Morgunblaðið - 16.02.2002, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 16.02.2002, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 35 FLOKKARNIR þrír semstanda að framboðiReykjavíkurlistans fyrirborgarstjórnarkosning- arnar í vor keppast nú hver um sig við að velja frambjóðendur á listann. Ólíkar aðferðir eru viðhafðar við val frambjóðenda og flokkum og fram- bjóðendum eru settar þröngar skorður því skv. samkomulagi um skiptingu sæta á R-listanum hefur hver flokkur í raun aðeins tvö sæti til ráðstöfunar, sem geta talist örugg borgarfulltrúasæti. Óvissa í prófkjöri Samfylkingar Mikil spenna og óvissa einkennir prófkjör Samfylkingarinnar, sem nú stendur sem hæst. Valið er með bindandi kosningu í þrjú efstu sæt- in, þ.e. í 3., 4. og 9. sæti á Reykjavík- urlistanum, sem koma í hlut Sam- fylkingarinnar. Átta frambjóðendur etja kappi um sætin í prófkjörinu. Prófkjörinu lýkur á sunnudaginn en þar sem einnig er um póstkosn- ingu að ræða meðal félagsmanna verður væntanlega ekki byrjað að telja atkvæði fyrr en síðdegis á þriðjudag. Þá um kvöldið eða í síð- asta lagi á miðvikudag munu úrslit liggja fyrir. Flokksbundnir félagar og þeir sem lýsa stuðningi við Samfylk- inguna eiga rétt til þátttöku í próf- kjörinu. Sendir voru út um 3.300 at- kvæðaseðlar til flokksfélaga skv. félagaskrá vegna póstkosningarinn- ar og rann frestur til að póstsenda atkvæði út í gær. Yfir helgina verð- ur svo opið á kjörstað til kl. 17 á sunnudag þegar prófkjörinu lýkur. Meðal þeirra sem takast á í próf- kjörinu eru þrír borgarfulltrúar, þau Helgi Hjörvar, Hrannar Björn Arnarsson og Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir, en aðrir frambjóðendur eru Sigrún Elsa Smáradóttir, Stef- án Jóhann Stefánsson, Stefán Jón Hafstein, Pétur Jónsson og Tryggvi Þórhallsson. Lítill aðdragandi var að prófkjör- inu og er kosningabaráttan því stutt og snörp. ,,Þetta er skyndiprófkjör og þess vegna gefst lítill tími til að heyja prófkjörsbaráttu. Þetta getur orðið mjög tvísýnt. Það er mikil óvissa um hvernig þetta fer,“ segir þátttakandi í prófkjörinu. ,,Það er hver og einn að vinna í sínum nán- asta hring og reyna að gára út frá sér,“ segir annar. ,,Við erum að vinna í dálítið óþekktu umhverfi,“ segir heimildar- maður. Hann bendir á að þetta er fyrsta prófkjör Samfylkingarinnar og flestir í óvissu um kjósendur í prófkjörinu þegar borið er saman við prófkjör og blokkamyndanir fyrri tíðar innan gömlu flokkanna sem stóðu að Samfylkingunni. Eru flestir þeirrar skoðunar að óvissa hafi sjaldan verið meiri um úrslit prófkjörs. Engum vafa er undirorpið að ákvörðun Stefáns Jóns Hafstein um að hann stefndi beint á fyrsta sætið hefur beint athyglinni að baráttunni um efstu sætin í prófkjörinu. Fram- boðstilkynning hans og yfirlýsingar komu mörgum í opna skjöldu og eru viðmælendur innan Samfylkingar- innar sammála um að hann hafi hleypt lífi og talsverðri hörku í próf- kjörið. Litið er á yfirlýsingu hans í reynd sem hólmgönguáskorun á Helga Hjörvar, oddvita Reykjavík- urlistans, en Helgi vann kosninga- sigur í sameiginlegu prófkjöri Reykjavíkurlistans