Morgunblaðið - 18.09.2001, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2001 39
Göngum við í kringum einiberjarunn,
einiberjarunn, einiberjarunn …
Þetta sungum við í gamla daga
þegar við gengum í kringum jóla-
tréð og enn syngja börnin á leik-
skólunum það vikurnar fyrir jól.
Þótt ég byrji greinina á göml-
um jólasöng verður ekki fjallað
um jólaundirbúning núna, heldur
einiberjarunnann. Þó vil ég enn
halda mig við vís-
una. Hún er innflutt
eins og svo margt
annað og ævagömul
á Norðurlöndum.
Norðmenn telja
hana tengjast gam-
alli frjósemidýrkun
og telja hana hafa
verið giftingarleik.
Einiberjarunninn
eða einirinn er eina
barrtréð sem hefur
vaxið villt á Íslandi
frá ómunatíð og
sumar garðyrkju-
bækur telja að eng-
in trjátegund hafi
jafnmikla útbreiðslu
og einirinn, sem vex
um allt norðurhvel jarðar, alveg
frá heimskautasvæðunum til há-
fjalla í hitabeltinu. Af eininum
eru til a.m.k. 60 tegundir og ís-
lenski einirinn ber latneska heit-
ið Juniperus communis, sem
mætti útleggjast sem hinn venju-
legi einir. Eins og gefur að skilja
ríkir mikill fjölbreytileiki í röðum
einisins og bæði eru til há tré og
jarðlægir runnar innan hópsins.
Íslenski einirinn er í hópi hinna
síðarnefndu, enda ber hann auð-
kennisheitið nana, sem táknar
lítill. Þó finnst uppréttur íslensk-
ur einir á stöku stað, svo sem við
Sandvatn í S-Þingeyjarsýslu.
Það er ekki aðeins hæðin á
hinum ýmsu einitegundum, sem
er mismunandi, heldur eru nál-
arnar breytilegar og sumar eini-
tegundir hafa tvenns konar nál-
ar, annars vegar hreisturlíkar,
stuttar og aðfelldar og hins veg-
ar kransstæðar, hvassar og allt
að 1 sm á lengd. Íslenski einirinn
er eingöngu með hvassar nálar,
svo hvassar að erfitt er að nota
hann í kransa. Þeir sem freistast
til að gera það fyrir jólin reyna
sjálfsagt aðeins einu sinni að
hnýta einikrans. Hins vegar er
gaman að hafa hann með í
skreytingum eða setja greinar í
vasa og mörgum finnst ilmur af
brenndum eini ómissandi á jól-
um.
Það er eðlilegt að planta, sem
er jafnalgeng og einirinn, hafi átt
sinn sérstaka sess bæði í þjóðtrú
og í grasalækningum. Á Norð-
urlöndum var einirinn talinn
vörn gegn göldrum. Björn í
Sauðlauksdal, sem ritaði árið
1781 bókina Grasnytjar, um gagn
það sem hver búandi maður geti
haft af þeim ósánum villijurtum,
sem vaxa í landareign hans,
nefndi marga góða eiginleika ein-
is. Hann vildi láta gera seyði af
nýjum einisprotum. Þetta seyði,
drukkið sem te, hefur fjölmarga
eiginleika. Það gjörir hæga opn-
un eða laust líf (örvandi fyrir
hægðirnar), hreinsar brjóstið,
bætir hósta, styrkir magann og
brýtur stein. Enn betri voru ber-
in tilbúin og drukkin sem kaffi,
þau örvuðu svita, leystu staðið
blóð kvenna og vatnssýkislopa.
Reykur af einiberjum eða grein-
um var góður við höfuð-
þyngslum, en best var þó að eini-
berin þynntu blóðið, læknuðu
gulusótt og önnur
þau sjúkleikakyn,
sem blóðið hefur
skuld í. Brennivín
sett á einiber varð
að hollum brjóst-
dropum eftir svo
sem misserisstöðu
eða lengur og enn
betra varð brenni-
vín, brennt af þess-
um berjum.
Það er því ekki að
sökum að spyrja,
þeir hljóta að hafa
rétt fyrir sér, sem
halda því fram að
séniver og gin séu
meinhollir drykkir!
Einkum og sér í lagi
gin, blandað með tónik, sem inni-
haldi malaríulyf, menn verði nán-
ast eilífir við þannig drykkju!
Erfitt er að taka villtar
einiplöntur og flytja í garða, þar
sem ræturnar eru mjög langar
og dreifðar, en íslenskur einir
fæst í langflestum gróðrarstöðv-
um. Mér finnst þó galli, að ekki
er tekið fram hvort um kven-
plöntur eða karlplöntur er að
ræða. Einirinn er nefnilega sér-
býlisplanta og til að fá berin þarf
maður að eiga kvenplöntu, þótt
karlarnir séu vissulega nauðsyn-
legir svona í nágrenninu. Ís-
lenskur einir er nægjusamur og
harðgerður, þó getur hann sviðn-
að illilega síðveturs, ef lengi eru
þurrafrost.
Ýmsar tegundir einis hafa ver-
ið ræktaðar hérlendis, svo sem
skriðeinir, klettaeinir, virg-
iníueinir og kínaeinir, en hafa
ekki náð verulegri útbreiðslu.
Hins vegar hefur himalajaeinir,
Juniperus squamata, hlotið mikl-
ar vinsældir, enda til af honum
fjöldi kvæma. Afbrigðið „Mey-
eri“ stendur sig best allra. Það er
áberandi stálblátt á litinn,
skemmtilega óreglulegt í vextin-
um með þónokkuð uppréttar
greinar og virðist kala lítið sem
ekkert. Af himalajaeini eru líka
til flatvaxin kvæmi svo sem
„Blue Star“ og „Blue Carpet“,
svo nokkur séu nefnd.
Vinsældir einis hafa aukist
mjög að undanförnu, algengt er
að láta hann vaxa upp að grjóti í
forgörðum, sem gefur líf og lit
jafnt sumar sem vetur. Í garði
einum á Akureyri er einir not-
aður sem jarðvegsþekja. Milli
húss og gangstéttar skuggameg-
in var „vandræðasvæði“. Þar
hafði verið gróðursett stakstætt
lauftré en jarðveginn þakti gul-
grænn íslenskur einir, blágrænn
himalajaeinir og dökkgrænn
skriðmispill. Stórsnjallt.
S.Hj.
Tvær tegundir einis: Aftari er Junperus squamata „meyeri“, sú
fremri Junip sabina.
EINIR
VIKUNNAR
BLÓM
Um s j ó n S i g r í ð u r
H j a r t a r
462. þáttur
Sundlaug Kópavogs sími 570 0470 og Su›urbæjarlaug Hafnarfir›i sími 565 3080
Faglær›ir kennarar lei›beina
hverjum einstaklingi um fljálfun í
n‡justu og fullkomnustu Nautilus
tækjunum.
Frír a›gangur a› sundlaug flar sem
kort er keypt.
Komdu í alvöru
líkamsrækt
Athugi› tilbo›i› stendur til og
me› 7. október.
Ljósabekkir á bá›um stö›um.
Nautilus á Íslandi
nau0
1
1
0
6
3
Bankastræti 3,
sími 551 3635
Póstkröfusendum
Lífrænar jurtasnyrtivörur
Hálskremið — hálskremið
BIODROGA