Tíminn - 01.08.1968, Blaðsíða 1
Arni Gunnarsson, fulltrúi í
menntamálaráðuneytinu, við
embætti forsetaritara.
Þetta er fyrsta myndín, sem borizt hefur frá viðræðunum í Cierna. Til vinstri er formaður rússnesku viðræðunefndarinnar, Leonid Breznév, en
til hægri er formaður hinna tékknesku, Alexande Dubcek. (Símamynd: NTB).
Dregið hefur úr tauga-
stríði Rússa við Tékka
NTB-Moskva, Prag, Varsjá.
ic Fundi sovézkra og tékk-
neskra leiðtoga var haldið áfram
í tékkncska landamærabænum Ci-
erna í dag. Opinberar tilkynning-
ar um hvenær fundinum Ijúki eða
um hvað viðræðurnar snúist eru
svo óljósar og stuttorðar, að alger
ringulreið hefur ríkt í fréttasend-
ingum blaða og útvarps víðsvegar
í heiminum í dag og stangast þar
hver. tilgátan á við aðra. Þó er
vitað með vissu, að stutt hlé var
gert á fundinum í dag vegna smá
vægilegs lasleika aðaltalsmanns
Sovétmanna, Leonid Brésnev. I
kvöld var Brésnev aftur mættur
til viðræðnanna sem og Dubcek,
aðalritari tékkneska kommúnista-
flokksins, en uppi var orðrómur
um, að hann myndi halda til Prag
í kvöld og flytja sjónvarps- og út-
varpsávarp til þjóðar sinnar um
gang viðræðnanna.
ic Heldur dró úr árásum j
Moskvublaðanna á tékknesku vald- j
hafana I dag og telja erlendir
stjórnmálafréttaritarar það geta
verið afleiðing fundahalda í Ci-
erna. Moskvublöðin skýrðu frá við-
ræðunum í dag á forsíðu og Tass
fréttastofan sagði frá því að við-
ræðurnár færu fram í „bróðerni
og einlægni“. Hins vegar minntist
Tass ekki á veikindi Brésnevs eða
að drægi að lokum fundarins.
ir Málgagn sovézka hersins,
Rauða stjarnan, sagði frá því í dag
að hinum umfangsmiklu loftvarna
æfingum, sem staðið hafa yfir á
vesturlandamærum Sovétríkjanna
væri nú að ljúka. Blaðið skýrði
einnig frá því, að hinum víðtæku
varaliðsæfingum í landamærahér-
uðunum við Tékkóslóvakíu yrði
haldið áfram um ófyrirsjáanlegan
tíma.
Óvíst hvenær fundinum lýkur.
Leonid Bresnev mun að öllum
líkindum hafa kennt lasleika
skömmu tyrir hádegi í dag, því að
hann varð að yfirgefa fundarstað-
inn í dag og draga sig í hlé og
dvaldi hann í hinni grænu einka-
lest rússnesku sendisveitarinnar á
járnbrautarstöðinni í Cierna um
hríð. Seinna í dag var tilkynnt, að
Brésnev væri aftur seztur við
samningaborðið og tæki þátt í við-
ræðunum í kvöld. í kvöld lágu
engar öruggar heimildir fyrir um
það hvenær viðræðunum lyki, en
hins vegar voru uppi margar get-
gátur.
Fljótt eftir að sagt var frá veik-
indum Brésnevs breiddist það út,
að fundinum væri þar með lokið.
Þetta var hins vegar borið til baka
af fréttamanni tékknesku frétta-
stofunnar Ceteka. Sagði hann, að
fundinum yrði haldið áfram í kvöld
og lyki honum ef til vill seint í
kvöld en einnig væri hugsanlegt
að sendisveitirnar þyrftu að koma
saman til lokafundar í fyrramálið
til þess að leggja síðustu hönd á
sameiginlega lokayfirlýsingu um
árangur viðræðnanna.
Lokayfirlýsingar viðræðnanna
er beðið með kvíðablandinni eftir
Framhald á bls. 14
Síðasti ríkis-
ráðsfundur
hr. Ásgeirs
f frétjfc frá ríkisráðsritara,
sem Tímanum barst í dag, seg-
ir:
Á fundi ríkisráðs í Reykjavík
í dag var frú Guðrun P. Helga-
dóttir, skólastjóri, skipuð í
orðunefnd í stað Þórarins heit-
ins Björnssonar, skólameistara,
Þorleifi Thorlacius var veitt
lausn frá embætti forsetaritara,
þar eð hann hefur tekið við
starfi i sendiráðinu í Bonn og
ýmsar afgreiðslur voru stað-
festar, er farið höfðu fram utan
ríkisráðsfundar.
í lok fundarins þakkaði for-
sætisráðherra forseta íslands,
herra Ásgeiri Ásgeirssyni,
störf hans sem forseta og árn-
aði honum allra heilla, en þetta
var síðasti ríkisráðsíundur í
embættistíð núverandi forseta.
Forseti íslands þakkaði for-
sætisráðherra og ríkisstjórninni.
Þá barst Tímanum eftirfar-
andi trétt frá forsætisráðuneyt-
rierra Asgeir Asgeirsson *ltur siöasta rikisraösfund í embættistíð sinni.
(Ljósm.r^P. Thomsen)
Oþurrkar
hafa tafið í
Suðurlandi
tvær vikur
OÓ-Reykjavík, miðvikudag.
Bændur á Suðurlandi
eru orðnir langeygðir eftir
þurrki. Tvær vikur eru nú
liðnar síðan sláttur hófst
og var þá gras fullsprottið
og náðu sumir inn ein-
hverju af heyjum en vegna
þurrkleysis undanfarið
hefur lítið verið slegið og
er nú gras orðið úr sér
sprottið, og farið að leggj-
ast.
Óþurrkurinn er rnestur í
• Árnes- og Rangárvallasýslum,
en fyrir austan Mýrdal er á-
standið 'skárra og hafa bændur
þar náð inn talsverðu af heyj-
um. Á óþurrkasvæðinu hefur
nokkuð verið slegið í vothey,
en bæði er að allir bændur
hafa ekki votheysgeymslur og
eins hitt að flestir sem verka
hey á þann hátt vilja heldur
slá það og verka í þurru veðri.
Þrátt fyrir óþurrkana hefur
ekki rignt mjög mikið, hins
vegar er oft súldarveður og
rignir alltaf eitthvað á hverj-
um sólarhringi.
Ef enn dregst á langinn að
þorni, sprettur grasið enn
meira úr sér og verður þá
erfiðara að slá, enda eru bænd
ur mjög farnir að þrá þurrkinn.
A söndunum undan Eyjafjöll
um, sem ræktaðir hafa verið
upp, eru elztu stykkin orðin
ofsprottin og grasið farið að
leggjast, en það sem nýrra er,
er grasið nú mátulega sprott-
ið til að slá það.
Þistilfirðingarnir sem eru á
engjum á forunum ofan við
Eyrarbakka, hófu slátt s.l.
sunnudag, en eðlilega háir
þurrkleysið þeim ekkl síður en
Framhalfi á bls. 14.