Morgunblaðið - 03.02.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.02.2002, Blaðsíða 1
MORGUNBLAÐIÐ 3. FEBRÚAR 2002 28. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 Hvönnjurt erkiengilsins 20 Stöðnun í Reykjavík undir stjórn R-listans í j í i j -li 10 „Fálkarnir um alla framtíð Málverk af Ó og heimsmei Fálkanna frá peg í Kanada hokkíi verðu hjúpað á sýn „Íslandshúsin Lake City í B ríkjunum í te við Vetraróly íuleikana, sem settir í borgin febrúar nk. S Guðbjartsso aði verkið í W og gluggaði í sögu liðsins s skipað leikm af annarri ky Íslendinga í V urheimi og þ að líða fyrir upprunann./ Morgunblaðið/Steinþór ferðalögSkíðagönguferðirbílarCorolla T-SportbörnFrumsamdir brandararbíó Jean R Sælkerar á sunnudegi Eggjakaka skækjunnar Landsað gangur a rafrænu gagnasöf þykir ein Prents Morgunbla Sunnudagur 3. febrúar 2002 B 14 Snillingur á ferð PAKISTANSKIR lögreglumenn leituðu í fyrrinótt í grafreitum að vísbendingum um örlög bandaríska blaðamannsins Daniels Pearls, sem íslömsk öfgasamtök rændu í Kar- achi fyrir rúmum tíu dögum. Lög- reglan sagði í gær að ekki væri tal- ið að Pearl, sem starfar fyrir The Wall Street Journal, hefði verið tekinn af lífi, eins og fullyrt var í tölvuskeyti sem sent var til banda- rísku sjónvarpsstöðvanna CNN og Fox á föstudaginn. Í skeytinu sagði að lík blaðamannsins hefði verið skilið eftir í grafreit. Í gær barst svo stutt skeyti frá sama sendanda, þar sem sagt var að Pearl hefði ekki verið líflátinn. Skeytið var óundirritað og í því var beðist afsökunar á fyrra skeyti þar sem sagt var að Pearl yrði líflátinn ef ekki yrði orðið við kröfum ræn- ingja hans fyrir tiltekinn tíma. Misvísandi fregnir bárust á föstudaginn af örlögum blaða- mannsins. Þá var hringt í banda- rísk yfirvöld og krafist tveggja milljóna dollara lausnargjalds fyrir Pearl og að fyrrverandi sendiherra afgönsku talibanastjórnarinnar í Pakistan yrði látinn laus. En í áð- urnefndu tölvuskeyti til Fox og CNN sagði að Pearl hefði þegar verið tekinn af lífi vegna þess að ekki hefði verið orðið við kröfum sem áður höfðu verið settar fram. Reuters Leitað í grafreitum í Karachi MIKIL spenna ríkti í Argentínu í gær eftir að forsetinn, Eduardo Duhalde, hafði gagnrýnt harðlega hæstarétt landsins og varað við yf- irvofandi stjórnleysi. Hæstiréttur Argentínu hefur úr- skurðað að þær efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar að takmarka rétt manna til að taka út fé af banka- reikningum sínum gangi gegn stjórnarskrá landsins. Þessi úr- skurður lá fyrir skömmu áður en ríkisstjórnin hugðist ljúka gerð sér- stakrar neyðaráætlunar vegna þess ófremdarástands sem ríkir í efna- hagsmálum Argentínu. Hafði verið ráð fyrir því gert að sú áætlun yrði kynnt síðdegis í gær, laugardag. Þess í stað lýsti Duhalde forseti yfir því að áætluninni hefði verið frestað. Bankar yrðu lokaðir á mánudag og þriðjudag til að koma í veg fyrir að almenningur flykktist þangað til að taka út sparifé sitt. „Mikil hætta steðjar nú að þjóð- inni. Argentína rambar á barmi stjórnleysis,“ sagði Duhalde á blaða- mannafundi. „Ég óttast að bankarn- ir geti ekki borgað út og að Seðla- bankinn stöðvi rekstur þeirra. Ef þessi sprengja springur verður sparifjáreigendum ekki einungis ókleift að taka út peninga sína held- ur mun kerfið allt hrynja.