Morgunblaðið - 18.12.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 18.12.2001, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ SKIPULAGS- og bygginga- nefnd Reykjavíkur hefur lýst sig jákvæða í garð þess að byggð verði hæð ofan á húsið við Laugaveg 59, bet- ur þekkt sem Kjörgarð, og að reist verði nýbygging við Hverfisgötu 80. Fyrirhugað er að tengja byggingarnar tvær með göngubrú og reka í þeim hótel. Er gert ráð fyrir að heild- arherbergjafjöldi hótelsins verði 109 herbergi. Móttak- an verður á jarðhæðinni við Laugaveg en til stendur að nýta kjallara hússins fyrir verslunar- og þjónustustarf- semi. Eins og Morgunblaðið greindi frá í október síðast- liðnum er það fyrirtækið Lóðarafl ehf. sem stendur fyrir hugmyndunum en eig- endur þess eru byggingar- meistararnir Magnús Guð- finnsson og Svanur Tóm- asson. Hafa þeir samið við eigendur Kjörgarðs um kaup á fasteigninni með fyr- irvara um að hugmyndir þeirra um hótelbyggingu gangi eftir. Hönnun hótelsins er í höndum Teiknistofunnar Óðinstorgi. Kemur fram í samþykkt skipulags- og bygginganefndar að breyta þurfi deiliskipulagi vegna hugmyndanna eigi þær að verða að veruleika. Skipulags- og bygginganefnd Reykjavíkur Jákvæð í garð hótels í Kjörgarði Teikning/Teiknistofan Óðinstorgi Gert er ráð fyrir að göngubrú tengi byggingarnar tvær en inngangur hótelsins verður við Laugaveg. Miðborg NOKKUÐ er um að umferð- areyjar og grasbalar með- fram umferðargötum komi illa leikin undan snjóruðn- ingstækjum eftir mikla snjóa eins og borgarbúar fengu að kynnast um síðustu mánaða- mót. Grasið er sérstaklega viðkvæmt þegar jörð er ófros- in þegar verið er að ryðja. Morgunblaðið fékk ábend- ingu um illa leikna umferðar- eyju við Háaleitisbraut en að sögn Sigurðar H. Skarphéð- inssonar gatnamálastjóra er ekki snjóruðningstækjunum um að kenna í því tilfelli. „Þessi grasbali sem er á móts við Miðbæ skemmdist þegar gengið var frá stéttinni í haust þannig að það hefur ekkert með snjóruðning að gera en það er jafnhvimleitt og ljótt fyrir því,“ segir Sig- urður og bendir á að ítrekað hafi verið reynt að fá umferð- areyjuna viðgerða án árang- urs. Hann segir engu að síður nokkuð um það að umferðar- eyjar verði fyrir hnjaski vegna snjóruðningsins. „Það gefur augaleið að þegar snjónum kyngir svona niður þá hverfa kantsteinar og það þýðir óhjákvæmilega að við ryðjum einhverjum af þeim í burtu þar sem menn sjá ein- faldlega ekki hvar steinarnir eru. Þannig að á hverju vori er umtalsverð vinna fólgin í því að lagfæra svona eyju- enda og kantsteina en það er ekkert meira núna en oft áð- ur.“ Sigurður segir sérstaklega hættulegt þegar ekkert frost er í jörðu. „Þegar það fellur til þess að gera mikill snjór á skömmum tíma á ófrosna jörð þá einangrar hann það vel að þó að það kólni aðeins í nokkra daga þá nær frostið ekki niður. Grasið er þannig bæði blautt og ófrosið og þar af leiðandi viðkvæmara en ella. Þetta mun væntanlega leiða til þess að það verða um- talsverðar skemmdir þar sem við neyðumst til þess að fara upp á eyjar. Þá er ekkert ann- að að gera en að gera við eyj- arnar á vorin því að ekki er hægt að komast hjá þessu.“ Skemmdir vegna snjóruðnings Reykjavík STJÓRN Kirkjugarða Hafn- arfjarðar óskar eftir heimild fyrir því í bréfi, sem lagt var fyrir bæjarráð Hafnarfjarð- ar á fimmtudag, að grípa til neyðarréttar og loka kirkju- garðinum fyrir öðrum en heimamönnum sem hafa greitt kirkjugarðsgjöld til garðsins. Í bréfinu kemur fram að nú stefni í að innan tveggja til þriggja ára verði öll ný grafarsvæði garðsins að fullu frátekin ef ekki verði gripið til aðgerða þegar í stað, annars verði að loka honum með öllu. „Bæjaryf- irvöld hafa enn ekki getað sýnt fram á hvenær nýtt landsvæði garðsins verður tilbúið til notkunar þrátt fyrir ítrekaðar óskir þar um,“ segir í bréfinu. Þá telur stjórnin löngu tímabært að bæjaryfirvöld afhendi til fullra nota land- svæði þar sem um áratuga- skeið hefur verið frátekið sem framtíðarland garðsins, austan núverandi kirkju- garðs, handan Kaldársels- vegar. „Það er ljóst að taka mun nokkur ár að gera land- ið grafartækt og málið því nánast fallið á tíma. Síðast- liðið vor var nokkrum bíl- hlössum af mold ekið inn á svæðið en síðan ekki söguna meir. Horfurnar eru því afar dökkar.