Morgunblaðið - 21.03.2001, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.03.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 21. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ DAGBLAÐIÐ Dagur var aðeins tæplega fimm ára gamalt blað þegar rekstri þess var hætt í gær. Blaðið á sér hins vegar mun lengri sögu eða allt til ársins 1917. Með sameiningu Dags og Tímans og síðar Alþýðu- blaðsins og Vikublaðsins (sem hóf útgáfu eftir að Þjóðviljinn hætti) var stefnt að því að koma á fót öflugu blaði sem gæti veitt þeim sem fyrir voru á markaðinum samkeppni. Þær vonir brugðust. Um það leyti sem hefðbundnir stjórnmálaflokkar voru að verða til á Íslandi stofnuðu stuðningsmenn þeirra blöð sem var ætlað að vera málgögn þeirra. Tíminn var stofn- aður 1917, en hann studdi Fram- sóknarflokkinn. Dagur var stofnað- ur á Akureyri árið eftir, en að því stóðu einnig framsóknarmenn. Al- þýðublaðið var stofnað 1919 og studdi það Alþýðuflokkinn. Þjóðvilj- inn var stofnaður 1936 og studdi hann Sósíalistaflokkinn og síðar Al- þýðubandalagið. Á ýmsu gekk í rekstri þessara blaða í gegnum árin, en almennt má segja að blaðaútgáf- an hafi kostað stjórnmálaflokkana mikil fjárútlát. Þjóðviljinn var fyrstur hefðbund- inna flokksblaða til að hætta að koma út. Út- gáfufélag blaðsins fór í greiðslustöðvun í árs- byrjun 1992 og var þá tekin ákvörðun um að hætta útgáfu blaðsins. Nokkrir starfsmenn stofnuðu Vikublaðið á grunni þess og var það gefið út með stuðningi forystumanna Alþýðu- bandalagsins. Mikið tap var á útgáfu flokksblaðanna Framsóknarmenn ákváðu í byrj- un níunda áratugarins að gera til- raun með breytta útgáfu Tímans og var dagblaðið NT stofnað í fram- haldi af því. Því var ætlað að vera óháð fréttablað. Rekstur blaðsins gekk illa frá upphafi og tók Fram- sóknarflokkurinn á endanum yfir rekstur þess og breytti nafni þess á ný í Tímann. Flokkurinn tapaði miklum fjármunum á NT-ævintýr- inu og neyddist m.a. til að selja hús- eign sína á Rauðarárstíg í Reykja- vík til að greiða skuldirnar. Dagur kom í upphafi út tvisvar í mánuði, en var fljótlega breytt í vikublað. Blaðinu var breytt í dag- blað 1985. Blaðið lenti í rekstrarerf- iðleikum m.a. vegna húsbygginga og fór tvisvar í greiðslustöðvun. Um miðjan síðasta áratug hafði blaðið náð að vinna sig út úr erfiðleikunum og var þá rekið með hagnaði. Á ýmsu gekk í rekstri Alþýðu- blaðsins. Það náði á tímabili mikilli útbreiðslu og veitti hinum blöðunum harða samkeppni. Fjárhagslegur grunnur undir rekstri blaðsins var hins vegar veikur. Um miðjan síð- asta áratug, þegar útgáfu þess var hætt, var það með minnsta út- breiðslu af þessum hefðbundnu flokksblöðum. Frjáls fjölmiðlun kemur inn í útgáfu blaðanna Árið 1993 urðu átök innan blað- stjórnar Tímans, en hugmyndir voru þá uppi um að breyta rekstri blaðsins og færa það fjær Fram- sóknarflokknum. Þeir sem stóðu að útgáfunni höfðu ekki það fjármagn sem þurfti og undir árslok varð út- gáfufyrirtækið Mótvægi, sem gaf Tímann út, gjaldþrota. Í ársbyrjun 1994 tók Frjáls fjölmiðlun við útgáfu Tímans af Framsóknarflokknum og hætti flokkurinn í framhaldi af því öllum afskiptum af rekstrinum. Um mitt árið 1996 var tekin ákvörðun um að sameina Tímann dagblaðinu Degi á Akureyri. en um leið keypti Frjáls fjöl- miðlun 49,9% hlut í Dagsprenti. Stefán Jón Hafstein var ráðinn rit- stjóri blaðsins sem nefnt var Dagur-Tíminn. Síðar var Tíminn felldur út úr nafninu og bar blaðið þá einungis nafn Dags. Þegar blaðið var kynnt fjölmiðl- um 1. ágúst 1996 sagði nýráðinn rit- stjóri: „Þetta nýja starf leggst vel í mig, það er afar áhugavert og heillandi, en jafnframt veit ég að það verður mjög krefjandi,“ sagði Stefán Jón. „Við ætlum að sýna ís- lenskum fjölmiðlaheimi að það er hægt að gera betur á þessum vett- vangi en gert hefur verið undanfar- in ár.