Vísir - 28.02.1980, Blaðsíða 8

Vísir - 28.02.1980, Blaðsíða 8
Fimmtudagur 28. febrúar 1980 8 i '> utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson Ritstjórar: úlafur Ragnarsson Hörður Einarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Hannes Sigurðsson, Halldór Reynisson, lllugi Jökulsson, Jónína Michaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Páll Magnússon, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Útlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, MagnúsÓlafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Askrift er kr. 4.500 á mánuði Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. innanlands. Verð i lausasölu 230 kr. eintakið. Auglysingar og skrifstofur: Siðumúla 8. Simar 86611 og 82260. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, sími 86611. Ritstjórn: Siðumúla 14, sími 86611 7 Ifnur. Prentun Blaðaprent h/f. USTAPRÚSENTUR OG MARKAOSLðGMÁL Fjárframlög ríkissjófts til lista- og menningarmála hafa veriö mikiö til umræöu undan- fariö og til þess aö krefjast hækkunar á þeim hafa menn seilst alla leib til Senegal, þar sem skýrsiugeröarmenn viröast snibugri Iprósentureikningi en hér noröur I höfum. Listiðkun og menningarstarf- semi íslendinga hefur verið ofar- lega á baugi í f jölmiðlum síðustu daga vegna Listaþings samtak- anna /, Lífs og lands" sem haldið vará Kjarvalsstöðum um miðjan þennan mánuð. Þessi ungu samtök stef ndu nú í þriðja sinn saman hópi borgara til þess aðfjalla víttog breitt um ákveðið efni, sem forráðamenn þeirra telja snerta umhverf ismál í víðasta skilningi. Að þessu sinni var yfirskriftin ,,Maður og list" og er þakkarvert að taka íslenska list og stöðu hennar til svo gaum- gæfilegrar skoðunar, sem þarna vargeribæði af lærðum og leik- um. Einhverra hluta vegna hefur sú umræða, sem þetta þing hefur komið af stað í fjölmiðlum að miklu leyti snúist um f jármögn- un listarinnar í landinu, og þá gjarnan veriðtil þess vitnað, að á fjárlögum íslenska ríkisins til menningar og lista sé aðeins 0,46% heildarútgjalda hins opin- bera á siðasta ári. Hefur í því sambandi verið bent á, að í þess- ari upphæð felist meðal annars styrkir til reksturs Sinfóníu- hljómsveitar og Þjóðleikhúss og ýmissa annarra stofnana á sviði menningar og lista. Svo mjög hef ur verið einblínt á þetta brotabrot, að menn hafa ef til vill verið farnir að trúa því að þessi blessuð þjóð verji ekki öðru fé til lista- og menningarmála sinna en þessum hluta ríkisf jár- magnsins. Slík einsýni gefur mönnum auðvitað ekki rétta mynd af því hvernig þessum málum er komið, því að auk framlaga af fjárlögum verja til dæmis stofnanir eins og ríkisf jöl- miðlarnir, útvarp og sjónvarp verulegum upphæðum rekstrar- gjalda sinna í greiðslur til lista- manna á hinum ýmsu sviðum tónlistar, leiklistar, myndlistar, bókmennta og kvikmynda,svo að nokkuð sé nefnt. Þá hef ur einnig vantað í f jölmiðlaumræðuna þá fjármuni, sem sveitarfélög víðs vegar um land verja til margvís- legrar menningarstarfsemi og lista. Ef á annað borð er verið að reikna prósentur og krónutölur í þessu sambandi verða menn að taka fleira með í reikninginn en bein fjárframlög ríkisins. Það gefur auga leið, að lang- mestur hluti þeirrar listastarf- semi, sem fram fer hér á landi.