Morgunblaðið - 30.12.2001, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 30.12.2001, Blaðsíða 36
MINNINGAR 36 SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ I. Það er á árum heimsstyrjaldarinnar síðari að u.þ.b. tvítugur sveitapiltur úr Rangár- þingi ræður sig til vertíðarstarfa í Keflavík. Vinna hans var fólgin í því að flytja ísaðan fisk í 100 kg kössum um borð í skip er síðan sigldu til Englands. Þetta voru þrældóms- tarnir enda var þá allt unnið með handaflinu einu saman. Þess á milli var alls ekkert að gera enda gæftir stopular og menn á meðan þá kaup- lausir. Ótrúlega margir létu sér þetta í „léttu rúmi liggja“ og sátu glaðbeittir yfir spilamennsku dag hvern fram á nætur. Sögupersóna okkar undi aðgerð- ar- og tekjuleysinu afar illa og eftir samfellt þriggja vikna atvinnuleysi var honum meira en nóg boðið. Hann fréttir þá af þriggja tonna trillu (Blikanum), sem var föl fyrir 16 þús- und kr. Nú voru góð ráð dýr. Hann fær tvo menn í „kompaní“ með sér. Þeir þrír fara með „rútu“ til Reykja- víkur, ganga á fund Ásgeirs Ásgeirs- sonar (síðar forseta Íslands), er þá var bankastjóri Útvegsbankans og fá þar lán til kaupa á bátnum og vegna væntanlegs útgerðarkostnað- ar. Nú mátti engan tíma missa, haf- ist var handa við að fella net og ann- að er að undirbúningi laut. Sjóveður gerðust betri. Enginn þeirra þekkti fiskimiðin og réðu þeir því til sín fjórða manninn. Skemmst er frá því að segja að útgerðin gekk vel en með „vitlausri vinnu og helvítis þræl- dómi“. Um vorið greiddu þeir allar sínar skuldir og áttu þó eftir afgang í peningum. Það er fullyrt að eftir ver- tíðarlok hafi þeir gefið, en ekki selt, bátinn bláfátækum fjölskyldumanni þar syðra. Að því loknu hraðaði sögupersóna okkar sér austur í átt- hagana. Þessi stutta yfirgripskennda frá- sögn segir okkur ótrúlega mikið um þennan, þá unga mann, hans innri eiginleika og eitthvað um það, hvers síðar mátti af honum vænta. Það, að hann unir ekki aðgerðarleysinu segir að hann er mikill starfsáhugamaður, JÓN BJARNASON ✝ Jón Bjarnasonfæddist í Hrafn- tóttum í Djúpár- hreppi 5. nóvember 1923. Hann lést á heimili sínu 11. febr- úar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Stórólfshvols- kirkju 17. febrúar. hann sættir sig ekki við tekjuleysið og sýnir það að hann er „afla- maður“ sem vill koma sér áfram í lífinu. Hann fréttir af trillunni og vill kaupa hana, það sýnir að hann fylgist vel með, er opinn fyrir þeim möguleikum sem bjóðast og er stórhuga. Hann fær aðra í lið með sér og er það vegna þess að hann á auðvelt með að hafa áhrif á aðra – hefur persónu- legt aðdráttarafl. Hann hefur kjark og áræði, annars hefði hann aldrei gengið á fund banka- stjórans. Hann ræður til þeirra fjórða manninn til þess að þeir gætu lært á miðin, það sýnir að hann er greindur og ráðsnjall. Og sá sem gat þrælað svona við sjálft fiskiríið hlaut að búa yfir miklu úthaldi og frábær- lega góðu líkamlegu atgervi. Það, að báturinn er gefinn snauðum manni, sýnir að hér fóru óvenjuleg góð- menni. Hvers vegna sögupersóna okkar kom ekki oftar nálægt útgerð og fiskveiðum er nokkurt