Morgunblaðið - 16.02.2002, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 16.02.2002, Blaðsíða 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 2002 45 ✝ Elín Kristjáns-dóttir fæddist í Haukadal í Biskups- tungum 7. septem- ber 1917. Hún lést á Sjúkrahúsi Suður- lands 2. febrúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Kristján Loftsson, f. 12.7. 1887, d. 2.11. 1983, og Guðbjörg Greips- dóttir, f. 12.10. 1893, d. 6.9. 1973. Systkini Elínar eru: Greipur, f. 31.3. 1914, d. 4.10. 1988, Sigurgeir, f. 30.7. 1916, d. 5.6. 1993, Jóhanna, f. 6.9. 1919, d. 27.7. 1986, Loftur, f. 3.11. 1920, d. 21.6. 1982, Sigríður, f. 20.8. 1922, Ketill, f. 12.12. 1924, Auður, f. 1.10. 1932, Katrín, f. 19.1. 1935, d. 14.3. 1987, og Áslaug, f. 17.8. 1936. Auk þeirra dóu þrjú systkini hennar í æsku. Elín giftist 13.7. 1943 Sigurði Sigurmunds- syni, f. 29.7. 1915, d. 5.3. 1999. For- eldrar Sigurðar voru Sigurmund- ur Sigurðsson læknir, f. 24.11. 1877, d. 14.11. 1962, og Kristjana Anna Eggertsdóttir, f. 24.11. 1894, d. 30.8. 1932. Börn Elínar og Sig- urðar eru: 1) Sigurður, f. 24.10. 1942, maki Guðlaug Oddgeirsdótt- f. 14.10. 1981, maki Þorbjörn Jóns- son, barn þeirra drengur, f. 10.2. 2002; Jóhanna Hlín, f. 17.12. 1985; Kolbrún Lilja, f. 5.6. 1987; og Kol- beinn Sigurður, f. 21.7. 1995. 7) Guðmundur Geir, f. 17.5. 1958, maki Eva Ulrike Schmidhuber, f. 14.4. 1959. Börn þeirra Loftur Þór- arinn, f. 29.11. 1983, Pétur Krist- ján, f. 25.3. 1986, og Helgi Karl, f. 26.11. 1989. 8) Hildur, f. 26.4. 1961, sambýlismaður Torfi Harðarson, f. 27.1. 1953. Börn Hildar eru Baldur Helgi, f. 7.4. 1989, Þórhildur, f. 23.7. 1990, og Þorkell Máni, f. 11.11. 1993, Þorkelsbörn. Foreldrar Elínar voru síðustu ábúendur í Haukadal í Biskups- tungum en þar bjuggu þau frá 1913 til 1929 er þau fluttu að Felli í sömu sveit. Árið 1942 fluttist Elín að Hvítárholti í Hrunamanna- hreppi og hóf þar búskap með manni sínum. Þau stunduðu hefð- bundinn búskap, en auk þess stundaði Elín hrossarækt og eign- aðist mörg góð hross, sum hver landskunn. Hún tók virkan þátt í félagsmálum hestamanna. Einnig var hún félagsmaður í Kvenfélagi Hrunamannahrepps alla sína tíð í Hvítárholti, og formaður þess um skeið. Elín gegndi trúnaðarstörf- um fyrir Framsóknarflokkinn um ára bil. Síðustu árin dvaldi hún á Dvalarheimili aldraðra á Blesa- stöðum á Skeiðum. Útför Elínar fer fram frá Skál- holtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. ir, f. 8.5. 1945. Börn þeirra Elín Rósa, f. 10.10. 1967, og Sig- urður Oddgeir, f. 5.4. 1972, sambýliskona Hallveig Sigurðar- dóttir. 2) Anna Soffía, f. 31.8. 1944, maki Helgi Stefán Jónsson, f. 28.12. 1937, d. 10.1. 1988. Sonur þeirra Jón Matthías Helga- son, f. 26.1. 1971. 3) Kristján, f. 28.1. 1946, maki Mutjalin Sig- urðsson, f. 6.5. 1954. Dóttir þeirra Elín, f. 13.1. 1991. 4) Guðbjörg, f. 12.12. 1947, maki Andrew S. Fortune, f. 15.3. 1950. Sonur þeirra Jón Páll, f. 26.10. 1980. 5) Sigríður Halla, f. 12.8 1953, maki 17.11. 1995 Björn Björnsson, f. 15.10. 