fyrir kosning- arnar 1998. Stefán Jón hefur beint spjótum að Helga og Hrannari Birni Arnarssyni, og haldið því á lofti í kosningabaráttunni að R-listinn þurfi endurnýjunar við. Mestum titringi hefur valdið upprifjun hans á miklum útstrikunum af R-listan- um í borgarstjórnarkosningunum 1998 en þá var mest strikað yfir nafn Hrannars, sem skipaði 3. sæti listans og einnig töluvert yfir nafn Helga Hjörvars. Þeir höfðu sætt harðri gagnrýni andstæðinga í kosningabaráttunni vorið 1998 og vék Hrannar sæti úr borgarstjórn á meðan rannsókn fór fram á fjármál- um hans. Á kynningarfundi Samfylkingar- innar á Hótel Borg í vikunni þar sem frambjóðendur voru kynntir varpaði fundarstjóri Mörður Árna- son fram spurningu um traust til frambjóðendanna í tilefni þessara ummæla Stefáns Jóns. Stefán sagði kosningar snúast um hverjum menn treystu best til að halda um stjórn- artauma og útstrikanir í seinustu kosningum hefðu ekki borið vitni um traust margra kjósenda R- listans á því framboði. Hann vísaði því á bug að með þessum ummælum væri hann að sparka í liggjandi fólk eða að borgarfulltrúar sem um ræð- ir væru eitthvert pólitískt öryrkja- bandalag eða þyrftu að kveinka sér undan staðreyndum úr pólitískri sögu flokksins. ,,Ef þær útstrikanir sem áttu sér stað í síðustu kosning- um hefðu snúist upp í mótatkvæði, þá hefðum við tapað kosningunum. Sem betur fer sigruðum við í þess- um kosningum og eigum mikla og góða möguleika aftur í vor,“ sagði hann. Hrannar Björn svaraði fyrir sig og sagði það rétt að útstrikanirnar 1998 væru veruleiki sem menn hefðu staðið frammi fyrir. ,,Eins og menn muna kannski þá ákvað ég strax að loknum kosningum að taka tillit til þessara útstrikana og ákvað að setjast ekki í borgarstjórn fyrr en mínum málum væri að fullu lokið. Ég gerði það og þegar rúmt ár var liðið af kjörtímabilinu fékkst botn eftir langa mæðu í mín mál. Þá tók ég mitt sæti og frá þeim tíma hef ég ekki gert annað en sinna þeim mál- um sem mér hefur verið falið í borg- arstjórn og ég vona að ég hafi gert það þannig að menn hafi fengið af mér aðra mynd en þá sem dregin er upp í þessari kosningabaráttu,“ sagði Hrannar. Steinunn Valdís Óskarsdóttir tók einnig til máls og sagði óheppilegt hvernig þessi um- ræða hefur þróast í aðdraganda prófkjörins. Menn ættu heldur að einbeita sér að því að berja á and- stæðingunum. ,,Ég mæli með því að við gerum það og ræðum pólitík heldur en að vera að berjast inn- byrðis hvert við annað,“ sagði hún á fundinum. Mjög skiptar skoðanir eru meðal heimildarmanna innan Samfylking- arinnar á því hvort og þá hvaða áhrif þessi átök muni hafa á niðurstöðu prófkjörsins og undantekningalaust telja menn útilokað að spá um úrslit prófkjörsins og um gengi einstakra frambjóðenda. Sex keppa um fjögur sæti Framsóknarflokksins Framsóknarmenn viðhafa skoð- anakönnun meðal aðalmanna í kjör- dæmissamböndum flokksins og eru 344 einstaklingar á kjörskrá. Spenna fer vaxandi er nær dregur, ekki síst um hver muni ná sæti Sig- rúnar Magnúsdóttur borgarfull- trúa, sem gefur ekki kost á sér. Sá sem verður efstur í könnun fram- sóknarmanna