Vísir - 28.10.1977, Blaðsíða 8

Vísir - 28.10.1977, Blaðsíða 8
8 REYKJAVIKURBORG - ÚTHLUTUN Auglýst er eftir umsóknum byggingarmeistara og -eöa byggingarfélags um úthlutun fjölbýlishúsalóöarinnar Flyðrugrandi 8, 8a, 8b og 8c. Ætlast er til, aö byggt sé skv. þegar samþykktum byggingarnefndarteikningum, sem liggja frammi til skoöunar hjá byggingarfulltrúa Reykja- vikurborgar, Skúlatúni 2, 2. hæð. Allar nánari upplýsingar s.s. um áfallinn kostnaö vegna jarövegsvinnu, hönnunar o.fl. veitir skrifstofustjóri 'borg- arverkfræöings. Umsóknarfrestur er til 10. nóv. n.k. BORGARSTJÓRINN í REYKJAVÍK LAUS STAÐA SAMGÖNGUMÁLANEFNDAR NORÐURLANDARÁÐS Staða ritara samgöngumálanefndar Norðurlandaráðs er laus frá 1. des. n.k. Sérþekking á starfssviði nefndarinnar og góð kunnátta i einu norðurlandamáli er nauðsynleg. Laun nú um 86 þús. sænskar kr. og staðaruppbót nú um 21 þús. sænskar kr. á ári. Búseta i Stokkhólmi áskilin. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf, sendist íslandsdeild Norðurlandaráðs, alþingishúsinu fyrir 5. nóv. n.k. Forsætisnefnd ráðsins tekur ákvörðun um ráðningu. ÍSlANDSDtllD NORDURLANDARÁÐS fFjölbrautarskólinn Breiðholti Skrifstofuaðstoð óskast að skólanum i 2 mánuði og er um hálfs dags starf að ræða. Upplýsingar gefur Rögnvaldur Sæmunds- son, aðstoðarskólameistari i sima 75600 eða i skólanum á skrifstofutima. Skólameistari \Æm/ ÓGNARSTJÓRN RAUÐU KMERANA Fundur um málefni Kambódiu verður haldinn i Valhöll, Sjálfstæðishúsinu v/Háaieitisbraut laugardaginn 29. október kl. 14.00. Framsöguræðu flytur Elin Pálmadóttir blaðamaður, sem kynnt hefur sér ástandið austur þar af eigin raun. Á fundinum munu auk þess mæta sérfróð- ir menn um málefni SA-Asiu. GEGN KOMMÚNISMA - GEGN FASISMA - MEÐ MANNRETTINDUM HEIMDALLUR S.U.S. Gunnar örn meö þremum listaverkum slnum. Ljósm. VIsis JA „Hér er enginn „ismi"" SEGIR Gunnar Örn Gunnarsson listmálari, sem opnar sýningu á verkum sinum að Kjarvalstöðum á laugardaginn „Ég vil ekki flokka myndirnar undir neinn „isma”. Meö þvi væri veriö aö loka þær inni á ákveönum bás,” sagöi Gunnar örn Gunnarsson myndlistar- maöur I samtali viö VIsi. Gunnar örn opnar á laugardag- inn kl. 14 sýningu á málverkum slnum I Austursal Kjarvalsstaöa. A sýningunni veröa 68 myndir, sem flestar hafa veriö unnar á siöustu tveim árum. Gunnar örn fékk á slöasta ári starfsstyrk frá menntamálaráöuneytinu til 6 mánaöa og sagöist hann hafa unniö margar myndanna á þeim tima. Gunnar öm ersjálfmenntaöur i málaralistinni og hefur hann fengist viö myndgerö I 13 ár. Hann hef-ur haldiö 9 sýningar á verkum sinum i Reykjavlk, Kaupmannahöfn, og víöar. Siöast sýndi hann I Norræna húsinu i febrúar 1976. Þegarviö spuröum Gunnar örn hvort hann teldi einhverjar breytingar hafa oröiö á myndum hans siöan hann sýndi siöast, sagöi hann aö liklega væri minni óróleiki I myndunum en oft áöur. ,,Ég hef reynt aö einfalda mynd- irnareinsog unnt er,” sagöi hann. Slöan I sumar hefur Gunnar örn ásamt fjórum öörum mynd- listarmönnum haft aöstööu i gamla haughúsinu á Korpúlfs- stööum. Sagöi hann aö þar væri vltt til veggja og gæfi þaö mögu- leika a aö gera stærri myndir en hann heföi áöur gert. Stærstu myndirnar eru þvi unnar þar og eru þær um 2x2 metrar á stærö. A sýningunni eru margar and- litsmyndir, en fæstar þeirra eiga sér raunverulega fyrirmynd. Ein undantekning er þó mynd, sem Gunnar öm geröi fyrir sýningu sem haldin var I Kaupmannahöfn I tilefni 50 ára skáldafmælis Jens August Schade. Myndin er gerö viö ljóö eftir skáldiö og er andlits- mynd af Schade i verkinu. Myndim ar eru allar til sölu og er verö þeirra frá 60-500 þúsund krónur. /----~---------------------- ## Erfitt að sannfœra róðamenn um nauðsyn veglegs útvarpshúss" • Elias Snæland Jónsson, blaðamaður spjallar við Vilhjálm Þ. Gíslason, fyrrverandi útvarpsstjóra um lif og starf. Utangarðs eða innangarðs? • Páll Pálsson ræðir við Megas og Egil ólafsson um nýja plötu „Á bleikum náttkjólum" • HAMAR ÞÓRS— Helgarblaðið birtir kaf la úr nýrri bók Magnúsar Magnússon- ar. Nefnist hann Helvegur og f jallar um viðhorf norrænna víkinga til dauðans og lífsins eftir hann. • TÖFRAR — Erlendur Sveinsson skrifar Kvikmyndaspjall um fyrirrennara bíósýninga nútímans. • Þá skrifar Davíð Oddsson AF FÓLKI og nefnist pistill hans „Að hræra sam- steypuna", Anna Brynjólfsdóttir sér um barnasíðuna HÆ KRAKKAR!, ómar Þ. Halldórss. skrifar SATIN, þátturinn SVO VAR ÞAÐ FYRIR 15 ÁRUM og sitthvað fleira er í blaðinu. /* | Helggrblaðið fylgir laugardggsblaði Vísis! [

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.