Vísir - 10.12.1979, Blaðsíða 4

Vísir - 10.12.1979, Blaðsíða 4
4 vtsm Mánudagur 10. desember 1979 ísiensk tæknlhjálp í Kenya gefst vel Á undanförnum árum hafa Is- lendingar lagt fram nokkurn skerf til tæknihjálpar viö þróun- arlönd heims, enhafa lítíö kom- iö fram á sjónarsviBiö I sam- bandi viö bein afskipti af fram- lagi sínu, þar sem framlag Is- lendinga hefur gengið inn f sam- eiginlegan sjóö Tækniaðstoöar Dana við þróunarlöndin, DANIDA. — Þaö er ekki fyrr en ámiöju ári 1978, sem íslending- ar ráöast i aö framkvæma sina fyrstu beinu tækniaöstoö, er var veitt rikisstjórn Kenya á sviöi fiskveiöa. íslenskur skipstjóri þjálfar Kenyamenn A fyrri hluta ársins 1978 buðu Islendingar Kenyamönnum tækniaöstoö á sviði fiskveiöa, sem var i þvi fólgin aö senda fs- lenskan skipstjóra til aö annast þjálfun hjá Kenyabúum i notkun togveiöarfæra. Var þannig um samiö miili rikisstjórna tslands og Kenya, aö Islenska rikis- stjórnin greiddi veiðarfæri, veiöarfærakostnaö ásamt laun- um skipstjóra, en rikisstjórn Kenya greiddi allan útgeröar- kostnaö og laun áhafnar. Nefnd sú. er sér um fram- kvæmd tækniaðstoöar Islands viö þróunarlöndin, réö Baldvin Gislason skipstjóra til starfsins i Kenya og kom Baldvin hingað siðari hluta júlimánaðar 1978 á- samt fjölskyldu sinni. Baldvin hafði nýlokiö starfi á sviði fisk- veiöa hjá rikisstjórn Yemen þegar hann kom til Mombasa I Kenya. Kom brátti ljós.aö ekk- ert sjófært togskip var við hönd- ina. Reyndar var 122 tonna tog- bátur að nafni „SHAKWEE” (hákarlinn) I eigu rikisstjórnar Kenya fyrir hendi I Mombasa, sem var byggöur hjá African Marine I Mombasa á árinu 1969. Bátur þessihaföi veriö búinn aö liggja i 3-4 ár aögeröarlaus og I algjörri niöurniðslu og og þar af leiöandi haföi mörgum nauö- synlegum hlutum og tækjum veriö stolið úr bátnum. Rfkis- stjórn Kenya haföi nokkru áöur boöið FAO bát þennan til afnota en eftir álitsgerð FAO á bátn- um, þá reyndist kostnaðaráætl- un þeirra á viðgerö bátsins það há, að rikisstjórn Kenya taldi sér ekki fært aö framkvæma hana, þannig aö „SHAKWEE” var beinlinis dæmdur óhæf- ur til sjósóknar. Þessi bátur reyndist vera farkosturinn sem Baldvin var fenginn til umráöa, þegar hann kom til Kenya til aö framkvæma tækniaöstoö þá er Islandi haföi veitt Kenyamönn- um. Hampiðjutrollið reyndist vel Fyrsta starf Baldvins var aö stefna aö því aö koma bátnum i svokallaö „keyrsluform”. Þetta tók mun meiri tima en áætlað haföi verið I fyrstu vegna skorts á nauösynlegum varahlutum fyrir ljósavél bátsins, sem út- vega varö frá Englandi. Á meö- an beðiö var eftir varahlutum, þá notaöi Baldvin timann til námskeiöahalds fyrir áhöfnina I vélaviögeröum og netaviðgerð- um. Þegar Bandvin innti eftir á- stæöunni fyrir þvi aö „SHAKEWEE” haföi ekki veriö notaöur öll þessi ár, þá skildist honum, aöekki heföi tekist aö fá menn til starfa með nauösyn- legum skipstjórnarréttindum, en reglugerö um þessi atriöi eru sögð vera ströng i Kenya. Eftir aö „SHAKEWEE” komst loksins á flot mjög van- búinn