Morgunblaðið - 14.03.2001, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.03.2001, Blaðsíða 20
LANDIÐ 20 MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ al annars að það væri þeim dætrum Ríkharðs og sonarbörnum mikil ánægja að færa Kolbeinsstaða- og Fáskrúðarbakkasóknum brjóst- myndina af séra Árna Þórarinssyni. Faðir þeirra tók stundum aukaaf- steypu af þeim myndum sem hann mótaði og þeim var komið fyrir á vinnustofu hans á Grundarstígnum. Þessar myndir urðu síðar grunn- urinn að Ríkharðssafni á Djúpavogi. Auðvitað varð mynd séra Árna ein þeirra sem fengu sinn sess á vinnustofunni. Hvort tveggja var að fyrirmyndin var sérstakur persónu- leiki auk þess sem séra Árni var stórvinur föður hennar. Séra Árni og Ríkharður áttu margt sameig- inlegt, ekki síst mikla frásagn- Eyja- og Miklaholtshreppi - Sam- koma var í Laugagerðisskóla á Snæ- fellsnesi 3. mars sl. í tilefni þess að afkomendur Ríkharðs Jónssonar, myndhöggvara, afhentu íbúum í Kolbeinsstaða- og Fáskrúðs- bakkasókn brjóstmynd af sr. Árna Þórarinssyni. Samkoman hófst á því að sókn- arpresturinn, séra Guðjón Skarp- héðinsson, bauð fólk velkomið og kynnti það sem fram ætti að fara. Fyrst kynnti Daníel Hansen kennari það sem nemendur skólans höfðu unnið vikuna áður, en þá voru þemadagar um séra Árna Þór- arinsson. Nemendur höfðu kynnt sér ævisögu hans sem Þórbergur Þórðarson ritaði og er með þekkt- ustu ævisögum sem ritaðar hafa verið. Þeir gerðu veggspjöld með textum og myndum, m.a. um ævifer- il sr. Árna, um börn hans, þá staði sem hann bjó á, hvaða breytingar hafa orðið á mannfjölda og búsetu frá því að sr. Árni þjónaði sem prestur hér þar til í dag, einnig breytingar á búfjárfjölda. Þá kynntu þau sér göngu- og reiðleiðir á svæðinu, sem notaðar voru áður en bílvegir voru gerðir og gerðu veggspjöld þar sem sýndar eru tengingar núverandi nemenda skól- ans við sögupersónur. Allnokkrar skondnar sögur úr bókinni voru skrifaðar upp og myndskreyttar. Frá Þjóðminjasafninu voru fengin að láni leikföng eins og þau sem börn séra Árna léku sér með og sýn- ishorn af fatnaði sem fólk notaði á þeim tíma. Þá afhjúpaði Ólöf dóttir Ríkharðs Jónssonar listaverkið og sagði með- argáfu og frásagnargleði. En Rík- harður faðir hennar var líka góður áheyrandi. Það leið varla sá dagur að séra Árni kæmi ekki í heimsókn á vinnustofu Ríkharðs og alltaf var hann með nýja sögu. Aðrir á heim- ilinu nutu auðvitað góðs af og þau voru svo lánsöm að heyra margar frumútgáfurnar af þeim sögum sem Þórbergur skráði síðar og auðvitað voru það bestu útgáfurnar. Það mun hafa verið árið 1934 að séra Árna-fólkið flutti á Grund- arstíginn, í bakhús sem nefnt var Sílóam og var upphaflega bænhús. Ríkharðsfólkið bjó í fremra húsinu. Örstutt er á milli húsanna og mynd- aðist fljótlega mikil vinátta milli íbúa þeirra. Ríkharður sagði síðar að það hefði verið mikill ham- ingjudagur þegar séra Árna-fólkið flutti í bakhúsið. Ólöf sagði það vera von þeirra að brjóstmynd séra Árna megi stuðla að því að viðhalda minn- ingu þessa sérstæða manns. Þá tók til máls séra Árni Pálsson, dóttursonur séra Árna Þórarins- sonar. Hann vígðist til Söðuls- holtsprestakalls 75 árum á eftir afa sínum og var hér prestur um