Morgunblaðið - 20.07.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.07.2001, Blaðsíða 4
Birgir hefur um árabil unnið viðlyfjaeftirlit á íslenskum íþrótta- mönnum. Hann hefur flutt fyrirlestra og haldið námskeið og gjörþekkir þenn- an málaflokk. Hann hefur setið í nefndum og ráðum á vegum ÍSÍ allar götur frá árinu 1986 og hef- ur frá árinu 1989 sótt öll þing Al- þjóðaólympíunefndarinnar um þessi mál. Þá hefur Birgir verið þing- fulltrúi hjá Alþjóða frjálsíþróttasam- bandinu og hefur á þess vegum bæði verið dómari og í læknanefnd. Hann var skipaður formaður læknaráðs ól- ympíunefndar og lyfjaeftirlitsnefnd- ar árið 1995 og þegar Íþróttasam- band Íslands og ólympíunefndin voru sameinuð tók Birgir að sér for- mennsku í heilbrigðisráði. „Ég tilkynnti þessa uppsögn fyrir þremur vikum og lagði inn greinar- gerð á borð til ÍSÍ hinn 11. júlí þar sem ég geri grein fyrir uppsögn minni. Þetta er því engin skyndi- ákvörðun en það fréttist ekki af þessu fyrr en ég sagði frá þessu á Lands- mótinu á Egilsstöðum,“ sagði Birgir Guðjónsson í samtali við Morgun- blaðið í gær. Hver er ástæða þessarar uppsagn- ar? „Þetta er uppsafnaður vandi og ágreiningur milli mín og forseta ÍSÍ og framkvæmdastjórnar sem gerir þess valdandi að ég sé mér ekki fært að halda starfinu áfram. Í hvert ein- asta sinn sem upp hafa komið mál hafa blossað upp átök hvernig fylgja eigi málunum eftir og nýfallinn dóm- ur fjögurra íþróttamanna var einfald- lega kornið sem fyllti mælinn,“ segir Birgir. Dómurinn sem Birgir vísar til er þegar þrír körfuknattleiksmenn féllu á lyfjaprófi og hér á landi lék íshokkí- maður, sem var í banni í Hollandi vegna lyfjamisnotkunar. Heilbrigðis- nefndin sem Birgir stýrði sætti ekki við þá dóma en tveir körfuknattleiks- mannanna fengu eins mánaðar keppnisbann fyrir neyslu á efidrín en einn var sýknaður. Sá sýknaði var á astmalyfjum en láðist að geta um það á eyðublaði áður en sýnið var tekið. Heilbrigðisráðið áfrýjaði þessum dómum en var í tvígang vísað frá. „Ég vissi að þetta astmamál yrði leiðinlegt og ég vann í því baki brotnu að finna vægustu refsingu út úr því. Ég í bréfaskriftum út um allan heim til að finna flöt á því en það var engin þörf á því þar sem heimtað var sýkna og hún fékkst.“ Hvernig hefur þessi ágreiningur milli þín og forseta og framkvæmda- stjórnar ÍSÍ verið? „Þegar svona lyfjamál hafa komið hafa þessir menn haft ákveðnar skoð- anir og hafa viljað hafa hönd í bagga með hvernig staðið yrði að málunum. Það voru mjög hörð andmæli um mál- efni körfuknattleikskonunnar sem notar astmalyfin og skautamanninn hvort nokkuð ætti að gera í þeim mál- um og oft og iðulega hefur komið upp ágreiningur. Astminn er svolítið sér- stakt vandamál að því leyti til að þeg- ar annar hver íþróttamaður þykist vera með þennan sjúkdóm á Ólymp- íuleikum segir það manni að það er verið að sækja í astmalyfin. Það er farið að gera mjög strangar kröfur um greiningu á þeim sjúkdómi en ef íþróttafólk segir frá því við lyfjaprófið að það sé haldið þessum sjúkdómi þá er öllu bjargað. En ef búið er að und- irrita yfirlýsingu um að engin lyf séu notuð þá gildir það sama við öll önnur lyf. Sum sérsambönd gefa ekki þuml- ung eftir í svona málum og dæma íþróttamanninn í tveggja ára bann.“ Þú segir í greinargerðinni að lyfja- eftirlitið sé sýndarmennska og út- gjaldasóun og þar af leiðandi sé rétt að hætta því. Þetta eru stór orð en stendur þú við þau? „Það er rétt. Ég er stóryrtur en þetta er sagt í greinargerð til fram- kvæmdastjórnar. Þegar við eyðum í þessi próf tveimur til þremur millj- ónum krónum á ári og upp koma fjög- ur mál, þar af eru þrjú brot hjá okkur og eitt svolítið sérstakt, og ekkert gert í málunum þá hlýtur maður að bregðast svona við.