Vísir - 11.11.1977, Blaðsíða 9

Vísir - 11.11.1977, Blaðsíða 9
Y Föstudagur 11. nóvember 1977 VISIR Umsjón: Sigurveig Jónsdóttir Ritvélar, veggteppi og ódeilumyndir á sýningu þriggja myndlistarmanna í kjallara Norrœna hússins Magnús, Richard og Salóme viö nokkur verkanna á sýningunni. 1 for- grunni er Minning Njálsbrennu. — Visismynd: JA O Kennslustund á Litla sviðinu: ÁHORFENDUR LEIKA Þrjár geröir myndlistar eru nú til sýnis i kjallara Norræna húss- ins. Magnús Pálsson sýnir verk sem fremur teljast til minnis- merkja, en skúlptúrs, Richard Valtingojer, sýnir grafik og teikn- ingar og Salóme Fannberg sýnir myndvefnaö. Gamansöm ádeila „Ég reyni aö deila á strlö og samfélagskerfiö eins og þaö er, á sem gamansamastan hátt,” sagöi Richard Valtingojer þegar Visir ræddi viö listafólkiö i gær. „Myndefniö er aöallega þrenns konar, lffræn form, tíbeinar striösmyndir og myndir þar sem manneskjan kemur viö sögu. Sumar myndirnar eru pólitiskar, en aörar höfða til tilfinninga, eins og þær sém sýna einmanaleik- a n n ”,s a g 5 i hann. Myndir Valtingojers eru allar svart-hvitar og sagöist hann hafa aö undanförnu einbeitt sér aö þeim litum. Sagöist hann telja aö hann kæmist nær þvi sem hann vill segja meö svörtu og hvitu. „Þaö þarf lika oft meira til aö ná fram gtíöri mynd i svart-hvítu en i litum. Litirnir standa oft fyrir sinu sjálfir.” Valtingojer hefur verið búsett- ur á Islandi sl. 17 ár og á þeim tima hefur hann tekið þátt i mörgum samsýningum hér og auk þess haldiö einkasýningar, siöast I Stúdentakjallaranum i fyrra. Núna er hann meö myndir á 5 samsýningum erlendis. Vangaveltur um sym- bólisma „Ég hef veriö að leika mér meö vangaveltur um symbólisma að undanförnu”, sagöi Magnús Páls- son. „Ég hef grúskaö í klassisk- um ritverkum, málverkum og styttum,semþarfaö kunna mikiö i grískri goðafræði til að skilja til fullnustu. Þessi verk mín eru af svipuöum toga spunnin. Til aö fá endanlegan botn i þau, þarf helst aö þekkja söguna sem verkiö höfðar til. 1 verki eins og Minningu Njáls- brennu, eru smáatriöi falin, sem sumir koma kannski aldrei auga á. Ég er aö reyna aö nálgast sym- btílin frá mismunandi sjónar- hornum, svona aö gamni minu” sagöi hann. Magnús hélt sina fyrstu einka- sýningu 1967,en siðast sýndi hann hér á landi i StJM I fyrrahaust. í vor átti hann myndir á tveim sýn- ingum f Hollandi. í norræna húsinu eru fjögur myndverk eftir Magnús og eru þrjú þeirra eins konar minnis- varöar. 10 ritvélar tákna Njáls- brennu, kommóöa minnir á Bakkabræður og er henni ætlaö að geyma ljós og þá er þama verk til minningar um Irafellsmóra, furöustrákinn glettna. Þang, ull og koparvir „Ég höföa mikiö til náttúrunn- ar. Ég vil gjarnan reyna aö halda þvi viö sem er I okkur, en I hraöa nútlmans vill fólk gleyma þvl aö til sé jörð.” sagöi Salóme Fann- b'erg. Salóme nam myndvefnaö i fjögur ár á Spáni og hefur siðan stundaö myndvefnaö eingöngu,! 