Morgunblaðið - 30.12.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.12.2001, Blaðsíða 6
ÖRN Arnarson, nýkjörinn íþrótta- maður ársins 2001 í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna, hefur verið út- nefndur íþróttamaður Hafnar- fjarðar 2001. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar og íþróttaráð Hafnarfjarðar veittu Ís- lands- og bikarmeisturum Hafnfirð- inga sérstakar viðurkenningar á íþrótta- og viðurkenningahátíð í íþróttahúsinu við Strandgötu í fyrrakvöld. Einnig fengu nokkrir íþróttamenn viðurkenningar fyrir sérstök afrek á árinu. Friðrik Ólafsson, formaður ÍBH, veitti Siglingaklúbbnum Þyt svo- nefndan ÍSÍ-bikar en hann er veitt- ur því félagi sem vakið hefur sér- staka athygli fyrir öflugt starf á árinu. Þá veitti Magnús Gunnarsson bæjarstjóri fjárstyrki úr ferða- og viðurkenningarsjóði og síðan voru kallaðir fram þeir íþróttamenn sem skarað hafa fram úr á árinu og eru hvetjandi fyrir ástundun íþrótta. Úr hópi þeirra var að lokum valinn íþróttamaður Hafnarfjarðar 2001, sundmaðurinn Örn Arnarson. Afreksmenn á árinu voru Björn Þorleifsson, Fimleikafélaginu Björk, fyrir Tae Kwon Do, Björgvin Víkingsson, FH, og Þórey Edda El- ísdóttir, FH, fyrir frjálsíþróttir, Hafdís Hinriksdóttir, FH, og Hall- dór Ingólfsson, Haukum, fyrir handknattleik, Tómas Aðal- steinsson, Keili, fyrir golf, Heimir Guðjónsson, FH, fyrir knattspyrnu, Ari Sverrisson, Haukum, fyrir karate, Hafsteinn Æ. Geirsson, Þyt, fyrir siglingar, Ellert Aðalsteins- son, Skotíþróttafélagi Hafn- arfjarðar, fyrir skotfimi, og Örn Arnarson, SH, og Lára Hrund Bjargardóttir, SH, fyrir sund. Sundkappinn Örn Arnarson, íþróttamaður Hafnarfjarðar 2001. Örn íþróttamaður Hafnarfjarðar Hætta á stríði milli Ind- lands og Pakistans SPENNA fór vaxandi í samskiptum Indverja og Pakistana í vikunni og efldu bæði ríkin viðbúnað sinn á landa- mærunum. Indverjar bönnuðu flug pakistanskra flugvéla yfir indversku landi og ráku helming starfsliðs sendi- ráðs Pakistana úr landi; Pakistanar guldu þeim í sömu mynt. Skipst var á skotum í Kasmír-héraði sem lengi hef- ur verið bitbein ríkjanna tveggja en Indverjar saka Pakistana um að styðja þar aðskilnaðarsinna er vilja losna undan indverskum yfirráðum og beita hermdarverkum í baráttu sinni. Bæði Indverjar og Pakistanar ráða yfir kjarnorkuvopnum og flugskeytum. Ríkin hafa áður barist um Kasmír en að þessu sinni er aðalástæðan fyrir reiði Indverja árás sem hryðjuverka- menn gerðu á þinghúsið í Nýju-Delhí 13. desember. Engan þingmanna sak- aði en nokkrir menn féllu, þar á meðal allir hryðjuverkamennirnir fimm. Segjast Indverjar hafa sannanir fyrir því að mennirnir hafi verið liðsmenn samtaka er berjist gegn indverskum yfirráðum í Kasmír. Argentínumenn berj- ast við efnahagsóreiðu EFNAHAGSMÁL Argentínumanna ollu áfram miklum áhyggjum þótt nýr forseti hafi tekið við af Fernando de la Rua til bráðabirgða fyrir viku. Efnt verður til forsetakosninga í mars en bráðabirgðaforsetinn, Adolfo Rodrig- uez Saa, lét það verða eitt fyrsta verk sitt að segja að afborgunum af erlend- um skuldum, alls um 132 milljörðum dollara, yrði frestað. Nýr gjaldmiðill, argentíno, hefur verið tekinn upp og mun