Morgunblaðið - 16.02.2002, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.02.2002, Blaðsíða 14
SUÐURNES 14 LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Stefán Jóhann Stefánsson er góður kostur í 3. sæti Samfylkingarinnar í Reykjavík Niðurstaða Fréttablaðsins í frétt 15. febrúar sl. er m.a. þessi: „Stefán Jóhann nýtur mikils trausts meðal þeirra sem þekkja til hans og hafa starfað með honum.“ Stefán Jóhann hefur starfað í húsnæðisnefnd, félagsmálaráði, verið formaður Samfylkingar- innar í Reykjavík og starfað að íþróttamálum á undanförnum árum. Hann leitar eftir stuðningi í þriðja sætið í próf- kjöri Samfylkingarinnar. Kosning fer fram laugardag og sunnudag frá kl. 10-17 á Hótel Vík, Ingólfstorgi. SKILANEFND sem skipuð var vegna úrsagnar Vatnsleysustrand- arhrepps úr Hafnasamlagi Suður- nesja náði ekki samkomulagi um skiptingu eigna og skulda samlags- ins og hefur nú verið ákveðið að leita eftir tilnefningu stjórnar Lög- mannafélags Íslands á oddamanni í nefndina. Reykjanesbær, Gerðahreppur og Vatnsleysustrandarhreppur mynda Hafnasamlag Suðurnesja (HASS). Hreppsnefnd Vatnsleysustrandar- hrepps sagði sig úr samlaginu í lok ársins 2000 og átti úrsögnin að taka gildi í lok síðasta árs. Undanfarna mánuði hefur starfað skilanefnd með tveimur fulltrúum frá hverjum sameiganda en hún hefur það hlut- verk að ákveða hvaða eignir og skuldir Vatnsleysustrandarhreppur á að taka með sér út úr Hafna- samlaginu. Sjónarmið fulltrúanna hafa ekki farið saman, meðal annars vegna mismunandi túlkunar á tveimur ákvæðum stofnsamnings Hafnasamlagsins sem taldar eru misvísandi. Sjónarmið fulltrúa minni eigendanna, Vatnsleysu- strandarhrepps og Gerðahrepps, hafa verið öndverð sjónarmiðum fulltrúa Reykjanesbæjar í skila- nefndinni. Samkvæmt stofnsamningi á skila- nefndin að leggja til grundvallar eigna- og skuldastöðu hafnasjóð- anna í loks árs 1996, þegar þeir sameinuðust, og taka tillit til fram- kvæmda á hverjum stað frá þeim tíma svo og skuldbindingum vegna þeirra. Höfnin í Garði var nánast skuldlaus þegar hún rann inn í HASS og lítið hefur verið fram- kvæmt þar. Samkvæmt því ætti Gerðahreppur að fá eignirnar í Garði og taka á sig um 16 milljónir af skuldum Hafnasamlagsins, ef hann kýs að segja sig úr því. Meira hefur verið framkvæmt í Vogum og þarf Vatnsleysustrandar- hreppur að taka á sig um 46 millj- ónir, samkvæmt þessu ákvæði stofnsamningsins. En málið er ekki svona einfalt. Hafnasamlagið hefur verið rekið með miklu tapi frá upphafi, rúmlega 100 milljónum á ári, og nærri því tvöfaldað skuldir sínar frá stofnun. Skuldir eru nú um 1.100 milljónir en voru um 600 milljónir við stofnun samlagsins. Í stofnsamningi er kveðið á um að ef eigendur þurfi að leggja hafnasamlaginu til aukið eig- ið fé vegna taprekstrar skuli það gert í hlutfalli við íbúatölu þeirra. Það hafa eigendurnir ekki gert og þess í stað kosið að láta fyrirtækið safna skuldum. Eigendurnir hafa leitað eftir álit- um lögmanna og endurskoðenda, frá þremur eða fjórum aðilum, og eru þau misvísandi enda ákvæði stofnsamningsins loðin. Sérstaklega er túlkun síðarnefnda ákvæðsins á reiki. Sem dæmi um mismunandi mat ráðgjafanna má nefna að sam- kvæmt einu álitinu ber Gerðahreppi að taka yfir 16 milljónir af skuldum samlagsins, í öðru 56 milljónir og rúmar 100 milljónir samkvæmt því þriðja. Með sama hætti telur Vatns- leysustrandarhreppur sig þurfa að taka yfir rúmar 46 milljónir og vísar þar í lögfræðiálit, samkvæmt öðru áliti er hann talinn bera ábyrgð á rúmum 68 milljónum og 91 milljón samkvæmt þriðja áliti ráðgjafa. Þrautreynt