Vísir - 20.01.1979, Blaðsíða 13

Vísir - 20.01.1979, Blaðsíða 13
visra Laugardagur 20. janúar 1979. 13 Æskuheimili í gný stjómmálanna — rœtt við Vilhjálm Þ. Gíslason „Heimastjórnin er áreiðan- lega eitthvert merkasta timabil' i stjórnmálasögu landsins, frjó- samur framkvæmdatimi bæöi i pólitik,! atvinnumálum og I bók- menntum og listum” sagöi Vil- h jálmur Þ. Gislason i viötali viö Heigarblaöiö en faöir Vil- hjáims, Þorsteinn Gislason var sem kunnugt er ritstjóri Lög- réttu, málgagns heimastjórnar- manna. „Ég er fæddur meöan ennþá var landshöföingjadæmi á ís- landi og liföi bernsku mina á heimastjórnartima. Ég var nú barn og stráklingur er heima- stjórn hófst og bar ekki skyn á þessa pólitiksem ekki varviö aö búast. En samt sem áður slóg- umstviöstrákarnirágötum ogi portum út af pólitik. Þingholtsstræti 17 Æskuheimili mitt var fullt af pólitiskum gný timans og þar var gefiö út höfuömálgagn Heimastjórnarflokksins, Lög- rétta og annaö blaö sem var mánaöarblaðiö Óöinn, mynda- blaö sem haföi aö sinu leyti áhrif á bókmenntir og sögu. Þannig aö þaö var margt fólk sem mættist þarna á þessum staö. Þar kom til dæmis Jón Ólafsson, — hann var daglegur gestur svo aö segja. Jón Þor- láksson var mikill heimilisvinur alla tiö og Þórhallur biskup kom oft en hann vann mikið i rit- stjórn Lögréttu. Þá má nefna Jón Magnússon o.fl. Þaö var i mörg ár venja að heimastjórnarmenn utan af landi sem staddirvoru I bænum, komu saman heima i Þingholts- stræti i miödegiskaffi og var þá margt spjallaö. Sama sögu sögöu mérvinirminir strákarn- ir hjá Skúla Thoroddsen en þangað komu sjálfstæöis- mennirnir. Á grágrænum sjakket Ég man vel eftir Valtý Guö- mundssyni. Þegar hann var á þingi þá bjó hann niöri i Tjarnargötu á heimili Jó- hannesar bæjarfógeta og konu hans en viö Lárus sonur Jó- hannesar vorum miklir leik- bræður. Ég man aö dr. Valtýr var snyrtilegur maöur hann gekk i finum sjakket, grágræn- um sjakket skal ég segja þér. Þaö geröi Jóhannes bæjarfógeti lika en annars átti ég ekkert saman viö hann aö sælda i póli- tik. Magnús Stephensen lét byggja sér hús suður i Þing- holtsstrætijLandshöföingjahúsiö sem oft er kallaö Næpan. Ég man eftir Magnúsi þegar hann var að spássera á Þingholts- strætinu. Hann var heldur lág- vaxinn,þybbinn,berhöfðaður og allur skreyttur gylltum hnöpp- um. Hann var ágætur ætt- fræðingur og stjörnufræöingur og skrifaöi um ættfræöi og stjörnufræði. Viö strákarnir trúöum þvi aö minnsta kosti aö i turninum á Landshöföingjahús- Magnús Stephensen landshöfö- ingi inu væri stjörnuathugunarstöö sem Magnús brúkaöi. Viö bár- um ákaflega mikla virðingu fyrir Magnúsi Stephensen. Allt- af þegar þing var sett fórum viö niöur á Austurvöll til þess aö s já Magnús I uniforminu og Július Hafstein amtmann sem átti heima rétt fyrir ofan okkur i Þingholtsstrætinu, það er nú bú- ið aö keyra þaö hús út á haug núna. Hann var lika i úniformi. Þetta voru finustu menn i bæn- um skal ég segja þér. Lastaður og rægður Hannes Hafstein kom oft i hús fööur mins og þá aöallega I sambandi við útgáfu ljóöa sinna. Hann var glæsilegur maöur og ákaflega kurteis. Þetta vareiginlega mjög haröur og mikill bardagi á köflum þeg- ar Hannes varö ráöherra. Þaö var ort um hann niö og Heima- stjórnarflokkinn i stórum stil. T.d. „hötum þenna hund, sem hefur danska lund”, sem Jóhann Gunnar orti. Ég sá þaö löngu seinna aö Björn M. ólsen sk 'ifaöi grein i Óðin 1905 og segir þar aö á eng- an mann hafi jafnmiklu verið logiö og Hannes Hafstein og enginn maöur hafi veriö eins Vilhjálmur Þ. Gislason fyrrver- andi útvarpsstjóri. Þaö var vel ráöiö aö Heimastjórnarflokkur- inn varö ofaná”. mikið rægöur og lastaður og hann. Hannes var mjög umdeildur. Þjóövilji Skúla Thoroddsen hélt þvi t.d. fram aö ekki gæti fariö vel þegar skáld ætti aö fara aö standa i pólitiskum og praktlsk- um samningum. Þetta hefur mér alltaf fúndist mikill mis- skilningur, þvi þó að Hannes væri gott skáld hafði hann bæöi pólitiska og „administrativa” reynslu og var mikill verk- og dugnaöarmaöur. Þaö var aö einhverju leyti hending aö Heimastjórnar- flokkurinn varö ofaná. Þaö var mjótt á mununum um atkvæöi °g fylgi*þóheld ég aö ekki sé rétt aö segja aö þaö hafi verið heppni heldurhafi þaö veriö vel ráöið”. —ÞF þiginnídæmió Sparilán Landsbankans eru í reynd einfalt dæmi. Þú safnar sparifé meö mánaðarlegum greiðslum í ákveðinn tíma, t.d. 24 mánuði og færð síðan sparilán til viðbótar við sparnaðinn. Lánið verður 100% hærra en sparnaðar- upphæóin, — og þú endurgreiðir lánið á allt að 4 árum. Engin fasteignatrygging, aðeins undirskrift þín, og maka þíns. Landsbankinn greiðir þér al- menna sparisjóðsvexti af sparn- aðinum og reiknar sér hóflega vexti af láninu . Sparilániö er helmingi hærra en sparnaðar- upphæðin, en þú greiðir lánið til baka á helmingi lengri tíma en það tók þig að spara tilskylda upphæð. Biðjið Landsbankann um bæklinginn um sparilánakerfið. Sparifjársöfnun tengd réttí til lári • •! (rij Sparnaður Mánaðarleg þinn eftir innborgun Sparnaður í lok tímabils Landsbankinn lánar þér Ráðstöfunarfé Mánaðarleg þitt 1) endurgreiðsla Þú endurgreiðir Landsbankanum hámarksupphæö 12 mánuði 18 mánuði 24 mánuði 25.000 25.000 25.000 300.000 450.000 600.000 300.000 675.000 1.200.000 627.876 1.188.871 1.912.618 28.368 32.598 39.122 á 12 mánuðum á 27 mánuðum á 48 mánuðum 1) í tölum jtessum er reiknað með 19% vöxtum af innlögðu fé, 24% vöxtum af lánuðu fé, svo og kostnaði vegna lántöku. Tölur þessar geta breytst miðað við hvenær sparnaður hefst. Vaxtakjör sparnaðar og láns eru háð vaxtaákvörðun Seðlabanka íslands á hverjum tíma. _ LANDSBANKINN Spaiilán-tiygging í framtíð

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.