6 ár. Hún hefur átt verk á haust- sýningu FIM og auk þess tekiö þátt i samsýningum erlendis. A þessari sýningu er hún með 17 verk. „1 myndvefnaði getur fólk gert sér grein fyrir hugmyndinni að baki verksins með þvi aðþireifa á þvi jafnframt þvl sem þaö horfir á þaö”, sagöi hún. „Ég held aö á- hugi fólks á myndvefnaöi sé mik- iö aö aukast, en til skamms tlma áttu flestir erfitt meö aö hugsa sér vefnaö sem myndverk.” Mikil vinna liggur aö baki slik- um verkum. Salóme sagðist vera milli 60 og 70 klukkustundir aö vinna sum verkanna. Auk þess sem hún notar öll heföbundin efni viö myndgeröina,eru þang, ull og koparvlr uppistaöa sumra verk- anna. Einnig hefur’hún notaö hamp, sem annars er aðallega notaöur 1 einangrun. Leikritiö Fröken Mar- grét var frumsýnt á Litla sviði Þjóðleikhússins í gærkvöldi. önnur sýning á þessu vinsæla leikriti brasiliska höfundarins Roberto Athayde verður á sunnudagskvöldið. Herdis Þorvaldsdóttir leikur einleik i verkinu og er hún á sviðinu frá upphafi til enda. Hún leikur kennslukonu sem talar við nemendur sina. Og nemendurnir eru áhorfendur. Þeir fá i verkinu skemmtilega, skringilega og óvænta fræðslu i ótrúlegustu hlutum. Höfundur er með ýmsar vangaveltur og i þeirri skvettu sem áhorfendur fá yfir sig situr hann ekki á kimnigáfu sinni, heldur fer þar vlða á kostum. Leikritið samdi Atháyde 21 árs að aldri og var það frumsýnt i Argentinu 1972. 1 Brasiliu var það bannað um skeið. Leikritiö hefur vakið mikla athygli þar sem það hefur verið sviðsett og ýmsar frægar leikkonur farið á kostum i hlutverki fröken Mar- grétar. Úlfur Hjörvar þýddi leikritið á Islensku en leikstjóri er Bene- dikt Arnason. Leikmynd gerði Birgir Engilberts. REYKVÍKINGAR! ÞAÐ ER UM HELGINA ALÞYÐUFLOKKSINS FYRSTA SÆTI EGGERT G. ÞORSTEINSSON STUÐNINGSFOLK VISIR Föstudagur 11. nóvember 1977 Y Fantosía fyrir böm og fullorðna Leikfélag Kópavogs frumsýnir Snœdrottninguna Fyrsta barnaleikrit vetr- arins verður frumsýnt hjá Leikfélagi Kópavogs á sunnudaginn. Það er ævin- týraleikurinn Snædrottn- ingin eftir rússneska höf- undinn Jevgeni Schwarts, en leikritið byggði hann á hugmyndum H.C. Ander- sens. Snædrottningin var sýnd við miklar vinsældir I Þjóðleikhúsinu 1952 og fær nú ný kynslóð tækifæri til að gefa hugmyndafluginu laus- an tauminn í ferð á slóðir hinnar köldu frúar. Leikgerð Leikfélags Kópavogs er önnur en sú sem sýnd var i Þjóðleikhúsinu. 1 þetta sinn er notaður upprunalegi texti Schwarts sem Þórunn Sigriður Þorgrlmsdóttir og Þórunn Sig- urðardóttir þýddu úr þýsku. Töldu þær að einkenni höfundar- ins hefðu týnst of mikiö I ensku leikgerðinni. Þórunn Sigurðardóttir leikstýr- ir verkinu og leikmyndina gerði Þórunn Sigriður Þorgrimsdóttir. Þetta er frumraun hennar i leik- myndagerð, en hún hefur nýlokið fjögurra ára námi I Vestur-Ber- lin. Leikhljóð eru eftir Gunnar Reyni Sveinsson. „Það mætti segja mér aö ég hefði aldrei farið út i leiklist, ef ég hefði ekki séö Snædrottninguna sem krakki i Þjóðleikhúsinu. Þaö var þá sem ég fékk bakteriuna,” sagði Þórunn leikstjóri. „Þessi sýning verður þó ekki skrautsýning eins og þá. Við telj- um ekki rétt að keppa við auglýs- ingarnar sem dynja yfirfullar af litum á börnunum. Viö reynum að vanmeta ekki smekk barnanna og forðumst þá stimpla sem hafa komið fram i sambandi við barnaefni. Schwarts geröi sjálfur litinn mun á barna- og fullorðinsleikritum. 