um samkomulag Nú er orðið ljóst að samkomulag næst ekki með fulltrúum sveitarfé- laganna í skilanefndinni. Í samræmi við ákvæði stofnsamnings hafa þeir því ákveðið að leita til stjórnar Lög- mannafélags Íslands um skipun hlutlauss oddamanns í nefndina. Þrautreynt að ekki næst samkomulag í skilanefnd HASS Ákveðið að leita eftir skipun oddamanns Reykjanesbær/Garður/Vogar ELDRI borgurum í Sandgerði er boðið í afmælisveislu veitingahússins Vitans næstkomandi sunnudag kl. 15. Vitinn á tuttugu ára afmæli um þessar mundir og minnast eigendur hans tímamótanna meðal annars með þessu boði. Kaffiveitingar verða og ýmislegt til gamans gert, sungið, dansað og sagðar sögur. Meðal þeirra sem koma fram eru Ingvar Hólm- geirsson harmonikkuleikari, Kristján Þorkelsson trommuleikari, Torfi Ólafsson gítarleikari og Einar Örn Einarsson söngvari og sagnamaður. Eldri borgarar í afmælisveislu Sandgerði MEIRIHLUTI bæjarráðs Grinda- víkur hefur samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að veittur verði 25% afsláttur af lóðarleigu á íbúðarhús- næði á landi Grindavíkurbæjar. Bæjarráð Grindavíkur hefur á tveimur fundum fjallað um erindi Verslunarmannafélags Suðurnesja og Verkalýðsfélags Grindavíkur um verðlagsaðhald. Í bréfi þess síðar- nefnda er gerð krafa um að Grinda- víkurbær axli sína ábyrgð á því að markmið um lækkun verðbólgu og kaupmátt launa nái fram að ganga. Í tillögu sem fulltrúar Sjálfstæð- isflokks og Framsóknarflokks lögðu fram í bæjarráði er ma. minnt á að gjaldskrár hafi ekki verið hækkaðar og því ekki unnt að draga neinar hækkanir til baka. Einnig er minnt á að útsvarsprósenta hafi ekki verið hækkuð, að álagningarprósenta fast- eignaskatts hafi verið lækkuð um meira en sem svarar þeim breyting- um sem leiddu af kerfisbreytingu hjá Fasteignamati ríkisins á síðastliðinu sumri og að álagningarprósenta lóð- arleigu hafi verið lækkuð um 22%. Samtals þýði þessar lækkanir 8,2 milljóna króna tekjutap fyrir bæinn. „Til þess að koma ennfrekar til móts við íbúðareigendur í Grindavík leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að veittur verði 25% afsláttur af álagðri lóðarleigu á íbúðarhúsnæði á lóðum í eigu Grindavíkurbæjar. Bæjarstjóra verði falið að gera til- lögu að framkvæmd málsins og leggja fyrir bæjarráð. Með þessum aðgerðum telja flutningsmenn að færð hafi verið til baka til íbúanna sú hækkun lóðarleigu er leiddi af kerf- isbreytingu hjá Fasteignamati ríkis- is sl. sumar,“ segir í tillögunni. Fulltrúi Grindavíkurlistans sat hjá en hann lagði til að lóðarleigugjöld á íbúðarhús yrðu lækkuð sem nemur hækkun á mati lóðar. Fjórðungs- afsláttur af lóðarleigu Grindavík LIONS- og Lionessuklúbbarnir á Suðurnesjum og Kvenfélag Kefla- víkur hafa fært Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í Keflavík nýtt skurð- arborð að gjöf. Hugmyndir eru uppi innan stofnunarinnar að færa skurðstofuna í nýju D-álmuna. Skurðarborðið kemur í stað sex- tán eða sautján ára skurðarborðs sem þótti gott á sínum tíma. Það gafst hins vegar upp tveimur dög- um eftir að nýja skurðarborðið var sett upp. Konráð Lúðvíksson yf- irlæknir sagði við athöfn þegar Lionsfólk og kvenfélagskonur af- hentu gjöfina með formlegum hætti að hún gjörbreytti allri vinnuað- stöðu á skurðstofunni. Hann sagði að borðið væri af nýjustu og full- komnustu gerð skurðarborða sem nú væru framleidd. Verðmæti gjaf- arinnar er rúmar fjórar milljónir kr. Við athöfnina kom fram hjá Kon- ráð og Jóhanni Einvarðssyni, fram- kvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, að skurðstofan væri í ófullnægjandi