Morgunblaðið - 23.08.2001, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.08.2001, Blaðsíða 1
TBL. 89. ÁRG. FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 23. ÁGÚST 2001 HERMENN Atlantshafsbandalags- ins (NATO) hafa nú 30 daga til að safna saman vopnum albanskra skæruliða í Makedóníu, en Norður- Atlantshafsráðið samþykkti í gær að senda herlið á vegum bandalagsins til landsins. Franskir og tékkneskir hermenn komu til Makedóníu nokkr- um klukkustundum síðar, en nokkur hundruð breskra og bandarískra hermanna eru þar fyrir. Samtals verða 3.500 NATO-hermenn sendir til landsins til að framkvæma að- gerðina. Hlutverk þeirra er, eins og áður segir, að safna saman vopnum skæruliða, en óljóst er um hve mik- inn fjölda er að ræða. NATO hefur sett hermönnunum það markmið að einn þriðji vopnabirgða skærulið- anna skuli kominn í geymslur NATO fyrir mánaðamót. Talsmaður makedónska varnar- málaráðuneytisins fagnaði komu hermannanna og lofaði því að make- dónskir her- og lögreglumenn myndu veita þeim þá aðstoð sem þeir þyrftu. Hann þvertók þó fyrir það að valdsvið hinna erlendu hersveita yrði víkkað og sagði þær ekki eiga að gegna hlutverki „púða“ milli stjórn- arhersins og skæruliða. Það hvort aðgerðin heppnast eða ekki veltur á því hvort deiluaðilar virði vopnahléð sem í gildi er, en stjórnarliðar sökuðu skæruliðana á þriðjudag um alvarleg vopnahlés- brot. Rólegt var í landinu aðfaranótt miðvikudags og eru menn því sæmi- lega vongóðir um fram- haldið. Efasemdir Rússa Friðarsamningarnir sem undirritaðir voru 13. þessa mánaðar fela í sér töluverðar breytingar á stjórnarskrá landsins sem færa munu albanska minnihlutanum aukin réttindi auk þess sem vegur albanskrar tungu verður gerður meiri. Flestum skæruliðum verða gefnar upp sakir, en þeir sem gerst hafa brotlegir við alþjóðalög geta þó verið ákærðir af stríðsglæpadómstólnum í Haag. Rússar lýstu yfir efasemdum með aðgerðir NATO og sögðu hættu á því að þær gæfu öfgamönnum innan raða skæruliða byr undir báða vængi. Sögðu þeir að friður og stöð- ugleiki næðust aðeins með því að „styrkja fjölþjóðlegt lýðræðisþjóð- félag í landinu“. Vopnasöfnun NATO hafin í Makedóníu AP Tékkneskir fallhlífarhermenn sem taka þátt í aðgerð NATO í Makedóníu. Skopje, Moskvu. AP, AFP. SÁ FÁHEYRÐI atburður átti sér stað í Bandaríkjunum í gær að skallaörn steypti sér niður og læsti klónum í lítið barn sem lék sér á strönd í New Hampshire-ríki. Hin þriggja ára gamla Kayla Finn varð skiljanlega mjög skelkuð, örninn náði að klóra bak hennar áður en faðir hennar kom aðvífandi og hrakti fuglinn á brott.Litla stúlkan þurfti ekki á læknisaðstoð að halda. Skallaörninn sem um ræðir hef- ur verið til vandræða á ströndinni undanfarna viku, en hann hefur stolið boltum og öðru lauslegu af gestum strandarinnar og hefur ekki tekist að ná honum. Örn ræðst á litla stúlku AP SJÖ Palestínumenn féllu í bardögum í Ísrael í gær þrátt fyrir tilraunir erlendra ráðamanna til að hleypa nýju lífi í friðarviðræður Ísraelsstjórnar og Palestínumanna. Fimm Palestínumenn voru skotnir til bana af ísraelskum hermönnum á Vesturbakkanum snemma í gærmorgun og segja talsmenn hersins að þeir hafi verið að koma fyrir sprengju þegar her- mennirnir komu að þeim. Palestínumenn segja að- eins einn fimmmenninganna hafa verið vopnaðan og ríkti mikil reiði þeirra á meðal þegar lík mann- anna voru borin um stræti Nablus. Þúsundir manna voru á götum borgarinnar og hrópuðu þeir slagorð gegn Ísraelsmönnum og hleyptu nokkrir af rifflum sínum upp í loftið. Einn maður slasaðist alvarlega þegar ein slík byssukúla hæfði hann á leiðinni aftur til jarðar. Þá lést einn Palestínumaður þegar eldflaugar Ísraelshers hæfðu bíl sem hann sat í á Gaza-svæð- inu í gær. Faðir mannsins, Adnan al-Ghoul, er hátt- settur maður í Hamas-samtökunum og var hann skotmark árásarinnar, en slapp ómeiddur. Tals- menn hersins