hann gilda ásamt pesóanum og Bandaríkjadollara en gengi pesóans var bundið við gengi dollarans fyrir áratug. Telja margir að bindingin hafi átt mikinn átt í hruninu. FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 23/12 – 29/12 ERLENT INNLENT  KRINGUM 1.850 Ís- lendingar héldu til sólar- landa og í skíðaferðir um jólin. Um 800 voru á Kan- aríeyjum á vegum Heims- ferða og 90–100 manns á vegum Plúsferða. Þá voru þar 400 manns á vegum Úrvals-Útsýnar og 200 manna hópur þaðan var á skíðum í Noregi og á Ítalíu. Flugleiðir fluttu um 200 manns til Flórída og 150 manns til skíða- ferða.  JÓNAS Kristjánsson hættir sem ritstjóri DV um áramótin. Hann hefur starfað sem blaðamaður í 39 ár og verið ritstjóri í 35 ár, fyrst Vísis, síðar Dagblaðsins og loks DV.  BOÐAÐ hefur verið yf- irvinnubann hjá flug- umferðarstjórum. Á það að hefjast 14. janúar og standa þar til nýr kjara- samningur hefur verið undirritaður.  TEKINN verður í notk- un næsta sumar blóð- banki á hjólum. Er það Scania-rúta sem breytt verður í færanlegan blóð- banka. Rauði kross Ís- lands leggur til 26 millj- ónir króna í kaupin og stjórnvöld 5 milljónir. Blóðbankinn sér um rekstur bílsins.  UM 1.400 erlendir ferðamenn dvelja á Ís- landi um áramótin. Bret- ar eru fjölmennastir en talsvert um Þjóðverja og Japani en Bandaríkja- mönnum hefur fækkað.  ÁRIÐ var ívið hlýrra en 2000, það hlýjasta frá 1991. Yfir 100 flugvirkjar fá ekki starf í grein sinni YFIR 100 flugvirkjar, sem lokið hafa námi sínu undanfarin misseri, hafa ekki fengið störf í grein sinni. Þá eru nokkrir tugir flugvirkja til viðbótar atvinnu- lausir eftir uppsagnir í kjölfar sam- dráttar hjá íslensku flugfélögunum, Flugleiðum, Atlanta, Íslandsflugi og Flugfélagi Íslands. Guðjón Valdimars- son, formaður Flugvirkjafélags Ís- lands, segir atvinnuástandið því ótryggt hjá flugvirkjum. Fyrir dyrum standa viðræður við forráðamenn Flug- leiða um framhald svokallaðra C-skoð- ana sem fram fara árlega, að þeim verði fram haldið hérlendis. Átta íslenskir flugvirkjar fengu sl. haust vinnu hjá Braathens í Noregi. Sorp frá Þingeyingum flutt til Reykjavíkur ÞINGEYINGAR hafa samið við Sorpu í Reykjavík um að taka við sorpi úr Þingeyjarsýslum til urðunar í Álfsnesi. Hefur Sorpsamlag Þingeyinga samið við Eimskip um flutning sorpsins sjó- leiðina. Brennslustöð sorpsamlagsins á Húsavík verður breytt í pökkunarstöð þar sem pressa á sorpið í bagga. Hefur þegar verið keypt pressa. Ráðgert er að þessi skipan verði komin á með vorinu. Mikill samdráttur í hlutabréfaviðskiptum VIÐSKIPTI með hlutabréf á Verð- bréfaþingi Íslands drógust verulega saman á árinu. Var heildarveltan 137 milljarðar á árinu en árið 2000 var hún 199 milljarðar. Þá lækkaði úrvalsvísi- talan um 11,2% á árinu. Hlutabréfaverð í einstökum atvinnugreinum hækkaði á árinu þrátt fyrir þetta. Vísitala lyfja- greina hækkaði um 38% og sjávarút- vegs um 16%. Þá hafa kaup einstak- linga á hlutabréfum dregist mjög saman.  LAGT var hart að Tony Blair, forsætisráð- herra Bretlands, á föstu- dag að setja aðild Breta að myntbandalaginu á oddinn og hefja undirbún- ing þjóðaratkvæða- greiðslu um málið. Evran, sem tekin var upp sem sameiginlegur gjaldmiðill í 12 Evrópulöndum 1999, tekur endanlega við af frönkum, mörkum og öðr- um þjóðargjaldmiðlum um áramótin og hverfa hinir gömlu smám saman úr umferð.  