Vísir - 13.02.1980, Blaðsíða 9

Vísir - 13.02.1980, Blaðsíða 9
I I '• t I vtsnt MiOvikudagur 13. febrúar 1980. HARMLEIKUR ANHE MAGUIRE A ENDA: Hér létu börn Anne Maguire lffið. Þaö, sem eftir sést, er beyglaö reiöhjól og ónýtur barnavagn. ekki um þrjú. Hún kvaldist hræöilega!” Maired Corrigan var ófær um aö segja nokkuö um dauöa systur sinnar. Þó aö harmleikur Anne Maguire hafi um skeiö kveikt vonir um aö friöur væri á næsta leiti er nú jafndökkt útlit og áö- ur var.... Anne Maguire. Hún gat ekki hugsað sér aö rifja hörmungarnar upp i réttarsalnum og framdi sjálfsmorö daginn aöur en máliö var tekiö fyrir. hygli um heim allan. í Noregi var sett á stofn nefnd til aö reka áróöur fyrir þvi aö hreyfingin fengi friöarverölaun Nóbels en þaö heppnaöist ekki fyrr en ári siöar. í staöinn fengu þær svo- kölluö Friöarverölaun fólksins og söfnunarfé aö upphæö mill- jón norskra króna. Þegar um þaö leyti sem Nóbelsverölaunin skiluöu sér var Friöarhreyfing Ulster lent i miklum vandræöum. Hinar miklu friöargöngur voru ekki lengur farnar og þaö reyndist erfitt aö benda á leiöir tir til friöar. Þá voru þær Corrigan og Williams harölega gagnrýndar þegar þær ákváöu aö halda eftir hluta af Nóbelspeningunum þær gæfu miklar upphæöir til ým- issa mála. Þær hættu sem leiötogar hreyfingarinnar um tima en þó þær hafi snúiö aftur hafa þær ekki lengur neitt aö segja. Þær feröast nú vitt og breitt um heiminn og safna fé en hafa nú runniö sitt skeiö á enda. Anne Maguire og maöur hennar Jackie reyndu aö endur- byggja hina eyðilögöu tilveru sina og þau fluttust i ágúst 1977 til Nýja Sjálands ásamt Marc syni sinum. Þrátt fyrir ýmsa aöstoö gekk'þeim ekki vel og sjö mánuðum seinna sneri fjöl- skyldan aftur og nú meö unga dóttur, hún hét Joanna eftir þeirri sem lést. Skaðabætur Þó fjölskyldan hafi haldið þvi fram aö hún hafi snúið aftur vegna heimþrár var ljóst að Anne Maguire haföi fengið al- varlegt taugaáfall. Næstu mán- uöi var hún tvisvar til meðferð- ar á sjúkrahúsi vegna þess aö hún haföi tekiö of stóran skammt af taugatöflum. Rétt áöur en hjónin sneru aftur frá Nýja Sjálandi haföi rikið boðiö þeim 3 milljónir króna i skaða- bætur en þvi var hafnað sem móögandi. Daginn sem Anne Maguire átti aö mæta i réttinum var tekið þar til meðferöar kröfu þeirra um a.m.k. 18.5 milljón króna skaöabætur vegna andlegra og likamlegra þjáninga Anne. Það viröist þó hafa veriö of mikið fyrir hana að þurfa aö rifja upp atburöina i réttarsalnum og hún greip til örþrifaráöa. Þegar hinn 9 ára Marc kom heim úr skólanum kom hann að húsinu læstu og eftir aö hafa kallað á aöstoö nágranna var komiö aö Anne Maguire látinni i hægindastól i stofunni. A ann- arri hæö var nýfædd dóttir, Luisa, en hin tveggja ára Jo- anna var i leikskóla. Anne er látin... Betty Williams var ein hinna fyrstu sem komu á staðinn. Hún sagöi grátandi: „Þaö er hræöi- legt aö Anne skuli vera dáin. Það er hræðilegt fyrir hverja konu aö missa barn, ég tala nú Þrjú ung