árabil. Hann rakti ævi afa síns, uppruna hans og sagði margar bráðskemmti- legar sögur af tilsvörum hans og samskiptum við Snæfellinga. Séra Árni var Hreppamaður og bar alla ævi Hreppamenn og Snæfellinga saman eins og svo víða kemur fram í ævisögu hans. Sumt af þessum sam- anburði líkaði Snæfellingum ekki þótt þeim líkaði vel við séra Árna eins og þeir sýndu honum á stór- afmælum hans. Er séra Árni Þórarinsson enn í dag umtalaður og virtur af þeim sem til hans þekkja enda þjónaði hann hér á Snæfellsnesi í hartnær hálfa öld. Ævisaga hans hefur gert hann ódauðlegan, auk þess sem hún er fjársjóður að því leyti að í henni má finna mikinn fróðleik um menn og málefni á svæðinu því í henni er að finna margar nákvæmar lýsingar af störfum fólks á þessum tíma og ennfremur lýsingar á mönnum sem hvergi eru annars staðar til. Lauk séra Árni Pálsson máli sínu á því að þakka Ríkharðs-fólkinu þann hlý- hug að færa afa sinn aftur vestur á Snæfellsnes og halda þannig nafni hans á lofti. Reynir Ingibjartsson frá Hraun- holtum í Kolbeinsstaðahreppi kvaddi sér hljóðs og skýrði frá því að hann gæfi sóknunum kort af svæðinu þar sem bæir og örnefni eru merkt inn á auk mynda úr lífi og starfi séra Árna Þórarinssonar. Kortið er staðsett undir brjóstmynd- inni af séra Árna. Reynir er líklega sá maður sem þekkir þetta svæði best allra, hefur um árabil notað sumrin til að ganga um svæðið og taka myndir af því auk þess sem hann hefur safnað saman þjóðsög- um, munnmælasögum og öðru efni um svæðið. Mikill fengur er að þessu korti bæði fyrir íbúa sveitanna, nemendur skólans auk þeirra gesta sem gista Hótel Eldborg á sumrin. Í lokin ávarpaði Ólafur Guð- mundsson í Hrossholti, formaður sóknarnefndar Fáskrúðarbakka- sóknar, fólk og þakkaði fyrir þessar höfðinglegu gjafir og bauð fólki til kaffisamsætis í boði beggja sókn- anna. Á milli atriða söng kirkjukór sóknanna undir stjórn Zsuzsana Budai. Afkomendur Árna Þórarinssonar. F.v.: Þórólfur Árnason, sr. Árni Páls- son og systurnar Sigurbjörg, Anna María og Ingibjörg Einarsdætur. Ríkharður Másson, sr. Árni Pálsson, Ólöf og Ásdís Ríkharðsdætur. Gáfu brjóstmynd af sr. Árna Þórarinssyni Morgunblaðið/Daníel Hansen Brjóstmyndin af séra Árna Þór- arinssyni sem var færð að gjöf. Vorfagnað- ur karla- kórsins Hreims Laxamýri - Hinn árlegi vorfagnaður karlakórsins Hreims verður haldinn nk. laugardag og eins og alltaf er dagskráin viðamikil. Vorfagnaðurinn er orðinn fastur liður í menningarlífi Þingeyinga og mjög vinsæll, því venja er að hafa þar þekkta söngvara og ýmsa aðra sem kunnir eru í tónlistarlífi lands- manna. Gestir kvöldsins að þessu sinni verða Álftagerðisbræður, sem syngja við undirleik Stefáns R. Gíslasonar, og Óskar Pétursson mun syngja einsöng með Hreimi. Þá munu feðginin Hannes Örn Blandon og Sara dóttir hans flytja nokkur lög. Hannes verður jafnframt veislu- stjóri. Öflugt starf hefur verið hjá Hreimi í vetur og hefur kórinn sung- ið bæði á Norður- og Austurlandi. Hápunktur vetrarstarfsins verður svo tíu daga ferð til Sviss og Austur- ríkis um miðjan apríl. Þar verður sungið við kaþólska messu auk þess sem haldnir verða nokkrir tónleikar. Eiginkonur karlakórsmanna munu að venju sjá um veisluhlaðborð kvöldsins og að skemmtidagskrá lokinni verður stiginn dans fram eft- ir nóttu við undirleik hljómsveitar- innar Kokkteils. Stjórnandi Hreims til margra ára er Robert Faulkner og undirleikari Juliet Faulkner. Vegna mikillar að- sóknar undanfarin ár verður forsala aðgöngumiða í Húsasmiðjunni á Húsavík dagana 14.