Morgunblaðið - 25.10.2001, Blaðsíða 13
Úr auglýsingu fyrir Rautt – fyrirframgreidda GSM-þjónustu Íslandssíma.
DBT – auglýsingahús hefur náð
góðum árangri í auglýsingaviðburð-
um erlendis. Nú síðast komst herferð
DBT fyrir Rautt – fyrirframgreidda
GSM-þjónustu í úrslit í hinni þekktu
samkeppni Young Guns sem haldin
er í Sydney Ástralíu. Hátíð þessi er
ætluð yngri aðilum sem starfa við
auglýsingaiðnaðinn og er hámarks-
aldur þátttakenda 30 ár. Aðaláhersl-
an er lögð á frumlegar hugmyndir,
vönduð vinnubrögð og virkni auglýs-
inga og áttu margar af frægustu aug-
lýsingastofum heims tilnefningar í
þessa keppni.
Í júní í sumar var 21. Campaign
Screen útgáfan gefin út en í henni er
VHS-spóla sem inniheldur athyglis-
verðustu auglýsingar hvers mánaðar.
Í þessari 21. uppfærslu af Campaign
Screen var að finna auglýsingu DBT
fyrir Rautt – fyrirframgreidda síma-
þjónustu – sem var valin þarna inn
sökum frumlegrar nálgunar við
markhópinn sem ná átti til. Þetta var í
annað skiptið sem Íslensk auglýsing
var valin á þessa spólu.
Auglýsingahúsið DBT byrjaði sem
lítið skúffufyrirtæki á skrifstofu tíma-
ritsins Undirtóna fyrir tæplega fjór-
um árum. Það voru Snorri Barón
Jónsson, annar af stofnendum blaðs-
ins og þáverandi framkvæmdastjóri
þess, og Siggeir Magnús Hafsteins-
son sem ákváðu að ríða á vaðið og
setja á laggirnar auglýsingastofu sem
sérhæfði sig í auglýsingum fyrir
markhópinn 12–29 ára. Í árslok 1999
klauf fyrirtækið sig frá Undirtónum
og hóf sjálfstæðan rekstur. DBT
flutti nýverið inn í skrifstofu á efstu
hæð gamla Ríkissjónvarpshússins á
Laugavegi 176 og eru starfsmenn fyr-
irtæksins nú átta talsins.
DBT – auglýsingahús hlýtur tilnefningu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 2001 C 13
NFRÉTTIR LISTASAFN Reykjavíkur hefur
opnað sýndarferð um Erró-sýn-
inguna á Netinu, en myndirnar voru
teknar til sýningar í safninu í sumar.
Þá hefur safnið tekið í notkun nýtt
leiðsagnakerfi sem er rekið á GSM-
kerfi Íslandssíma.
Í sýndarferðinni er hægt að skoða
safnið að innan og utan, inngang og
sýningarsali í hringsjá. Hægt er að
þysja að einstaka myndum, skoða sal-
ina hátt og lágt og smella með mús-
arhnappi frá einum sal til annars. Þá
er hægt að skoða verk sem er að finna
í sýningarsölunum í hringsjá. Verk-
um er raðað upp með þeim hætti að
gestir rekja sig í megindráttum eftir
ferli listamannsins frá nýjustu verk-
um hans til þeirra fyrstu.
Fleiri sýndarverkefni
í deiglunni
Hugbúnaðarfyrirtækið Landmat bjó
til þrívíddarlíkan af safninu og sýnd-
arferðina um Erró-sýninguna, en
sýndarferðin er gerð með Flash- og
Java-tækni. Þá voru teknar 18 ljós-
myndir á stafræna myndavél í hverj-
um sal og settar saman í hringmynd
til þess að hægt væri að skoða þær í
360° hringsjá. Sýndarsýningin er
einnig á ensku, þýsku og frönsku.
Sigrún Guðjónsdóttir, framleiðslu-
stjóri hjá Landmati, sagði að verkið
hefði tekið tvo mánuði og að stefnt
væri að því að vinna fleiri slík verkefni
fyrir Listasafn Reykjavíkur, áður
hefur Landmat m.a. unnið sýndarferð
fyrir Árbæjarsafn og Salinn í Kópa-
vogi. Hún sagði að sýndarferðin yrði
áfram á vef Listasafnsins eftir að sýn-
ingunni sjálfri lyki.
„Markmiðið er að búa til sýndar-
safn yfir sýningar í Listasafni
Reykjavíkur sem netnotendur geta
skoðað óháð stað og stund.“
Upplýsingar um listamenn
í GSM-síma
GSM-leiðsögn Listasafns Reykjavík-
ur má líkja við „audio-guide“, eða
hljóðleiðsögn, sem er algeng víða í
söfnum erlendis. Gestir safnsins
hringja í ákveðið númer úr farsíma
sínum og geta þar hlýtt á kynningu
um Erró-sýninguna. Þannig geta þeir
fengið upplýsingar um hvernig best
sé að fara um sýninguna til að fá
heildstæða mynd af þeirri þróun sem
orðið hefur á ferli listamannsins. Þá
er hægt með ákveðnum skipunum að
velja um ellefu fjölbreyttar og fróð-
legar umsagnir um verk Errós og
ákveðin tímabil í lífi hans. Það eru ís-
lenskir listamenn og listfræðingar
sem leggja til texta og rödd og leiða
þannig gesta um safnið.
Pétur Pétursson, upplýsinga- og
kynningarstjóri Íslandssíma, segir að
GSM-leiðsögnin hafi verið þróuð af
símkerfasviði Íslandssíma í samvinnu
við safnið. Í henni sé talhólfakerfi Ís-
landssíma notað. Með því er hægt að
ráða virkni talhólfanna og gefa not-
andanum kost á að stjórna ferðinni.
Pétur segir að þetta samspil tækni
og listar sé komið til að vera í Lista-
safni Reykjavíkur og verði þróað
áfram með öðrum sýningum bæði
hvað varðar framsetningu og tækni.
Til að byrja með verður GSM-leið-
sögnin gestum safnsins að kostnaðar-
lausu.
www.listasafnreykjavikur.is
Sýndar-
sýning
og GSM-
leiðsögn
Morgunblaðið/Ásdís
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
og Eyþór Arnalds, forstjóri Íslandssíma,
tóku nýtt leiðsagnakerfi Listasafnsins
formlega í notkun.