Tíminn - 09.08.1968, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 9. ágúst 1968.
EjnGH TÍMINN ÍÞRÓTTIR
Urslit kunn í 2.
Islandsmótsins í
og 3. deití
knattspyrnu
klp-Reykjavík.
Keppni í 2. og 3. deild íslands-
mótsins er nú íokið að mestu, og
vitað er hvaða lið það eru, sem
sigrað hafa í sínum riðlum, nema
c-riðli 3. deildar (Austfjarðariðill-
ínn) en þar er kærumál. Þróttur
frá Neskaupstað er efst i þeim
riðli með 6 |stig, en Leiknir frá
Fáskrúðsfirði kærði leik sinn við
Hrafnkel Freysgoða frá Breiðdals-
vík og á eftir að dæma í því máli.
Vinni Leiknir kæruna, eru þeir
einnig með 6 stig og þurfa því að
leika úrslitaleik við Þrótt.
Næsta ár verður liðunum í 1.
deild fjölgað í 7 og 1970 í 8 lið,
en þannig á 1. deildin að vera í
náinni framtíð. Tvö lið falla þá
á hverju ári og tvö koma upp úr
annarri deild í þá fyrstu.
Sanrn fyrirkomulag verður á 2.
deild. í ár leikur neðsta liðið í
1. deild við sigurvegarana úr báð-
um riðlum 2. deildar, Akranes og
Hauka, og fara 2 lið upp af þeim.
Neðstu liðin í 2. deild, Víkingur
og að öllum líkindum ísafjöfður,
en þeir eiga 1 leik eftir við Akra-
nes, leika síðan til úrslita við lið-
in 3, sem sigruðu í sínum riðlum
í .3. deild, þ. e. a. s. Þrótt, Nes-
kaupstað, eða Leiknir, Völsunga
frá Húsavík og HSH frá Snæfells-
nesi.
Hreinn Elliðason, sem nú leikur
með Akranesi, er markahæstur
landsmanna til þessa og á mögu-
Hreinn Elliðason markahæsti knattspyrnumaðurinn, á
leika á að bæta yið sín 11 mörk
í leiknum við ÍBÍ, sem fram fer
á sunnudaginn kemur.
Þrir af markahæstu leikmönnun
um í 1., 2. og 3. deild í ár eru
allir fyrrverandi leikmenn úr
Fram, Hreinn Elliðason, Erlingur
Kristjánsson, sem lék lengi með
1. deildar liði Fram í handknatt-
leik, og Gísli Guðmundsson, Hrönn
Reykjavik, sem lék í yngri flokk-
um Fram.
Hér á eftir fer staðan og marka
hæstu menn í öllum deildum eins
og hún er í dag:
1. deild
KR
ÍBA
Fram
Valur
ÍBV
ÍBK
Markahæstu menn:
Kári Árnason, ÍBA 8
Helgi Númason. Fram 7
Hermann Gunnarsson, Val 6
Reynir Jónsson. Val 6
Ólafur Lárusson, KR 5
Gunnar Felixson, KR 4
Sævar Tryggvason, ÍBV 3
Þórólfur Beck, KR 3
Staðan í deildunum er þannig:
7421 20:11 10
7 3 4 0 12: 5 10
7 3 3 1 13:10 9
7 2 3 2 13:11 7
7 2 0 5 11:19 4
7 0 2 5 3:16 2
2. deild
Haukar
FH
Þróttur
Víkingur
a-riðiil:
6 4 11 14:10 9
6 14 1 13:11 6
6 2 13 10:14 5
6 1 2 3 8:10 4
Markahæstu menn: Jóhann Lar-
sen, Haukum, 6 Örn Hallsteins-
son, FH, 6, Helgi Þorvaldsson,
Þrótti, 5, Hafliði Pétursson, Vík..
5, Geir Hallsteinsson, FH, 3, Gunn-
ar Gunnarsson, Vík. 2, Viðar
Símonarson, Haukum, 2, Herbert
Kristinsson, Haukum, 2, Helgi
Ragnarsson, FH, 2, Steingrímur
Hálfdánarson, Haukum, 2.
