Vísir - 07.10.1977, Blaðsíða 9
ur viöhlutverki Þorgerðar kerling-
ar af Herdisi Þorvaldsdóttur. Börn
hennar leika Guðrún Asmundsddtt-
ir Soffia Jakobsdóttir, Valgerður
Dan, Asdls Skúladóttir og Steindór
Hjörleifsson. Aðrir leikarar eru
Sigurður Karlsson, GIsli Halldórs-
son, Sigrlður Hagalin, Guðmundur
Pálsson, Sólveig Hauksdóttir og
Gestur Gíslason.
Höfundur er sjálfur ieikstjóri
sýningarinnar. Leikmynd gerði
Björn Björnsson en lýsingu annast
Daniei VVilliamsson.
Nokkrir þeirra muna sem verða á
markaði Kvenfélagsins Seltjarnar.
Visismynd: ÞG
Markoður
ó Sel-
tjarnarnesi
Kvenfélagið Seltjörn á Sel-
tjarnarnesi heldur fjölbreyttan
markað I Félagsheimilinu á sunnu-
daginn kl. 2.
Þar verða m.a. á boðstölum kök-
ur, húsmunir, leikföng og fatnaður.
Þá verður þar skyndihappadrætti
með mjög góðum vinningum og
sælgætispokasala.
Kvenfélagið Seltjörn hefur á und-
anförnum árum styrktýmsa starf-
semi á Seltjarnarnesi, þar á meðal
barna- og gagnfræðaskólana,
barnaheimiiið og fleiri. Mun ágóð-
inn af markaðnum á sunnudaginn
renna til þessarar starfsemi.
Nokkur verkanna á sýningunni að Kjarvalsstöðum
Flestar gerðir myndljstar
eru ó Haustsýningu FÍM
sem opnuð verður ó Kjarvalsstöðum á laugardaginn
Myndvefnaður, keramik,
glermyndir, grafik, kritar-
myndir, ollumálverk, vatnslita-
myndir, höggmyndir og skúlp-
túr eru meðal þess sem sýnt er á
Haustsýningu Féiags islenskra
myndiistarmanna 1977, sem
opnuð verður á Kjarvalsstöðum
á laugardaginn.
A sýningunni verða alls 123
myndlistarverk eftir 41 höfund.
Af þessum myndlistarhöf-
undum eru 22 félagar f FIM en
19 utanfélagsmenn. Nokkrir
hinna siðarnefndu sýna nú
myndir i fyrsta sinn á Haust-
sýningu, þar á meðal raunsæis-
maðurinn Gunnlaugur Stefán
Gislason.
Þátttaka félagsmanna FIM
varð minni en bdist hafði verið
við og þvi eru utanfélagsmenn
tiltölulega fleiri en oft áður. Að
sögn sýningarnefndar FIM varð
það til þess aö meiri breidd varð
isýningunni, bæði hvað varðar
efni og myndgeröir.
Heiðursgestur
Arlegar sýningar FIM hafa
veriö haldnar áratugum saman
og hefur á nokkrum þeirra sér-
stökum heiðursgeti verið boðin
þátttaka.
I þetta sinn hefur sýningar-
nefnd félagsins valið Guðmund
Benediktsson myndhöggvara til
kynningar. A hann 11 kopar-
skúlptúra á sýningunni.
Guðmundur fæddist i Reykja-
vik árið 1920. Um þritugt gerðist
hann nemandi Asmundar
Sveinssonar i Myndlistarskól-
anum, sem nú er til húsa við
Freyjugötu. Guðmundur gerðist
felagi I FtM árið 1957, eða fyrir
réttum 20 árum. Hann hefur alla
tið unnið mikið starf fyrir félag
sitt, en auk þess starfað að sýn
ingarhaldi hjá Listasafni ts-
lands, Listasafni ASl og Kjar-
valsstöðum og situr nú i Listráði
Kjarvalsstaöa.
Guömundur hefur tekið þátt i
fjölda myndlistarsýninga bæði
hér heima og erlendis, t.d. á
Norðurlöndunum, i Þýskalandi
og Bandarikjunum.
Nýtt húsnæði
t Félagi islenskra myndlistar-
manna eru nú 87 félagar.
Félagið hefur nýlega tekiö I
notkun nýtt húsnæöi að Laugar-
nesvegi 112 og hefur þar meö i
fyrsta sinn fengið aðstööu fyrir
félagsmiðstöð. Veröur ef til vill
hluti húsnæöisins notað til sýn-
ingarhalds. Breytir þetta að-
stöðu félagsins til mikilla muna,
þar sem þaö hefur hingað til
verið á hrakhólum með undir-
búning listsýninga.
Haustsýning FtM 1977
stendur frá 8.-23. október og er
opin virka daga kl. 16-22, en
laugardaga og sunnudaga kl. 14-
22. Húsið er lokað á mánu-
dögum.
KYNNISFERÐ TIL
EFNA HAGSBA NDA LA GSINS!
Dagana 19.-21. október nk. efnir Visir til kynnis-
ferðar fyrir menn úr islensku viðskiptalifi,
stjórnsýslu og aðra áhugamenn til höfuðstöðva
Efnahagsbandalags Evrópu i Brússel.
Samskipti íslendinga við Efnahagsbandalagið og
aðildarlönd þess hafa sivaxandi þýðingu fyrir ís-
lendinga, og við þvi má búast, að þessi samskipti
aukist enn á næstu árum. A sl. ári fór t.d. yfir 30%
af útflutningi okkar til Efnahagsbandalagsland-
anna, og við fengum vel yfir 40% af innflutningi
okkar frá þessum löndum.
Með kynnisferðinni til skrifstofu Efnahagsbanda-
lagsins í Brússel vill Visir i samvinnu við upplýs-
ingadeild bandalagsins gefa mönnum kost á að
afla sér sem bestrar þekkingar um málefni
bandalagsins og samskipti íslendinga við það.
VISIR
Lagt verður upp i ferðina 19. október, en 20. og 21.
október verða fundir með embættismönnum
Efnahagsbandalagsins. Á fundunum verður m.a.
rætt almennt um Efnahagsbandalagið, samskipti
íslands og Efnahagsbandalagsins, fiskveiðistefn-
una og stefnu bandalagsins i viðskiptamálefnum
og varðandi samkeppnisfrelsi.
Fargjald fyrir ferðina Keflavik — Brússel —
Keflavik er kr. 58.340 + kr. 1.500 i brottfarar-
skatt, og er þá miðað við 8-21 dags fargjald og, að
farið sé um London. Þátttakendur eru ekki
bundnir við að verða samferða heim, svo að þeir
geta einnig hagnýtt ferðina til annarra erinda er-
lendis. Gisting er ekki innifalin i framangreindu
verði.
Þeir sem hafa áhuga á þátttöku i ferðinni gjöri
svo vel að leita nánari upplýsinga og láta skrá sig
i sima 86611 sem allra fyrst, þvi að takmarka
verður þátttakendafjölda.