Vísir - 27.06.1977, Blaðsíða 2

Vísir - 27.06.1977, Blaðsíða 2
16 I ' ÍÍMÍ Mánudagur 27. júnl 1977 VISIR VISIR Mánudagur 27. júnl 1977 Ipróttir 17 Gengur illa að finna Jóhames Þaö hefur ekki fariö fram hjá neinum aö islendingar leika landsleik I knattspyrnu viö Noreg 30. júní. Ljóst er aö Asgeir Sigur- vinsson leikur ekki meö og enn er allt á huldu um hvort Jóhannes Eövaldsson fyrirliöi landsliösins verður meö. „Þaö viröist vera gjörsamlega vonlaust aö ná f Jóhannes um þessar mundir. Viö hjá KSl erum búnir aö reyna aö ná i Jóhannes núna undanfarna daga en þvf miöur án árangurs” sagöi lands- liösþjálfarinn Tony Knapp I gær- kvöldi er Visir inntihann eftir þvi hvort Jóhannes léki umræddan landsleik. Vissulega yröiþaö áfall fyrir Is- lenska liðiö ef Jóhannes„fyndist” ekki fyrir leikinn, þvf ekki er um auöugan „m iövaröagarö” aö gresja um þessar mundir. — SK. ★ ★ ★ Stúdentar réðu Birgi Birgis Birgir örn Birgis sém þjálfaöi Armenninga s'föastliðiö keppnis- timabil i körfuknattleik hefur nú ráöiö sig til tþróttafélags ■Stúd- enta og mun hann þjálfa liöið á vetri komanda. Einnig hefur þvf verið fleygt aö Gunnar Gunnarsson sem þjálfaö hefur unglingalandsliöiö aö und- anförnu ásamt Kristni Stefáns- syni, hygöist taka aö sér þjálfun hins unga og efnilega Framliös. Þá er nokkuö öruggt aö Simon ólafsson gengur yfir f Fram á- samt þá liklega Birni Magnússyni og ef til vill fleirum. Veröur þaö Fram mikill styrkur ef Simon skiptir um félag. Meö hliösjón af samþykkt nýaf- staöins körfuknattleiksþings eru svo vitaö sé, þegar þrjú 1. deildar félög KR, tS og Valur farin aö leita aö „útlendingum” fyrir næsta keppnistimabil.Fóru þeir Kolbeinn Pálsson og Bjarni Gunnar Sveinsson nú nýveriö gagngert utan til aö leita aö leik- mönnum. Er þviallt útlit fyrir aö mikiö fjör veröi I körfunni næsta vetur. — SK. ★ ★ ★ Alfir iriðarnir Iðngu uppseldir Enginn smá áhugi viröist rikja á leik Brasilfu og Júgóslaviu sem fram fcr I Júgóslavfu I dag. AUir aögöngumiöarnir 120 þúsund tals- ins eru löngu uppseldir og færri komust aö en vildu. Þjálfari júgóslvanna sagöi i gærkvöldi aö liö hans ætlaði ekki aö spila lokaöan varnarleik eins og englendingar léku gegn Brasil- fu og Skotlandi nú nýveriö. t fyrstu umferð nokkurs konar sumar Evrópukeppni I knatt- spyrnu sem nú stendur yfir uröu úrslit m.a. þessi: Eintracht Frankfurt V-Þýskalandi tvö — Inter Bratislava Tékkóslóvakfu tvö — Lilleströem Noregi núll — Zaglebie Sosnowiec Pölland tvö. Frem Danmörk þrjú — Ruch Chorzow Póllandi núll, Hertha Berlín A-Þýskal. eitt — Admira Wien núll, Halmstad Svíþjóö eitt — Maccabi Yaffo tsrael eitt. —S.K. ★ ★ ★ Juantorena var maður mótsins Mjög sterkt frjálsíþróttamót var haldiö I Crystal Palace I Eng- landi um halgina. Helstu úrslit: t stangarstökki sigraöi Banda- rikjamaöurinn R. Pullard stökk 5,40 m. 1 spjótkasti sigraði Juan Jarvis frá Cúbu kastaði 76,12 m. t einnar milu hlaupi sigraöi Bretinn Seve Ovett á 3,54,69 min. Körfuknattleiksmaöurinn Juantorena frá Cúbu sem sigraöi i 800 m hlaupi á slöustu ólypiu- leikum sigraöi bæöi I 800m og 400 m hlaupi á frábærum timum. Hann hljóp 800 m á 1,45,50 mln og 400 m á 45,30 sem er annar besti tími sem náös hefur f heim- inum i ár. 1 100 m hlaupi kvenna sigraöi Annegret Richter frá V- Þýkalandi á tfmanum 11.03 sek sem er aðeins tveimur hundruö- ustu frá heimsmetinu. t milu göngu sigraöi Bretinn R. Mills gekk miluna á 6,18,84 mfn. t 110 m grindarhlaupi sigraöi Cúbumaöurinn Alejandro Casan- as á 13,54 sek sem er mjög gott af- rek. t 200 m hlaupi sigraöi Don Quarrie hljóp á 20,69 sek. En maður mótsins var alberto Juan- torena eins og tfmar hans gefa glögglega til kynna. Eftir mótiö sagöi kappinn: „Ég er alltaf þreyttur eftir fyrstu 50 metrana ég veit ekki af hverju, ég bara er svona.” „Ég er i góðu formi núna og ekkert hræddur við neinn. Ég hef enga ástæöu til þess aö hræöast, þaö sannaði ég á slöustu ólympfu leikum.” —SK. fleiri Krteunöguleika Þegar fjölskyldan ferðast saman og notar flölskyldu- fargjöld, þá borgar