“ Hvernig metur þú stöðuna hér heima. Heldur þú að neysla ólöglegra lyfja hjá íslensku íþróttafólki hafi aukist hin síðari ár? „Það fara sögur af því að íþrótta- menn og þá einkum og sér í lagi þeir sem leggja stund á boltagreinarnar séu að innbyrða fæðurbótaefni sem sum hver innihalda ólögleg efni. Við getum ekki hlaupið beint eftir vís- bendingum þar sem við höfum bara ákveðinn fjölda prófa sem við verðum að dreifa á allar greinar. Við höfum verið að framkvæma sextíu til sjötíu próf á ári en nýlega var óskað eftir fjáveitingu til að ná að framkvæma í það minnsta eitt hundrað próf.“ Birgir Guðjónsson, formaður heil- brigðisráðs Íþrótta- og ólympíu- sambandsins, hefur sagt af sér Lyfjaeftir- litið er sýndar- mennska BIRGIR Guðjónsson, formaður heilbrigðisráðs Íþrótta- og ólymp- íusambands Íslands, hefur sagt starfi sínu lausu. Birgir hefur ekki verið sáttur við hvernig tekið hefur verið á lyfjamálum íslensks íþróttafólks. Hann segir að ítrekað hafi komið upp ágreiningur milli sín og forseta og framkvæmdastjórn ÍSÍ um lyfjamálin og hann sak- ar framkvæmdastjórnina um linkind hvað þennan málaflokk varðar. Guðmundur Hilmarsson skrifar Morgunblaðið leitaði álits Ellertsá afsögn Birgis Guðjónssonar úr starfi formanns heilbrigðisráðs ÍSÍ, og spurði hann fyrst hvort kannski væri rétt að nota þær 2–3 milljónir sem fara í lyfapróf á hverju ári til forvarna fyrir æsku landsins ef lyfjaeftirlitið er sýndar- mennska, eins og Birgir Guðjónsson heldur fram. „Við getum ekki lagt lyfjaeftirlitið af. Okkur ber skylda til að halda uppi lyfjaeftirliti og teljum það mjög nauð- synlegt og mikilvægt. Það veitir að- hald og íþróttahreyfingin veit um þetta eftirlit og án þess getum við ekki starfað. Þetta eftirlit hefur farið vaxandi með hverju ári og það verður aukið. Ég met það svo að allt starf í íþróttum sé fornvarnastarf og það er hlutur sem vill oft gleymast hjá mönnum. Við viljum gera allt til að halda ungu fólki að íþróttum og kenna því að lifa heilbrigðum lífsháttum.“ Nú hefur notkun fæðurbótaefna aukist mjög hjá íþróttafólki og vitað er að sum þessara efna hafa að geyma ólögleg efni. Kallar þetta ekki á hert eftirlit? „Við ætlum bæði að fjölga lyfja- prófunum og auka fræðslu í íþrótta- hreyfingunni um innihald þessara efna og hvað sé löglegt og hvað ólög- legt miðað við þann lista sem gefinn er út af Alþjóða ólympíuhreyfing- unni.“ Er framkvæmdastjórn ÍSÍ með fingurna í störfum lyfjanefndar? „Samvæmt lögum ÍSÍ skipum við heilbrigðisráð, þar á meðal formann. Hlutverk þessa ráðs er að framfylgja lyfjaeftirliti og halda utan um það. Þannig kemur framkvæmdastjórnin að því máli og þegar lyfjaeftirlitið og heilbrigðisráðið upplýsir að próf hafi greinst jákvætt og að það þurfi að gefa út kæru þá er það hlutverk okk- ar að skipa sérstakan dómstól. Sá dómstóll tekur sjálfstæða ákvörðun án nokkurra áhrifa eða afskipta okkar í framkvæmdastjórninni. Þannig að þegar dómstóllinn kveður upp sína dóma, sem Birgir er ósáttur við, þá er það ekki okkar verk heldur dómstóls- ins. Ég hef sagt Birgi og segi í þessu viðtali að ef menn eru óánægðir með þessa niðurstöðu, sem er byggð á reglugerðinni um lyfjaeftirlitið, þá þurfum við að breyta reglugerðinni. Okkur var það ljóst þegar þessi mál fóru af stað að reglugerðinni væri ábótavant og við ákváðum að setja nefnd á laggirnar til að endurskoða hana. Birgir var einn þeirra sem skip- aðir voru í nefndina en hann hefur hafnað því að taka þátt í störfum hennar. Reglugerðin mun hins vegar verða endurskoðuð og gefin út.