umhugs- unarefni. Kannski leit hann á það sem fyrirboða, vísbendingu „hulinna afla“ um að snúa sér að öðru, að í síð- asta róðrinum bilaði vélin, en þeir orkuðu með árum og afli handanna að ná landi í Garðinum. Líklegra tel ég þó, að hann hafi fundið, að hann var ekki „fæddur“ inn í hlutverk sjó- sóknarans, að hann var sveitamaður í húð og hár. Nú kunna menn að spyrja, hver var hann þessi maður og hvernig nýttust honum síðar á lífsleiðinni all- ir þessir áðurnefndu eiginleikar. Því verður best svarað með því að líta yf- ir lífsferil hans en áður en það er gjört skal frá segja hvaða ættstofnar það voru sem að honum stóðu. II. Sögupersóna okkar er Jón Bjarnason, síðar bóndi í Dufþaks- holti. Hann fæddist 5. nóvember 1923 á Hrafntóftum, á þeim stað þar sem Ketill hængur, fyrsti landnáms- maður í Rangárþingi, hafði setu hið fyrsta misseri sitt á Íslandi. Móðir Jóns var Pálína Margrét (1893–1970) dóttir Þorsteins bónda á Hrafntóftum, Jónssonar, Jónssonar eldra, Þorkelssonar sem fæddur var 1768. Allir þessir langfeðgar, fjórir að tölu, bjuggu á Hrafntóftum og sýnir það hversu þetta fólk var „samgróið“ óðali sínu og uppruna. Þorsteinn á Hrafntóftum var merk- isbóndi, bókelskur og áhugamaður um dulræn efni. Rafn bróðir Pálínu var söngmaður góður og heljar- menni að afli á yngri árum. Faðir Jóns í Dufþaksholti var Bjarni bóndi í Álfhólum. Amma Bjarna var Þorbjörg Jónsdóttir sem var ljósmóðir í Landeyjunum 1835– 1871. Þær eru fleiri ljósmæðurnar í ætt þessari m.a. merkis- og mynd- arkonan Jónína Jónsdóttir á Keld- um. Faðir Bjarna í Álfhólum var Jón í Álfhólum, sonur Nikulásar í Sleif, Eiríkssonar í Álfhólum o.v. fæddum 1755. Móðir Eiríks var Þorbjörg dóttir Guðmundar á Strönd í Land- eyjum, Stefánssonar lögrm. (þ.e lög- réttumanns = alþingismanns) í Skipagerði, Jónssonar s.st. (sama stað), Þorleifssonar yngra lögrm. á Stórólfshvoli, Ásmundssonar lögrm. s.st fyrir aldamótin 1600. Ætt Ás- mundar hefur verið rakin til Odda- verjans Filippusar Sæmundssonar, goðorðsmanns á Stórólfshvoli. Fil- ippus var flæmdur í ginið á Hákoni Noregskonungi árið 1249, þegar konungur, studdur senditíkum sín- um, var að sölsa undir sig landið og brjóta niður hið forna ættasamfélag goðorðanna. Af öllu þessu má sjá að sterkir rangæskir stofnar stóðu að Jóni, með eiginleika sem borist hafa frá kynslóð til kynslóðar. Þeir nánustu frændur hans og forfeður í Álfhólum voru búmenn miklir, sumir formenn á áraskipum við Landeyjasand, smiðir ágætir, opnir fyrir nýrri verk- menningu, vandvirkir, harðskeyttir framkvæmdamenn, kappsamir hug- menn, hraustmenni en drengir hinir albestu gagnvart ættmennum og al- þýðu manna. Trygglyndir. Fyrirlitu þá er gerðu á hlut þeirra og fyrirgáfu þá seint eða aldrei. Skapfastir. Gátu verið orðhvatir. Það eykur mönnum skilning á persónu Jóns og lífsferli öllum, ef þeir þekkja og hafa í huga þessar fornu ættarfylgjur Álfhóla- kynsins sem nú hafa verið nefndar. III. Þegar Jón er á öðru árinu hefja foreldrar hans búskap í Álfhólum, fyrst í félagi við afa hans og ömmu en síðar sjálfstætt. Ætla mátti að lífið og framtíðin hafi blasað við ungu hjónunum en sumt