einn fullt fargjald, en allir hinir aðeins hálft. Þannig eru fjölskyldufargjöld okkar er gilda nú allt árið til allra Norðurlandanna og Bretlands. Fjölskyldufargjöld henta vel jafnt vetur sem sumar, og hvort heldur um er að ræða orlofsferð eða viðskipta- erindi. Spyrjið sölufólk okkar, umboðsmenn og ferðaskrif- stofumar um þessa auknu ferðamöguleika allrar íjölskyldunnar. f^FELAC loftleidir ISLAJVDS Fullt fargjald fyrir einn, hálft fyrir alla hina. ljSuLr*‘7M& FJOGUR TÆKIFÆRI EN EKKERT MARK! Vikingur og ÍBV gerðu jofntefli 0:0 í ofar leiðinlegum leik i 1. deild r Islandsmótsins í knottspymu Það er óhætt að segja aö leikur Vfk- ings og IBV sem leikinn var á Laugar- dalsvellinum á laugardaginn sé sá al- lélegasti sem sést hefur I tslandsmót- inu til þessa, — ekki nokkur knatt- spyrna. Fjögur tækifæri sáu dagsins ljós i fyrri hálfleik. Jóhannes Bárðarson komst einn innfyrir vöm 1-BV en „rakti” boltann of langt frá sér og ekkert varð úr. Tómas Pálsson stóö siöaneinn og óvaldaðurá markteig, en hitti ekki boltann. Einar Friðþjófsson átti gott skot á mark Vikings, og boltinn stefndi I blá- Mikil barátta og læti en Diörik náöi þó aö góma knöttinn eins og oftar I leiknum. hornið uppi en Diðrik varöi snilldar- lega. Og siðasta tækifæri hálfleiksins átti Karl Sveinsson er hann skaut á mark Vikings frá vitateigshorni en boltinn strauk stöng utanverða. 1 siðari hálfleik var sem vestmanna- eyingar sæktu aðeins meira ef eitt- hvað var, en aðeins eitt tækifæri komst þó á minnisblað og var þaðá 49 minútu er eyjamenn fengu hornsspyrnu og Sveinn Sveinsson skallaði rétt yfir. Leiknum lauk þvi með markalausu jafntefli og voru það eftir atvikum sanngjörn úrslit. Hjá Vikingum var það Diörik mark- vörður sem stóð uppúr og varði hann oft vel. Aðrir léku illa. Vestmannaeyingar voru eins og áður sagði heldur skárri aöili þessa leiks og þar átti Friðfinnur Finnboga- son einna bestan leik en einnig átti Sigurlás góða sprettien vantar þó alla vinnslu, virðist engu nenna nema þegar hann er með boltann. Leikinn dæmdi Þorvarður Björnsson, og gerði það vel. —SK. Akranes Valur Víkingur Keflavik ÍBV Breiöablik Fram FH KR Þór Markhæstu leikmenn eru nú þess- ir: Sumarliöi Guöbjartsson 6 Sigurlás Þorleifsson 6 Ingi Björn Albertsson 6 Kristinn Björnsson 6 Pétur Pétursson 6 Margt sem heillaði Þaö var margt sem heillaöi Benedikt Baldursson, fyrsta verölaunahafann okkar f keppn- inni umvinsælasta knattspyrnu- liöiö á lslandi sumariö 1977 þegar hann mætti I versluninni Sportval á laugardaginn. Benedikt byrjaði á þvi aö fá sér góöan fótbolta en sföan tök leikur- inn aö vandast þegar lengra skyldi haldiö. Margt var á óska- listanum hjá Benedikt, búningur Leiknis, knattspyrnuskór, og fleira og fleira. Eftir vandlega skoðun I hinum glæsilegu húsakynnum Sportvals ákvað Benidikt þó aö „leika biöleik" og koma eftir helgina til frekari innkaupa. „Benedikt er mikill aödáandi Malcolms McDolands fyrrum leikmanns Newcastle” sagöi Baldur Þórðarson faöir Benedikts, en Baldur er knatt- spurnuraönnum kunnur fyrir störf sin sem dómari i f jöldamörg ár. „McDonald var kveikjan aö þvi aö strákurinn fékk áhuga á KR, en þaö var vegna þess að búning- ar KR og Newcastle eru eins. En ég held nú aö Leiknir veröi hans félag þrátt fyrir allt, þar er eldri bróðir hans og flestir kunningj- arnir i Breiöholtinu. gk—. LIÐIl) MITT Atkvœðaseðill í kosningu vtSIS um vinsœlasta knattspyrnuliðið sumarið '77 LIÐIÐ MITT ER: NAFN HEIMILI BYGGÐARLAG SYSLA SIMI Sendu seðilinn til VÍSIS Siðumúla 14, Reykjavik strax i dag. Hálfsmánaðarlega verður dregið úr nöfnum þeirra sem tekið hafa þátt i kosningunni og er vinningurinn hverju sinni 15 þúsund króna úttekt á sportvörum hjá SPORTVALI, Hlemm- torgi, Reykjavík. Aukavinningurinn er dreginn er út i lok kosning- arinnar úr atkvæðaseðlum þeirra, sem greiddu vinsælasta liðinu atkvæði sitt er 50 þúsund króna úttekt á sportvörum i Sportvali, Hlemmtorgi, Reykjavik. VINNINGAR HÁLFSMÁNAÐARLEGA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.