekki sýnt
oliumálverk siðan 1973 og sagöi
hann aö á þessári sýningu væru
flestar þær myndir sem hann
heföi málaö siöan.
Hringur hefur haldið 11 meiri-
háttar einkasýningar. Hann á
núna 9 oliupastelmyndir á
farandsýningunni öga mot öga,
sem fer milli höfuöborga
Noröurlanda um þessar
mundir. Eins á hann verk á
Listasafin Islands, Listasafni
A.S.I., safni Reykjavikur-
borgar, Kópavogs, Borgarness,
Akureyrar og viöar á einkasöfn-
um.
Sýningin er opin til 13. mars
kl. 16—22 virka daga og 14—22
um helgar. — SJ.
Sýna plaköt frá Palestínu
Palestinunefndin á tslandi hef-
ur opnað sýningu á palestinskum
plakötum og ýmsum öðrum mun-
um I GalleriSÚM og mun sýning-
in verða opin klukkan 4 til 8 virka
daga og 2 til 10 laugardaga og
sunnudaga, frá 20. febrúar til 6.
mars.
Markmið Palestínunefndarinn-
ar með þessari sýningu er að
kynna islendingum baráttu
palestinuaraba og gefa innsýn i
I
menningu þeirra og daglegt lif
Aðgangur að sýningunni
Galleri SÚM er ókeypis. Allar
myndirnar eru til sölu við vægu
verði.
—EKG
MEGRUNARLEIKFIMI
Nýtt námsekiö
Vigtun — Mæling — Gufa — Ljós
— Kaffi — Nudd — Megrunar-
fæða — Matseöill.
Innritun og upplýsingar í síma
83295 alla virka daga kl. 13-22.
Júdódeild Ármanns
Armúla 32
Róðstefna BSRB
um lifeyrísmál
Bandalag starfsmanna
rikis og bæja heldur ráð-
stefnu um lifeyrismál-
efni starfsmanna ríkisins
17.-19. mars í félags-
heimili Hreyfils við
Fellsmúla i Reykjavík.
A ráöstefnunni mun Hákon
Guðmundsson, formaöur
stjórnar Lifeyrissjóös starfs-
manna rlkisins, og Guöjón
Hansen, tryggingafræöingur,
flytja erindi, og upplýsingar
veröa gefnar um biöreikning
fjármálaráöuneytisins og lif-
eyrisjóöi bæjarstarfsmanna og
annarra.
Ráöstefnan er opin öllum
áhugamönnum um lifeyrismál-
efni opinberra starfsmanna,
m.a. eftirlaunafólki, og ber aö
tilkynna þátttöku á skrifstofu
BSRB fyrir 15. mars n.k.
—ESJ
Bjóðum yður: Andlitsböð og húðhreinsun.
Fjarlægjum óæskilegan hárvöxt i andliti.
Litun. Kvöldförðun. Hand og fótsnyrting.
Afsláttur á 3ja skipta andlitsnuddkúrum.
Vinnum úr hinum viðurkenndu frönsku
LANCOME snyrtivörum.
Fegrunarsérfrœðingarnir:
Verzlunar-
og skrifstofufólk
Verzlunarmannafélag
Reykjavikur heldyr félags-
fund að Hótel Esju, þriöju-
daginn 1. marz kl. 20.30.
Fundarefni:
Kjaramál.
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur