Morgunblaðið - 16.05.2001, Blaðsíða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2001 27
teikningu sem sjálfstæða listgrein.
Hann sýnir röð ferkantaðra kola-
teikninga sem sýna samspil ljóss og
skugga á vatnsfleti. Verkin kalla á
mismunandi túlkun enda taka þau á
sig ólíkar myndir eftir afstöðu áhorf-
andans. Við fyrstu sýn virðist e.t.v.
vera um ljósmyndir að ræða, svo fín-
lega eru kolateikningar listamanns-
ins unnar. Einnig tekst á skynjun á
dýpt og yfirborði og nær listamað-
urinn þannig að fanga breytileika og
hreyfingu í verkum sínum.
Teikningar listmannsins og arki-
tektsins Kalle Grude eru unnar árið
1992. Um er að ræða vélteikningar
sem Grude fékk hugmyndina að þeg-
ar hann var staddur í New York á
tímum Persaflóastríðsins. „Verið var
að selja rafdrifnar hermannabrúður
sem skriðu eftir jörðinni og „skutu“
úr vélbyssu. Eitthvað við þetta vél-
genga fyrirbæri vakti áhuga minn,
mér fannst þetta leikfang vera svo
lýsandi fyrir samtímann,“ segir
Grude. Hann festi kaup á nokkrum
brúðum og notaði þær sem hluta af
sýningu í Osló. Þar lagði hann níu
auð blöð á gólf sýningarsalarins, kom
nagla fyrir í miðju hvers blaðs og
festi vélbrúðu við naglann með
TILDRÖG sýningarinn-
ar eru þau að Listasafn
Reykjavíkur og Teikn-
arasamtökin í Noregi
báðu listafólkið Ragn-
heiði Jónsdóttur og Pat-
rick Huse að taka að sér
sýningarstjórn fyrir
sameiginlegt verkefni.
Valdi Ragnheiður norska
listamenn til sýningar í
Reykjavík en íslenskir
listamenn voru valdir af
Huse til að sýna í Osló.
Ragnheiður hefur sjálf
fengist mikið við teikn-
ingar á myndlistarferli
sínum og bendir hún á að
teikningin njóti ekki allt-
af þeirrar athygli sem
hún á skilið. „Lítil rækt
er lögð við teikninguna
sem sjálfstætt listform
og mættu listaskólarnir
standa sig mun betur á
því sviði. Það er líka mjög
sjaldan að fólki gefst
tækifæri til að sjá teikni-
sýningar hér á landi,“
segir Ragnheiður og
bætir því við að ánægju-
legt sé fyrir íslenska
myndlistarmenn að eiga
samvinnu við Teiknisam-
tökin í Noregi sem hafi
starfað ötullega að því að
hlúa að teiknilistinni þar í landi.
Norðmennirnir sem sýna í Hafn-
arhúsinu eru þau Milda Graham,
Kalle Grude og Sverre Wilhelm
Malling en einnig er að finna mynd-
skyggnur af verkum eftir 17 lista-
menn og myndbönd sem sýna ólíka
útfærslu listamanna í teikningum.
„Við valið á þeim sem sýna verk hér í
Hafnarhúsinu leitaði ég eftir til-
raunaverkum því markmið sýningar-
innar er að varpa ljósi á stöðu teikn-
ingarinnar í samtímanum,“ segir
Ragnheiður.
Vélknúni teiknarinn
Samsýning listamannanna þriggja
ber fjölbreyttri túlkun á miðlinum
glöggt vitni. Í verkum sínum, sem
eru unnin á árunum 1987 til 2001,
notast Milda Graham við blýant, kol,
túss og blandaða tækni. Ragnheiður
bendir á að hin minimalistísku verk
Mildu Graham vaxi frá fisléttum,
gagnsæjum vef og endi í massífum
verkum sem hafa þyngd. Grunn-
þema verka Mildu er spennan milli
hins lárétta og hins lóðrétta. Sverre
Wilhelm Malling stundar nám við
Listaakademíuna í Osló og er í hópi
ungra listamanna sem leggja stund á
bandi. Penni var síðan
festur við olboga og hné
brúðanna og þær gang-
settar. Brúðurnar teikn-
uðu smám saman hringi á
blaðið, sem minnkuðu
eftir því sem spottinn
styttist við það að vefjast
upp á naglann. Með
þessu móti bjó Grude til
sjálfvirka teiknivél sem
kom í hans stað. Þrjú
þessara verka sýnir
Grude í Hafnarhúsinu.