“ A-flokkarnir sameina blöð sín Degi Í febrúar 1997 tók Frjáls fjölmiðl- un að sér útgáfu Alþýðublaðsins og eignaðist um leið 80% í Alþýðu- blaðsútgáfunni. Útgáfu Alþýðu- blaðsins lauk svo í júlí sama ár þeg- ar það rann ásamt Vikublaðinu inn í Dag-Tímann. Skrifuðu Sighvatur Björgvinsson, formaður Alþýðu- flokksins, og Margrét Frímanns- dóttir, formaður Alþýðubandalags- ins, undir samstarfssamning við Eyjólf Sveinsson, stjórnarformann Dagsprents 31. júlí 1997. Við það tækifæri sagði Margrét: „Dagur-Tíminn hefur verið rekinn þannig á þessu ári að þessir hópar félagshyggjufólks, sem hafa verið að velta fyrir sér blaðaútgáfu, telja að sínum væntingum hafi á margan hátt verið mætt, en til þess að blaðið verði öflugra þurfi að skapa því auk- ið svigrúm á markaðinum og það er- um við að gera.“ „Þetta blað verður að taka mið af þeim lesendahópi sem ætlast er til að kaupi það. Það eru hins vegar engin ákvæði í þessu samkomulagi um að flokkarnir hafi einhvern ráð- stöfunarrétt á einhverjum tilteknum yfirmannastöðum á ritstjórn,“ sagði Sighvatur við sama tækifæri. Eyjólfur Sveinsson hafði látið hafa eftir sér skömmu áður en gengið hafði verið frá samningnum „Dagur-Tíminn er tæplega eins árs gamalt blað og hefur náð þeirri stöðu að vera lesið af rúmlega 10% landsmanna á hverjum degi og tæp- um fjórðungi landsmanna utan höf- uðborgarsvæðisins. Dagur-Tíminn er auðvitað kominn til að vera og samstarf af þessum toga, þar sem útgáfumálum A-flokkanna verði skipað þannig að A-flokkarnir myndu einfaldlega leggja Degi-Tím- anum lið og horfa til þess dagblaðs sem þess fjölmiðils sem þeir geta treyst á, það styrkir auðvitað blað- ið.“ Útgefendur Dags-Tímans stefndu ákveðið að því að byggja blaðið upp. Eyjólfur Sveinsson lét hafa eftir sér á hádegisverðarfundi Félags við- skipta- og hagfræðinga í október 1996 að hann teldi að grundvöllur væri fyrir því að blaðið færi í 20 þúsund eintök á 2–3 árum. Hann sagði einnig að nýju blaði yrðu lagð- ar til 20–30 milljónir í nýtt hlutafé. Eftir að samstarfssamningurinn við A-flokkana var gerður sumarið 1997 var haft eftir Eyjólfi að hlutaféð yrði aukið í um 70 milljónir. Árið 1997 og 1998 fóru útgefendur Dags í viðamikla og dýra áskriftarherferð. Áskrifendum fjölgaði nokkuð við þetta um tíma, en þegar á heildina er litið skiluðu þessar safnanir ekki tilætluðum árangri. Í upphafi töldu aðstandendur blaðsins raunhæft að gefa blaðið út í 15 þúsund eintökum. Blaðið var þegar útgáfa þess var stöðvuð gefið út í innan við 10 þús- und eintökum. Mikið tap 1998 og 1999 Tapið á Dagsprenti var 26 millj- ónir 1998 og 99,4 milljónir árið 1999. Á síðasta ári var kostnaður við út- gáfuna skorinn niður um þriðjung, en dugði það samt ekki til að félagið skilaði hagnaði. Sýnt þótti að þrátt fyrir mikið aðhald í rekstri myndi útgáfan ekki ganga upp. Stefán Jón Hafstein hætti sem ritstjóri Dags í árslok 1998 og hefur Elías Snæland Jónsson stýrt því síð- an en hann var ráðinn ritstjóri við hlið Stefáns um mitt ár 1997. Á hluthafafundi í Dagsprenti á mánudaginn var ákveðið að fara út í fjárhagslega endurskipulagningu. Ekki munu vera uppi áform um að stefna félaginu í gjaldþrot. Ekki fengust upplýsingar um skuldastöðu fyrirtækisins en stærstu lánar- drottnar eru Frjáls fjölmiðlun og Ísafoldarprentsmiðja, sem er í eigu Frjálsrar fjölmiðlunar. Eftirsjá að Degi Sighvatur Björgvinsson og Margrét Frímannsdóttir sögðu í samtali við Morgunblaðið í gær að þau sæju að mörgu leyti eftir Degi. Sighvatur sagði að það væri í sjálfu sér ekki margt um þetta að segja. Það væri ekki hægt að ætlast til þess að útgáfufélagið héldi úti rekstri nema hann stæði undir sér. Það hefði ekki tekist og því væri honum sjálfhætt. Margrét sagðist sjá eftir Degi. „En mér