tekur 2. sætið á Reykjavíkurlistanum en flokkurinn verður einnig með fimmta, tíunda og fjórtánda sæti á R-listanum. Aðferðin við val frambjóðenda er umdeild innan flokksins og gagn- rýna sumir að fleiri flokksmönnum er ekki gefinn kostur á þátttöku. Eins og fram komið hefur einn frambjóðendanna, Óskar Bergsson, kært tilhögun valsins til laganefnd- ar flokksins. Könnun framsóknarmanna er bindandi fyrir 4 efstu sætin og mun valið fara fram 23. febrúar næst- komandi. Sex manns gefa kost á sér, þar af einn borgarfulltrúi, Alfreð Þorsteinsson, og að auki Anna Kristinsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Marsibil Jóna Sæmundsdóttir, Ósk- ar Bergsson, og Þorlákur Björns- son. Fyrsta, sjötta, ellefta og þrett- ánda sæti á R-listanum koma í hlut Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Sjö manna uppstillingar- nefnd fékk það verkefni að raða í þessi sæti. Sendi nefndin fé- lagsmönnum bréf og bað þá tilnefna fólk sem ætti erindi á lista og rennur frestur til að skila inn tilnefningum út á mánudaginn. Hefst uppstilling- arnefnd þá handa við uppröðun. Henni verður vandi á höndum en hún er þó óbundin af tilnefningun- um. Heimildarmenn innan VG segja tiltölulega rólegt yfir framboðsmál- unum a.m.k. enn sem komið er. Fjórir einstaklingar hafa þegar lýst því yfir að þeir gefi kost á sér Árni Þór Sigurðsson, Álfheiður Ingadótt- ir, Björk Vilhelmsdóttir og Stein- grímur Ólafsson. Gert er ráð fyrir að félagsmenn muni senda uppstill- ingarnefnd tugi tilnefninga. Stefnir uppstillingarnefnd að því að vera samstiga hinum R-listaflokkunum og hafa framboðslistann tilbúinn 23. febrúar en að sögn fulltrúa í nefnd- inni er þó óvíst hvort það tekst. Borgarstjóri heldur að sér höndum Viðmælendum innan Samfylking- arinnar ber saman um að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri hafi gætt þess að halda sig til hlés í próf- kjörinu og ekki unnið neinum fram- bjóðanda brautargengi. Af og til kemur upp umræða um að Ingi- björg Sólrún kunni að hverfa af vettvangi borgarmálanna eftir kosningar og snúa sér að landsmál- unum. Heimildarmenn í Samfylk- ingu segja engan vekja máls á því í tengslum við prófkjörið að tekist sé á um mögulegan eftirmann hennar og borgarstjóraefni afráði hún að snúa sér að landsmálunum. ,,Það er ósagt og ekki til hagsbóta fyrir neinn að taka það upp, allra síst með tilliti til samstarfsflokkanna. Hve- nær sem valið verður nýtt borgar- stjóraefni þá er það samkomulags- atriði flokkanna en verður ekki útkljáð í prófkjöri Samfylkingarinn- ar,“ segir einn. Þegar spurt er hvort framsókn- armenn og Vinstri grænir hafi viljað fá skýra staðfestingu á því áður en gengið var frá samkomulaginu um Reykjavíkurlistann hvort Ingibjörg Sólrún yrði út næsta kjörtímabil í forystu fyrir Reykjavíkurlistann, er því svarað til að menn hafi einfald- lega gengið út frá því sem vísu að svo yrði. ,,Þessari spurningu var varpað fram en það eina sem er inni í mynd- inni hjá henni er að verða í áttunda sæti og vera borgarstjóri áfram,“ segir einn viðmælandi. ,,Hún er hluti af þessu kosningabandalagi flokkanna til fjögurra