2. deild — b-riðill:
Akranes 5 5 0 0 25: 5 10
Breiðablik 6 2 1 3 8:20 5
Selfoss 6 12 3 11:14 4
ísafjörður 5 113 5:10 3
Markahæstu menn: Hreinn Elliða
son, Akranes, 11 Matthías Hall-
grímsson, Akranesi, 6, Bjarni Lár
usson Akranesi, 4, Sigurður Eiríks
son, Self., 4, Guðjón Guðmundss.,
Akranesi, 4, Guðmundur Þórðar-
son, Breiðabliki, 4, Þorvarður
Hjaltason, Self.. 3, Hermann Níls-
son, ísafirði, 3.
3. deild — a-riðill:
HSH, Snæf. 6 6 0 0 23:10 12
Víðir, Sandg. 6 3 0 3 17:13 6
I Njarðvík 6 2 0 4 13:18 4
Umf. Hrönn, R. 6 1 0 5 17:29 2
Markahæstu menn: Gísli Guð-
mundsson, Hrönn, 8, Erlingur
Kristjánsson, HSH, 8, Gylfi Þor-
steinsson, Víði, 6 Sigurður R. Elías
son, HSH, 6, Hörður Jóhannsson,
Víði, 6, Jóhann Jakobsson, Hrönn,
4, Sigurður Ingvarsson, Víði, 4,
Hilmar Hafsteinsson, Njarðvík, 4,
Egill Ross, HSH, 3, Einar B. Jóns-
son, Njarðvik, 3.
3. deild — b-riðill:
Völsungar, Húsav. 4 3 0 1 11: 6 6
Siglufjörður 3 1 0 2 5: 5 2
Reynir, Sandg. 3 1 0 2 2: 7 2
Stefnir, Súgandafirði hætti keppni.
Matkahæstu menn: Sigþór Sigur
jónsson, Völsungum, 5, Sverrir
Pálsson, Völsungum, 2, Guðmund-
ur Skarphéðinsson, Siglufirði, 2,
Eiður Guðjónsso-n, Völsungum, 2..
3. deild — . c-riðill:
Þróttur, Nesk. 4 3 0 1 7:3 6
Austri, Eskif. 4 2 11 5:3 5
Leiknir, Fáskr. 4 2 0 2 8:7 4
Spyrnir, Héraði 4 112 5:9 3
Hrafnkell Freysg..
Breiðdalsvík 4 10 3 4:7 2
Stöðfirðingar og-Huginn á Seyðis-
firði hættu keppni í Austfjarða-
riðlinum.
Markahæstu menn: Guðmundur
Hallgrímsson, Leikni, 4, Hörður
Þorbergsson, Þrotti, 2, Ijráinn Rós-
mundsson, Austra. 2, Stefán Stef-
ánsson, Þrótti, 2.
Hreinn Elliðason
Hvenær ætlum við að velja
„knattspyrnumann ársins?"
Flestar knattspyrnuþj. Evrópu hafa
valið sinn bezta knattspyrnumann
KLP-Reykjavik.
„Knattspyrnumaður ársins“ er
viðurkenning, sem allar knatt-
spymuþjóðir heims, nema ísland,
veita sínum bezta knattspyrnu-
Eusebío knattspyrnumaður ársins í
Portugal.
manni, að undangenginni atkvæða
greiðslu, sem látin er fara fram
í lok hvers leiktímabils.
Það, sem aðallega er tekið til-
lit til, er geta leikmannsins yfir
keppnistímabilið í heild, ásamt al-
mennum vinsældum, framkomu
hans utan vallar sem innan, og
margt ann»ð. Margar þjóðir hafa
þegar kosið „Knattspyrnumamn
ársins 1968“ en val rússnesiku verð
launanefndarinnar hefur komið
mest á ó\'art utan Rússlands. —
í Rússlandi eru verðlaunin talin
hafa fallið í skaut þess manns,
sem átt hafi þau fyllilega skilið.