1950. Dætur Sigríðar Höllu eru: Elín Ósk Þór- isdóttir, f. 29.9. 1972, maki Magnús Örn Einarsson, f. 10.8. 1965, dóttir þeirra Halla María, f. 8.1. 1999; og Ragnheiður Þorvaldsdóttir, f. 27.1. 1980, sambýlismaður Ari Oddsson, f. 22.1. 1975. 6) Kolbeinn Þór, f. 27.3. 1956, maki Helga Auð- unsdóttir, f. 28.4. 1961, þau slitu samvistir. Börn þeirra: Auðunn Eggert, f. 21.5. 1980; Vigdís Anna, Elsku mamma. Nú þegar duft jarðar hefur lagst yfir verk handa þinna vaknar minning þeirra í huga mínum. Um mjúku hendurnar sem snertu mig í fyrstu þegar ég fæddist. Um ljúfu höndina sem leiddi mig fyrstu skrefin. Um hlýju höndina sem þerraði tár af hvörmum. Um vandvirku hendurnar sem saumuðu á okkur fötin. Og sterku hendurnar sem mjólkuðu kýrnar og unnu öll verkin. Og hendurnar næmu sem héldu um beislistauminn og stýrðu stoltum gæðingi þínum. Líka um hálfköldu höndina sem reyndi að varðveita síðasta ylinn frá þínu sterka hjarta. Og loks höndina fögru sem hvíldi friðsæl við hlið þér og hafði lokið sínu síðasta verki. Nú hefur þú lagt þær frá þér eins og hanska sem þú hefur fengið að láni og ætlar að skila. Þín Halla. Fallin er frá merkiskonan móð- ursystir mín, hún Elín Kristjáns- dóttir, bóndi í Hvítárholti í Hruna- mannahreppi. Fréttin um andlát hennar snart mig djúpt. Það streyma margar minningar inn í hugann sem vert er að rifja upp og staldra við. Ég ætla að hverfa heim til Súganda- fjarðar en móðir mín hafði flutt þangað með föður mínum árið 1949. Á því herrans ári 1958 gerð- ust margir atburðir í lífi mínu, en þá var ég aðeins sex ára gömul. Ég missti afa minn Hermann Flóv- entz, yngsta systir mín fæddist en hún var sú sjötta í röðinni. En það sem hafði mest áhrif á líf mitt var það að faðir minn greindist með al- varlegan sjúkdóm og var sendur suður til Reykjavíkur á sjúkrahús. Þegar hér var komið sögu stóð móðir mín ein uppi með sex dætur og föðurömmu sem bjó hjá okkur. Ég geri ráð fyrir því að róðurinn hafi verið þungur hjá móður minni þá. Hún þurfti að fara að vinna og sem betur fer var nóg að gera í firðinum góða. Föðuramma mín passaði okkur en það hefur örugg- lega reynst henni um megn. Þrátt fyrir viljann og gæskuna. Nú var svo komið að leita þurfti á náðir móðursystkina minna. Næstelstu systur minni var komið fyrir hjá móðurbróður mínum Katli og hans fjölskyldu en þar dvaldi hún í heilt ár. En mér var komið fyrir hjá El- ínu móðursystur minni. Þar var mér ekki í kot vísað. Elín ásamt manni sínum Sigurði stóð fyrir myndarbúi í Hvítárholti. Þar bjuggu þau ásamt sjö börnum, það yngsta ekki fætt, og föður Sig- urðar sem hafði starfað sem læknir en var kominn á eftirlaun. Hjá þessu fólki leið mér vel og vil ég þakka fyrir það. Elín var mér afar góð og bauð mér að kalla sig mömmu. Ég átti sérstakan stað hjá Sigurði bónda við matarborðið þar sem hann hellti smálögg af kaffi í glasið mitt og bætti í það mjólk og sykri. Þetta fannst mér frábært því þetta fékk enginn nema ég. Ég fékk að sofa hjá frænkunum mín- um Önnu Fíu og Guðbjörgu, það þótti mér gott því þær sögðu mér sögur áður en ég fór að sofa. Ég var