Morgunblaðið - 16.02.2002, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 16.02.2002, Blaðsíða 41
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 41 Prófkjör Prófkjör eru nú fyrirhuguð til undirbúnings sveitarstjórnarkosningum sem fram fara hinn 25. maí næstkomandi. Af því tilefni birtir Morgun- blaðið hér greinar frambjóðenda og stuðningsmanna. Greinarnar eru ennfremur birtar á mbl.is. OFT er sagt að ungt fólk nenni ekki lengur að starfa í stjórnmálum og að hæfileikafólk leiti á önnur mið. Sem betur fer má benda á stjórn- málamenn á borð við Helga Hjörvar sem dæmi um hið gagn- stæða. Helga hafa verið falin sífellt ábyrgðarmeiri trún- aðarstörf á sínum ferli og hann hefur vaxið með hverju verkefni. Nú er svo komið að hann er að mínu mati efni- legasti forystumaður jafnaðarmanna af yngri kynslóðinni. Hann hefur gegnt störfum forseta borgarstjórnar á undanförnu kjörtímabili, setið í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og í fé- lagsmálaráði, auk starfa í borgar- stjórn og borgarráði. Dugnaður hans, greind og fram- sýni hafa nýst honum til heilla í þess- um störfum. M.a. tel ég Helga hafa sýnt fádæma framsýni og þor þegar hann gerðist forgöngumaður þess að Reykjavíkurborg kæmi að lagningu ljósleiðarakerfis um borgina. Það var gæfuspor í atvinnulífi borgarinnar sem á eftir að nýtast borgarbúum beint og óbeint um langa framtíð. Ég skora á alla jafnaðarmenn að veita Helga brautargengi í prófkjöri Sam- fylkingarinnar um helgina og kjósa hann í fyrsta sæti. Helga Hjörvar í 1. sæti Vilhjálmur Þorsteinsson hugbúnaðarhönnuður skrifar: Vilhjálmur Þorsteinsson Í OPNU prófkjöri sjálfstæðismanna í Hafnarfirði sem fram fer í dag, laugardaginn 16. febrúar, sækist ég eftir því að verða kosin í 3. sæti. Á núverandi kjörtímabili hef ég ver- ið bæjarfulltrúi og ann- ar tveggja fulltrúa flokksins með fasta setu í bæjarráði undan- farin tvö ár. Auk þess hef ég gegnt for- mennsku í skólanefnd og verið formaður stýri- hóps Staðardagskrár 21. Ég hef einkum notað tækifærið til að kynna mig og störf mín í bækling- um sem stuðningsmenn mínir hafa staðið að og dreift til allra bæjarbúa í Hafnarfirði. Ber þar hæst skóla-, íþrótta-, fjölskyldu-, skipulags- og umhverfismál. Einnig hef ég vakið sérstaka athygli bæjarbúa á baráttu minni fyrir þörfum fjölskyldunnar í þess orðs víðasta skilningi og að þær séu jafnan hafðar í heiðri og að leið- arljósi við allar ákvarðanatökur bæj- aryfirvalda. Ljúkum einsetningu grunnskól- anna í Hafnarfirði. Þetta er eitt af meginbaráttumálum mínum! Ég hef orðið dágóða reynslu þar sem ég hef verið fulltrúi þessa veigamikla mála- flokks sem einna mest hefur mætt á þetta kjörtímabilið. Árið 1998 stóðu Hafnfirðingar frammi fyrir gríðarlegum verkefn- um sem var einsetning grunnskól- anna. Enginn grunnskóli í Hafnar- firði var einsetinn, en lög gerðu ráð fyrir að einsetningu skyldi vera lokið fyrir árið 2003. Framkvæmdir voru hafnar við Öldutúnsskóla og lauk uppbyggingu hans 1998, síðan var byggt við Engidalsskóla og er hann orðinn einsetinn. Tvisvar hefur verið byggt við Setbergsskóla. Nýr skóli er risinn í Áslandi og hafnar eru byggingarframkvæmdir við nýjan Lækjarskóla. Við erum rúmlega hálfnuð við einsetningu grunnskól- anna. Löggjafinn framlengdi ein- setningaráætlun sína fram til ársins 2004. Uppbygging skólamannvirkja í Hafnarfirði hefur ekki aðeins verið til