börn Anne Maguire urðu í ágúst 1976 fórn- arlömb ofbeldisins á Norður-lrlandi. Þau létust af völdum hryðjuverks. Þessi hörmulegi atburður leiddi til þess að stofnuð var friðarhreyfing sem síðar fékk friðarverðlaun Nóbels. Nú nýlega átti Anne Maguire að mæta í réttarsal vegna skaðabótamálsins eftir dauða barna hennar. Hún mætti ekki. Hún hafði fram- ið sjálfsmorð. Dauði þriggja barna Það var 22. janúar sl. aö Anne fannst látin á heimili sinu i Bel- fast. Hún hafði skoriö sig á púls og háls með rafmagnseldhús- hnif og blæddi henni út i stofu- stól. Anne Maguire haföi oröiö aö þola meira en flestir aörir. Fyr- ir þremur og hálfu ári missti hún þrjú af fjórum börnum sin- um þegar þau uröu fyrir bil hryðjuverkamanns uppi á gang- stétt. Þetta leiddi til þess aö stofnuð var friöarhreyfing Ul- sters sem um skeiö tókst að glæða vonir manna um frið á svæðinu. En þrátt fyrir aö leiö- togar hreyfingarinnar, Maired Corrigan og Betty Williams, fengu friöarverölaun Nóbels i desember 1977, er jafnlangt i frið á Norður-írlandi nú og nokkru sinni fyrr. Einn hlýjan ágústdag áriö 1976 var Anne Maguire úti i labbitúr með börn sin fjögur skammt frá heimili þeirra i kaþólska hluta Vestur-Belfast. Hún ók Andrew, sex vikna gömlum syni sinum, i barna- vagni, Joanna, átta ára gömul, gekk á undan vagninum og leiddi John bróöur sinn, sem var tveggja ára, en Marc, sex ára, hoppaði til og frá. Danny Lennon skæruliði IRA Allt i einu kom bill á ofsa- hraða og stefndi á þau. Viö stýr- iö sat Danny Lennon, 22 ára gamall skæruliöi og hryöju- verkamaöur IRA. Hann var dá- inn. Nokkur hundruö metra i burtu haföi hann oröið fyrir skotum lögreglunnar. Billinn hentist upp á gangstétt þar sem Anneog þrjú barna hennar urðu fyrir honum, Marc var sá eini sem slapp. Börnin þrjú dóu samstundis en Anne Maguire var illa limlest. Hún lá i dái i margar vikur og fékk ekki frétt- irnar fyrr en hún vaknaöi. Mikill meirihluta ibúa Norð- ur-Irlands urðu djúpt snortnir viö þessar fréttir. Þó ofbeldis- aðgerðir séu daglegir viöburöir á þessu svæði kom dauði þriggja saklausra barna illa viö menn. Frænka barnanna, Maired Corrigan kom fram i sjónvarpi og sagöi, hágrátandi frá hinni hamingjusömu fjöl- skyldu sem nú var ekki lengur til. Betty Williams horföi á viö- talið og saman stofnuöu konurn- ar friðarhreyfingu Ulsters. Nokkrum dögum siöar héldu þær sina fyrstu friðargöngu. Það kom öllum á óvart aö mörg þúsund manneskjur mættu, sér- staklega konur. Þettta var fólk sem búið var aö fá nóg og hvern laugardag jókst fjöldinn i frið- argöngunum. Þær Corrigan og Williams uröu fyrir aökasti ým- issa ofstækismanna en héldu hugrekki sinu. Nóbelsverðlaunin Friðarhreyfingin vakti at- Lát Maguire-barnanna var kveikjan aö stofnun friöarhreyfingar, sem um tima haföi mikil umsvif og fékk m.a. friöarverölaun Nó- bels, en hefur nú misst áhrif sin. MOBIR BARNANNA SEM FÉLIU í BEL- FAST 76 FRAMBI SJáUSMORB

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.