Vísir - 06.06.1979, Blaðsíða 1

Vísir - 06.06.1979, Blaðsíða 1
Verkbannlð nær tll um 250 stéttarlOiaga „varla prentliær seglr Eðvarð I Dagsbrún um vlðbrðgð sln Fyrirhugað verkbann Vinnuveitendasambands tsiands 18. júni nk. mun ná til um 246 stéttarfélaga og tæplega 4000 félagsmanna innan VSt samkvæmt þeim upplýsingum sem Visir fékk hjá Gunn- ari Guðmundssyni lögfræðingi VSÍ i morgun. Komi verkbannið til framkvæmda mun allur iðnaður stöðvast i landinu að sögn Gunnars þar á meðal byggingariðnaður og máim- iðnaður. öll verkamannavinna, báta- og togaraútgerö, farm- flutningar. Þá sagði Gunnar að öli fiskvinnsla myndi einnig stöðvast. Þetta verkbann nær aðeins til félaga i VSt en nær ekki til Vinnumálasam- bands samvinnufélaga. „Varla prenthæft”. „Það yrði nú varla prent- hæft”, sagði Eðvarð Sigurðsson þegar Visir innti hann eftir við- brögðum hans við fyrir- huguðum verkbannsaðgerðum vinnuveitenda. „Ef menn hugsa sér að leysa deilur, eru þessar aðgerðir sist til þess fallnar og ef þetta kem- ur til framkvæmda verður verkalýðshreyfingin að skoða sina stöðu. Aðgerðir af þessu tagi geta einvörðungu leitt til mjög harðnandi átaka á vinnu- markaðnum”, sagði Eðvarð ennfremur. Að sögn Eðvarðs er þessum aðgerðum fyrst og fremst stefnt gegn rfkisstjórninni og verið sé að þvinga hana til að gripa inn i vinnudeilur. „Flýtir aðgerðum rikisst jórnarinnar ”. „Ég met stöðuna þannig að boðaðar aðgerðir VSÍ hljóti að flýta þvi að rikisstjórnin verði að gripa i taumana”, sagði Magnús H. Magnússon ráðherra er hann var inntur eftir skoðun sinni á fyrirhuguðum aðgerðum Vinnuveitendasambandsins i morgun. Við spurðum hvort hann ætti við bráðabirgðalög og svaraði hann þvi til að hann reiknaði með þvi að svar rikisstjórnar- innar yrði i „einhverju sliku formi”. „Það er ekki hægt að horfa lengi upp á það að allir verði at- vinnulausir i landinu og þetta er óvanalega harkaleg aðferð hjá vinnuveitendum ”, sagði ráðherra. Um réttmæti boðaðra aðgerða VSÍ sagði Magnús að erfitt væri að tjá sig um það og vinnuveit- endur teldu hana auðvitað eðli- lega i stöðunni. „Ég vil ekki dæma um það”, sagði Magnús: „Beinist að rikisvaldinu” „Það hefur legið i loftinu að vinnuveitendur ætluðu sér i pólitisk átök og núna hafa þeir sem sagt valið daginn til þess”, sagði Benedikt Daviðsson for- maður Sambands byggingar- manna við Visi i morgun. „.Verkalýðshreyfingin hefur ekki ennþá komið saman til neinna funda vegna þessa svo enn er ekki um neinar sam- ræmdar mótaðgerðir að ræða af hennar hálfu enda sýnist manni að þessi aðgerð beinist fyrst og fremst að rikisvaldinu en ekki að verkrlýðshreyfingunni þó hún muni bitna fyrst og fremst á verkafólki. Ég held að það fari ekki hjá þvi að deilan magnist enn frekar og ef til boðaðra að- gerða kemur eru vinnuveit- endur að magna upp uppgjör á öllum vinnumarkaðinum”. Benedikt sagðist búast við miklum fundahöldum innan verkalýðshreyfingarinnar á næstu dögum til þess að „búa hreyfinguna undir það að mæta þessu einhvern veginn” eins og Benedikt komst að orði. Vill samkomulag „Ég vil 'ekkert um þau mál segja. Við leggjum á það áherslu að það verði reynt að ná samkomulagi með samning- um”, sagði Svavar Gestsson viðskiptaráðherra við Visi i morgun er hann var spurður hvort von væri á bráðabirgða- lögum i vinnudeilunum. „Við teljum yfirlýsingar um slikt frá ráðherrum mjög óheppilegar”, sagði Svavar. —KS/—PM/Gsal Þetta er stærsti fiskurinn, sem veiddur var á iveiðimótinu I Vest- mannaeyjum um helgina. Sveinn Jónsson er þarna með feng sinn, lúðu sem vó 50.4 kiló. Sjá bls. 3. Visismynd — G.S. Vestmannaevium. „Engin hækkun fyrr en í júlí” - segir Svavar Gestsson vlösklptaráöherra „Þessar hækkanir eiga ekki aö koma inn fyrr en við erum farin að selja birgðir á háa verðinu”, sagði Svavar Gestsson viðskipta- ráðherra við Visi I morgun. OIiu- félögin hafa farið fram á heimild til að hækka verð á bensini og oli- um um miðjan þennan mánuð, bensin.Iitrann I 280-290 krónur og gasoliulitrann i 120-130 kr. Svavar sagði að meö öllu óbreyttu kæmi hækkun á bensin og oliu fram i júli. Oliufélögin vilja með þessari hækkunarbeiðni að oliuveröið hækki i áföngum, en miðaðvið verðlag á oliumarkaðn- um Rotterdam er gert ráð fyrir að oliuverð hækki enn frekar i byr jun júli. —KS Frlhölnin: DEILT UM SUNIARFÖLK „Forráðamenn Frihafnarinnar 'voru búnir að ráða fólk til sumar- starfa á öðrum kjörum en segir til um í samningum starfsmanna Frihafnarinnar og þessu vildu starfsmennirnir ekki una og hót- uðu að ganga út”, sagði Kristján Thorlacius, formaður BSRB, I viðtali við Visi. Kristján sagði að þau kjör hefðu m.a. verið fólgin i öðrum vinnutima en hjá föstum starfs- mönnum.en i samningum segir að ekki megi breyta vinnutilhögun nema með samþykki samnings- aðila. Af þessum ástæðum hefði utan- rikisráðherra lýst þvi yfir að sumarfólkiö hæfi ekki störf fyrr en samkomulag hefði náðst við hlutaðeigandi aðila. Visir hafði einnig samband við einn af starfsmönnum Frihafnar- innar en sá sagðist ekkert vilja við blaðið tala... —HR Geng Biao, aöstoöarforsætisráöherra, skoðar frystihús tsbjarnarins i morgun. Visismynd: ÞG. !► Geng Blao skoðaði stærsta irystlhúslð Geng Biao, varaforsætisráð- herra Alþýðulýðveldisins Kina, skoðaði hið nýja frystihús is- bjarnarins i krók og kima i morgun undir leiðsögn Jóns Ingvarssonar, forstjóra. Eftir að hann og fylgdarlið hans höfðu skoðað nægju sina var haldið um borð i varðskipið Tý og tók Pétur Sigurðsson, for- stjóri Landhelgisgæslunnar, á móti erlendu gestunum. Ferð- inni meö varðskipinu var heitið upp i Hvalfjörö, þar sem Járn- blendiverksmiöjan veröur skoð- uð og hádegisverður snæddur. Siðdegis litur varaforsætis- ráðherrann á dælustöð og stjórnstöð Hitaveitu Reykjavik- ur, en borgarstjórn heldur gest- unum boð að Kjarvalsstöðum i kvöld. —Gsal

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.