á tilveru sína undir venjulegum markaðslögmálum og almennir borgarar landsins eiga miklu meiri þátt í fjármögnun hennar en hiðopinbera. Þannig verður á- fram. Hitt er svo annað mál, að óhjá- kvæmilegt er, að ákveðnir þættir listastarfseminnar í landinu séu styrktir af hinum sameiginlega opinbera sjóði okkar, ríkissjóði, og eins að ef nilegir listamenn séu hvattirtil dáða meðstyrkjum eða starfslaunum. Þær prósentutölur, sem nefnd- ar voru af f járlögum okkar eru sagðar verulega lægri en í ná- grannalöndunum, þar sem eitt til fimm prósent ríkisútgjalda fari til lista- og menningarmála. Slík- ur samanburður segir lítíð einn sér, og furðulegt er, eins og for- maður Bandalags íslenskra lista- manna gerði í útvarpi á dögun- um, að fullyrða, að í jafn-fjar- lægu og fjarskyldu ríki og Senegal fari fjórðungur ríkisút- gjalda til lista- og menningar- mála. Við gætum til dæmis tekið allan kostnað við skólakerfi okk- ar eða annað með í reikninginn og búið til slíkar prósentutölur. Það verða ekki opinberar krón- ur eða prósentur heldur hæf ileik- ar sem ráða því < hvort við eign- umst alvöru-listamenn og sígild listaverk. Kennarar - börn - bækur: Barnabækurnar séu nokkaðar miðað við lestrargetu barna 1 Helgarblaöi Visis 16. febrúar s.l. birtist viötal viö einn af af- kastamestu bókaútgefendum landsins. Þar ræöir hann meöal annars fram og aftur um bókailtgáfu, en athygli mina vakti eitt ööru fremur. Þaö var frásögn hans af fjárupphæö sem hann færöi kennarasamtökun- um fyrir rúmum áratug og vildi hann aö hiln yröi nýtt til aö hafa bætandi áhrif á útgáfu barna- bóka hér á landi. Ekki man ég eftir þvi aö fram hafi komiö hvernig fé þetta hefur veriö mótaö. Gaman væri aö fá upp- lýsingar um þaö. En þetta leiddi huga minn aö möguleikanum á aö nota barna- bækur til aö hjálpa til viö lestr- arkennslu i skólum. Þaö er staö- reynd, aö börn vilja skemmti- legt lestrarefni og þvi er gott aö skólabörn, a.m.k. þau yngstu hafi aögang aö bekkjarbóka- safni. En þá kemur upp eitt vandamál. Þaö er hversu erfitt er aö meta þyngd bóka. Hvaöa bók hentar 7 ára barni er kannski spurt? Svariö er aö þaö fari eftir lestrargetu barnsins. Ekki er til nein ákveöin bók handa ákveönum aldursflokki. Þaö er nefnilega mjög misjafnt hvar þau eru á vegi stödd. Erlendis tiökast sums staöar aö setja sérstök tákn á barnabækur fyrir hvert lestrargetustig og værl þaö til mikils hagræöis fyrir kennara og bókaveröi auk aö sjálfsögöu forráöamanna barna. Ekki veit ég hversu mikiö er gert af bvi aö kynna veröandi kennurum barnabókmenntir i K.H.l. Aö mlnu áliti hefur stóru hlutverki aö gegna aö þvi er varöar aö kynna stúdentum þær bækur sem á boöstólum eru. Einnig væri mögulegt aö stú- dentar tækju aö sér ár hvert aö meta hverja bók fyrir sig og þar meö gætu þeir sjálfir kynnst bókunum og um leiö væri hægt aö senda til skóla og annarra aöila sem máliö varöar upplýs- ingar um hvaöa bók hentar barni á sérhverju lestrargetu- stigi. Þaö gæti auöveldaö for- eldrum val á bókum handa börnum sinum, þannig aö öruggt sé aö börnin ráöi viö aö lesa bækurnar. Fyrir bókaveröi væri slik flokkun til mikilia bóta. Val kennara á bókum fyrir nemend- ur sina yröi mun auöveldara. Ég hef séö erlendar bækur, þar sem sllk flokkun hefur fariö fram áöur en bækurnar hafa veriö gefnar út. Þá er sérstakt tákn fyrir hvert lestrargetustig. Þaö leiöir þaö af sér, aö kennar- ar þurfa ekki aö binda sig i jafn rikummæliviö þær lestrarbækur bókmenntir Siguröur Helgason skrifar um barnabækur sem Rikisútgáfa námsbóka út- hlutar og þykja misheppilegar til sins brúks. Ég set þessa hugmynd hér fram og vona jafnframt, aö hana megi nýta aö einhverju leyti. Engir hafa betri aöstööu til aö hafa jákvæö áhrif á bókaval barna og kennarar. Ef þeir kappkosta aö lesa fyrir börn og kynna þeim góöar bækur veröur þaö til þess aö börnin fara smátt og smátt aö vanda valiö. Til þess þarf aö auka þekkingu kennara á barnabókmenntum. Þeir þurfa aö fá upplýsingar um þaö sem út kemur og fylgjast meö gagnrýni. En eins og ég sagöi áöan er lykilhlutverkiö I höndum Kennaraháskóla ls- lands. Vonandi veldur hann þessu mikilvæga hlutverki. Siguröur Helgason.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.