Vísir - 13.01.1979, Blaðsíða 11

Vísir - 13.01.1979, Blaðsíða 11
vism Laugardagur 13. janúar 1979. 11 Við Oddagötu 6 í Reykjavík, nálægt Háskóla Is- lands, býr frú Kristjana Þorsteinsdóttir ásamt eig- inmanni sínum Einari ólafi Sveinssyni, prófessor. Þeirra sonur er Sveinn Einarsson, þjóðleikhús- stjóri. Á þeim árum, sem hún var að alast upp, var algengt að ungar stúlkur væru settar til náms í píanóleik, hvort sem þær hefðu áhuga á því eða ekki. Þá var enginn tónlistarskóli starfræktur í Reykjavík, heldur fór námið fram í einkatímum í heimahúsum. Þegar Kristjana var átta ára gömul ákvað móðir hennar að fá úr því skorið hjá frú Petersen, píanókennara, móður Dr. Helga Péturs hvort stúlkan hefði músíkgáfu til að bera.Þaðkomu fljótlega í Ijós miklir hæfileikar hjá þessum unga píanista og til marks um það er sú staðreynd, að ell- efu ára gömul var hún farið að kenna á píanó. Á meðal nemenda var maður um þrítugt. Það varð samkvæmt beiðni frú Petersen, sem var orðin hnig- in að árum og þarfnaðist aðstoðar við kennsluna. Uppfrá því hélt Kristjana tryggð við píanókennslu að meira eða minna leyti næstu fimmtíu árin. Sjálf naut hún jafnframt leiðbeininga ýmissa píanóleik- ara, þar á meðal Reynis Gíslasonar, Markúsar Kristjánssonar og Haralds Sigurðssonar, sem var á sínum tíma einn virtasti píanóleikari, íslenskur, en starfaði í Danmörku. Það átti hins vegar ekki fyrir Kristjönu að liggja að spila í tónleikasölum heims- ins. Hlutskipti hennar varð þó ærið sérstakt sem píanóleikara, því það kom í hennar hlut að skapa hið seiðandi andrúmsloft þöglumyndasýninganna í Gamla Bíói við Bröttugötu með undirleik sínum þar |á hverju kvöldi um nokkurra ára skeið. i :'■'■ 'É|| B •• /WMk ' ''' YiiÍLl TlSnla SPftAD Í B/Ó Rastt við Kristjönu Þorsteinsdóttur, píanóleikara nnnaaanai Udvalgte KÍaver-Eiuder sœnp SsiBndsSemer. , -Q V , <f#rt ,4 <V H}*1 MwWM**** *”*í . ,, ImkV* Hjtri ****** •*■■ --——4'...- Þetta nótnahefti eftir Stephen Heller er meðal þeirra nótna- hefta, sem Kristjana notaði i Gamla Bfóinu. Þögninni afneitað Sýningar þöglumyndanna fóru sjaldnast eöa aldrei I þögn. Þaö var lágmarkskrafa aö leikiö væri undir á pianó eöa blóorgel. 1 hin- um risastóru kvikmyndahúsum heimsborganna dugöi ekkert minna heldur en heil sinfóniu- hljómsveit aö viöbættum hljóöeff- ektum, sem framleidd voru meö ýmsum ráöum. Viö sum kvik- myndahúsin, eins og til aö mynda Capitol Theatre i New York störfuöu fjöldi tónlistarsérfræö- inga, sem sáu um aö velja og út- setja tónlist, sem hæföi atburöa- rás myndanna. Þvl hefur veríö haldiö fram aö á þessum árum hafi almenningur I Amerlku kynnst sigildri tónlist á kvik- myndasýningum. Þegar meist- araverk Griffiths, Fæöing þjóöar (The Birth of a Nation) var tekiö til endursýningar I þvl landi áriö 1921, taldi tónlistarráöunaut- ur kvikmyndahússins nauösyn- legt aö breyta um tónlist viö myndina, vegna þess hve fólk væri oröiö kunnugt þeim óperuúr- dráttum, sem upphaflega voru notaöir meö sýningu myndarinn- ar, bæöi af kvikmyndasýningum og svo óperunum sjálfum. Kaflar eins og Valkyrjureiöin og Óöurinn til kvöldstjörnunnar úr óperum Wagners drægju af þeim sökum athyglina frá efni myndarinnar. Tónlistar- og hljóöeffektaleiö- beiningar, sem fariö hefur veriö eftir á sýningu stórmyndarinnar ,,Four Horsemen of the Apocalypse”, gefa nokkra hugmynd um hversu stór I sniö- um þessi lifandi tónsetning gat oröiö. Gert var ráö fyrir að hljómsveit á borö viö meöal sin- fóniuhljómsveit léki 110 tónlist- arúrdrætti, sem búiö var aö ákveöa nákvæmlega hvar skyldi leika I myndinni. Auk þess var gert ráö fyrir eftirtöldum tólum til aö framleiöa meö nauösynlega wm Oaxala Bio ■■ Bökum hinnar feiki laíkh: aðsóknar, verður FjaOa Eyvindur íýi.dor I kvöld, þriöjudag 22. apríl 7 ojjc Ld. 1» Pantíð aðgönguiniða i íima 476 áöur en það verð- ur of seint. Pantaðír aðgm, verða