“ Háð hönnun Reykjanesbrautar Magnús Gunnarsson, bæj- arstjóri Hafnarfjarðar, segir að deiliskipulag af svæðinu sé háð aðalhönnun Reykja- nesbrautar sem verið sé að leggja lokahönd á, en sam- kvæmt henni á að færa Reykjanesbrautina upp fyrir kirkjugarðinn. „Á sama tíma er unnið að stækkun garðs- ins. Áætlanir ganga út á það að stækka garðinn til aust- urs og samhliða því erum við að velta því fyrir okkur að stækka garðinn einnig til vesturs. Á meðan verið er að skoða alla þessa hluti, sem allir taka mið af deiliskipu- lagi því sem verið er að vinna að og taka á gildi um mitt næsta ár, þá getum við í raun ekki tekið afstöðu til bréfsins frá stjórn kirkju- garðsins fyrr en við vitum nákvæmlega stöðuna.“ Magnús segir að mikil áhersla sé lögð á að engin vandkvæði verði varðandi framtíð garðsins og ekki þurfi að koma til þess að loka honum fyrir öðrum en heimamönnum eins og mælst er til í bréfinu. Kirkjugarðurinn að fyllast Hafnarfjörður Morgunblaðið/Ásdís Um 300 ný grafarsvæði eru eftir í nýrri hluta kirkjugarðs Hafnarfjarðar og stjórn garðsins vill grípa til aðgerða svo að garðurinn fyllist ekki innan þriggja ára. Nýtt deiliskipulag mun liggja fyrir um mitt næsta ár, segir bæjarstjóri BYGGINGU fjölnota knatt- spyrnuhúss við Fossaleyni og Víkurveg miðar vel áfram þessa dagana en stefnt er að því að hægt verði að spila í því fyrstu leikina um mánaðamótin mars-apríl. Góð tíð að und- anförnu hefur haft mikið að segja um framvindu verks- ins. Að sögn Snorra Hjaltason- ar verktaka starfa 50–70 manns við bygginguna en þeim fer jafnt og þétt fjölg- andi. Auk fyrirtækis hans, Trésmiðju Snorra Hjaltason- ar, stendur Járnbending að verkinu sem er í einka- framkvæmd. Hann segir ekki erfitt að fá mannskap til verksins. „Það standa tvö byggingarfyrirtæki að þessu og við bætum það þá upp ef það vantar því við erum með fullt af mannskap í vinnu. Það hafa fyrir löngu verið gerðir samningar við und- irverktaka og aðra þannig að þetta er í góðu lagi.“ Með almættið á sínu bandi Hann segir tíðina heldur ekki spilla fyrir. „Meðan al- mættið heldur svona vernd- arhendi yfir okkur og hefur svona gott veður gengur þetta vel. Það skiptir alveg geysilega miklu máli því til dæmis um daginn þegar snjóaði þá hafði það mikið að segja að vera að moka snjó hálfan daginn og vinna hinn helminginn.“ Hann seg- ist þó alveg vera til í hvít jól en með ákveðnum skilyrðum samt. „Ja, ef það tekur strax af,“ segir hann og hlær. „Það væri mjög gott ef það væri bara yfir þessa þrjá ágætu daga en síðan vildum við gjarnan hafa þessa góðu veðráttu.“ Verkið er að hans sögn nokkurn veginn á áætlun. „Við reiknum með því að það verði byrjað að spila í sjálfu knattspyrnuhúsinu um mán- aðamótin mars-apríl en þá er mannvirkið bara að hluta komið í notkun. Í haust mun- um við síðan taka í notkun leikfimisali og aðra íþrótta- sali sem eru í þessu húsi og næsta vetur, veturinn 2002– 2003, og fram eftir árinu 2003 klárum við húsið.“ Húsið er um það bil 23 þúsund fermetrar að flat- armáli og er áætlaður bygg- ingarkostnaður um 1,5 millj- arðar. Morgunblaðið/Sverrir Knattspyrnuhúsið er óðum að taka á sig mynd enda veðrið gott til vinnu þessa dagana. Grafarvogur 50 til 70 manns starfa við byggingu fjölnota knattspyrnuhúss við Víkurveg Hvít jól í þrjá daga, takk! matinn í svokölluðu skóla- skjóli í skólanum. „Undan- farin tvö ár hefur þetta allt- af komið upp og svo hefur krafa foreldra kannski magnast því þetta hefur aukist líka í kringum okk- ur,“ segir Ólína en til að undirbúa verkefnið var skipaður undirbúningshóp- ur með fulltrúum frá skól- anum, skólanefnd og for- eldrafélaginu. „Við kynntum okkur hvernig þetta er gert á HEITUR matur í hádeginu verður á boðstólum í Mýr- arhúsaskóla eftir áramót. Börn í öllum bekkjardeild- um munu fá heitan mat á bökkum, óski foreldrar eftir því. Að sögn Ólínu Thorodd- sen, aðstoðarskólastjóra Mýrarhúsaskóla, hefur ver- ið gerður samningur við fyr- irtæki sem heitir ÁG veit- ingar en það hefur séð um nokkrum stöðum í Reykja- vík og nágrenni og ákváðum síðan að gera þetta með svipuðu sniði og er í Garða- bæ, það er að segja að börn- in fá matinn á bökkum og borða inni í stofunum þar sem við höfum ekki aðstöðu til að láta þau borða saman.“ Þeir foreldrar sem vilja að börn sín fái heitan mat gera samning við skólann til átta vikna í senn þar að lút- andi og kostar máltíðin 315 krónur. Heitur matur í Mýrarhúsaskóla Seltjarnarnes
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.