Vísir - 01.06.1978, Blaðsíða 3

Vísir - 01.06.1978, Blaðsíða 3
3 VÍSIR Fimmtudagur 1. júnf 197« stendur aö gerö bókar um Erró og sagöi Haraldur J. Hamar fram- kvæmdastjóri útgáfunnar aö undirbúningur verksins heföi hafist fyrir tveim árum. Erró valdi sjálfur allar myndirnar og fylgdist meö litgreiningu þeirra og prentun bókarinnar. t útgáfu Iceland Review sem nú kemur i bókabúöir er bókin meö enskum inngangstexta enda er fyrirhugaö aö koma henni á markaö erlendis. Forlagiö seldi Bókaklúbbi Almenna bókafélags- ins islenska útgáfu bókarinnar og voru báöar útgáfur bókarinnar framleiddar samtimis. Brynjólfur Bjarnason fram- kvæmdastjóri Almenna bóka- félagsins sagöi, aö islenska útgáf- an heföi veriö prentuö i 4.500 ein- tökum og hún heföi selst upp fyrirfram. Félagsmönnum i Bókaklúbbi AB var gefinn kostur á að kaupa bókina þegar útgáfan var ákveðin og voru undirtektir slikar aö upplagiö seldist allt þegar i stað áður en listaverka- bókin kom til landsins. Einstæö bók Eins og Erró tók fram i upphafi er þetta vandaðasta bók sem út hefur komið um verk hans. Erlendis hafa verið gefnar út bækur um verk listamannsins en i þessari bók eru 58 myndir i full- um litum. 1 öðrum bókum hefur jafnan verið talsvert af svart/hvitum myndum sem að sjalfsögðu ná ekki fram áhrifum litmyndanna. Útgefendurnir Haraldur J. Hamar og Brynjólfur Bjarnason rómuðu mjög samstarfið við Erró, Braga Asgeirsson, Matthi- as Johannessen og Eddu Siguröardóttir hjá Auglýsinga- stofunni hf. sem annaðist hönnun bókarinnar. Prentstofa G. Bene- diktssonar setti bókina en prentun og band er unnið hjá itölsku fyrirtæki. Þetta er fyrsta listaverkabókin sem Bóka- klúbbur AB gefur út og sagði Brynjólfur Bjarnason aö endur- prentun bókarinnar væri i athugun. Eins og áöur segir kemur enska útgáfan hins vegar i bókabúðir i dag eöa á morgun. Sýnishorn 20 ára Erró valdi myndir i bókina og eru þær allt frá árinu 1959 til dagsins i dag. 1 samtali viö blaöa- mann Visis sagöi listamaðurinn að myndir af sumum listaverk- anna heföu verið til á filmum en aðrar myndir voru teknar sér- staklega fyrir bókina. — Nú hefur þú sagt aö þú sýnir bara verk þin en útskýrir þau ekki. Margir vilja fá skýringar þinar með myndunum. „Vissulega heföi ég kosiö aö skýringatextar fylgdu i bókinni. En margar myndanna i bókinni eru á sýningunni á Kjarvals- stööum og þar er hægt aö fá sýningarskrá þar sem sagt er frá málverkunum. Meö þessa sýningaskrá getur fólk notiö myndanna betur”. — Feröu aftur utan eftir opnun sýningarinnar? „Fyrst ætla ég að fara hring- veginn með vinum minum og skoöa landiö. Einu sinni kom ég ekki heim i niu ár og þaö er langur timi. Siöan fer ég til New York i stutta ferö og svo til Spán- ar”. — Þú hefur sagt að málverkin lifi áfram i bókinni eftir að sýningunni lýkur”, skaut Matthi- as inn i. „Já, það er rétt. Myndir i bókum og á póstkortum hefur fólk áfram hjá sér og öll slik útgáfa er nauðsynleg”, sagöi Erró um leiö og hann lýsti enn yfir ánægju sinni með hve bókin nýja væri vönduð aö allri gerö og frágangi. SB „Engctr viðrœður hofnar ennþó" — segir Voldimar indriðason, D-lista á Akranesi ,,Mér vitanlega eru eng- ar viðræður hafnar milli flokka um meirihlutasam- starf i bæjarstjórn hér", sagði