segja al-Ghoul og annan mann sem ferðaðist með þeim feðgum, Mohammed Deif, vera stórvirka sprengjusmiði og þess vegna hafi verið reynt að ráða þá af dögum. Talsmaður Hamas sagði þetta enn eitt dæmið um þá stefnu Ísraelsstjórnar að ráða háttsetta Palestínumenn af dögum. Palestínskur lögreglumaður var skotinn til bana á Gaza-svæðinu seint í gær, en ekki er ljóst hvernig það bar að. Talsmaður Ísraelshers segir hann hafa nálgast hermenn á grunsamlegan hátt og því hafi þeir skotið á hann. Yfirmaður palestínsku lögregl- unnar á svæðinu segir manninn hins vegar hafa ver- ið að rannsaka hús sem Ísraelsher hafi yfirgefið og að hann hafi fundið þar sprengju sem herinn hafi skilið eftir. Hann hafi verið að skoða sprengjuna þegar hermennirnir skutu hann. Utanríkisráðherra Þýskalands, Joschka Fischer, hefur gert hvað hann getur til að miðla málum og hafa Yasser Arafat, forseti palestínsku heima- stjórnarinnar, og Shimon Peres, utanríkisráðherra Ísraels, ákveðið að funda í Þýskalandi. Á fundi arabaríkja í Kaíró í Egyptalandi sögðu talsmenn Palestínumanna að þeir þyrftu frekari að- stoð trúbræðra sinna. Forseti Arababandalagsins, Katarbúinn Sjeik Hamad bin Jassim bin Jabor Al Thani, sagði Palestínumenn ekki bera að baki og að bræður þeirra í öðrum arabaríkjum styddu þá með pólitískum, siðferðilegum og fjárhagslegum hætti. Sjö falla í átökum í Ísrael Jerúsalem, Nablus, Gaza. AP, AFP. Einn maður fellur í misheppn- uðu tilræði Ísraelshers í Gaza VERÐANDI krónprinsessa Norðmanna, Mette-Marit Tjess- em Højby, klökknaði á blaða- mannafundi í gær þegar hún sagði fréttamönnum frá storma- samri fortíð sinni, sem mjög hef- ur verið til umræðu síðustu mán- uðina. Tjessem Højby gengur á laugardag að eiga Hákon ríkisarfa. Áður en fréttamenn fengu að bera upp spurning- ar á fundinum sagðist Mette- Marit vilja ræða fortíð sína, sem fjöl- miðlar hafa sýnt mikinn áhuga. Sagði hún að æskuuppreisn sín hefði brotist út á harkalegri hátt en hjá flestum og að um tíma hefði hún lifað lífi sínu sem mest í andstöðu við það sem almennt er viðurkennt. „Ég var í umhverfi þar sem reyndi á [uppreisn mína] og við gengum út í öfgar.“ Að sögn Aftenposten notaði drottn- ingin verðandi orðið „utsvev- ende“, sem að sögn blaðsins merkir „villt“ og ekki síst í kyn- ferðislegum efnum. Mette-Marit á fjögurra ára son, sem hún eign- aðist með manni, sem hlotið hefur dóm vegna fíkniefna. Sagðist hún harma fortíð sína og þau vand- ræði sem hún hefði bakað öðrum. Fullkomin tímasetning Eftir yfirlýsinguna var slegið á léttari strengi. „Ég hlakka til að giftast Hákoni,“ sagði Mette-- Marit, „og ég vil helst eignast mörg börn.“ Aðspurð sagðist hún helst mundu sakna þess að geta kosið. Í viðtali við norska blaðið Verd- ens Gang segir fjölmiðlafræðing- urinn Terje Svabø tímasetn- inguna á yfirlýsingu hinnar verðandi krónprinsessu hafa ver- ið „fullkomna“. Hann telur að hjónaband þeirra Hákons hafi bjargað framtíð konungdæmisins og að það muni lifa í að minnsta kosti eina kynslóð í viðbót. Verðandi prinsessa harmar fortíð sína Mette-Marit Tjessem Højby HIÐ virta vísindatímarit Nature hefur ákveðið að allir þeir vís- indamenn sem skrifa greinar í blaðið skuli greina frá hugsan- legum fjárhagslegum hags- munatengslum sínum við við- fangsefni rannsókna. Verða þessar upplýsingar birtar ásamt greinum vísindamannanna og neiti vísindamennirnir að gefa slíkar upplýsingar upp verður neitunin birt í blaðinu. Þetta er gert til að lesendur blaðsins geti séð hvort annarlegar ástæður liggi til grundvallar rannsóknum vísindamannanna. Algengt er að stórfyrirtæki styrki vísinda- menn sem vinna að hinum ýmsu rannsóknum og hafa verið leidd- ar að því líkur að slíkir styrkir hafi áhrif á rannsóknirnar, jafn- vel á niðurstöðurnar sjálfar. Tímaritið Nature Skýri frá hagsmuna- tengslum New York. AP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.