Vísir - 10.06.1977, Blaðsíða 8

Vísir - 10.06.1977, Blaðsíða 8
8 Fjármálastjóri Starf fjármálastjóra hjá Rafveitu Hafnarfjarðar er laust til umsóknar. Óskað er eftir að umsækjandi hafi við- skiptafræðimenntun eða góða starfs- reynslu við bókhald. Laun eru samkvæmt launaflokki B-21. Umsóknum skal skila á sérstökum eyðu- blöðum fyrir 20, júni n.k. til rafveitu- stjóra, sem veitir nánari upplýsingar um starfið. Rafveita Hafnarfjarðar. fRáðningarstofa Reykjavikurborgar óskar eftir að róða fulltrúa til að annast atvinnumál öryrkja Umsóknir um starfið skulu sendar Ráðningarstofu Reykjavlkurborgar, Borgartúni 1, og skal I umsókn til- greina menntun og fyrri störf. Nánari upplýsingar um starfið eru gefnar á Ráðn- ingarstofu Reykjavíkurborgar. Umsóknarfrestur er til 25. júni n.k. Ráðningarstofa Reykjavikurborgar. Tilboð óskast i eftirtaldar bifreiöar i tjónsástandi. Ford Econoline '74 Fíat 128 Rallý '74og'75 Fíat 128 '74 Peugeot 504 '72 Moskvitch '71 Daf fólksbtII '70 Fíat 127 '72 Bifreiðarnar veröa til sýnis við skemmu FIB Hvaleyrarholti laugardaginn 11. júní frá kl. 13-17. Tilboð óskast send aðalskrifstofu Laugavegi 103 fyrir kl. 17 mánudaginn 13. júní. Brunabótafélag islands Laugavegi 103. Smiðir óskast óskum eftir að ráða nokkra smiði. Uppl. i sima 52595. Vershjnarhúsnœði óskast Verslunarhúsnæði á Grensás-, Ármúla- eða Siðumúlasvæði óskast strax. 100-150 ferm. Helst á jarðhæð. Tilboð um stað og kjör sendist dagblaðinu Visi merkt „X- 2525”. Útboð Utanhússmólning Keflavík Tilboð óskast i málningu fjölbýlishúss við Faxabraut 25-27 og Sólvallagötu 38-40 í Keflavik. titboðsgagna má vitja hjá Val- geiri Sighvatssyni Sólvallagötu 40 Kefla- vikog hjá verkfræðistofunni Borgartúni 29 Reykjavik gegn 5000 kr. skilatryggingu. Teiknaði sýningar- gesti fyrir eina krónu Sigurður Thoroddsen verkfrœðingur opnar fjórðu einkasýningu sína ó laugardaginn að Kjarvalsstöðum ,,Ef maftur hefur gaman af ein- hverju hefur maður alltaf tima til þess að sinna þvi”, sagði Sig- urður Thoroddsen verkfræðingur i samtali við Visi, en hann hefur verið afkastamikill málari sam- hiiða þvi sem hann hefur rekið stóra verkfræðistofu. Sigurður opnar á laugardaginn sýningu á myndum sinum að Kjarvalsstöðum. Hann sýnir þar um 200 vatnslitamyndir og teikn- ingar, sem hann hefur gert á 65 ára timabili. Elsta myndin er frá árinu 1912, en hana málaði Sig- urður af útsýninu út um svefnher- bergisgluggann sinn þegar hann var 10 ára gamall. Pólitiskar skopmyndir A sýningunni eru nokkrar skopmyndir sem Sigurður teikn- aði á árunum i kringum 1940. Þeirra á meðal eru myndir af Ólafi Thors, Bjarna Benedikts- syni og Halldóri Laxness. „Ég byrjaði að teikna skop- myndir eftir að austurrikismað- 'Á*A V f I Sigurður Thoroddsen viö skopmynd af Arna Pálssynl verkfræöingi. Mynd JA urinn Strobl kom hingað. Hann teiknaði mikiö skopmyndir og þannig kynntist ég þessu,” sagöi Sigurður. „Þetta var á Þjóðstjórnarárun- um og þá var litið að gera á verk- fræöistofunni. Ég notaði þá tim- ann til þess að teikna. Ég á ennþá milli eitt og tvöþúsund skop- myndir af fólki. A þessum tima teiknaöi ég nokkuð af skopmyndum fyrir Þjóðviljann. Þær voru allar póli- tiskar. Ég hélt einu sinni sýningu á þessum myndum minum og voru áþeirrisýningu teikningaraf hátt á annaö hundrað manns. A sýn- inguna komu 1850 manns, en i þá tið þótti gott ef 200 komu á sýning- ar. Þarna seldi ég þrjár myndir. Auk þess teiknaði ég þá sem vildu, á meöan á sýningunni stóð, og kostaöi það einá krónu”. Þetta er fjórða einkasýning Sigurðar. Hann Utskrifaöist verk- fræðingur frá Polyteknisk Læreanstalt i Kaupmannahöfn árið 1927. 1 myndlist hefur hann sótt nokkur námskeið. Hann hef- ur nú látið alveg af verkfræði- störfum, en eins og hann segir sjálfur: „Ég hef nóg að gera”. —SJ Fékk salinn aðeins fyrir vatnslita- myndir ,,Ég fékk ekki leyfi hjá List- ráöi til þess að sýna annaö en vatnslitamyndir, svo ég tók þvi fremur en að sleppa þessu al- veg. Annars hef ég aðallega fengist við olíumálverkin,” sagði Jón Gunnarsson listmál- ari i samtaii við Visi. Jón opnar á laugardaginn sýningu á 76 vatnslitamyndum á Kjarvalsstöðum. Þetta er 8. Jón Gunnarsson. einkasýning hans, en auk þess hefur hann tekið þátt i mörgum samsýningum. Til dæmis er hann um þessar mundir með 3 stórar oliumyndir á sýningu i Sviþjóö. Síöast sýndi Jón hér heima i Iönskólanum i Hafnar- firði árið 1973. Sýning Jóns að Kjarvalsstöð- um verður opin til sunnudags- kvölds 19. júni, kl. 2-10 alla daga nema mánudaga. * " 1 * Gott verslunar-, skrifstofu- og iðnaðar- húsnœði til leigu! (----------------------------------^ Til leigu er um 135 ferm húsnæði við eina mestu umferðargötu borgarinnar. Húsnæði þetta er að hluta á annarri hæð, en vegna mjög góðrar og áþerandi staðsetningar og stórra sýningarglugga kemur það jafnt til greina fyrir verslunarrekstur (t.d. húsgagnaverslun, byggingavöruverslun, heimilistækjaverslun eða véla- og varahluta- verslun) sem skrifstofu- eða iðnrekstur. Húsnæðið skiptist í 90 ferm sal, 20 ferm. herbergi (viðarklætt) og 25 ferm. herbergi auk salerna. Lofthæð í húsnæðinu er yfir 3m. Húsnæðiðjer óvanalega bjart. Lang- ur leigusamningur kemur til greina. Ennfremur stækkunarmöguleik- arsiðar. Húsnæðiðer laust og getur afhending á því farið fram strax. Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 18820 á skrifstofutíma.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.