ára þannig að við lítum á það sem gefið að hún verði þarna til fjögurra ára. Það er ekkert í spilunum sem bendir til að hún sé að fara til annarra pólitískra verka. Ef það gerðist væri önnur staða komin upp í kosningasam- starfinu,“ segir heimildarmaður úr röðum Vinstri grænna. Forystumenn Vinstri grænna leyna ekki ánægju sinni með sinn hlut í samkomulaginu um Reykja- víkurlistann og viðmælendur innan VG og Samfylkingar segjast engar efasemdir hafa um heilindi fram- sóknarmanna í R-listasamstarfinu. Bæði hafi Alfreð Þorsteinsson verið mjög áfram um þetta samstarf og Halldór Ásgrímsson, formaður flokksins, gefið afdráttarlausar yf- irlýsingar um stuðning við R- listann. ,,Þeir eru alveg gegnheilir. Það er ekkert hik á þeim, raunar miklu minna en fyrir fjórum árum, enda er farið að slá svolítið saman með Samfylkingunni og Framsókn- arflokknum í landsmálunum t.d. í af- stöðunni til Evrópumálanna. Allt þjappar það þessu frekar saman,“ segir samfylkingarmaður. Flokkarnir sem standa að Reykjavíkurlistanum vinna að frágangi framboðslista Vaxandi spenna í bar- áttu um framboðssætin Prófkjör Samfylkingarinnar fyrir borgar- stjórnarkosningarnar stendur nú sem hæst. Átta frambjóðendur keppa um þrjú sæti á Reykjavíkurlistanum. Sex frambjóð- endur Framsóknarflokksins afla sér stuðn- ings fyrir skoðanakönnun á kjördæmis- þingi um næstu helgi og búist er við mörg- um tilnefningum vegna listauppstillingar hjá Vinstrihreyfingunni. Ómar Friðriks- son kynnti sér framboðsmálin hjá flokk- unum sem mynda Reykjavíkurlistann. Morgunblaðið/Þorkell Fulltrúar flokkanna þriggja sem standa að Reykjavíkurlistanum og borgarstjóri kynntu samkomulag um framboð listans 24. janúar sl. Einkenni m strax. num sem erið járn- arnið var Kristleifur efði getað skollið á lotið um- Clausen , spurði ínskortur ðingum í að ekkert fði þjáðst kom fram ramhand- nað, sem eða jafn- án Sigur- gði áverk- mala en ími hefði líklegt að frá fæð- ngsins né ðust hafa inn hefði gnum. u bæði að u annast purð um farið inn í urinn svaf rðu sögðu gt. Hlust- efði verið inn sem engurinn hefði það verið inni engurinn dyra eða gðust þau kki getað kið eftir ögðu þau st hugsa m kom að drengsins foreldrar ert hefði 1 barn í ítján sem dagsins. tof mörg, ggæslu í rum ein- æta fimm ir að hafa anúar, 24 bæði í febrúar og mars og 26 í apríl. Á þessum tíma hefðu þau haft leyfi fyrir ellefu börnum. Þrýstingur um að taka við fleiri börnum Fyrir dómi í gær báru maðurinn og konan að Emilía Ásta Júlíusdótt- ir, daggæslufulltrúi í Kópavogi, hefði vitað að þau höfðu of mörg börn í gæslu þótt henni hefði ekki verið kunnugt um að þau hefðu allan þennan fjölda í gæslu. Hefðu þau fundið fyrir þrýstingi frá foreldrum og félagsmálayfirvöldum um að taka við fleiri börnum en þau höfðu leyfi fyrir. Þessu neitaði Emilía Ásta fyr- ir dómi í gær og sagðist enga hug- mynd hafa haft um að þarna væru fleiri börn en leyfi var fyrir. Sveinn Andri Sveinsson, hrl. og verjandi konunnar, lagði þá fram af- rit af lista yfir börn hjá dagmæðr- um, en slíkt eyðublað verður að fylla út vilji dagmæður fá niðurgreiðslu frá