Vísir - 16.01.1980, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 16. janúar 1980, 13. tbl. 70. árg.
Lítil starfsemi i Bændaskólanum á Hólum:
ELLEFU STARFSMENN
EN ENGINN NEMANDII
,,Það er alvegrétt að engir nemendur hafa ver-
ið i Hólaskóla i vetur, þrátt fyrir fullt kennaralið,
en kennurum er ekki hægt að segja upp i hvelli”,
sagði Bragi Sigurjónsson landbúnaðarráðherra i
samtali við Visi.
Bragi sagði að þegar skólinn
hófst i byrjun október hefðu að-
eins 6-7 nemendur verið búnir
að skrá sig. Taldi skólanefndin
ekki fært að hefja- skólahald
með svo fáum nemendum enda
óvist að allir kæmu til leiks. Þvi
hefði kennsla fallið niður fram
að jólum. Af þessum sökum
hefði verið ákveðið að auglýsa
námskeiðahald eftir jólin og
þegar upplýsingar um þátttöku
á þvi lægju fyrir, yrði væntan-
lega tekin afstaða til þess hvort
segja ætti upp skólastjóra og
kennurum.
Bragi sagði að þessi upp-
stokkun starfsliðs miðaðist við
það að hægt yrði að breyta
kennslunni næsta vetur og taka
þá m.a. upp nýjar búgreinar,
t.d. laxeldi, loðdýrarækt og
jafnvel ferðamannaþjónustu.
Yrðu kennarar og aðrir starfs-
menn þá endurráðnir i sam-
ræmi við breytta kennsluhætti,
en væntanlega yrðu einnig sum-
ir gömlu kennaranna við Hóla-
skóla endurráönir.
Loks sagði Bragi að auk
skólastjóra heföu fjórir kennar-
ar verið ráðnir við skólann i vet-
ur. Þá hefur Visir aflað sér
þeirra upplýsinga að annað
starfslið við búrekstur sé sex
starfsmenn.
—HR
Ríkissaksóknari í málflutningi í Guðmundarmáiinu:
Skipverjar á Júpiter sjást hér gera við nótina eftir veiheppnaða veiðiferð, en þeir komu meö 700 tonn af loðnu til hafnar. Visismynd: BG.
Gelrfinnsmállð:
Vitnl aftur-
kallar
framburð
. Vitni i Geirfinnsmálinu hefur
dregið fyrri framburð sinn til
baka og gefið skriflega yfirlýs-
ingu um að fyrri framburður hafi
verið rangur. Þetta vitni mun
hafa borið um feröir Kristjáns
Viðars kvöldið sem ferðin til
Keflavikur á að hafa veriö farin.
Þá hafa verjendur tveggja sak-
borninga.Tryggva Rúnars Leifs-
sonar og Sævars Cisielski, óskað
eftir þvi að saksóknari leggi fram
álitsgerð um áhrif eiturlyfja og
þá einkum LSD á skapgerð og
skaphöfn manna og raunveru-
leikaskyn meö tilliti til fram-
burðar.
Saksóknari hafði samband við
dr. Þorkel Jóhannesson prófessor
og mun hann skila álitsgerð. er
lögð verður fram i Hæstarétti.
—SG
Eria Bolladóttir:
„Ákvðrðun
að eigln
irumkvæði”
Vitni hótað ef bað
breytti ekki framburði
Vitni i Guðmundarmálinu hefur borið fyrir rétti að það hafi orðið fyr-
ir hótunum frá mönnum er það var statt I Veitingahúsinu Kiúbbnum.
Hefðu þeir sagt að barn þess væri i hættu og spurðu hvort það byggi
ekki i timburhúsi.
Þessar upplýsingar komu fram
i ræðu Þórðar Björnssonar rikis-
saksóknara i Hæstarétti i gærdag.
Hann sagði, aö stúlka sem vann á
Kópavogshæli áriö 1974, er Guð-
mundur Einarsson hvarf, hafi
komið fyrir dóm á föstudaginn i
siðustu viku. Sævar var hjá þess-
ari stúlku um kvöldiö áður en
hann fór að Hamarsbraut 11 aö-
faranótt 27. janúar 1974.
Fyrir dóminum skýrði stúlkan
svo frá að á siðast liðnu hausti
hefði hún fengið bréf frá Sævari
Cisielski austan frá Litla-Hrauni
þar sem hann bað hana um að
koma i heimsókn á Hraunið og
ennfremur að breyta framburði
sinum á þann veg að hann hefði
verið hjá henni alla nóttina 27.
janúar.
Stúlkan sinnti þessu ekki en reif
bréfið. Siðar var hringt til hennar
frá konu sem nokkuö hefur starf-
að fyrir fanga á Litla-Hrauni og
var erindi konunnar að skila til
stúlkunnar frá Sævari að hún ætti
að breyta framburöi sinum. Kon-
an kom fyrir dóm og staðfesti aö
hún hefði komiö þessum skila-
boðum áleiðis.
Vitnið neitaði að breyta fyrri
framburði sinum og sagði frá
þeim hótunum sem það kveðst
hafa oröið fyrir vegna þess.
Málflutningur heldur áfram
fyrir Hæstarétti i dag og þá fjall-
ar saksóknari um Geirfinnsmál-
ið. Lýkur saksóknari ræðu sinni á
morgun og þá taka verjendur
sakborninga við.
—SG
Sama dag og vitni f Guð-
mundarmálinu kom fyrir dóm og
skýrði frá hótunum i sinn garð
dró Erla Bolladóttir fyrri fram-
burð sinn i Geirfinnsmálinu til
baka.
Hún sagöi þá fyrir dómi, að hún
hefði tekið þessa ákvörðun að eig-
in frumkvæði eftir langa Ihugun
vegna breyttra lifsviðhorfa og
kom ekki fram hjá henni. að hún
hafi verið beitt hótunum til að
breyta framburði sinum.
—SG
Sprenglng
Mikil sprenging kvaö við i
Drafnarfelli I Breiöholti um
klukkan 1 i nótt og brotnaöi stór
rúða I verslunarhúsi við Drafnar-
fell.
Er lögreglan kom á staöinn
kom i ljós að þarna hafði heima-
tilbúin sprengja veriö notuð.
—SG
\