umfjöllunar, heldur hefur heilmik- il umræða á landsvísu orðið um skólamálin hér og þann samning, þar sem einkaaðila er falið að sjá um kennsluþátt- inn. Samningur þessi var gerður við Íslensku menntasamtökin um kennslu í grunn- og leikskóla í Áslandi. Ég tel mikilvægt að íþrótta-, lista- og tóm- stundastarf standi nemendum til boða í beinu framhaldi af ein- setnu skólastarfi. Ég legg áherslu á að háskólanám og rann- sóknarsetur verði í boði í Hafnarfirði. Hafnarfjörður býður fjölbreyttasta og stærsta samfellda svæði atvinnu- lóða á höfuðborgarsvæðinu. Bærinn er samgöngulega vel í sveit settur, státar af góðri höfn og er auk þess í námunda við lífæð allra flugsam- gangna til og frá landinu. Í bæjar- landinu er gnægð jarðvarma og orku sem verið er að virkja og þróa til at- vinnuuppbyggingar. Því eru atvinnutækifærin mörg í Hafnarfirði. Mín áhersla er sjálfbært samfélag, þannig að umhverfismálin verða aldrei slitin úr samhengi við önnur mál. Þannig tvinnast saman helstu áherslu- og áhugaþættir mínir í slag- orðunum: „Fjölskyldan í öndvegi í sjálfbæru samfélagi“. Fjölskyldan í öndvegi Steinunn Guðnadóttir Hafnarfjörður Eitt af meginbaráttu- málum mínum, segir Steinunn Guðnadóttir, er að ljúka einsetningu grunnskólanna í Hafnarfirði. Höfundur er bæjarfulltrúi og gefur kost á sér í 3. sæti í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Hafnarfirði. Í Morgunblaðinu 12. febrúar síðastlið- inn skrifar frambjóð- andi Samfylkingarinn- ar grein um bæjarmál í Hafnarfirði. Í grein- inni er m.a. vitnað í grein mína um Norð- urbakkann í Hafnar- firði. Ánægjulegt er að vita að greinar mínar vekja áhuga Samfylkingarfólks, þótt ég sé aðeins prófkjörskandídat. Þær ályktanir sem „útskrifaður“ fram- bjóðandinn dregur af greininni gefa hins vegar tilefni til andsvara, enda samsæriskenningar í hverju horni. Í fyrsta lagi er óþarfi fyrir fram- bjóðandann að hafa áhyggjur af því að bæjarstjóri hafi platað J&K eignarhaldsfélag og Þyrpingu til samninga með því að veifa líkaninu af Manhattan. Það segir nefnilega í samningnum að efnt verði til lok- aðrar samkeppni um hönnun á svæðinu (3. mgr. 6. gr. samnings- ins). Menn hefðu ekki skrifað und- ir slíkt ákvæði ef þegar væri búið að að skipuleggja svæðið. Í öðru lagi vísar frambjóðandinn í fram- kvæmdir á Sólvangssvæðinu. Því er til að svara að nauðsynlegt var að byggja nýjan skóla í skólahverfi Lækjarskóla og það voru ekki margir möguleikar í stöðunni. Einu skyn- samlegu rökin sem ég hef heyrt gegn bygg- ingu skólans á þessum stað er að hann valdi truflun á starfsemi sjúkrastofnana á Sól- vangssvæðinu. Í stjórnmálum er mál- um hins vegar þannig háttað að stundum þarf að velja á milli tveggja kosta, og í mínum huga var mik- ilvægara að byggja skólahúsnæði. Sam- fylkingarfólk er nokk- uð lunkið við að búa til innihaldslitla frasa og skáld- legar lýsingar. Í þessum anda er lýsingin „þegar bærinn var tættur í sundur og steinsteypuferlíkjum troðið í sárin“. Væri ekki nær að skoða málið hlutlaust og viður- kenna að þegar framkvæmdum verður lokið verði svæðið mun fal- legra en áður? Það er að minnsta kosti skoðun þeirra eðalkrata sem ég þekki. Í þriðja lagi er það sam- eiginlegt áhyggjuefni að fjárhags- staða Hafnarfjarðarbæjar er þröng. Mikil uppbygging skóla og íþróttahúsnæðis á kjörtímabilinu hefur kostað peninga, en sú upp- byggingin er gerð til framtíðar. Þegar frá