finnst hins vegar aldrei hafa verið gert það átak sem hefði þurft að fara út í ef þetta hefði átt að geta orðið það öfluga dagblað sem ég hefði viljað sjá. Það hefur ekki verið gert mikið núna seinni ár- in í því að efla dreifingu Dags. Upphaflega var ætlunin að Dagur yrði mótvægi á blaðamarkaðinum en það gekk ekki eftir. Á sínum tíma voru kynnt ákveðin markmið fyrir okkur af hálfu útgáfunnar og ég tel að þau hafi ekki náðst enda er blaðið nú að leggja upp laupana,“ sagði Margrét. Útgáfu Dags hætt eftir að blaðið hafði komið út í tæplega fimm ár í síðustu lotu Vonir um öflugt dag- blað gengu ekki eftir Morgunblaðið/Jim Smart Sighvatur Björgvinsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, Margrét Frímannsdóttir, formaður Alþýðu- bandalagsins, Sveinn R. Eyjólfsson, stjórnarformaður Frjálsrar fjölmiðlunar, og Eyjólfur Sveinsson, stjórn- arformaður Dagsprents, skrifuðu undir samstarfssamning 31. júlí 1997. Samningurinn gerði m.a. ráð fyrir að áskrifendum Alþýðublaðsins og Vikublaðsins yrði boðin áskrift að Degi-Tímanum. Viss tímamót urðu í blaðaútgáfu á Íslandi í gær þegar dagblaðið Dagur hætti að koma út en það var stofnað 1996 á grunni gömlu flokks- blaðanna. Ekki reyndist fjárhagslegur grund- völlur fyrir útgáfunni og hefur Dagur hefur nú verið sameinaður Dag- blaðinu Vísi. Dagur átti ræt- ur allt aftur til ársins 1917 TÖLUVERÐAR breytingar verða gerðar á efni DV í kjölfar samein- ingar blaðsins og Dags undir merkjum DV en útgáfa blaðanna var sameinuð frá og með gærdeg- inum. „Dagur hefur verið sterkur á ákveðnum sviðum, eins og í stjórn- málafréttum, og við ætlum að fá það inn í nýtt blað,“ sagði Jónas Kristjánsson, annar ritstjóra DV, á blaðamannafundi sem blaðið boðaði í gær. Elías Snæland Jónsson, rit- stjóri Dags, hefur verið ráðinn ráð- gjafi í útgáfumálum Frjálsrar fjöl- miðlunar en fyrirhuguð eru nokkur ný verkefni á sviði útgáfu hjá fyr- irtækinu á næstunni. Óli Björn Kárason, ritstjóri DV, segir að með breytingunum sé ver- ið að „blása til nýrrar sóknar“ en hann ítrekar að mikil áhersla verði lögð á starfsemi blaðsins á Akur- eyri en þar munu starfa allt að sex blaðamenn, auk starfsfólks á aug- lýsinga- og dreifingardeild. Birgir Guðmundsson, aðstoðar- ritstjóri Dags, hefur verið ráðinn fréttastjóri DV. Hann mun jafn- framt stýra ritstjórn DV á Akur- eyri. Slæm fjárhagsstaða Fjárhagsstaða Dagsprents, sem hefur gefið Dag út, hefur verið slæm og segir Óli Björn hana vera eina ástæðu sameiningar. „Það tókst að fjölga áskrifendum Dags en ekki nógu mikið og því er betra að grípa til svona aðgerða.“ Áskrif- endur Dags bætast nú í hóp áskrif- anda DV og eru þeir um fimm til tíu þúsund talsins en einhverjir voru þó áskrifendur að báðum blöð- unum. Aukin samkeppni á sviði fjölmiðl- unar er ennfremur ein helsta ástæða sameiningar, að því er segir í fréttatilkynningu, og er samein- ingin liður í því að styrkja útgáfu blaðanna. „Umhverfi fjölmiðla á Ís- landi hefur tekið miklum breyt- ingum á undanförnum misserum og útgáfa dagblaða er á tímamótum en innan fárra vikna lítur nýtt ókeypis dagblað dagsins ljós,“ segir í til- kynningunni. Frjáls fjölmiðlun á hlut í nýja blaðinu og að sögn Óla Björns getur vel hugsast að einhverjir starfs- menn Dags fari til starfa þar. „Öll- um starfsmönnum Dagsprents er boðin vinna. Viðkomandi starfs- maður ræður þó ferðinni,“ sagði hann en starfsmönnunum býðst vinna hjá DV, Frjálsri fjölmiðlun eða tengdum fyrirtækjum. Dags- prent mun hins vegar halda áfram starfsemi á sviði prentþjónustu. DV boðar breytingar í kjölfar sameiningar Morgunblaðið/Jim Smart Birgir Guðmundsson, fyrrverandi aðstoðarritstjóri Dags, nú fréttastjóri DV, og Óli Björn Kárason, ritstjóri DV, á blaðamannafundi í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.