Morgunblaðið - 09.12.2001, Blaðsíða 26
LISTIR
26 SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
T
.S. ELIOT er sífellt umræðu-
efni og efni til skoðanaskipta.
Bókum um hann og hans nán-
ustu fjölgar. Nýútkomin er
bók um fyrstu konu skáldsins
eftir Carole Seymour-Jones:
Painted shadow. A life of Vivi-
enne Eliot. 682 síður. Útg. Constable, verð 20
pund.
Í þessari bók er það ekki síst Eliot sjálfur
sem verður rannsóknarefni. Fyrirferðarmikil
er umræða um meint gyð-
ingahatur hans en líka
grimmd hans og hégóma-
girni ásamt hinu nýjasta
sem menn hafa fundið hjá
skáldinu: samkynhneigð
sem m. a. á að hafa gert
Vivienne lífið óbærilegt. Áhugi skáldsins á
ballett er sagður veigamikið sönnunargagn.
Þótt gamlir vinir Eliots telji þessar kenn-
ingar fráleitar gefast þeir ekki upp sem hafa
atvinnu af að kafa í einkalíf skáldsins.
Tom og Viv halda semsagt stríði sínu áfram,
leikrit og kvikmynd nægja ekki.
Það er kannski jákvætt að vera á persónu-
legum nótum meðan skáldskapurinn skaðast
ekki. Engin hætta er á því að bestu ljóð Eliots
gleymist.
Auða landið, The Waste Land, 1940(Eyðilandið í þýðingu Sverris Hólm-arssonar 1990), frægasta ljóð Eliotser mönnum enn ráðgáta þótt skáldið
hafi sjálft látið skýringar fylgja því.
Það sem nokkra forvitni vekur nú er að
komið hefur í ljós að Völsunga saga mun vera
meðal þeirra rita sem máli skiptu fyrir ljóðið
og dæmi eru jafnvel um áhrif hennar á Auða
landið.
William Morris og Eiríkur Magnússon
þýddu í sameiningu Völsunga sögu á ensku og
kom hún út 1870 ásamt Eddukvæðum í þýð-
ingu þeirra en áður höfðu þeir m. a. þýtt Grett-
is sögu.
Völsunga saga var fyrir aldamótin 1900 gef-
in út í bókaflokki sem nefndist „World Liter-
ary Masterpieces“ en útgefandi var Walter
Scott Publishing Company í London og New
York.
Nú er það kunnugt að T. S. Eliot áttieintak af Völsunga sögu og keyptiþað sennilega á árunum 1906–1908þegar hann var nemandi í Harvard.
Eintakið merkti hann sér með eiginhand-
aráritun. Það fannst í safni skólabróður hans í
Harvard.
Þótt Eliot nefndi ýmsar fyrirmyndir og
áhrifavalda þegar titill ljóðsins var valinn, m.
a. From Ritual To Romance eftir Jessie L.
Weston, leiða menn getum að því að fornar ís-
lenskar bókmenntir hafi skipt hann máli.
Benda menn í því sambandi einnig á Niflunga-
ljóð Wagners sem sótti meira til íslenskra
Eddukvæða en þýskra bókmennta.
William Morris orti formála Völsunga sögu
og stendur þar:
O hearken, ye who speak the English tongue,
How in a waste land ages long ago,
the very heart of the North bloomed into song
after long brooding o’er this tale of woe!
Meðal þeirra fræðimanna sem eru ekki í
vafa um gildi Völsunga sögu fyrir Auða landið
er Robert Macfarlane (sjá TLS, 16. nóvember
sl.). Macfarlane finnur auða landið víða, m. a. í
Eddukvæðum. Hann telur þá Morris og Eliot
eiga það sameiginlegt að leita til mikilla klass-
ískra verka og því ekki óeðlilegt að Íslend-
ingasögurnar séu meðal þeirra.
Annað skáld sem líka naut þýðinga Morris
og Eiríks Magnússonar var Argentínumað-
urinn Jorge Luis Borges. Um það má m.a. lesa
í Samtölum Matthíasar Johannessen þar sem
Borges er meðal viðmælenda.
Völsunga saga var Borges opinberun. Það
eru orð úr henni á leiði hans í Genf: „Hann tekr
sverthit Gram ok leggr i methal theira bert.“
Sagan kemur fyrir í ljóðum Borges:
Ísland, mig hefur lengi dreymt um þig,
alveg frá þeim morgni þegar faðir minn
gaf því barni sem ég var og sem lifir enn
þýðingu Völsunga sögu
sem ég nú í hálfrökkri mínu
rýni í seinlega með hjálp orðabókar.
Ísland og Íslendingasögur koma víða fyrir í
ljóðum Borges og ekki síst í síðustu bókum
hans, en þá þekkti hann landið af eigin raun
eftir ferðalög hingað.
Í ritgerð sinni Eliot og Eyðilandið, aftan við
þýðinguna, gerir Sverrir Hólmarsson grein
fyrir ljóðinu og birtir að auki athugasemdir
skáldsins.
Í ritgerðinni kemur fram að taugaveiklunEliots eða réttara sagt viljadoði speglast íljóðinu, enda leitaði hann sér lækninga ogþær hjálpuðu honum að ljúka ljóðinu. Þá
tók vinur hans og skáldbróðir, Ezra Pound, við
ljóðinu og stytti það til mikilla muna.
Menn hafa túlkað ljóðið sem krufningu á
sjúkri samtíð, en eins og Sverrir bendir á hall-
ast menn nú að því að ljóðið sé persónuleg
tjáning manns sem er staddur í sálar- og
trúarkreppu. Um þetta sagði Eliot, í þýðingu
Sverris:
„Ýmsir gagnrýnendur hafa sýnt mér þann
heiður að túlka ljóðið eins og það sé gagnrýni á
heim nútímans og hafa raunar talið það mik-
ilvægan skerf til þjóðfélagsgagnrýni. Fyrir
mig var það ekki annað en að létta af mér per-
sónulegum og öldungis ómerkilegum kvört-
unum út af lífinu; það er bara nöldur í reglu-
bundinni hrynjandi.“
Eliot og Völsunga saga
T.S. Eliot
AF LISTUM
Eftir Jóhann
Hjálmarsson
johj@mbl.is
Jorge Luis Borges
TÓNLEIKAR Amnesty Internat-
ional á mannréttindadeginum eru
orðnir fastur liður á aðventunni. Á
morgun verða tónleikar í Neskirkju
og hefjast þeir kl. 20.
Á tónleikunum koma fram Schola
Cantorum undir stjórn Harðar Ás-
kelssonar, Kammerkór Seltjarnar-
neskirkju undir stjórn Vieru Manas-
ek, Guðrún Helga Stefánsdóttir
sópransöngkona kemur fram með
kórnum, Jónas Ingimundarson pí-
anóleikari, Ólafur Kjartan Sigurðar-
son barítonsöngvari, Sigurður Rún-
ar Jónsson hljóðfæraleikari,
sönghópurinn Voces Thules, Selma
Guðmundsdóttir píanóleikari, Gunn-
ar Kvaran sellóleikari, Þórunn Lár-
usdóttir söngkona, Monika Abend-
roth og Páll Óskar Hjálmtýsson.
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Sönghópurinn Voces Thules.
Aðventutónleikar á
mannréttindadaginn