Vísir - 30.01.1980, Blaðsíða 1
r TTáTm’áTar á ðÍiérTa "gef uTlt’ régl ug er ð Tdag’"
FERÐAMENH FA AB
FLYTJA INN BJÚR!
Fjármálaráðherra mun i dag gefa út reglugerð þess efnis, að ferðamönn-
um verður heimilt að hafa með sér tólf flöskur af bjór inn i landið, auk einn-
ar flösku af sterku vini.
Mönnum verður sem sagt gefinn kostur á þvi að velja á milli einnar pott-
flösku af léttu vini og tólf flaskna af bjór.
Ekki náðist I Sighvat Björg-
vinsson i morgun til aö spyrja
hann um ástæðurnar fyrir þess-
ari nýju reglugerð, en fullvlst
má telja að blaöaskrif sem hafa
veriö um þetta mál að
undanförnu, hafi valdið hér
nokkru um.
Heimildir, eöa öllu heldur
heimildaleysi ferðamanna til
innflutnings á bjór við komuna
til Islands, komust mjög I
brennidepil fyrir skömmú,
þegar Davlð Scheving Thor-
steinssyni var meinaður inn-
flutningur á tólf flöskum af bjór,
sem hann hafði keypt I frlhöfn-
inni.
,,Til þess var leikurinn gerður
af minni hálfu og ég fagna þessu
ákaflega”, sagði Davíð Schev-
ing Thorsteinsson I samtali viö
Vísi I morgun.
„Mér finnst sá ráðherra sem
þetta geröi eiga heiöur skilinn
fyrir að hafa tekið svona rögg-
samlega og skynsamlega á
þessu máli”, sagöi Davlð.
—P.M.
Höfnin er eins konar hjarta borgarinnar, og þar var „allt á fullu” þegar ljósmyndara bar að garði.
Visismynd: JA
Fellaskóli i Breiöholti.
Sextán rúður
brotnar í
Feltaskóla
Mikiö tjón hefur oröið af völd-
um rilðubrota i Fellaskóla aö
undanförnu. I nótt voru brotnar
sex rúöur 1 skólanum og um slö-
ustu helgi voru brotnar einar 10
rúður, bæði stórar og smáar.
Einnig var talsvert brotið af rúð-
um I ölduselsskóla um helgina.
Lögreglan I Reykjavlk hefur
rættvið skólastjóra þessara skóla
um málið og standa vonir til aö
hægt sé að upplýsa hverjir voru
þarna aö verki. betta eru ekki
einu skiptin sem rúður hafa veriö
brotnar I Fellaskóla I vetur og
einnig hefur verið mikiö um rúðu-
brot í verslunum og stofnunum I
nágrenni skólans.
—SG
Ráölterraefni í
utanhingsstjórn:
Jóhannes,
Gylfi,
Jónas,
Halldór?
Stjórnmálamenn I öllum flokk-
um eru nú mjög uggandi yfir þvi,
aðforsetinn kunni innan skamms
aö fela manni utan flokka stjórn-
armyndun.
Tallö er víst aö Jóhannesi Nor-
dal, seðlabankastjóra, yrði falin
sllk stjórnarmyndun, en aðrir,
sem nefndir hafa verið sem
hugsanleg ráöherraefni, eru þeir
Halldór E. Sigurösson, Gylfi b.
Gislason og JónasHaralz. Margir
stjórnmálamenn telja Jón Sig-
urðsson, forstjóra bjóðhagsstofn-
unar, gefinn ráöherra I utan-
þingsstjórn, en hann mun ekki ljá
máls á sllku.
—P.M.
Arangurslausar viðræður við sovélmenn um sðlu á lagmetl:
BJÓÐfl 9% HÆKKUN EN VIÐ ÞURFUM 30%
- segir Gylfi Þór Magnusson, framkvæmdastióri Sölustofnunar lagmetis
„Viðræðurnar strönduðu fyrst og fremst á þvi, að það er 20% munur á
verðinu sem Sovétmenn vilja greiða og þvi sem lagmetið þarf að fá” sagði
Gylfi Þór Magnússon hjá Sölustofnun lagmetisins, þegar Visir ræddi við
hann i morgun.
Gylfi var i sendinefnd sem
kom um helgina heim frá Sovét-
rikjunum eftir árangurslausar
viðræður viö Sovétmenn um
sölu á lagmeti. Hann sagði að
viðræðum væri ekki lokið og
veriö væri að undirbúa næstu
umferö. bær viöræður hæfust
eftir um þaö bil viku.við versl-
unarfulltrúa Sovétrlkjanna hér
á tslandi.
bað væri ekki vafi á
að Sovétmenn hefðu áhuga á
þessari vöru. en þaö væri með
þennan iönaö eins og annan út-
flutningsiðnaö, aö hráefni heföi
hækkaö um 60%, vinnulaun um
50%, og umbúðir um 40% meöan
dollarinn heföi ekki lagast fyrir
útflutning nema um 25% frá
janúar I fyrra.þar til nú I janúar.
Sovétmenn hefðu getaö fallist á
hækkun um 9%, en lagmetis-
iönaðurinn þyrfti um 30% hækk-
un.
—JM