snemma mjög söngelsk var alltaf syngjandi. Þegar ég vaknaði á morgnana sem var yfirleitt mjög snemma þá byrjaði ég að syngja. Aldrei var mér sagt að þegja. Frekar var ýtt undir það að ég skyldi syngja. Það er merkilegt, Elín mín, að á þessum tímamótum mun ég syngja yfir þér og er það mér mikill heiður. Það var alltaf gott að leita til Sigurmundar lækn- is á bókasafnið. Ef eitthvað kom fyrir mig þá reyndist hann mér hinn besti vinur. Hann kenndi mér margt, m.a. mannganginn og það var gaman að tefla við hann. En best af öllu var gjöfin góða sem heiðurshjónin Sigurður og Elín gáfu mér á meðan á dvöl minni stóð en það var fallega hryssan hún Stjarna. Í minningunni finnst mér eins og alltaf hafi verið sólskin í Hvítár- holti. En auðvitað hefur það ekki verið svo. En það eru þær góðu minningar og hversu mér leið vel þann tíma sem ég var þar sem hafa skapað þessa bernskumynd. Elsku Elín mín. Ég vil fyrir mína hönd og foreldra minna þakka þér og fólkinu þínu hvað þið voruð góð við mig þetta hálfa ár sem ég var hjá ykkur. Megi Guð vernda sálu þína og veita fjöl- skyldu þinni styrk í sorginni. Þín systurdóttir, Soffía Guðmundsdóttir. ELÍN KRISTJÁNSDÓTTIR Mig langar að minnast Kristínar Sigurþórsdóttur, eða Stínu eins og hún var alltaf kölluð, með fáum orð- um. Elsku Stína mín, mér finnst við hæfi að hefja kveðjuna til þín á þessu ljóði Þórunnar Sigurðardótt- ur, sem mér finnst eiga svo vel við þig. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Stínu kynntist ég fyrst þegar ég kom með manninum mínum í Þor- lákshöfn í heimsókn til afa og Stínu frænku. Reyndar var ég búin að heyra mikið um „Stínu mína“ eins og Herleifur talaði alltaf um hana. Mér fannst eins og ég hefði alltaf þekkt hana þegar við hittumst fyrst. Það vantaði ekki að hún tók vel á móti mér og bauð mig velkomna, ljúfari og betri manneskja er vandfundin og allt vildi hún fyrir alla gera. Alltaf var stutt í hláturinn. Stína bjó lengstaf á Hellu og átti frændi hennar ávallt skjól hjá henni. Her- leifur sagði mér að það hefði aldrei skipt neinu máli þegar hann á sínum yngri árum var í hestaferðum, á hestamannamótum eða átti bara leið um, alltaf var vel tekið á móti honum hvenær sólarhringsins sem var, uppábúið rúm og kjötsúpa, já minna mátti það ekki vera fyrir unglinginn sem var að skemmta sér á hesta- mannamóti, já, hún skildi það vel að unga fólkið þyrfti að skemmta sér. Hún Stína var einstök kona. Ég hef oft hugsað um það hvað hún hlýtur að hafa haft einstakt geðslag, því ekki var hún Stína mín mikillar gæfu aðnjótandi í lífinu og þurfti að ganga í gegnum margar raunir, en aldrei sagði hún neitt ljótt um nokk- urn mann, tók hverri raun með brosi á vör. Það kom vel fram í ljóðinu sem KRISTÍN SIGURÞÓRSDÓTTIR ✝ Kristín Sigur-þórsdóttir fædd- ist á Rauðafelli í Austur-Eyjafjöllum 11. maí 1936. Hún andaðist á dvalar- heimilinu Lundi á Hellu 4. febrúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Bergþóra Auðuns- dóttir og Sigurþór Skæringsson. Hún var næst elst fimm barna þeirra er kom- ust á legg. Kristín giftist Kristjáni Árnasyni og eignuðust þau tvo syni, Víglund, f. 20.2. 