húsnæði í gamla sjúkrahúsinu. Þar vantaði betri að- stöðu fyrir starfsfólk og sjúklinga. Jóhann segir að áætlað sé að það kosti um 50 milljónir kr. að koma endurbæta húsnæði skurðstofunn- ar. Þyrfti þá að loka skurðstofunni í nokkra mánuði á meðan slíkar framkvæmdir stæðu yfir og því mætti sjúkrahúsið ekki við og allra síst fæðingardeildin. Hins vegar hafi komið upp sú hugmynd að innrétta tvær skurð- stofur sem sjúkrahúsið ætti nú flest tæki í og legudeild fyrir aðgerð- arsjúklinga á þriðju hæð nýrrar D- álmu sjúkrahússins. Sú hæð er óinnréttuð en hefur verið hugsuð fyrir langlegusjúklinga. Jóhann segir að í staðinn yrði hægt að taka samsvarandi rými í gamla sjúkra- húsinu fyrir langlegusjúklinga. Hann segir að kostnaður við þessa aðgerð hafi ekki verið metin en stjórnendur sjúkrahússins legðu áherslu á að stefnan yrði mörkuð um það hvor leiðin yrði farin þótt þeir gerðu sér grein fyrir því að einhver tími gæti liðið þar til kæmi að því að fjármagn fengist til fram- kvæmdarinnar. Vilja flytja skurð- stofu í D-álmu Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Konráð Lúðvíksson yfirlæknir sýnir nýja skurðarborðið. F.v. Jóhann Einvarðsson framkvæmdastjóri, María Sverrisdóttir svæfingarlæknir, kvenfélagskonurnar Sigurbjörg Sigfúsdóttir, Helga Valdimarsdóttir og Sólveig Jónsdóttir og til hægri er Kristján Pálsson, svæðisstjóri Lions. Keflavík LEIKSKÓLASTJÓRI og foreldra- félag leikskólans Tjarnarsels við Tjarnargötu í Keflavík hafa vakið at- hygli bæjaryfirvalda á hættu af völd- um hraðrar umferðar við leikskólann og óskað eftir úrbótum. Í bréfi leikskólastjóra Tjarnarsels til bæjarráðs Reykjanesbæjar er vakin athygli á því að aðgengi að skólanum er ekki gott. Mikil umferð og umferðarhraði sé við hann. Bíla- stæði fá og oft myndist kraðak við anddyri leikskólans. Telur leikskóla- stjórinn að mikil slysahætta myndist á háannatímum, þegar foreldrarnir komi með börnin og sæki þau. Óskar hún eftir umfjöllun og að viðunandi lausn verði fundin. Stjórn Foreldrafélags Tjarnarsels óskar beinlínis eftir því að hámarks- hraði á Tjarnargötu verði lækkaður, frá Hringbraut og að minnsta kosti að Vallargötu. Fram kemur í bréfi stjórnarinnar til bæjarstjórnar að mikil og hröð umferð bíla sé um göt- una þar sem foreldrar séu að hleypa börnun sínum inn og út úr bílum sín- um. Lítið þurfi að gerast til að slys verði. Þá óska foreldrarnir eftir að bílastæðin framan við leikskólann verði merkt á ská út frá gangstétt en ekki samhliða henni, þannig leggi flestir nú þegar enda komist fleiri bílar þannig að. Vekja at- hygli á slysa- hættu við Tjarnarsel Keflavík LIONSMENN í Sandgerði hafa unnið að því að endurgera Efra- Sandgerði sem er elsta hús bæj- arins og er því verki sem næst lok- ið. Hafsteinn Guðnason, formaður Lionsklúbbs Keflavíkur, kom ný- lega á fund í Sandgerði og afhenti klúbbnum meðfylgjandi mynd sem tekin er úr vitanum á árinu 1948. Myndin er tekin eftir Tjarnargötu. Fremst á myndinni sést í versl- unarhúsið sem brann 1953 og á þök fiskverkunarhúss og salthúss. Hús- ið til vinstri á myndinni, ofan við Kettlingatjörn, er Efra-Sandgerði, elsta húsið í þorpinu. Anna Ólafsdóttir Björnsson sagnfræðingur er að skrifa síðara bindi sögu Sandgerðis en það fjallar um árin 1907 til 2000 og er áætlað að bókin komi út á þessu ári. Reynir Sveinsson, forstöðumaður Fræðasetursins, biður þá sem kunna að eiga gamlar myndir frá þessu tímabili, frá atburðum og mannamótum, að hafa samband við sig eða höfund bókarinnar. Elsta hús Sand- gerðis Sandgerði ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.