Vísir - 13.06.1979, Blaðsíða 1
Vinnuveitendur ræöa málið í dag
„Ég geri ráð fyrir að menn telji erfitt að aflýsa
verkbanninu”, sagði Þorsteinn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins, við Visi
i morgun. Rikisstjórnin fór þess formlega á leit við
VSÍ i gær, að það aflýsti boðuðu verkbanni, sem á að
hefjast næstkomandi mánudag.
FulltrUar VSÍ gengu á fund ráö-
herra i gær til aö fá nánari skýr-
ingar á ósk rikisstjórnarinnar, en
afstaða verður tekin til beiöninn-
ar á sambandsstjórnarfundi, sem
hefst kl. 2 i dag.
Þorsteinn Pálsson var spurður
að þvi, hvort til greina kæmi að
verkbanninu yrði frestað. „Það
er ekki timabært að segja nokkuð
um það. Þetta verður rætt á fund-
inum”, sagði hann.
„Það er álit okkar, að verkbann
myndi aðeins gera illt verra”,
sagði Ólafur Jóhannesson, for-
sætisráðherra, að loknum fundi
sinum og tveggja samráöherra
sinna, Benedikts Gröndal og
Svavars Gestssonar, meö fulltrú-
um VSt i gær.
„Verkbannið gæti torveldað
lausn farmannadeilunnar”, sagði
hann „og komið til með að hafa
viðtækar afleiðingar. Þaö myndi
og valda almerinri ókyrrð á
vinnumarkaðnum og þess ber aö
gæta að samningar eru flestir
lausi.r”.
Visir innti ráðherrann eftir þvi,
hvort hann væri vongóður um aö
atvinnurekendur sinntu tilmæl-
unum. „Ég vil vona það”, sagði
hann. „Þó þeir hyrfu ekki frá
verkbanninu, gætu þeir kannski
hugsað sér að fresta aðg'erðum og
það væri betra en ekki neitt”,
sagði ólafur.
Fyrir fundinn spurðum við
Benedikt Gröndal, hvort rikis-
stjórnin myndi heita VSt ein-
hverju gegn afboðun verkbanns-
ins. „Þeir eiga ekki heimtingu á
neinu i staöinn fyrir þessar hótun-
araðgerðir”, var svar Benedikts.
—KS/Gsal
ólafur Jóhannesson forsætisráðherra ræðir við bim. Visis.
■■
■
~r ■ II mj
• ÍMÉá Á | %
< ? ájjBl
, 1 5 ;
HHoi || :4
Fulitrúar VSÍ halda úr stjórnarráðinu eftir fundinn meö ráðherrunum, f.v. Kristján Ragnarsson, Þorsteinn Pálsson, Páll Sigurjónsson og
Davið Sch. Thorsteinsson. Vfsism. J.A.
Samkomu-
lag viö
yfirmenn
Samkomulag við yf-
irmenn á farskipum
náðist á sáttafundi um
kvöldmatarleytið i
gær um öll atriði hins
svokallaða ramma,
nema þau sem tengj-
ast launaliðum beint,
að þvi er Þorsteinn
Pálsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ,
sagði við Visi.
1 morgun byrjaöi fundur
með undirmönnum og vinnu-
veitendum hjá sáttanefnd, og
sagði Þorsteinn, að VSÍ legöi
áherslu á að samningar við yf-
irmenn og undirmenn héldust
i hendur.
— Næsta skref?
„Deilan er I höndum sátta-
nefndar og hún tekur ákvörö- .
un um það,” sagði Þorsteinn.
—KS
Ráðherranefndln sammála:
Víll setningu
bráöabirgöalaga
Samkomulag hefur náðst
innan ráðherranefndarinnar um
nauðsyn á setningu bráða-
birgðalaga til lausnar farm-
mannaverkfallinu, að þvi er
öruggar heimildir Visis herma.
Rikisstjórnin mun þó ekki hafa
tekið afstöðu til þessa
samkomulags og siðast i gær-
kvöld lýsti forsætisráöherra
þvi yfir i sjónvarpsþætti að
hann teldi ótimabært að gripa
inn í deiluna með opinberum aö-
geröum.
1 ráðherranefndinni eiga sæti
Steingrimur Hermannsson,
Svavar Gestsson og Magnús H.
Magnússon og mun nefndin hafa
lagt til að Magnús H. Magnús-
syni og Ragnari Arnalds yrði
falið að undirbúa bráðabirgða-
lög.
Steingrlmur Hermannsson
var I morgun inntur eftir þessu
samkomulagi i ráðherra-
nefndinni, en hann færðist
undan aö svara. „Ætli það sé
ekki best að láta verkin tala”,
sagöi hann, „vonandi leysist
þetta á allra næstu dögum.”
— Gsal
Arnarflugsbotan tll New York:
Þupfti leyfi
„Viö höfum veitt leyfi fyrir
þremur ferðum Arnarflugsþot-
unnar til New York” sagöi Baldur
Oddsson, formaður Félags Loft-
leiöaflugmanna.i samtali við Visi.
Baldur sagði aö samkvæmt
kjarasamningum væru þaö ein-
ungis Loftleiöaflugmenn sem
mættu fljúga á þessari leið, en
flugmanna
flugmenn Arnarflugs væru I FÍA.
Baldur var spurður hvort
áframhald yrði á þessum ferðum
Arnarflugs til New York, en hann
kvaðþaðóvíst.Flugleiðirværu að
athuga, hvort ekki mætti leysa
þetta mál á annan hátt, þvi að
mjög óhagkvæm/ væri að fljúga
Arnarflugsþotunni þessa leið.
— HR