líður mun bæjarbúum fjölga og tekjur aukast. Þótt fjárhagsstaðan sé þröng fer því fjarri að fjármál bæjarins séu í ólestri. Það er nefnilega mikill munur á því annars vegar að hafa þrönga stöðu, sem unnið er úr með langtímaáætlunum, eins og núverandi meirihluti gerir, og hins vegar því að hafa fjármál bæjarins í ólestri, sem fyrri meiri- hlutar vinstri manna í Hafnarfirði hafa þótt nokkuð góðir í. Má til dæmis minna á fjármál listahátíð- ar í Hafnarfirði og önnur sam- bærileg mál. Að lokum: Fram- bjóðandinn vísar til framsókn- armanns sem skaut sig í fótinn. Þá var sagt að ég hafi skotið hug- myndir bæjarstjóra í kaf. Það er greinlega mikið hugsað um skot í Samfylkingunni, en þegar á reyn- ir skjóta frambjóðendur þeirra yf- ir markið. Skotið yfir markið Ágúst Sindri Karlsson Höfundur er lögmaður og sækist eft- ir 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins . Hafnarfjörður Mikil uppbygging skóla og íþróttahúsnæðis, segir Ágúst Sindri Karlsson, er gerð til framtíðar. ÞAÐ er ekki oft sem hinum al- menna borgarbúa gefst kostur á að taka þátt í vali á frambjóðendum stjórnmálaflokk- anna. Samfylkingin á heiður skilið fyrir að gefa fólkinu kost á að velja frambjóð- endurna. Flokk- urinn leggur það í okkar hendur að tryggja að á nýjum Reykjavíkurlista verði mannvalið af hálfu Samfylk- ingarinnar eins og best verður á kosið. Út af því einstaka tækifæri sem því fylgir að fólkið velji frambjóð- endurna gefst okkur Reykvík- ingum kostur á að velja í forystu ungan stjórnmálamann; Sigrúnu Elsu Smáradóttur. Hún er vara- borgarfulltrúi og hefur verið í for- ystu fyrir einn mikilvægasta mála- flokkinn sem er menntun barnanna þar sem hún leggur höfuðáherslu á að byggja á fjölbreytni með jöfnuð og réttlæti að leiðarljósi. Sigrún Elsa gefur kost á sér í 2. sætið. Ég hvet alla félags- og stuðningsmenn Samfylkingarinnar til að taka þátt í prófkjörinu og velja Sigrúnu Elsu í 2. sætið. Hún er traustsins verð og tryggir að ný sýn næstu kynslóðar stjórnmála- manna eigi rödd á Reykjavíkurlist- anum. Sigrún Elsa á er- indi í 2. sæti Sólveig Jónasdóttir verkefnisstjóri skrifar: Sólveig Jónasdóttir verkefni sem ráðið teldi mikils virði og mæti það svo að grundvöllur væri fyrir samstarfi. Í umfjöllun í Mark- aðsráði var m.a. tekið tillit til þess að LTU-verkefnið stuðlar að betri dreifingu ferðamanna um landið, en það hefur háð ferðaþjónustunni að flöskuháls hefur myndast á höfuð- borgarsvæðinu á háönn. Ennfremur var lögð áhersla á það í Markaðs- ráðinu að flug hæfist á jaðartímun háannar til þess að það stuðlaði að lengingu ferðamannavertíðarinnar úti á landi: Það hefur verið eitt af stærstu vandamálum ferðaþjónust- unnar að sá bati, sem náðst hefur á höfuðborgarsvæðinu á jaðartímum og á lágönn, hefur ekki náð til lands- byggðarinnar. Augljóst er að kynning á flugi til Egilsstaða er kynning á Íslandi sem dvalarstað og skapar möguleika á fjölbreyttari ferðatilhögun fyrir ferðamenn frá Þýskalandi. Allir ferðaþjónustuaðilar munu njóta góðs af þessum ferðum. Hér er um reglubundnar áætlunarferðir að ræða, sem standa öllum opnar. Af þessu má ráða að Fréttablaðið fer með helber ósannindi, þegar það ber á samgönguráðherra að hann hafi blandað sér í þetta mál og stuðl- að að ófaglegum vinnubrögðum. Á viðfangsefninu var tekið af þar til skipuðum fagaðilum, sem tóku á því með málefnalegum hætti. Þessi vinnubrögð eru í