fer öðru vísi en við er búist. Ógæfan dundi yfir, því á Þorláksmessu 1928 andast Bjarni úr bráðri lungnabólgu sakir ofkæling- ar. Þá voru börnin orðin þrjú að tölu og það fjórða á leiðinni. Þá var Jón fimm ára. Á okkar tímum allsnægtanna kiknar fólk oft gagnvart lífsafkom- unni, en á þessum tíma var ekki til neitt sem hét „barnabætur“ og fé- lagsleg aðstoð var tíðum fólgin í því að heimili voru leyst upp og börnin gerð að niðursetningum hjá þeim sem lægst bauð. („Útboð“ hins frjálsa markaðar.) Pálína lætur ekki slíkt yfir sín börn ganga; hún heldur áfram búskap, fyrst í fáein ár í Álf- hólum og ég geri ráð fyrir því að hún hafi þar notið aðstoðar tengdafor- eldranna. Vorið 1933 flytur fjölskyldan frá Álfhólum og að Hrafntóftum I (sem var í eigu Þorsteins föður Pálínu, en hafði þá losnað úr ábúð Önnu og Jóns foreldra Ingólfs, síðar alþing- ismanns og ráðherra). Hún og Guð- mundur Þorsteinsson frá Berustöð- um hefja þar búskap og giftust svo um haustið. Jón er þá níu ára. Föðurlaus hafði hann ekki „gengið með neina silfur- skeið í munninum“. Þessi fyrstu ár kunna að hafa sett það mark á Jón að hann var aldrei maður uppgjafar eða úrræðaleysis. Á barnsaldri kynntist hann því líka hvað vinna var, enda varð hann starfs- og atorkumaður svo lengi sem líkamleg heilsa leyfði. Þegar hann var á barnsaldri stóðu yfir miklar áveituframkvæmdir neð- an Bjóluhverfis, í Safamýri. Þar vann Rafn móðurbróðir hans við torfristu en hann sjálfur 13-14 ára gamall við að stinga sniddur í garð- hleðslu. Um 16 ára aldur er hann um fárra mánaða skeið í Íþróttaskólanum í Haukadal. Auk íþrótta og sunds kenndi Sigurður Greipsson náms- mönnum bóklegar greinar. Ætla má að í þeim fangbrögðum – „áflogum“ – sem við Íslendingar nefnum „glímu“ hafi Jóni enn aukist sjálfs- traust við að finna vaxandi afl sitt og styrk. Þá var Jón eina vertíð í Þorláks- höfn og reri á því sama skipi sem Rafn móðurbróðir hans var áður á. Hann hélt til í gamla torfbænum í Þorlákshöfn og svefnplássið var grjótbálkur sem hann varð að deila með öðrum manni. En „atlæti var gott og nóg að éta“. Það sýnir hve Jón var „vel lifandi“ og opinn fyrir hinu óþekkta, að í landlegum, þegar aðrir ýmist sátu við spil eða lágu fyr- ir, þá lærði hann ýmislegt eins og t.d. það að fella net (það kom sér síðar vel, þegar hann og félagar keyptu Blikann sem fyrr er frá sagt). Það var þarna í Þorlákshöfn sem hann vann í fyrsta skipti fyrir kaupi sem hann fékk í eigin hendur. Þessi sumur mun Jón hafa unnið við heyskap á búi móður sinnar og Guðmundar en um stjúpföður sinn lét hann síðar falla hin hlýjustu orð. („Kannske var hann dálítið vinnu- harður, en það voru líka allir dug- andi menn.