Kópavogsbæ. Á listanum fyrir september árið 2000 kemur fram að sex börn voru skráð í heilsdagsvist á nafn konunnar en hún hafði einung- is leyfi fyrir fimm börnum. Á sama tíma voru sjö börn skráð í heilsdags- vist á nafn mannsins, sem hafði skriflegt leyfi fyrir fimm börnum og munnlegt leyfi fyrir því sjötta. Fólk- ið hafði því þrettán börn í gæslu og spurði Sveinn Andri hvort bænum hlyti ekki að hafa verið það ljóst. Emilía svaraði því til að þetta hlyti að hafa farið framhjá henni og öðr- um starfsmönnum hjá félagsmála- sviði en hún yrði að athuga þessi mál betur. Upplýst var fyrir dómi að þegar konan fór í barnsburðarleyfi í desember árið 1999 fékk maðurinn tímabundið leyfi til að gæta sex barna í stað fimm áður. Þá fékk hann einnig óformlegt og tímabund- ið leyfi til að gæta þriggja barna til viðbótar sem kona hans hafði áður gætt. Samtals var hann því með níu börn í gæslu. Sveinn Andri spurði þá hvar væri að finna heimild til að fjölga börnunum. Sagði Emilía Ásta að það hefði verið byggt á „mann- úðarreglum“. Tryggt hefði verið að konan yrði áfram á heimilinu en auk þess hefði málið komið upp með litlum fyrirvara. Aðspurð hvort þrýst hefði verið þau til að taka við fleiri börnum en þau höfðu leyfi til sagði hún að allar dagmæður hefðu fundið fyrir þrýstingi um að taka að sér fleiri börn enda mikil eftirspurn eftir gæslurými. Í framburði mannsins og konunn- ar kom fram að þau hefðu talið sig fá þau skilaboð frá félagsmálayfirvöld- um að það væri í lagi að hafa fleiri börn en leyfi voru fyrir. Ennfremur hefði það nokkrum sinnum komið fyrir að börn hefðu átt að hætta hjá þeim eftir að hafa fengið pláss á leik- skóla. Þau hefðu því samþykkt að taka við fleiri börnum í stað þeirra sem áttu að fara. Síðan hefði leik- skólaplássið brugðist og því hefðu þau verið með aukinn fjölda barna um einhvern tíma. Þau sögðust enga tilraun hafa gert til að leyna fjölda barna á heimilinu þegar Emilía kom í eftirlitsferðir og að hún hlyti að hafa séð að aukabörn voru á staðn- um. Emilía sagðist hins vegar aldrei hafa orðið vör við neitt óeðlilegt á heimili þeirra. Maðurinn bar að yfirleitt hefðu verið um 15–16 börn hjá þeim í gæslu á dag. Fæstir foreldranna hefðu þó vitað að ekki voru öll skráð hjá félagsmálayfirvöldum, en það er skilyrði fyrir niðurgreiðslum og slysatryggingu. Sagði maðurinn að ástæðan fyrir þessu hefði m.a. verið sú að það „kæmi betur út“ að gefa ekki upp öll börnin. Fram kom að foreldrar drengsins sem lést vissu ekki að hann væri „aukabarn“ í dag- gæslu. Fyrir dómi játaði konan að hafa stundum líkt eftir undirskrift foreldranna á lista yfir börn hjá dag- mæðrum. Það hefði verið gert til hagræðingar því stundum gengi illa að safna undirskriftum þeirra á listana. Fólkið á væntanlega yfir höfði sér ákæru um brot á skatta- lögum. Aðalmeðferðinni verður fram haldið á mánudag en þá kemur réttarmeinafræðingurinn sem krufði drenginn fyrir réttinn auk tveggja lækna og yfirmanns rann- sóknardeildar lögreglunnar í Kópa- vogi. nn fyrir dóm á Íslandi yf- it- n g aðið/RAX
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.