Þessi maður sem fékk verðlaunin
nú í fyrsta sinm, er hinn frábæri
framherji Dynamo Moskva, og
landsliðsins, Streltzov. Hann var
þegar á árunum kringum 1960
einn bezti knattspyrnumaður Rúss
lands og Evrópu, en gæfam var
honum ekki hliðholl. Árið 1963
var hann dæmdur til ævilamgrar
þrælkunarvinnu í Rússlandi fyrir
nauðgunartilraun, en hann hafði
oft áður lent í vandræðum, og
átti oft í útistöðum við lögin,
vegma ölvunar við akstur, ölvun
ar á almanmafæri, rúðubrota og
slagsmála á veitingahúsum, sem
hann stundaði vel á þessum gull-
árum sfnum. Knattspyrnusamiband
ið og Dynamo Moskva létu sem
ekkert væri þrátt fyrir margitrek-
uð brot hans, en út úr síðustu
vamdræðum gátu þeir ekki hjálp-
að honum. Æðsti dómstóll Ráð-
stjórrarrikjanna dæmdi Streltzov
svo til ævilangrar þrælkumarvimnu
og sagði svo í dómsorði, að hann
hefði verið átrúnaðargoð milljóna
ungmenna um gjörvöll Ráðstjórn
arríkin, og því væri brot hans og
dómur til viðvörunar þeim þús-
undum ungmenna sem hugðust
feta í fótspor hans í íþróttaheim-
inum. En Streltzov var aðeims
3 ár í þrælkunarvinnunni, þá var
honum sleppt, vegna góðrar hegð
unar. Hann hóf þegar æfingar
með Dynamo Moskva, og brátt
var hann kominm i A-lið félagsins
og síðan lá leiðin enn á ný í
rússneska landsliðið. Á síðasta ári
lék hann með því alla leikina,
og var annar markahæsti leikmað
ur Evrópu í landsleikjum á því
ári. Streltzov er nú allt amnar
maður en fyrir dóminn þunga;
— árin þrjú hafa breytt honum
úr hrokafullu ungmenni í karl-
mann, sem allir dá, bæði utan
vallar sem innan.
í öðrum löndum hafa þegar ver
ið valdir knattspyrnumeinm ársins,
og er okkur kunnugt um þessa:
George Best var kosinn knatt-
spyrnumaður ársins í Englandi,
af íþróttafréttariturum þar, en
þeir einir velja í þvi landi. Best
er ekki aðeins vinsæll hjá þeim,
heldur er hann átrúmaðargoð þús
umda ungmenna, um gjörvallt Bret
land, og þó víða væri leitað.
Á ftalíu var Lugí Ríva kosnnn
bezti knattspyrnumaðurinn, en-
hann leikur með Caglíari. Hann
var eimnig kosinn íþróttamaður
frsins 1967.
f Frakklandi var fyrir valimu
fyrirliði St. Etienne og franska
landsliðsins, Bernard Bosquir.
fvíca Osim, sem leikur bakvörð
með Zelejnik^r frá Júgóslavíu,
var kosinn bezti knattspyrnumað-
urinn þar.
í Svíþjóð var vinstri útherji
Malmö FF, Ingvar Svahn, fyrir
valinu, og hlaut „Gull-knöttimn ,
eins og verðlaunin eru kölluð hjá
þessum frændum okkar.
í Belgíu eru verðlaunin kölluð
„Gull-skórinn“, ' og fékk þau að
þessu sinni hinn 33 ára gamli
markvörður Briiges, Fernand
Boone.
í Portúgal var Esubio valinn
í þriðja sinn í röð.
Fleiri þjóðir hafa valið sinn
bezta knattspyrnumann, en okkur
hefur ekki tekizt að fá fleiri nöfn
til þessa.
Hér hjá okkur eru engin slík
verðlaun veitt, og erum við eina
landið í Evrópu, sem ekki velur
sinn bezta knattspyrnumamn. Hjá
öðrum þjóðum er valimn íþrótta-
Framhald á 12. síðu.
Streltzov knattspyrnumaSur ársins í
Rússlandi,