fullu samræmi við þær áherlsur sem samgönguráð- herra hefur haft. Höfundur er formaður Ferða- málaráðs Íslands. Námskeið á næstunni 1. Stephan G. Stephansson: Heimsborgarinn í afskekktinni Klettafjalla- og Andvökuskáldið Stephan G. Stephansson sameinaði íslenskan menningararf og alþjóðlega hugmyndastrauma og óf saman djúpa lífsspeki og hvassa samtímagagnrýni í kvæðum, bréfum og ritgerðum sem enn eiga brýnt erindi. Drepið verður á hina sérstæðu íslensku bókmenningu sem mótaði hann og helstu strauma sem hann tileinkaði sér eftir að hann kom vestur um haf. Lesin verða vandlega nokkur af kvæðum og lausamálsverkum Stephans, tilurð þeirra rakin og dregin fram skírskotun til nútímans. Kennari: Viðar Hreinsson, bókmenntafræðingur Tími: Sex kvöld, 27. febrúar, 6., 13., 20., 27. mars og 3. apríl kl. 20-22. Námskeiðsgjald: 12.500 kr. 2. Deilur Ísraelsríkis og Palestínumanna Fjallað verður um sögulegan og stjórnmálalegan bakgrunn deilu arabaríkja og Ísraels, þróun og einkenni þjóðernishyggju Palestínumanna, stöðu araba í Ísrael, friðarumleitanir, uppreisnir Palestínumanna, stöðu kvenna í Palestínu og ágreining um Jerúsalem. Reynt verður að varpa ljósi á orsakir deilunnar og skýra hvers vegna hún virðist óleysanleg. Umsjón: Lilja Hjartardóttir, stjórnmálafræðingur. Tími: Fjögur kvöld, 19. og 26. mars., 9. og 16. apríl kl. 20-22. Námskeiðsgjald: 9.500 kr. 3. Sjónarspil og veruleiki. Gagnrýnin greining á stórasannleik vorra daga Gagnrýnin skoðun og málefnaleg umræða leiðir oft annað í ljós en það sem almennt er haft fyrir satt í orðræðu og fjölmiðlun samtímans. Námskeiðinu er ætlað að auðvelda þátttakendum að átta sig á ýmsu því, sem dembt er yfir okkur frá valdastólum ríkisins og talsmönnum hagsmunasamtaka með fjölmiðlun nútímans, gera þá hæfari til að greina rökleysu og hálfsannleika. Umsjón: Hörður Bergmann, kennari og rithöfundur. Tími: Tvö kvöld, 28. febrúar og 7. mars kl. 19.45-22.15. Námskeiðsgjald: 6.000 kr. Námskeiðin verða haldin í húsnæði ReykjavíkurAkademíunnar á Hringbraut 121 (JL-húsinu), 4. hæð. Skráning er í síma 562 8561. ÞEGAR Helgi Hjörvar og unga fólkið í borginni þvingaði gömlu flokkana til að leggja áratuga- væringar til hliðar og bjóða fram Reykjavíkurlistann urðu klárlega vatna- skil í íslenskri póli- tík. Þar með lauk langri og strangri eyðimerkurgöngu áhrifaleysis fé- lagshyggjufólks í stjórnmálum borgarinnar. Vinur minn, Helgi Hjörvar, gefur kost á sér í fyrsta sætið á Reykja- víkurlistanum. Hann er sannarlega einn frambærilegasti fulltrúi ungu kynslóðarinnar í stjórnmálum. Hugmyndaríkur, djarfur og fram- sækinn fulltrúi nýsköpunar í ís- lenskum stjórnmálum. Nútímalegur jafnaðarmaður af bestu gerð. Reykjavíkurlistinn hefur um margt breytt ásýnd borgarinnar til hins betra í stjórnartíð sinni. Næsta kjörtímabil verður tímabil uppbyggingar í atvinnu- og skipu- lagsmálum þar sem krefjandi verk- efni steðja að. Fáum treysti ég bet- ur til að leiða þá vinnu en Helga Hjörvar. Eins og gengur og gerist, þá hef ég ekki alltaf verið á sama máli og Reykjavíkurlistinn, en ég styð Helga eindregið í fyrsta sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar og hvet borgarbúa til að gera slíkt hið sama. Helgi Hjörvar er sannur leiðtogi Arndís Kristjánsdóttir skrifar: Arndís Kristjánsdóttir Geisladiskahulstur aðeins 500 kr. NETVERSLUN Á mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.