Valdimar Indriðason efsti maður á lista Sjálf- stæðisflokksins á Akra- nesi. Samkvæmt ákvæðum í bæjarmálasamþykkt Akraneskaupstaðar á að halda fyrsta fund í bæjar- stjórn 12. júni næstkom- andi og bjóst Valdimar frekar við því að málin yrðu skýrari þá en við- ræður væru ekki hafnar enn svo sem áður er sagt. Á síðari hluta kjörtíma- bilsins störfuðu Sjálf- stæðisf lokkur, Alþýðu- flokkur og Alþýðubanda- lag saman í bæjarstjórnar- meirihluta á Akranesi. —H.L. „Línurnor foro oð skýrost fljótlego" — segir Tómas Tómasson, D-lista i Keflavík „Þaö veröa fundir hjá öllum flokkum i dag og eftir þaö fara nú linurnar liklega aö skýrast I sam- bandi viö meirihlutamyndun”, sagöi Tómas Tómasson efsti maöur á lista Sjálfstæöisflokksins um meirihlutamyndun þar en á siöasta kjörtimabili voru Fram- sóknarmenn og Sjálfstæöismenn saman i meirihlutasamstarfi. Tómas sagöi aö venjan væri aö bæjarstjórn kæmi ekki saman fyrr en flokkar heföu komiö sér saman um meirihlutasamstarf en nú yröi liklega haldinn fundur i bæjarstjórninni fyrr til aö gera út um kjörskrárkærur sem borist heföu. Tómas vildi ekkert segja um þaö hvaöa flokkar hann teldi lik- legt aö störfuöu saman i bæjar- stjórn aö þessu sinni. —H.L. íþrótto- oq leikjo- nómskeið fyrir bðrn tþrótta-og leikjanámskeiö fyrir börn á aldrinum 6-9 ára og 10-12 ára hefjast i Reykjavik i dag. Námskeiöin munu fara fram á niu stööum i borginni. Þeir aðilar sem fyrir þeim standa eru Iþróttabandalag Reykjavfkur, Leikvallanefnd Reykjavíkur, Æskulýösráö Reykjavlkur og Iþróttaráð Reykjavikur. Þátttakendur á siöasta ári voru um sex hundruö og komu þá margir efnilegir iþróttamenn i ljós en námsskeiðinu lýkur meö iþróttamóti fyrir 10-12 ára börn á Melavellinum þann 15. júni. —KS Verðbólgan Veröbólgan frá 1. mai 1977 til 1. mai 1978 reyndist 42,8% en Þjóö- hagsstofnun haföi spáö þvf aö hún yröiá þessum 12 mánuöum 40%. 1 spá hennar var jafnframt gert ráö fyrir þvi aö veröbólgan myndi minnka á siöari helmingi þessa árs, þannig aö hún yröi e.t.v. á bilinu 30-35%. Haft var samband viö Ólaf Davíösson og hann inntur eftir þvi hvort þær forsendur sem þessi spá var byggö á heföu breyst eitthvaö aö ráöi. Hann sagöi aö i aöalatriöum væru þær forsendur óbreyítar sem spáin heföi veriö byggö á. Þær launa- hækkanir sem yröu 1. júni breyttu þar ekki miklu um. En Ólafur reiknaöi þó fremur meö þvi aö veröbólgan á þessu ári yröi viö efri mörkin þaö er 35%. Veröbólgan er reiknuö sem árs- hækkun visitölu framfærslu- kostnaöar. —BÁ Electrolux z:S25 Mjög kraftmikil ryksuga (loftflæði 2.0 rúmm/min.) Hún slekkur sjálfkrafa á sér, þegar pokinn er fullur. Dregur snúruna inn i hjólið. Vegur aðeins 7 kg. og er með 6 m. langa snúru. /mí Kraftmikil ryksuga (loftflæði 1.9 rúmm/min.) Hún sýnir hvenær pokinn er fullur. Snúran dregst inn i hjólið. Pokinn er sjálflokandi þ.e. rykið dreifist ekki þegar skipt er um poka. Veg- ur 7 kg og er með 6 m langa snúru. Verð kr. 67.500.- Z302 Mjög ódýr og meðfærileg ryksuga en með góðan sogkraft (loftflæði 1.65 rúmm/min.) Vegur 5.7 kg og er með 7 m langa snúru. Verð aðeins kr. 52.500.- c 1 Vörumarkaðurifin hf. ÁRMÚLA 1A, SÍMI 8 6112, REYKJAVÍK. } Electrolux ]

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.