Morgunblaðið - 03.04.2001, Blaðsíða 7
KÖRFUKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 B 7
„ÞAÐ eru fimm ár síðan ég hef
verið í svona sigursælu liði og
þetta er draumur hvers leik-
manns. Hópurinn er frábær,
þjálfarinn stórkostlegur, stuðn-
ingsfólkið og stjórnun deildarinn-
ar frábær og Ísland er yndislegt
svo að þetta hefur verið eins og
draumur,“ sagði Heather Corby,
sem gekk til liðs við KR í vetur
og náði að vinna bikarkeppnina
og Íslandsmótið með liðinu. Hún
lék áður með skólaliði sínu í
Pennsylvaníu í Bandaríkjunum
og svo á Spáni en liðið þar lenti í
fjárhagserfiðleikum. Það er þó
óvíst hvort hún verður áfram í
herbúðum KR. „Við sjáum hvað
setur, það þarf að ganga frá
ýmsum málum og ég á eftir að
ferðast mikið þetta árið auk þess
sem ég þarf að hafa samráð við
kærastann minn en ég er til í að
leika körfuknattleik hérna.“
Draumur hvers
leikmannsflest stig frá leikmönnum, sem eru ekki íbyrjunarliðinu. Svo er þjálfarinn meiri-
háttar, við metnaðarfullar, æfingarnar
góðar og við duglegar á þeim svo að við
höfum uppskorið eins og við höfum til
sáð.“
Ætluðum að
fikra okkur ofar
„Ég hef tekist á við það skemmtilega
hlutverk í vetur að lyfta bikurunum og
það hefur verið ævintýri líkast, við höfum
unnið alla titla sem í boði eru og erum ein-
faldlega með gott lið,“ sagði fyrirliði KR,
Kristín Jónsdóttir, eftir leikinn. „Við
hlökkuðum mikið til þessa leiks en náðum
ekki að sýna okkar betri hliðar. Við áttum
samt góða kafla í leiknum en þegar þær
náðu að skora sextán stig í röð duttum við
aðeins niður og misstum dampinn. Það
var samt ekki neitt stress í okkur en þær
brjálaðar enda síðasti möguleiki. Þær
misstu síðan Brooke Schwarz útaf en við
vissum að þá myndu þær tvíeflast svo að
ljóst var að lokaspretturinn yrði erfiður
en þetta gekk hjá okkur,“ bætti Kristín
við en hún sagði að ekki hefðu verið sett
nein markmið um sigur fyrir mótið. „Við
gáfum ekki út neinar yfirlýsingar. Það
kom nýr þjálfari og tveir leikmenn hættu
svo að liðið breyttist aðeins og við ákváð-
um þá bara að fikra okkur bara áfram.“
eins og við höfum til sáð
Heather Corby og Hanna B. Kjart-ansdóttir fóru á kostum fyrir KR í
byrjun en það dugði ekki til að brjóta
niður baráttuanda Kefl-
víkinganna, sem dugði
ekkert nema sigur til að
missa ekki bikarinn í
hendur Reykvíkingun-
um. Með liprum leik tókst þeim að ná
20:19 forystu en með því að skora aðeins
tvö stig á fyrstu fimm mínútunum í öðr-
um leikhluta á meðan KR skoraði 14
stig snerist taflið við. Keflvíkingurinn
Brooke Schwarz fékk sína fjórðu villu
þegar rúm mínúta var til leikhlés og fór
útaf um tíma en kom aftur inná til síðari
hálfleiks og sló hvergi af. Um tíma varð
forysta KR 15 stig og áttu gestirnir erf-
itt uppdráttar en sýndu mikinn baráttu-
anda með því að snúa taflinu aftur við,
51:52, á síðustu mínútu þriðja leikhluta.
Spennan varð því mikil í síðasta leik-
hlutanum. Það liðu rúmar sex mínútur
áður en Keflvíkingum tókst að skora
seinni körfu sína því þeim tókst einung-
is að ná sér í fjögur stig síðustu tíu mín-
úturnar. KR-stúlkur voru lítið betri þó
að þeim hafi tekist að skora tíu stig en
það dugði þó til sigurs.
Corby lét mikið að sér kveða í leikn-
um, skoraði 17 stig og tók 18 fráköst auk
þess að gefa 7 stoðsendingar. Hanna
gaf henni lítið eftir en Kristín Jónsdótt-
ir og Helga Þorvaldsdóttir voru einnig
góðar. Í heild fær samt liðið hrós fyrir
baráttu þó að lengi vel hafi það ekki náð
að sýna sínar bestu hliðar.
Hjá Keflavík byrjaði Kristín Blöndal
mjög vel og dreif liðið áfram. Brooke
Schwartz var aftur á móti lengur í gang
en tók þó 14 fráköst. Erla Þorsteins-
dóttir var einnig ágæt, tók meðal ann-
ars 13 fráköst og varði fimm skot.
Morgunblaðið/Ásdís
sigurlaunum Íslandsmótsins
daginn. Hún hefur haft í nógu
liðsins í vetur og hefur það þá
boði var.