“) Um eða innan við tvítugt var hann í vegavinnu eins og þá var títt um margan manninn. Þá var verið að hlaða upp veginn austur frá Hvols- velli. Unnið var með handverkfær- um og er það undirstaða þess vegar sem nú liggur, þar sem þjóðvegur 1 er með bundnu slitlagi. Seinna haustið komust þeir austur að Dufþaksholtsafleggjaranum en urðu þar að hætta í nóvember, því þá var komið harðafrost. Tæpast mun Jón þá, þótt forspár væri, hafa boðið í grun, að vegur þessi lægi um lendur, sem síðar yrðu hans „konungdæmi“. Haustið 1944 hóf Jón nám í Hér- aðsskólanum á Laugarvatni og kann að hafa ráðið einhverju þar um að móður hans var mjög um það hugað að þau systkinin færu til frekara náms. Sýnir sú afstaða hennar, hve „næm“ hún var á þá tíma sem í vændum voru. Jón bar mikið lof á skólann og hugðist stunda þar nám næsta vetur. Af því varð ekki, því um sumarið fer hann að vinna við tré- smíðar á Laugarvatni, ílengist hjá trésmíðameistaranum og fylgir hon- um til Reykjavíkur. 1945-1949 býr hann í Reykjavík, stundar trésmíðar og tekur jafnframt Iðnskólann. Enn- fremur kaupir hann stóran vöru- bílstrukk og hefur af honum ein- hverja atvinnu. Vorið 1949 verða örlagaríkar breytingar í lífi Jóns, því þá flytur hann austur í Rangárþing, það hér- að, þar sem forfeður hans og for- mæður höfðu búið um aldir. „Andi“ hans leitaði í átthagana. Hann setur sig niður á Hvolsvelli og reisir þar stórt trésmiðjuhús. Trésmiðju rekur hann þar með Þorsteini bróður sín- um og Jóni Bárðarsyni. (Nafnið „Hamilton“ festist við húsið, þar var síðar „Hagkjör“ og loks Trésmiðjan Ás). Þeir vinna alla almenna trésmíði fyrir þá sem til þeirra leita, annast viðhald eldri húsa og reisa ný mann- virki m.a. verkstæðishús KR. (Þar sem nú er KR-þjónustan.) Til að skjóta frekari rótum undir afkom- una voru þeir auk þess með stór- fellda kartöflurækt í einhver ár. Þegar Þorsteinn hóf búskap á Hrafntóftum slitu þeir „kompaníinu“ og seldu verkstæðið. Þá gengu þeir til samstarfs Jón og svili hans, Ágúst Ólafsson frá Álftarhóli. Þeir reisa og steypa upp fjölmörg íbúðarhús og útihús um alla Rangárvallasýslu. Samstarf þeirra varð með ágætum, enda báðir afbragðsmenn og sam- hentir. Frægt varð þegar þeir slógu upp mótum, náðu í steypumölina og steyptu upp heila heyhlöðu í Sigluvík – allt gert í einni lotu á tæpum sólar- hring. (Hvað skyldi núna fara mikill kostnaður í mælingar, leyfisbeiðnir, teikningar og aðra skriffinnsku áður en hefja mætti slíka framkvæmd?). IV. Á árunum upp úr 1950 voru vinnu- staðir og mörg heimili án síma og farsíminn kom ekki til sögunnar fyrr en löngu, löngu síðar. Þyrftu menn að hringja fóru þeir á símstöðina og pöntuðu símtal. Eins þurfti stundum að koma boðum til fólks, þegar óskað var eftir símtali við þá sem símalaus- ir voru. Þá vann á símstöðinni í Hvolsvelli ung stúlka, María Guð- mundsdóttir frá Núpi undir Eyja- fjöllum. Þegar beðið var um Jón í símann kom það jafnan í hennar hlut að „skokka“ út á verkstæði og til- kynna að síminn væri til Jóns og svo var hún óðar snúin til baka. Jón hraðaði sér á símstöðina og hann horfði á eftir henni þar sem hún „flaug“ yfir móann og hugsaði „mik- ið er þetta eitthvað myndarleg stúlka“. ... Þar kom, að „hugir þeirra féllu saman“ og með þeim tókust ást- ir. Nú var farið í það að innrétta íbúð (eitt herbergi og eldhús) í öðrum enda trésmiðjunnar og þar fæddust fjögur fyrstu börnin. Hætt er við að konunni, sem vön var kyrrðinni und- an Eyjafjöllum hafi stundum þótt nóg um hávaðann frá trésmíðavélun- um hinum megin við vegginn og hamarshögg þess á