1959, og Davíð, f. 25.4. 1963. Kristín verður jarðsungin frá Þorlákskirkju í Þorlákshöfn í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Sjöfn orti til Stínu og lesið var upp við kistu- lagningu hennar, „að líf hennar var eins og brotið skip“. Stína gaf okkur Her- leifi stóran gólflampa sem hún hafði átt. Hann stendur núna í stofunni okkar eins og minnisvarði um ein- staka konu, því það er það sem hún var. Ó, líttu nú guð, í líkn og náð til líðandi barna þinna. Láttu þitt guðdóms gæskuráð þau gleði og huggun finna. Elsku Stína, þín verður sárt sakn- að en við yljum okkur við minningu um einstaka konu. Elsku tengdaforeldrar, þið sem alltaf voruð Stínu best, megi guð styrkja ykkur og vera ykkur náð- ugur. Sonum, tengdadóttur, stjúp- og fósturbörnum og öðrum ástvinum bið ég guðs blessunar. Halldóra Magný Baldurs- dóttir og fjölskylda. Jæja, þá er hvíldin loksins komin, gamla mín. Þegar ég sit hér og renni í gegnum hugann koma upp enda- lausar minningar. Góða skapið, létt- leikinn og gleðin voru alltaf í fyr- irrúmi, alveg sama hvað bjátaði á. Þegar ég var yngri og farið var út að Hellu var alltaf komið við í grill- inu hjá Stínu frænku eins og við köll- uðum hana þá eða heima hjá henni. Oftast var einhverju gaukað að manni og skúffan undir ísskápnum, sem var full af leikföngum, var upp- spretta endalausra leikja. Þegar ég varð eldri var ekki síður gaman að koma við. Oft þegar við félagarnir vorum á heimleið eftir ball var komið við, allt- af var til eitthvað í gogginn á skemmtanaþreyttum ungmennum. Seinna naut ég þess að búa hjá þér hátt í tvö ár þegar ég var í skóla og við störf. Þá var stundum setið langt fram á nótt og spjallað saman um allt milli himins og jarðar. Seinna, þegar ég átti orðið fjöl- skyldu, tókst þú konu minni og fóst- urbörnum sem sjálfsögðum hluta af þinni fjölskyldu. Þrátt fyrið að heilsan gæfi sig allt- of snemma var aldrei gefist upp. Lífsgleðin alltaf í fyrirrúmi. Það er með miklum söknuði og trega sem ég kveð þig í hinsta sinn með þess- um fátæklegu orðum. Ég get huggað mig við það að nú líður þér betur. Nú ert þú á himnum í hópi ættingja og vina sem á undan þér hafa farið. Þangað ert þú örugg- lega komin því ef þú átt ekki öruggt sæti þar á það enginn. Elsku Villi og fjölskylda, við sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur á þessari sorgar- stundu. Tryggvi og fjölskylda Vík.  Erfisdrykkjur Fóstbræðraheimilið Langholtsvegi Ný uppgerður veitingasalur Upplýsingar í síma 861 4243 og 568 5206                                                            ! "    !" #$   " % "# &"   ' % "# #$  ("" ) " &" % *+% % "# #$  , %- " *# &"  !" $" &" . * % .* "# #$ & - " - "                        $          /   0 ( "# 1 $0 &  % (& 2  (          %      &' (  ) *$  +% #  3" % "# #$   -  $" #$   0" 4 *# &" %" $" &" $* 3"   " #$  % "# $" &" 5""   " #$  $""   ' $" #$   " $" &" &*- 3"  " #$  "!0 % $" #$  - " - " & - " - " - "
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.