Órofin sigurganga
KR-stúlkna
SIGURGANGA KR-stúlkna í körfuknattleik var ekki rofin á laugardaginn
þegar þær mættu Keflavík í þriðja úrslitaleik Íslandsmótsins í Vest-
urbænum. Þrátt fyrir að lenda í nokkrum erfiðleikum með gesti sína
sýndu þær mikinn styrk í lokin og sigruðu 64:58. Fyrir vikið hömpuðu
þær fimmta og síðasta bikarnum í vetur en það eru allir þeir bikarar sem
keppt var um.
Stefán
Stefánsson
skrifar
„ÞETTA er góð uppskera enda
búa miklir hæfileikar í þessum
stelpum,“ sagði Henning Henn-
ingsson, þjálfari KR, eftir sig-
urinn. „Málið snýst eingöngu um
að hugarfarið sé í lagi og vilji og
kjarkur til að vinna þessa titla –
þá vinnast titlar eins og hefur sýnt
sig í vetur. Stelpurnar hafa staðið
sig geysilega vel í mikilvægustu
leikjunum og haldið haus, sem er
málið. Helstu kostirnir eru hug-
arfarið. Þegar ég tók við liðinu sá
ég strax að hæfileikarnir voru til
staðar svo að málið snerist um
viljann og trú á að hægt væri að
vinna. Liðið hefur síðan tekið
framförum og sigraði svo glæsi-
lega,“ bætti Henning við. Hann
var eins og þjálfari Keflavíkur að
þreyta frumraun sína sem þjálfari
kvennaliðs í körfuknattleik og get-
ur vel við árangurinn unað – vann
Reykjavíkurmótið, Kjörísbikarinn,
Doritosbikarinn, deildarkeppnina
og Íslandsmótið, en óvíst er hvort
hann verður áfram með liðið.
„Þetta hefur verið mjög gaman en
nú er ég hættur, fer heim og
leggst upp í sófa með tærnar upp
í loft.“
Hæfileikar
og hugarfar
Morgunblaðið/Ásdís
nning Henningsson þjálfari KR-kvenna fékk flugferð hjá liði sínu eftir að hafa landað síðasta bikar vetrarins.
KR-stúlkur
bestar
Eftir að Heather Corby og Guð-björg Norðfjörð komu inn aftur
eru KR-ingar með langbesta liðið og
sýndu það og sönnuðu í dag. Það er
erfitt að eiga við svona gott lið og við
höfum svo sem átt við meiðsli að
stríða í vetur en betra liðið vann,“
sagði Kristinn Óskarsson, þjálfari
Keflavíkurkvenna. „Það var samt
ekki erfitt að fara í þennan þriðja
leik eftir tvö töp og við vissum að það
yrði á brattann að sækja, þessi leik-
ur yrði alveg eins erfiður og hinir.
En við sýndum mikinn styrk í hon-
um með því að jafna í síðari hálfleik
en það var erfitt að spila síðustu
fimm mínúturnar án Brooke
Schwarts, sem beitti sér að fullu
þrátt fyrir að hún þyrfti að leika í
fimmtán mínútur með fjórar villur á
bakinu. Hins vegar undirstrika þessi
úrslit yfirburði KR í dag. Þeir hafa
verið að byggja upp sitt lið frá 1993
og frá úrslitaleikjunum í fyrra, sem
urðu fimm, hafa þeir bætt við sig
mannskap á meðan við höfum tapað
þremur leikmönnum úr liði aldarinn-
ar, þeim Önnu Maríu Sveinsdóttur,
Öldu Leif Jónsdóttur og Erlu Reyn-
isdóttur. Því erum við þegar öllu er á
botninn hvolft að gera ágætis hluti,“
bætti Kristinn við og var ánægður
með frumraun sína í þjálfun kvenna-
liðs í körfuknattleik. „Það hefur ver-
ið mjög lærdómsríkt og skemmtilegt
að þjálfa kvennalið í körfunni en
jafnframt mjög krefjandi, sérstak-
lega vegna þess að liðið var ekki al-
veg heilt – andlega og líkamlega.“
Þær áttu skilið að vinna
„Þær eiga þetta skilið því þær
voru betri en við í þessum þremur
leikjum,“ sagði Keflvíkingurinn
Kristín Blöndal eftir leikinn. „Þær
eru aðeins á undan núna en ekki
langt. Það vantar herslumuninn og
okkar lið hefur ekki náð að sýna sitt
rétta andlit í úrslitaleikjunum. Það
var alveg hægt að vinna upp mun
eins og við gerðum í leiknum – það
þarf bara að hafa trú á því. Ég held
samt innst inni að okkar lið hafi ekki
trúað að það gæti unnið þessa þrjá
leiki, en við getum unnið, við sýndum
það einu sinni í vetur,“ bætti Kristín
við en hún hefur ásamt félögum sín-
um þurft að horfa á eftir nokkrum
bikurum í hendur KR í vetur. „Það
var erfitt að sjá á eftir þessum bik-
urum í vetur. Við unnum í fyrra en
þær núna og þannig gengur þetta
stundum, það er ekki alltaf hægt að
vinna en þær eiga skilinn þennan
sigur. Þær spiluðu mjög vel í vetur
og eru með mjög góðan útlending.“