af- lientir í Ganila Bio frá kl 5* l/, Ath. Pantanir um ekki er búið að sækja lyrir svu- ingartíma verða tafar- lanst snliiar öðrum. I Auglýsing I VIsi, 21. aprfl 1919 hljóöeffekta.Regnvél og blásturs- flautur, sem veöurhljóöin voru búin til meö „Þrumutrommur” fyrir fallbyssuhljóöin, kirkju- klukkur, hamar og steðji. Þaö er engin furöa þótt gagn- rýnendur ættu til aö fetta fingur út i hávaöann undir sýningum og þætti stundum of langt gengiö. Ennfremur var mikil alúö lögö viö aö skapa mikilfengleg áhrif, þegar blótjaldiö var dregiö frá og fyrir, meö þvi aö samræma hreyfingar tjaldsins ákveönum hljóöum og draga jafnframt úr lýsingu biósalarins eöa kveikja ljósin meö dramatiskum tilburö- um. Kvikmyndaspjall eftir Erlend Sveinsson Þegar mikið lá við Hér heima varö tónflutningur undir kvikmyndasýningum aldrei svona stór i sniöum, en þess er þó getiö, aö áriö 1927 hafi sex manna hljómsveit aöstoöaö viö sýningu Nýja BIós á Hús i Svefni eftir Guömund Kamban. 1 nýja BIói léku þeir bræöur Þórarinn og Eggert Guömundssynir en I Gamla Biói var píanóleikur látinn nægja, nema þegar mikiö lá viö, þá minnist Kristjána Þorsteins- dóttir þess aö bætt hafi veriö viö hljóöfæraleikurum. „Þaö var Petersen bióstjóri, sem ákvaö þaö hverju sinni. Þá fengum viö Bernburg, sem spilaöi á fiölu, Eggert Jóhannesson á klarinett og Oddgeir Hjartarson, sem ég held aö hafa spilað á flautu. Þetta var nú aöeins fáein skipti. Þaö var nú svo þröngt þarna I bióinu, aö illmögulegt var aö koma svo mörgum hljóöfæraleikurum fyrir. Bernburg stóö, Eggert sat og mig minnir aö Oddgeir hafi setiö uppi á nótnabunkanum min- um . Aðdragandi Hljóöfæraleikur haföi tiökast i Gamla biói frá upphafi kvik- myndasýninga þar áriö 1906. Þaö væri i sjálfu sér mjög fróölegt, ef unnt reyndist aö safna saman upplýsingum um alla þá sem fengist hafa viö hljóöf&raleik undir kvikmyndasýningum á tim- um þöglu myndanna, ekki aöeins i Reykjavik, heldur einnig út um land. Kristjana minnist þess, aö á undan sér hafi Sigrún Jóhannes- dóttir, systir Alexanders Jó- hannessonar, veriö meöal þeirra sem spiluöu i Gamla biói „Ég veit ekki hversu lengi hún spilaöi, en eftir aö móöir hennar veiktist fannst henni ekki hún geta spilaö á meöan. Þá fékk Petersen bió- stjóri hinar og þessar dömur hérna úr bænum, sem spiluöu sitthvert kvöldiö. Ein spilaöi sorgarmars, þegar var veriö aö dansa foxtrot og önnur eitthvaö fjörugt þegar þaö átti aö vera al- varlegt. Þaö var allt öfugt hjá þeim. Svona gekk þetta I viku. Hann var alveg i vandræöum. Þá var þaö aö Petersen hringdi i mig. Hann vissi aö ég spilaöi, vegna þess aö mágkona hans og ég vorum miklar vinkonur. Hann spuröi hvort ég vildi spila. Ég sagöist skyldu gera þaö. Eftir sýninguna fyrsta kvöldið sem ég spilaöi i bióinu, komu dyraverö- irnir Jóhannes Jónson og Guð- mundur Guömundsson, þá strák- ar undir tvitugu, hlaupandi inn til min og segja: „Hann er svo hrif- inn, aö hann ætlar aö ráöa þig.” Ég var ráöin, fekk 50 krónur á mánuöi og var bundin öll kvöld og alla sunnudaga. Þetta hefur verið áriö 1918,1 júní og er þá nýfermd. Sambandsnefndin settist á rök- stóla um þetta leyti til aö ræöa sambandslög Islands og Dan- merkur og I byrjun nóvember tók spánska veikin aö herja hér. Þá lögðust kvikmyndasýningar niöur um skeiö.” „Þarvar hann flott" Ariö 1924 var gefiö út nótnahefti I Ameriku, sniöiö eftir þörfum þeirra, pianó- og orgelleikara, sem fengust viö aö leika undir á kvikmyndasýningum. I formáls- oröum þessa heftis gerir höfund- urinn Erno Rapée aö umtalsefni vanda þeirra kvikmyndatónlist- armanna, sem starfa viö kvik- myndahús, sem ekki hafa á fjölda tónlistarráðunauta aö skipa til aö velja tónlist viö kvikmyndir. Höf- undur, sem byggir bók sina á eig- in reynslu, getur m.a. þess sem Kristjana þekkti vel af eigin

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.