Morgunblaðið - 06.02.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.02.2001, Blaðsíða 6
KÖRFUKNATTLEIKUR 6 B ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ HINN 18 ára gamli Ólafur Sig- urðsson var að þessu sinni í aðal- hlutverki hjá ÍR á lokakafla leiks- ins og varnarleikur hans lagði grunninn að erfiðleikum Grindvík- inga. „Ég er ekki vanur að vera inni á vellinum í lok leiksins og ég var ákveðinn í að gera þeim lífið leitt með grimmum varnarleik. Við vissum að þeirra veikleiki er að koma upp með boltann og við lögðum áherslu á að trufla þá sem mest og láta þá nota tímann í að setja upp sóknirnar sínar, sagði Ólafur sem hitti úr öllu þremur skotum sínum utan af af velli í leiknum. Steinar Arason félagi Ólafs tók einnig við sér í 4. leikhluta og hóf hann skorpu ÍR-inga með 3 stiga körfu í stöðunni 64:66. „Liðið kom saman hjá Jóni Erni þjálfara og snæddi saman og einnig tókum við stutta skotæfingu og ég held að við höfum náð að þjappa hópnum vel saman eftir dapurt gengi að undanförnu. Ef maður fær mögu- leika til að skjóta þá lætur maður vaða og er óhræddur,“ sagði Steinar. Líst vel á að takast á við Pétur frænda í úrslitaleiknum „Það var sameiginlegt átak okk- ar allra að ná upp réttu hugarfari fyrir þetta verkefni, “ sagði Jón Örn Guðmundsson þjálfari ÍR. Fyrsti útisigurinn kom á réttum tíma og við vorum farnir að efast aðeins um okkar getu eftir slæmt gengi síðastliðna tvo mánuði eða svo. Það skortir ekki á að við höf- um marga góða sóknarleikmenn og við lögðum alla áherslu á varn- arleikinn að þessu sinni og hitt kemur af sjálfu sér. Mér líst mjög vel á að mæta Pétri frænda mínum og hans liði í úrslitum. Það verður ný reynsla fyrir bæði liðin að fara í úrslit, en ég lék til úrslita árið 1989 með ÍR og Pétur lék með Haukum árið 1996 og við verðum þar með þeir einu sem hafa upplifað bikarleik í Laugardalshöll en við ÍR-ingar hlökkum til að takast á við það verkefni,“ sagði Jón Örn. Vissum um veikleika Við náðum „góða“ leiknum á réttumtíma,“ sagði Eiríkur Önundarson, leikmaður ÍR, og var þá með hugann við slæmt gengi liðsins í deildarkeppn- inni að undanförnu. „Það hefur verið andleysi í okkar liði að undanförnu, þau mál voru rædd innan hópsins og menn voru staðránir að að koma með réttu hugarfari í bikarleikinn. Það var góð barátta í okkar liði frá fyrstu mínútu og við gáfumst ekki upp þótt að slæmu kaflarnir kæmi af og til. Þetta hefur okkur skort að undanförnu og menn hafa kannski gleymt því að við þurfum að gera litlu hlutina allan leik- inn til að við getum verið með í barátt- unni um að landa sigri. Vörnin lagði grunninn að sigrinum og í kjölfarið fengum við hraðaupphlaup og auðveld- ar körfur. Ungu strákarnir Ólafur og Steinar komu mér ekkert á óvart í leiknum, ég veit hvað þeir geta og það geta allir lagt sitt af mörkum í okka liði.“ Verður bikarúrslitaleikur í Laugar dalshöll ný upplifun fyrir þig? „Já ég hef aldrei leikið til úrslita um eitt eða neitt og þetta verður því alve ný tilfinning fyrir mig og alla leikmen liðsins. Menn hafa kannski leikið til úr slita í yngri flokkum en það er bar „gamli“ kallinn, hann Jón Örn þjálfar sem lék til úrslita með ÍR einhverntím á síðustu öld. Það eru úrslitaleikir sem maður vill spila og það verður frábær að fara í Höllina. Verða ekki mun fleiri Hvergerðinga en ÍR-ingar í Laugardalshöllinni? Við skulum vona ekki. Það má búas við að það sé mikil stemmning fyr austan fjall en gamlir ÍR-ingar hljót að koma á leikinn og rifja upp stemmn inguna sem fylgir bikarúrslitaleik “sagði Eiríkur Önundarson. Þrátt fyrir að GrindvíkingurinnKevin Daley geti stokkið hærra en flestir aðrir og troðið með tilþrif- um misskildi hann eitthvað hugtakið liðsheild á löngum kafla í 4. leikhluta. Í einu tilviki þegar Daley var að