milli. En ráð- deildarfólk lagði ýmislegt á sig á meðan verið var „að koma undir sig fótunum“. (Það er öðru vísi en hjá sumum ungum konum sem heimta nýja íbúð strax í upphafi sambúðar og helst nýjan bíl að auki.) Þetta hafa verið dásemdartímar í lífi Jóns. Nú var hann kominn með fjölskyldu og hann þurfti ekki að fara í gegnum nema einar dyr til að komast í mat og kaffi og hverju sinni sem hann birtist hefur honum áreið- anlega verið vel fagnað. María var fædd 15. september 1931. Hún var systir Guðmundar glímukappa á Núpi undir Eyjafjöll- um. Móðir þeirra var Sigríður (1898– 1981) dóttir Sigurðar, óðalsbónda á Núpi, Ólafssonar er líka bjó á Núpi og var fæddur 1830. Faðir Maríu var Guðmundur, bóndi á Núpi, sonur Árna á Lágafelli, Jónssonar s.st, Árnasonar á Galtalæk í Landsveit. (Galtalækjarætt, Reynifellsætt). Þeirrar ættar eru Þverlækjarmenn í Holtum, Kjartan í Hjallanesi, Minni- vallasystkin, Hvammsmenn og Skarðsfólk í Landsveit. Einkenni þessa fólks þótti löngum vera mikil vinnusemi, búhyggja og ráðdeildar- semi. Mér er sagt að María hafi verið „góð kona, með mjög ljúft lunderni og aldrei hallmælti hún fólki“. Henni er ennfremur svo lýst að hún hafi verið „einstaklega vinnusöm“ enda gekk hún bæði í úti- og inniverk. „Ekki hversdagslega málgefin, en þegar hún talaði, þá var það af greind og visku og á allt var hlustað sem hún sagði og tillit var tekið til orða hennar.“ „Umhverfis hana skapaðist andrúmsloft mildi, en þó festu.“ Börn Jóns og Maríu eru: 1) Pálína Björk f. 1952, kennari og varaoddviti í Hvolhreppi. Hún býr í Dufþaks- holti. 2) Sigríður f. 1954, sjúkraliði, maki Páll B. Valgeirsson fisktæknir. Þau búa á Selfossi. 3) Þórunn f. 1955, leikskólakennari, maki er lands- kunnur rithöfundur Einar Már Guð- mundsson. Þau búa í Reykjavík. 4) Guðmundur f. 1958, bóndi, maki er Erla dóttir Hlöðvers Filippusar á Hellum í Landsveit. Þau búa á Sámsstöðum. 5) Guðrún f. 1963, bóndi, maki Garðar Guðmundsson. Þau búa í Hólmi í Landeyjum. 6) Bjarndís f. 1964, skrifstofumaður, maki Gunnar E. Sverrisson raf- virkjameistari. Þau búa í Reykjavík. 7) Bjarni Haukur f. 1977, bóndi, maki Ragnheiður Kristjánsdóttir. Þau búa í Dufþaksholti. Jón var stoltur af börnum sínum og hann mátti líka vera það. Tengda- börnin hafði hann í hávegum. V. Árið 1955 kaupa þeir svilarnir og samstarfsmennirnir, Jón og Ágúst, Stóra-Moshvolinn, sem þá hafði staðið í eyði um margra ára skeið. Þeir skipta jörðinni að endilöngu frá norðri til suðurs og draga um jarð- arpartana. Jón dró vesturhlutann og varð það honum heillaríkt m.t.t. þess sem gerðist í búskaparsögu hans síð- ar. Fljótlega byggir Jón þar hey- hlöðu en þau María byrjuðu þar strax með sauðfé. Fáum misserum síðar var þar byggt 200 kinda fjár- hús. Árið 1959 er Dufþaksholtið laust til leiguábúðar (báðar jarðirnar). Margir voru um boðið og var Jón meðal þeirra sem lögðu inn umsókn. Þá er það nótt eina að Þorkell frá Miðkrika birtist honum í draumi og segir, „þú færð jörðina“. Og það Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Opið til kl. 19 öll kvöld Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.