Vísir - 10.01.1980, Blaðsíða 24

Vísir - 10.01.1980, Blaðsíða 24
síminn er86611 ’ Hl! Spásvæöi Veöurstofu lslands eru þessi: 1. Faxaflói, 2. Breiöafjörö- ur, 3. Vestfiröir, 4. Noröur- land, 5. Norðausturland, 6. Austfirðir, 7. Suðausturland, 8. Suðvesturland. Veðurspá dagsins Klukkan sex var 978 mb. læeð vestan til á Grænlandshafi á hægri hreyfingu NA. Veður fer að kólna, fyrst vestanlands. Suövesturland til Breiöafjarö- ar: Gengur i SV 3-4, en 5-6með éljum. Vestfiröir:S 4-6 og rigning, en gengur fljótlega i SV 4-6 með éljum. Norðurland: SA 4-6 og rigning fram á daginn, en gengur þá i SV 4-6 meö éljum. Viðast ilr- komulaust austan til. Noröausturland: S 4-6 Og þykknar upp. Sums staðar rigning undir hádegi, en siðar SV 3-5 og léttir til. Austfiröir: Gengur i S 5-7 með rigningu i fyrstu, SV 4-6 og léttir til I kvöld. Suöausturiand:SA 4-6 og rign- ing i fyrstu, en SV 4-6 og slydduél upp úr hádegi. veðrið hér og par Klukkan sex i morgun: Akureyri léttskýjaö 4, Hel- sinki þokumóða -rll, Kaup- mannahöfn -5-1, Osló snjó- koma -=-7, Reykjavík léttskýj- að 3, Stokkhtílmur þokumóða 4-2. Klukkan átján I gær: Aþena skýjaö 9, BerBn korn- snjór 4-5, Feneyjar þokumóöa 0, Frankfurt mistur 1, Nuuk snjókoma 4-7, London mistur 4, Luxemburg heiðskirt 4-2, Las Palmas skýjað 20, Mall- orca léttskýjaö 9, Montreal léttskýjað 4-8, New York al- skýjaö 4-1, Parfs þokumóöa 1, Rtímskýjaðl2, Malagaskýjað 14, Vínþokumtíöa 4-2, Winni- peg skýjað 4 28. Loki segir Sagt er aö islenska landsliöiö i handknattleik stefni nú mark- visst að þvi að slá knatt- spyrnumönnum okkar viö, en sem kunnugt er af fréttum hefur landsliöið I knattspyrnu náö þeim árangri aö vera skráö lélegasta landsliö i Evrópu. ERFITT Afi FÁ AF- URBALÁN ÚTBORGUfi Nýtt viðmiðunarverð loks sent tii banka á mánudaginn var Nokkur vandræöi hafa skapast aö undanförnu hjá fyrirtækjum i sjávarútvegi vegna þess, aö erfiölega hefur gengiö aö fá útborguö afuröalán i bönkunum. Bankarnir hafa boriö þvi viö, aö ekki hafi legiðfyrir nýtt viömiöunarverö, eins og venja sé um áramót, og þvi hafi ekki veriö unnt aö ganga frá lánunum. Hjalti Einarsson hjá Söiu- miðstöð hraðfrystihúsanna sagði í samtali við Visi, að þeir hefðu haldið að sér höndum um ákvörðun viðmiðunarverðs, meðal annars vegna þess aö ekki lægi fyrir ákvörðun um nýtt fiskverð hjá Verðlagsráði. ,,Við gáfum hins vegar út nýtt verð á föstudag i siðustu viku og sendum til bankanna nú á mánudag. Það tekur bankana einhvern tima að koma þessu verði inn i tölvuna hjá sér, en samkvæmt siðustu fréttum, sem ég hef af þessu, á þetta að vera komið. Að minum dómi hafa bank- arnir verið nokkuð stirðir i þessu máli. Þeir hefðu að minnsta kosti getað lánað út á það verð sem gilti fyrir áramót, þvi að ekki kemur það til með að lækka”, sagði Hjalti. —P.M. Þrátt fyrir kuldann að undanförnu hafa ýmsir borgarbúar veriö óragir viö aö baöa sig I heita læknum i Nauthtílsvíkinni. Visismynd: JA Sandgerðísmálið: Ungur mað- ur í haldi Ungur maöur sem býr á efri hæö pósthússins f Sandgerði hefur veriö handtekinn og Rannsóknar- lögregla rikisins krafist aö hann veröi úrskuröaöur I gæsluvarö- hald til næstu mánaöamóta. Maðurinn var handtekinn fljótt eftir að póstránið var framið þann 2. janúar en honum var sið- an sleppt eftir yfirheyrslur. Hann liggur nú undir ákveðnum grun og þykir Rannsóknarlögreglunni nauðsynlegt að hafa hann i haldi meðan rannsókn heldur áfram. Krafa Rannsóknarlögreglunn- ar verður tekin fyrir við sakadóm Gullbringusýslu i dag. — SG Frlhafnar- mðiið ekki komlð lll saksókn- arans ,,Ég er ekki búinn að fá nein skjöl i hendurnar varðandi ,,Fri- hafnarmálið” svokallaða", sagði Þórður Björnsson, rlkissak- sóknari, i samtali við Visi i morgun. ,,Ég sá það hins vegar i blöðum nýlega, að rannsókn væri lokið og að það ætti að fara að senda mál- skjöl til rikissaksóknara, en ég hef sem sagt enn ekkert séð af þeim”. —ATA Bátar soffamasar 12 bátar lá að nefja hörnu- disksvelðar á Rreiðanrði: fengu ekki ,,Það hafa tólf bátar fengið leyfi til aö hefja veiðarnar, en endanleg vörðun um aflamagn og skiptingu aflans milli vinnslustööva veröur íin i lok vikunnar eöa byrjun þeirrar næstu”, sagöi Þóröur Asgeirs- n. skrifstofustióri I siávarútvegsráöuneytinu, I samtali viö VIsi. Hörpudiskveiðar hófust á Breiðafirði i fyrradag og þeir bátar sem fengiö hafa leyfi til að hefja veiðarnar, leggja allir upp i þeim tveimur stöðvum á Stykkis- hólmisem vinnsluleyfi hafa, 9 hjá Sigurði Agústssyni hf. og 3 hjá Rækjunesi hf. Eins og marga eflaust rekur minni til, spruttu miklar deilur af þvi á siðustu vertið, að bátar, sem hugðust leggja upp sinn afla hjá Fiskverkun Soffaniasar Cecils- sonar á Grundarfirði, fengu ekki tilskilin leyfi frá sjávarútvegs- ráðuneytinu á þeim forsendum að Soffanias hefði ekki vinnsluleyfi fyrir skelfisk. „Bátarnir minir tveir sóttu um leyfi til hörpudiskveiða frá og með þriðja janúar”, sagði Soffanias Cecilsson i samtali við VIsi. „Annan janúar fengu skip- stjórarnir skeyti frá sjávarút- vegsráðuneytinu, þar sem þeir voru spurðir um hvar þeir hygð- leyfi ust leggja upp, ef þeir fengju veiðileyfin. Þeir svöruðu því aftur i skeyti að þeir myndu leggja upp hjá mér, og siðan hefur ekkert heyrst frá ráðuneytinu. Við verðum að sjá hvað setur, en ef þeir ekki senda mér leyfin geri ég alvarlega sprengingu aftur”, sagði Soffanias. Umsóknir um veiðileyfi hafa ekki borist frá öðrum byggðar- lögum en Stykkishólmi og Grundarfirði. — p.M.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.