Vísir - 01.07.1978, Blaðsíða 15
Laugardagur 1. júll 1978
15
Það hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá nein-
um sem fylgist með popptónlist, að mikil deyfð
hefur ríkt í þeim málum alls staðar í heiminum
undanfarin ár. Ekkert nýtt hefur komið fram og
vélræn tilf inningaiaus diskóíekf ramleiðsla ráðið
ríkjum. Við hér norður undir Dumbshafi höfum
ekki farið varhluta af þessari stöðnun sem sést
best á því hve popphljómsveitum hefur farið
stöðugt fækkandi og stemmning á dansleikjum
ber meiri keim af brennivíni og ófullnægju en
áður. Jafnframt hefur aðstaða þess aldurshóps
sem mest hefur af poppinu að segja, — þ.e. auð-
vitaðunglinganna, til að skemmta sér sennilega
ekki verið eins slæm frá striðslokum.
En sem betur fer eru alltaf til menn sem reyna
að klóra í bakkann og finna uppá einhverju
skemmtilegu til þess að hrista uppí hinu gráa
hversdagslifi og i dag kynnir Helgarblaðið enskt
hljómplötufyrirtæki, og nokkra þá tónlistarmenn
sem það hefur á snærum sínum, sem nýtur
mikilla vinsælda i heimalandi sínu og er um
þessar mundir einnig að kveða sér hljóðs annars
staðar í veröldinni t.d. i Bandaríkjunum og eftil-
vill hér heima á Fróni: STIFF RECORDS.
„Cry like a baby” með hljóm-
sveitinni Box Tops Og flestar
þessar endurútgáfur eru seldar
á mun ódýrara verði en gerist
og gengur með plötur.
Nýby Igjutónlist
Það fyrirbæri sem svo mikið
hefur verið rætt og ritað um að
undanförnu, „new wave” eðá
nýbylgjutónlist eins og það
kallast hérlendis, er einmitt sú
skilgreining sem breskir blaða-
menn hafa gefið þeirri tónlist
sem Stiff Records sendir frá sér
og þeir taldir frumherjar á
þessu sviði. Hinsvegar hefur
hugtakið fengið ákaflega vill-
andi merkingu hérlendis. Sú
tónlist sem hér er rætt um er
nefnilega langt frá þvi að vera
eitthvað nýtt i sögunni. Hér e
gamla góða rokkið enn á ferð-
inni i friskum og kröftugum
búningi og hugtakið „new
wave” i Englandi þýðir alveg
nákvæmlega það sama og
„Lummustuð” á tslandi. Hér
eru ekki á ferðinni öskrandi
apakettir að syngja um ælu og
öskuhauga eins og svo margir
virðast halda, heldur hressilegir
rokkarar eins og Lónli blú bojs,
Lúdó og Dúmbó og Steini, sem
eru fyrst og fremst að hugsa um
að koma sjálfum sér og öðrum i
gott skap.
—pp.
Elvis Costello er tölvufræðingur að mennt og starfaði sem sllkur þar til
á slðasta ári, er frami hans innan poppheimsins var orðinnaugljós.
Hann var einn af stofnendum Stiff Records og fyrsta platan sem fyrir-
tækið gaf út var einmitt með honum („Radio Sweetheart”). í byrjun
þessa árs yfirgaf hann Stiff ásamt Nick Lowe og Jake Riveria og stofn-
aði með þeim Radar Records.
STIFfí
Hljómsveitin the Damned, skipuö þeim Dave Vanian,söngur, Brian James, gitar, Captain Sensible,
bassi, og Rat Scabies, trommur, var stofnuð sumariö ’75. Þaö gekk hvorki né rak hjá þeim þar til Stiff
gaf út með þeim lagið „New Rose” sem var fyrsta „nýbyigjulagiö” sem komst á vinsældarlista. En
þrátt fyrir vinsældirnar, virðist hafa hlaupið snurða á samstarfið, þvi nýjustu fregnir herina að þcir séu
hættir.
Ian Dury, sem af mörgum er tcl-
inn 1 jótasti poppari heimsins, var
búinn að vera ákaflega lengi i
„bransanum” og hafði aldrei
gengið nokkurn skapaðan hlut
þar til hann gekk til liös við Stiff. i
dag er hann ein skærasta stjarna
Bretlands og er farinn að hasla
sér völl einnig i U.S.A. Lag hans
„Sex + Drugs+Rock + RollH--
Chaos” er einskonar þjóðsöngur
„nýbylgjumanna”.
Nick Lowe stjórnaði upptökum á
flestum plölum Stiff I byrjun s.s.
Elvis Costello, Dainned,
Gramham Parker o.fL, auk þess
sem hann gerði margar sjálfur.
Eftir að hann hætti hjá Stiff gaf
hann út breiðskifuna „Jesus of
Cool” sein var ein mest selda
platan i Englandi i vor. Hann
þykir mjög frjálslyndur og
skemmtilegur rokkari og átti
mikinn þátt i að skapa hiö
sérstaka andrúmsloft innan Stiff
records og vinnur enn mikið fyrir'
það fyrirtæki, þó svo að hann
sjálfur út plötur slnar hjá Radar
records.
Dave Edmunds, sem er einn
þeirra mörgu listamanna sem
hafa starfað með Stiff, þó svo að
þeir séu á samning annars staðar,
kom fyrst fram á sjónar- og
heyrnarsviðið 1967 sem gitarleik-
ari I Love Sculpture og sló I gegn
með „Sverödansinum ” eftir
Khatchaturian. 1970 gaf hann út'
lagið „I hear you knocking” seni
varö m.a. mjög vinsælt hérlendis.