“ Birgir segir að kornið sem fyllt hafi mælinn hjá sér hafi verið dómar fjög- urra íþróttamanna fyrir skömmu. Þar voru tveir körfuknattleiksmenn dæmdir í eins mánaðar keppnisbann sem þeir tóku út utan keppnistíma- bils, körfuknattleikskona var sýknuð og máli íshokkíleikmanns var vísað frá. Vilt þú eitthvað tjá þig um þessa dóma? „Dómur er dómur og hvort ég er sáttur við niðurstöðu hans skiptir ekki máli heldur hitt að það er starfað eftir leikreglum. Dómurinn kemst að efnislegri niðurstöðu og við hann verðum við að una. Framkvæmda- stjórn ÍSÍ getur ekki farið að breyta dómum ef henni líkar ekki niðurstað- an. Körfuknattleikskonunni varð það á að segja ekki frá því að hún tæki asmalyf. Hún lagði síðan fram lækn- isvottorð um það að hún tæki inn önd- unarlyf vegna veikinda. Undir venju- legum kringumstæðum hefði heilbrigðisráðið gefið undanþágu vegna þess að þetta er sjúkdómur. En vegna þess að ekki stendur í reglu- gerðinni hvort leggja þurfi fram vott- orð fyrir fram eða eftir á kemst dóm- urinn að þeirri niðurstöðu að hún skuli sýknuð. Körfuboltamennirnir tveir voru sekir um að hafa neytt efi- dríns í formi fæðurbótarefnis. Í reglu- gerðinni segir að hámarksrefsing fyr- ir fyrsta brot skuli vera þrír mánuðir og vægasta brot geti verið áminning. Eftir því sem ég best veit fór Birgir fram á vægari refsingu heldur en þrjá mánuði þannig að dómurinn hefur orðið við því.“ Kannast ekki við ágreining Birgir talar um ágreining á milli ykkar tveggja. Kannast þú við þann ágreining? „Ég bara kannast ekki við þetta og þessi orð hans eru tilhæfulaus. Ég hef aldrei haft afskipti af því hverjir fara í lyfjapróf og ég veit ekki einu sinni hverjir það eru. Ég hef ávallt farið eftir tillögum heilbrigðisnefndarinn- ar. Það eina sem mér dettur í hug varðandi ummæli hans er atvik sem átti sér stað fyrir um tveimur árum. Þá fór fram á Laugardalsvelli lands- leikur í knattspyrnu. Strax eftir leik- inn voru íslensku strákarnir kallaðir í lyfjapróf og í kjölfarið bar KSÍ fram hörð mótmæli á þeim forsendum að þetta væri leikur á vegum UEFA og það heyrði undir lögsögu þess að framkvæma lyfjapróf á svona leikjum og þá ættu bæði lið að vera tekin í próf. Út af þessu varð fjaðrafok sem endaði með því að ég kallaði til fundar til að jafna þennan ágreining. Ef Birgir á við að ég hafi verið að amast við þeirri ákvörðun heilbrigðisráðsins að áfrýja dómunum fyrir skömmu þá voru mínar athugasemdir fyrst og fremst þær að hann lét mig ekki vita fyrirfram að það stæði til. Það hefði verið eðlilegt, þar sem hann starfar í mínu umboði, að hann gerði mér kunnugt um hvaða málatilbúnað hann hefði uppi.“ Ellert segir að eftirmaður Birgis verði ráðinn á næstu dögum. Reuters Ellert B. Schram, forseti Íþrótta- og ólympíusambandsins Eftirlitið verður aukið ELLERT B. Schram, forseti Íþrótta- og ólympíusambands- ins, segir að sjónarsviptir verði aðBirgi Guðjónssyni úr starfi formanns heilbrigðisráðs ÍSÍ en hann sé ekki ómissandi og stefnan sé að auka lyfjaeftirlit meðal íslenskra íþróttamanna. Guðmundur Hilmarsson skrifar Dæmdur HOLLENSKI knatt- spyrnumaðurinn Edgar Davids er einn af fjöl- mörgum sem hafa fallið á lyfjaprófi fyrir að hafa notað fæðubótarefni. Birgir Guðjónsson segir að það fari sögur af því að íþróttamenn, einkum í boltagreinum, innbyrði fæðubótarefni sem sum hver innihalda ólögleg efni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.