1 Snædrottningunni er mikil fanta- sia, sjarmi og sterkur mórall. Þetta er sýning sem allir ættu aö hafa gaman af, börn og fullorðn- ir.” 1 sýningunni taka þátt leikarar frá Leikfélagi Kópavogs, ungling- Atriði úr Snædrottningunni. Vísismynd: JA GRAFÍK Á HEIMSMÆLIKVARDA ú sýningu sem verður opnuð á Kjarvalsstöðum um helgina Blómi pólskrar grafíklistar verður kynntur á Kjarvalsstöö- um á sýningu sem opnuð verður þar á laugardaginn kl. 15. Pólskir grafíklistamenn vinna reglulega til helstu verölauna á alþjóðlegum sýningum viða um heim og verk þeirra má finna I söfnum allra Evrópulanda. Eru enda flestir sammála um að fá- ar þjtíðir standi Pólverjum jafn- fætis I graflklist. Sýningin er hingaö komin fyr- ir tilstilli pólska menningar- málaráöuneytisins og er valin af listamanninum Ryszard Ot- reba, sem er einn kunnasti gra- fiklistamaður Póllands. Kemur hann hingað og flytur erindi á þriðjudagskvöldiö um grafik og rannsóknir sinar á táknum og læsileika þeirra. Listamennirnir á sýningunni eru 34 talsins og verkin eru alls 130. Þar má finna margskonar tækni, m.a. ætingar, akvatintur, mezzotintur, tréristu, dúkristu, þurrnál og gifsþrykk. Afstaöa listamannanna er sömuleiöis margskonar. Meðan á sýningunni stendur verða erindi flutt, kvikmyndir sýndar og flutt verður pólsk tón- list. Jón Reykdal, Björg Þor- steinsdóttir og Þórður Hall lögðu land undir fót og sýna nú á Akureyri. Grafík í Háhóli Björg Þorsteinsdóttir, Jón Reykdal og Þórður Hall sýna verk sin um þessar mundir I Gallerl Háhól á Akureyri. A sýningunni eru 45 grafik- myndir, ætingar, dúkristur og sáldþrykk og eru flestar þeirra gerðar á siðustu tveim árum. Sýningin er opin til sunnu- dagskvölds, 13. nóvember, kl. 19-23 virka daga, kl. 15-23 um helgar. FÍM SELUR MYNDIR Félag islenskra myndlistar- manna heldur sölusýningu á myndlistarverkum, sem félagar I FÍM hafa gefið til ágóða fyrir híð nýja húsnæði félagsins að Laug- arnesvegi 112, en þar eru sýningin haldin. Á sýningunni eru nokkrir tugir verka, málverk, höggmyndir og grafik, en þau er hægt að kaupa með 20% afslætti frá venjulegu sýningarverði. Að auki er fólki gefinn kostur á að greiða 60% kaupverðs við afhendingu og eftirstöðvar þrem mánuðum sið- ar. Félagar úr FÍM I nýja húsnæðinu. F.v. eru Jón Reykdal, Þorbjörg Ilöskuldsdóttir, Ragnheiður Jónsdóttir, Hafsteinn Sigurðsson og Eirikur Smith. Vlsismynd JEG Hið nýja húsnæði FIM verður i framtiðinni notað sem félagsmið- stöð og athvarf listsýninga. Fram að þessu hefur félagið verið á hrakhólum með aðstöðu til undir- búnings sýninga. Aðgangur að sýningunni er ókeypis, en hún er opin kl. 14-22 til sunnudagskvölds. Kvikmyndir í Listasafninu Listasafn fslands efnir til kvikmyndasýningar á laugar- daginn kl. 15. Þá verða sýndar þrjár kvikmyndir um ameriska myndlist fyrr og nú. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Bíngó til styrkt- ar ungum hjónum Húnvetningafélagið I Reykjavik heldur bingó I Vlk- ingasal Hótel Loftleiða sunnu- daginn 13. nóv. kl. 3. Agóðanum verður variö til styrktar ungum hjónum að Hurðarbaki i V-Hún. sem misstu eigur sinar i bruna. Sýningar: Kjarvalsstaöir: Sýning á pólskri grafík verður opnuð á laugardaginn. Norræna húsiö: Grafík teikn- ingar, vefnaöur og objekt eru á sýningu Richards Valtingojer, Salóme Fannberg og Magnúsar Pálssonar. Sýningin er opin til kl. 2-10 og stendur fram til 20. nóvember. Loftið: Guðmundur Hinriksson sýnir 30 pastelmyndir. Sýningin er opin virka daga á verslunar- tima og til kl. 6 á laugardag. Sýningarsalur FtM: Laugar- nesvegi 112, Sölusýning á verk- um sem félaginu hafa verið gef- in. Sýningunni lýkur á sunnu- dagskvöld og er hún opin kl. 14-22. Gallerl Háhóll: Björg Þor- steinsdóttir, Jón Reykdal og Þórður Hall sýna grafíkmyndir. Sýningin er opin 19-23 og 15-23 um helgar. Henni lýkur á sunnudagskvöld. Leikhúsin: Þjóðleikhúsið: Týnda teskeiöin verður sýnd á föstudags- og laugardagskvöld og Gullna hlið- iö á sunnudagskvöld. Barna- leikritið Dýrin I Hálsaskógi verður sýnt á sunnudaginn kl. 15. A Litla sviðinu verður önnur sýning á sunnudag á leikritinu Fröken Margrét kl. 21. Leikfélag Reykjavlkur: Garv kvartmilljón verður á fjölunum á föstudagskvöld, Skjaldhamr- ar á laugardagskvöld og Saumastofan á sunnudags- kvöld. Blessað barnalán verður sýnt á miönætur sýningu I Aust- urbæjarbíói á laugardagskvöld- ið kl. 24. Alþýðuleikhúsið: Sýnir Skolla- leik i Lindarbæ á sunnudags- kvöldið kl. 20.30. Leikfélag Kópavogs: Frumsýn- ir barnaleikritiö Snædrottning- una á sunnudaginn kl. 15 Skagaleikflokkurinn: Veröur með sýningar á Höfuöbólinu og hjáleigunni á Sauöárkróki á laugardaginn kl. 17 og 21 og á Blönduósi á sunnudag kl. 20. Leikbrúöuland: sýnir þætti um Meistara Jakob og fleiri gamla kunningja að Frikirkjuvegi 11 á sunnudaginn kl. 15. Er það næstslðasta sýning á þessum þáttum. ar og þrir nýútskrifaðir leikarar, alls um 20 manns. Miðaverð er það sama fyrir börn og fullorðna, 750 krónur. Eftir frumsýninguna fara þær nöfnurnar til Akureyrar, þar sem þær setja Snædrottninguna upp með Leikfélagi Akureyrar. BOSCH Combi Borvél 2ja hraöa og meö höggi Tvöfaldri einangrun Rennibekkur Smergel Hjólsög Slípikubbur Stingsög Boraskerpir_ § Stingsög m/mótor, Bosch Combi Nytsöm tæki á hvert heimili. Útsölustaöir: Akurvík/ Akureyri Bykó Kópavogi, og víöa í verslunum um landiö. unnai SfyzehjMn h.f. SUÐURLANDSBRAUT 16 - SlMI 35200 - 105 REYKJAVfK Vinsamlega sendiö mér myndalista og verð á BOSCH Combi Nafn heimili

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.