“ Mikill fjöldi fólks fór um götur helstu borga Argentínu á föstudag og í gær berjandi potta og pönnur líkt og hefð er fyrir þegar bágu efna- hagsástandi og atvinnuleysi er and- mælt. Í höfuðborginni, Buenos Air- es, safnaðist fólk saman við forsetahöllina og krafðist afsagnar Duhalde. Ríkisstjórnin hóf að takmarka út- tektarheimildir sparifjáreigenda í desembermánuði til að hefta fjár- magnsflótta sem þá var hafinn sök- um efnahagsástandsins. Þessar ráð- stafanir hafa mælst ákaflega illa fyrir og skapað mikla spennu í Arg- entínu. Áætlun Duhalde forseta er hins vegar ein helsta forsenda þess að Argentínumönnum lánist að fá aðstoð alþjóðlegra stofnana, ekki síst til að létta skuldabyrðina erlend- is. Argentína sögð ramba á barmi stjórnleysis ARIEL Sharon, forsætisráðherra Ísraels, gaf hvergi eftir á fyrsta fund- inum sem hann hefur haldið með pal- estínskum fulltrúum síðan hann tók við embætti í fyrra, og sagði að engir pólitískir samningar yrðu gerðir fyrr en ofbeldisverkum linnti, að því er ísr- aelska ríkisútvarpið greindi frá í gær. Talsmaður Sharons vildi ekkert segja um fundinn, þegar AFP leitaði fregna hjá honum, og lét aðeins hafa eftir sér að forsætisráðherrann hvik- aði ekki frá þeirri afstöðu sinni „að hefja ekki viðræður á meðan Palest- ínumenn stunda ofbeldisverk“. Ríkisútvarpið í Ísrael greindi frá því á föstudaginn að Sharon hefði átt leynilega fundi með þrem háttsettum Palestínumönnum sl. miðvikudag í Jerúsalem. Palestínumennirnir þrír eru Ahmad Qorei, forseti þings Pal- estínumanna, Mahmud Abbas, næst- æðsti maður Frelsissamtaka Palest- ínu (PLO), og Mohammad Rashid, efnahagsráðgjafi Yassers Arafats, forseta heimastjórnar Palestínu- manna. Útvarpið sagði í gær, að fundurinn hefði farið fram að veittu samþykki Arafats, og að fulltrúar Palestínu- manna hefðu síðar gefið honum skýrslu um viðræðurnar. Þá sagði út- varpið að palestínsku fulltrúarnir hefðu krafist þess, að Ísraelar létu af þeirri stefnu sinni að ráða af dögum palestínska aðgerðasinna, hættu inn- rásum á sjálfstjórnarsvæði Palestínu- manna, leyfðu Arafat að fara frjálsum ferða sinna (hann hefur verið í herkví Ísraela í Ramallah síðan í desember) og opnuðu leiðir til og frá palestínsk- um landsvæðum. Sharon hefði brugðist við kröfum þeirra með því að segja að Ísraelar myndu hætta að ráða Palestínumenn af dögum og opna leiðir til palest- ínskra svæða þegar heimastjórn Pal- estínumanna „setur hryðjuverka- menn á bak við lás og slá“. Ísraelar myndu leyfa Arafat að fara frjálsum ferða sinna þegar morðingjar Rehav- ams Zeevis, fyrrverandi ferðamála- ráðherra Ísraels, er ráðinn var af dög- um í ágúst, hefðu verið handteknir. Þá kom fram í frétt útvarpsins, að Sharon hefði þekkst boð Palestínu- manna um að halda viðræðum áfram er hann kæmi frá Bandaríkjunum, þar sem hann mun funda með George W. Bush forseta á fimmtudaginn. Í blaðaviðtölum, sem birt voru á föstudaginn, sagði Sharon að hann hefði engin áform um að „láta upp- ræta Arafat“. Sharon hafði sagt í við- tali, sem ísraelska blaðið Maariv birti á fimmtudaginn, að hann iðraðist þess að hafa ekki látið ráða Arafat af dög- um fyrir 20 árum í Líbanon. Í gær hafði blaðið eftir Sharon: „Núna höf- um við engar áætlanir um að uppræta Arafat eða leysa upp palestínsku heimastjórnina, því að það væri ekki gott fyrir Ísrael.“ Sharon fundar á laun með Palestínumönnum Jerúsalem. AFP. Ariel Sharon segist nú ekki hafa nein áform um að „uppræta“ Yasser Arafat.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.