undirbúa sig við að reyna hæfileika sína gegn fimm varnarmönnum ÍR hætti samherji hans Páll Axel Vilbergsson hreinlega við að fara í sóknina þegar hann sá í hvað stefndi. „Þegar við erum allir inni í okkar eigin skáp og förum að leika okkur þar með boltann þá erum við ekkert sérstaklega góðir,“ sagði Pétur Guðmundsson, fyrirliði Grind- víkinga, eftir leikinn. Þannig er leik Grindvíkinga best lýst á lokakafla leiksins, allir ætluðu að „bjarga“ málunum og skora og á sama tíma var varnarleikur liðsins í molum. Leikmenn ÍR komu vel undirbúnir til leiks, boltinn gekk manna á milli þegar Grindvíkingar beittu 3:2- svæðisvörn og ÍR fann oftar en ekki bestu leiðina að körfu Grindvíkinga. Tveir ungir leikmenn í liði ÍR, Ólafur J. Sigurðsson og Steinar Arason, tóku af skarið í varnarleiknum í fjórða leikhluta og á tímabili komust leikmenn Grindavíkur varla með boltann yfir miðlínuna þar sem hinn kviki Ólafur var iðinn við að stela boltanum. Eiríkur og Ólafur voru að þessu sinni mikið saman inni á vell- inum en það hefur verið hlutverk Ólafs í vetur að leysa Eirík af í nokkrar mínútur í hverjum leik. Steinar Arason hitti vel í leiknum og tók af skarið þegar á þurfti, en hann og Ólafur hafa ekki leikið stærstu hlutverkin í liði ÍR í vetur. Banda- ríkjamaðurinn Cedric Holmes var lengi í gang en tók við sér þegar á leið og tróð af og til með tilþrifum í körfu Grindvíkinga, en þess á milli róaði hann leik sinna manna niður gegn svæðisvörninni. Hreggviður Magnússon lék varnarleikinn gegn Daley af krafti og skoraði Hreggvið- ur jafnframt 22 stig í leiknum og 10 af þeim komu í fjórða leikhluta þegar munurinn á liðum var að aukast. Ei- ríkur Önundarson var að leika einn af sínum betri leikjum í vetur, en hann skoraði 27 stig og stal sjö sinn- um knettinum af Grindvíkingum. Í lið Grindvíkinga vantaði festu og aga. Elentínus Margeirsson og Dav- íð Þ. Jónsson fundu sig illa í hlut- verki leikstjórnanda og áttu erfitt með að setja leik liðsins í fastar skorður þegar mest á reyndi í 4. leik- hluta. Í stað þess tók Daley að sér öll hlutverk liðsins í sókn og vörn. Pétur Guðmundsson og Dagur Þórisson voru frekar kaldir í sókninni en þeir félagar léku með 4 villur á bakinu í síðari hálfleik og gátu lítið beitt sér í varnarleiknum. Páll Axel lék vel þegar honum var ætlað hlutverk í sókninni, en þegar samherjar hans hættu að leita eftir honum í sókninni nýttust hæfileikar hans liðinu afar illa. Sigur ÍR var sanngjarn. Liðs- heildin var til staðar að þessu sinni eftir rýra uppskeru í deildarleikjum að undanförnu og takist liðinu að virkja alla leikmenn liðsins í næstu verkefnum er liðið til alls líklegt. Leikur Grindvíkinga olli miklum vonbrigðum og þar varð skortur á liðsheild og samvinnu þeim að falli. BIKARMEISTARARNIR frá Grindavík sprungu eins og blaðra í fjórða leikhluta í undanúrslitum bikarkeppninnar gegn ÍR á sunnudag. Gestirnir nýttu sér það vel og skoruðu fimmtán stig gegn engu á skömmum tíma. Á þessum leikkafla lögðu nýliðarnir grunninn að öruggum sigri þar sem tuttugu stig skildu liðin að í lok leiks, 77:97. Jafnt var á með liðunum í upphafi 4. leikhluta, 64:64, en leikmenn Grindvíkinga fóru þá í skotkeppni sín á milli. En grimmur varn- arleikur gestanna gerði þeim erfitt um vik í þeirri keppni sem var dæmd til að mistakast. Morgunblaðið/Ás Grindvíkingurinn Kristján Guðlaugsson hefur hér betur eftir mikinn atgang í vítateig liðsins. Pétur Gu mundsson (Grindavík) og Cedrick Holmes (ÍR) liggja á gólfinu en Sigurður Þorvaldsson (ÍR) og Davíð Jón son (Grindavík) spá í hvernig félagar þeirra hyggjast leysa úr flækjunni. Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar ÍR-ingar sprengdu Grind- víkinga Hef aldrei kom- ist í úrslitaleik

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.