Morgunblaðið - 14.03.2002, Blaðsíða 19
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 19
Reykjavík frá kr. 3.700,- á dag
Alicante frá kr. 2.214,- á dag
Mallorca frá kr. 2.214,- á dag
Madrid frá kr. 2.214,- á dag
Barcelona frá kr. 2.214,- á dag
Nánari uppl. í síma
591 4000
Verð miðast við flokk A
Lágmarksleiga 7 dagar
Innifalið: Ótakmarkaður akstur,
trygging og vsk.
Gildir til 31/03/02
Knarrarvogur 2 – 104 Reykjavík
Avis býður betur ... um allan heim
Traustur alþjóðlegur þjónustuaðili
DILKÆR fannst nýlega í Hrauk-
um inni við Vatnajökul vestan
Snæfells. Það voru Gísli Pálsson
bóndi á Aðalbóli og Anna Hall-
dórsdóttir bóndi á Brú, sem fóru
á vélsleðum að leita fjár á Vest-
uröræfum, sem fundu kindurnar.
Þetta reyndist dilkær með eitt
lamb frá Vaðbrekku. Kindurnar
voru þokkalega á sig komnar
enda ágætt til jarðar í Hrauk-
unum þar sem þær fundust. Að
sögn Gísla er góð jörð um öll
Vesturöræfi svo ekki væsti um
féð.
Vel gekk að handsama kind-
urnar og voru þær bundnar niður
á skel aftan í öðrum sleðanum og
fluttar þannig niður í Hrafnkels-
dal.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Anna Halldórsdóttir og Gísli Pálsson með ána og lambhrútinn þegar
þau skiluðu þeim til síns heima eftir að hafa fundið þau á öræfunum.
Kindur finnast
við Vatnajökul
Norður-Hérað
BÖRNIN í grunnskóla og leikskóla
Siglufjarðar fögnuðu sólkomunni ný-
verið. Vegna landfræðilegra hátta
sést sólin ekki á Siglufirði frá því í
lok nóvember og fram til loka janúar.
Í tilefni af sólkomunni hefur skapast
sá siður á Siglufirði að fullorðnir og
börn gæði sér á pönnukökum á sól-
komudaginn, 27. janúar, ár hvert.
Þessi siður er alþekktur meðal
Siglfirðinga og margir þeirra hafa
haldið þessum sið þó svo að þeir hafi
flutt á suðlægari slóðir. Í tilefni sól-
komunnar nú var efnt til sérstakra
þemadaga í grunnskólanum og leik-
skólanum Leikskálum. Nemendur
unnu að sérstökum verkefnum
tengdum sólinni og sigri hennar yfir
vetrarríkinu. Smíðuð voru ýmiskon-
ar hljóðfæri og búnir til litríkar
grímur, hattar og veifur, auk þess
sem sérstakur dreki var gerður til að
leiða litríka skrúðgöngu og heilsa
sólinni. Því miður hafði veturinn sig-
ur í fyrstu atrennu því fresta varð
skrúðgöngunni um skeið vegna veð-
urs. Þrátt fyrir töluverðan snjó fór
skrúðgangan síðan fram á dögunum.
Það ríkti sannkölluð karnival-
stemmning þar sem bæði nemendur
og kennarar gengu um bæinn og
virtust skemmta sér hið besta. Til að
þakka fyrir móttökurnar og heilsa
göngufólkinu lét sólin geisla sína
leika um snævi þakta náttúruna.
Morgunblaðið/Halldór
Búinn var til dreki sem leiddi skrúðgönguna og heilsaði sólinni.
Börnin fögnuðu
sólkomunni
Siglufjörður