öllum nútima tækjum i brúnni, hefur árangur af starfi Baldvins fariö aö koma I ljós. Þegar Baldvin var inntur eftir hverju hann þakkaöi góöan ár- angur sem náöst heföi i veiði- feröum bátsins, svaraöi hann þvi til, aö persónulega heföi hann aldrei ætlast til aö gera nein kraftaverk i sambandi viö fiskveiöar i' Kenya, heldur að veiðarfærin og meðferö þeirra gerðu kraftaverkin. Baldvin þakkar trollinu frá Hampiöj- unni hf. i Reykjavik þann ár- angur sem náöst hefur. Hampiöjutrolliö hefur einnig Ingi Þorsteinsson viðskiptaf ræðingur, sem starfað hefur í mörg ár í Afríku- löndum, skrifar hér um tækniaðstoð íslendinga við Kenyamenn. vakið eftirtekt hjá öðrum tog- skipum, sem gera út frá Mom- basa og má ætla, aö framtiöar- sölumöguleikar á veiöarfærum frá Hampiðjunni hf. hafi opnast hér vegna góörar útkomu, sem fengist hefur i veiðiferðum hjá „SHAKWEE” meöan stærri og nýtiskulegri togskip hér á slóð- um hafa fengið litinn eöa engan afla. Vonandi framlengir rfkis- stjórn Islands þessa tækniaö- stoö við Kenya og meö hliðsjón af þeim góöa árangri, sem þessi tæknihjálp hefur gefið, þá ber að velja framtiöarverkefni fyrir tæknihjálp tslands við þróunar- löndin þar sem Island er eitt aö verki. Stærö verkefna er ekki alltaf mælikvaröi fyrir vel- gengni og getum við sniðiö okkur stakk eftirvexti i þessum efnum. Aðstoð fylgja viðskipti Þá væri ekki úr vegi að næsta rikisstjórn Islands ihugaöi aö bjóða rikisstjórn Kenya lán til kaupa á 2-3 togbátum, er smiö- aðir yrðu á tslandi, ásamt tækniaðstoö i formi veiöarfæra og skipstjóra. 1 kjölfar veittrar tækniaöstoöar og lána til þróun- arlanda á ýmsum sérsviöum þá er jafnframt oft stofnaö sam- timis til Utflutningsviöskipta, ef rétt er á málunum haldiö. Sem eitt dæmi af fjölmörgum um þetta atriöi má nefna, aö rikis- stjórn Tanzanfu ákvaö áriö 1974 aðengar bifreiöarskyldu fluttar inn til Tanzaniu nema Volvo og Scania Vabis vegna margvis- legra lána og tækniaöstoöar er Sviar hafa veitt Tanzani'ubúum á undanförnum árum. Þegar útgeröin haföi ekki efni á aö taka SHAKWE upp i slipp, leysti Baldvin skipstjóri vandann meö þvi aö renna bátnum upp í fjöru. Hér sést Baldvin viö bátinn I fjörunni. I STJÖRNUSKÓBÚÐIN Laugavegi 96 — Við hliðina á Stjörnubíói — Sími 23795 — Póstsendum Litur: grábrúnt rúskinn, hæll 10 sm. Teg: 972, stæröir: 36 - 40 1/2 Verö: 24.130.- Litur: sinnepsbrúnt, rúskinn, hæll 9 sm. Teg: 7542, stæröir: 36 1/2 - 40 Verö: 31.180.- Litur: svart rúskinn, Teg: 8135, stæröir: 36 1/2 & 38 1/2 Verö: 28.210.- Litur: grábrúnt, rúskinn, hæll 10 sm. Teg: 878, stæröir: 36 - 40 1/2 Verö: 24.130.- Litir: brúnt & dökkbrúnt leöur Teg: 4553, stæröir: 41 - 44 1/2 Verö 16.740,- Litir: svart & brúnt ieöur m/leöursóla Teg: 836, stæröir: 41 - 45 Verö: 19.850.- Litur: ryörautt & dökkbrúnt leöur Hæll 9 sm, Teg: 7610 Stæröir: 36 1/2 - 40 1/2 Verö: 22.260.- Litur: vínrautt & brúnt Teg: 655, stæröir: 36 - 40 Verö: 21.680.- Nýkomið - Nýkomið - Nýkomið

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.