–16. mars. NÝTT veitinga- og ráðstefnuhús í Vestmannaeyjum verður opnað í lok apríl en húsið er byggt ofan á vatnstank sem hefur að geyma varabirgðir Eyjamanna sem annars fá allt sitt vatn með leiðslum ofan af landi. Húsið, sem er rúmir 1.200 fermetrar að grunnfleti, stendur við Strembugötu 13 og munu gestir hafa útsýni yfir bæinn. Áætlaður byggingakostnaður er um 120 til 150 milljónir króna. Stofnað var hlutafélag um bygg- ingu og rekstur hússins og eru þeir Grímur Gíslason veitingamaður og Sigmar Georgsson, sem áður átti og rak verslunina Vöruval, stærstu hluthafarnir. „Ég er búinn að ganga með þessa hugmynd lengi í maganum,“ sagði Grímur. „Ég vissi að það þurfti að gera við þakið á tankinum og því sendi ég stjórn vatnsveitunnar bréf þar sem ég spurði hvort hún væri ekki tilbúin til að veita fé í hluta- félag um byggingu hússins í stað þess að gera við þakið og ég fékk mjög fljótlega jákvætt svar við því.“ Húsið er byggt sem veitinga- og ráðstefnuhús með aðstöðu fyrir skemmtanahald. Grímur sagði að til þess að nýta fjárfestinguna sem best væri gert ráð fyrir að nota eld- húsið, sem er um 200 fermetrar og útbúið fullkomnum tækjum, undir framleiðslu á tilbúnum réttum m.a. fyrir Sláturfélag Suðurlands og jafnvel Færeyjamarkað. Sigmar sagði að fyrsta skóflu- stungan að húsinu hefði verið tekin 3. maí á síðasta ári og er bygging- artíminn því tæpt eitt ár. Hann sagði að til þess uppfylla kröfur Hollustuverndar hefði þurft að byggja um 200 fermetra lagna- brunn þar sem öll frárennsli væru lögð ofan í og því ætti vatnið í tank- inum undir húsinu ekki að geta mengast. Tekur 500 til 550 manns í mat Grímur sagði að miklar vonir væru bundnar við það að fyrirtæki og samtök myndu nýta sér húsið fyrir ráðstefnur og vinnufundi. Hann sagði að Vestmannaeyjar væru tilvalinn staður fyrir slíkt, því þar gætu hóparnir verið saman all- an tímann, menn væru ekki að skreppa heim eftir fundi o.þ.h. líkt og algengt væri þegar ráðstefnur væru haldnar t.d. á höfuðborgar- svæðinu. „Hérna er líka mikil náttúrufeg- urð. Norðurhliðin á húsinu er úr gleri og því verður útsýni yfir allan bæinn, yfir Heimaklett og Herjólfs- dal.“ Að sögn Gríms getur húsið tekið um 500 til 550 manns í mat, en ein- göngu verður tekið á móti hópum. Hann sagði að hægt yrði að skipta salnum niður þannig að vel yrði hægt að taka á móti minni hópum, þá yrði um 200 fermetra setustofa fyrir ofan eldhúsið þar sem einnig yrði hægt að taka á móti hópum. Hann sagði að eins og staðan væri í dag gæti stærsti salurinn í Vest- mannaeyjum, Kiwanis-salurinn, tekið á móti um 140 manns í mat og að það væri alltof lítið. Nýtt 1.200 fermetra veitinga- og ráðstefnuhús opnað í Vestmannaeyjum Byggt ofan á vatnstank bæjarins Morgunblaðið/Sigurgeir Gert er ráð fyrir að nýtt veitinga- og ráðstefnuhús verði tekið í notkun í lok apríl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.