FULLTRÚAR bráða- birgðastjórnarinnar í Afg- anistan segja að stutt sé í að sigur vinnist á hryðju- verkasamtökum Osama bin Ladens, al-Qaeda. Gáfu fulltrúarnir í skyn á föstudag að þeir kynnu að biðja Bandaríkjamenn að stöðva loftárásirnar á austurhéruð landsins. Hamid Karzai, leiðtogi bráðabirgðastjórnarinnar, sór embættiseið fyrir viku í Kabúl.  HAMAS, samtök harð- línumúslíma í Palestínu, mótmæltu á fimmtudag harðlega öllum tilraunum stjórnar Yassers Arafats til að semja um frið við Ísraela og sagði í yfirlýs- ingu samtakanna að leggja bæri áherslu á þjóðareiningu og fram- hald baráttunnar gegn hernáminu. Ariel Sharon, forsætisáðherra Ísraels, krefst sem fyrr að Arafat beiti sér af meiri hörku gegn Hamas og öðrum samtökum er stunda hryðjuverk. HAFNARFJARÐARBÆR og Ísal hafa gert samning við ÍBH, sem felur í sér alls 24 milljóna króna fjárframlag til uppbyggingar íþrótta- starfs í Hafnarfirði fyrir börn og unglinga að 16 ára aldri. Samningurinn er til þriggja ára og byggist á gildandi samstarfssamningi Hafnarfjarðarbæjar og ÍBH. Með samkomulaginu fær íþróttahreyfingin í Hafnar- firði átta milljónir á ári til fyrrnefndrar uppbyggingar. Magnús Gunnarsson, bæj- arstjóri í Hafnarfirði, Rann- veig Rist, forstjóri Ísal, og Friðrik Ólafsson, formaður ÍBH, undirrituðu samning- inn. Samningurinn var undirritaður á föstudaginn. Talið frá vinstri: Óskar Ár- mannsson, framkvæmdastjóri ÍBH, Friðrik Ólafsson, formaður ÍBH, Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Rannveig Rist, forstjóri Ísal. Fjárframlag frá Hafnarfjarð- arbæ og Ísal Íþróttahreyfingin fær 24 milljónir Tekur sæti í stjórn Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins ÓLAFUR Ísleifsson, framkvæmda- stjóri alþjóðasviðs Seðlabanka Ís- lands, tekur um áramót sæti í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington DC um tveggja ára skeið. Verður hann aðalfulltrúi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í stjórninni og stýrir skrifstofu þeirra hjá sjóðnum. Er hann fjórði Íslendingurinn sem tekur sæti að- alfulltrúa í stjórninni í sögu sjóðs- ins sem spannar rúmlega hálfa öld. Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er skipuð 24 fulltrúum sem ýmist eru skipaðir eða kjörnir af aðildarríkjum sjóðsins sem eru 183 að tölu. Stjórnin fjallar um efna- hagsmál í einstökum löndum og heimsbúskap- inn og önnur mál sem snerta hið alþjóðlega fjár- málakerfi. Stjórnin tekur ákvarðanir um lánveiting- ar til einstakra aðildar- ríkja Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins. Ólafur Ísleifsson hefur stýrt al- þjóðasviði Seðlabankans frá 1991. Hann hefur starfað í Seðlabankanum frá 1983 með hléum meðan hann starfaði hjá Alþjóðagjald- eyrissjóðnum 1985–87 og var efnahagsráðgjafi ríkis- stjórnar Þorsteins Pálsson- ar 1987–88. Hann lauk BS- prófi í stærðfræði frá Há- skóla Íslands 1978 og MSc-prófi í hagfræði frá London School of Economics 1980. Ólafur er kvæntur og á einn son. Ólafur Ísleifsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.