„Það sem mér finnst
merkilegast við útkom-
una er að verkin fá á sig
„handgerðan“ blæ, sem
sjaldan tekst þegar um
vélteikningar er að ræða.
Það kom til af því að
tindátarnir entust mis-
vel, pennarnir slitnuðu
mishratt og ákveðnar
misfellur komu fram
þegar rafhlöður dóu.
Kannski segja verkin
okkur ekki eingöngu
eitthvað um hinn vélræna
nútíma heldur einnig
hvernig tæknin er háð
utanaðkomandi áhrif-
um.“ Í myndbandi sem
sýnt er má sjá hina ný-
stárlegu teiknivél Kalle
Grude við vinnu sína á
sýningunni frá því árið 1992.
Mikil breidd
Sýning íslensku listamannanna í
Osló verður opnuð 19. maí. Þar munu
sýna þau Birgir Andrésson, Hreinn
Friðfinnsson, Kristján Guðmunds-
son og Ragnheiður Jónsdóttir. Veg-
leg sýningarskrá með verkum
norsku og íslensku listamannanna er
gefin út í tengslum við sýningarnar
og má þar sjá mikla breidd í vali
verka. „Teikningarnar eru unnar
með blýanti, bleki, kolum, grafíti og
ýmiss konar blandaðri tækni. Þar er
beitt jafnt hefðbundnum aðferðum
sem og tilraunakenndum. Ragnheið-
ur segir sýninguna til þess fallna að
vekja forvitni leikra sem lærðra og
bendir á að listnemar gætu haft gagn
af því að skoða sýninguna. „Lista-
menn nota skyssur að meira eða
minna leyti við gerð verka sinna.
Börnum er það mjög eðlilegt að nota
teikningar til að tjá sig, og öll teikn-
um við eins konar myndir í huga okk-
ar þegar við hugsum,“ segir hún.
Sýningin í Hafnarhúsinu var opn-
uð 5. maí og stendur til 17. júní.
„Öll teiknum við
myndir í huganum“
Myndlistarmaðurinn Kalle Grude við
vélgerða teikningu sína.
Um þessar mundir stendur yfir sýning í Hafnarhúsinu á teikningum
eftir norska listamenn. Heiða Jóhannsdóttir skoðaði sýninguna og
ræddi við Ragnheiði Jónsdóttur sýningarstjóra og listamanninn
Kalle Grude um mikilvægi teikningarinnar sem sjálfstæðs listmiðils.
heida@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
KOMANDI veiði-
sumri verður fagn-
að með opnun
myndlistarsýningar
Haraldar Inga Har-
aldssonar á Café
Karólínu á Akur-
eyri á föstudaginn
kl. 17. Opnunar-
helgina verður Har-
aldur Ingi jafnframt
sérstakur ráðgjafi,
matargestum til
halds og trausts.
Verkin eru frum-
myndir úr riti Har-
aldar, „Lax og sil-
ungur. Rit um matargerðarlist og
veiðigleði“, sem út kom í fyrra. Þar
er að finna umfjöllun Haraldar um
stangveiði og matreiðslu þess góð-
gætis sem lax og silungur eru, auk
þess sem bókin geymir uppskriftir
eftir þjóðþekkta Íslendinga sem allir
eiga það sameiginlegt að njóta mat-
argerðar, útivistar og/eða stang-
veiði. Bókin inniheldur jafnframt
fjölda mynda eftir Harald, af góm-
sætum fiskréttum og veiðimennsku.
Á sýningunni gefst gestum kostur á
að skoða frummyndirnar sem not-
aðar voru í bókina, en þar er um að
ræða teikningar og málverk.
Haraldur Ingi nam myndlist við
Myndlista- og handíðaskólann og
síðar í Hollandi og hefur haldið 16
einkasýningar. Í bókinni Lax og sil-
ungur blandar Haraldur saman list-
sköpun, veiðimennsku og matar-
gerðarlist, en undirtitill hennar er
Matur – veiði – vín – myndlist. „Það
má segja að ég sé að blanda saman
þremur mikilvægum hlutum úr
mínu uppeldi. Í fyrsta lagi stang-
veiði, sem ég lærði við föðurhné. Í
öðru lagi matreiðsluáhuga, sem
kviknaði eftir að ég sótti matreiðslu-
námskeið í Húsmæðraskólanum á
Akureyri. Í þriðja lagi myndlistinni,
sem ég ákvað að leggja fyrir mig síð-
ar meir,“ segir Haraldur. Aðspurður
vill hann þó ekki leggja matargerð-
arlist að jöfnu við myndlist, en segir
hvort tveggja gera
ákveðnar kröfur til
skapandi hugsunar.
„Skapandi hugsun
er manninum nauð-
synleg í öllu hans
lífi. Hvort sem það
kemur listum eða
einhverju allt öðru
við.“ Stangveiðina
segir Haraldur
tengjast listinni
óbeint, því þar fær
hann hráefnið til að
elda, bera á borð og
hugsa um mynd-
rænt.
Á sýningunni er að finna rúmlega
80 myndir, sem skipta má í þrjá
flokka. „Í fyrsta lagi er um að ræða
myndir sem ég kalla „Úr veiðiver-
öld“ en þar reyni ég að tjá þá gleði
og ánægju sem er í því fólgin að
vera úti við vatnsföll með stöng í
hönd. Þar koma jafnt fullorðnir sem
börn við sögu. Síðan eru teikningar
og málverk af réttunum sjálfum,
sem ég hef dálítið gaman af því að
gera, eins og t.d. að mála 200 gr af
sveppum. Síðan eru það myndir af
þeim þekktu Íslendingum sem hafa
ljáð ritinu sínar uppáhaldsuppskrift-
ir.“
Haraldur mun sem fyrr segir
bregða sér í hlutverk sérstaks
„gestaverts“ á Café Karólínu. Þar
verður boðið upp á sérstakan laxa-
og silungamatseðil sem byggður er
að hluta til á listaverkabók Harald-
ar. „Matseðillinn er unnin í samráði
okkar Guðmundar Rúnars Brynj-
arssonar meistarakokks á staðnum
og Magna R. Magnússonar vínþjóns
og hörkuveiðimanns. Café Karólína
mun síðan halda áfram matseðlin-
um.“ Haraldur Ingi minnir að lokum
á að allir séu hjartanlega velkomnir
á opnunina á föstudaginn en þar
verður boðið upp á léttar lax- og sil-
ungaveitingar. „Við ætlum að fagna
vori og sumri með laxi og silungi,
enda er náttúruan öll að vakna til
lífsins,“ segir hann.
Haraldur Ingi Haraldsson opnar
sýningu á Café Karólínu
Sumri fagnað
með laxi og silungi
Úr veiðiveröld Haraldar
Inga Haraldssonar mynd-
listarmanns.
SELLÓLEIKARINN Erling Blöndal
Bengtsson heldur námskeið, „mast-
er-class“ á Ísafirði undir yfirskrift-
inni „Sellódagar á Ísafirði 2001“.
Námskeiðið verður haldið í Tónlist-
arskóla Ísafjarðar og hefst 9. júní
og lýkur með tónleikum þann 12.
Erling Blöndal hefur leikið ein-
leik með flestum þekktustu hljóm-
sveitum heims og undir stjórn
margra fremstu hljómsveitarstjóra
heims. Hann hefur m.a. kennt við
tónlistarháskólana í Kaupmanna-
höfn, Stokkhólmi og Köln en frá
árinu 1990 hefur hann verið pró-
fessor í sellóleik við Tónlistar-
háskólann í Ann Arbor, Michigan í
Bandaríkjunum.
Unnt verður að taka við 10–12
virkum þátttakendum en fjölda
áheyrnarnemenda verða engin tak-
mörk sett. Umsóknarfrestur er til
18. maí nk.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Erling Blöndal Bengtsson á æfingu með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Sellónámskeið
með Erling
Blöndal
Bengtssyni